Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MARS 2001
ÁSTRÁÐUR Eysteinsson og MatthíasViðar Sæmundsson hafa starfað umárabil við bókmenntakennslu í Há-skóla Íslands en þeir þróuðu hug-
myndina að þinginu, sem haldið er á vegum
Hugvísindastofnunar og Bókmenntafræði-
stofnunar HÍ. Blaðamaður hitti þá að máli á
kaffistofu Hugvísindastofnunar þar sem þeir
sátu fyrir svörum um þær margvíslegu spurn-
ingar varðandi íslenskt bókmenntalíf sem tek-
ist er á við á umræðuvettvangi af þessu tagi.
Þingið stendur alla helgina og þar munu yf-
ir þrjátíu kennarar í bókmenntum innan heim-
spekideildar Háskólans halda stutt erindi um
valdar skáldsögur. Þingið er ætlað áhuga-
mönnum um bókmenntir og er þar fjallað um
skáldsögur sem hafa annaðhvort verið frum-
samdar eða þýddar á íslensku á tuttugustu öld
en að öðru leyti hafa fyrirlesarar frjálsar
hendur um efnistök og fræðilegt sjónarhorn. Í
erindum sínum koma fyrirlesarar víða við. Þar
ægir saman skáldsögum eftir íslenska og er-
lenda höfunda. Fjallað er um verk úr ítölsk-
um, rússneskum, finnskum og suður-afrískum
veruleika jafnframt því sem íslenskar nútíma-
skáldsögur eru túlkaðar í tengslum við stór-
virki úr bókmenntasögunni. Að sögn aðstand-
enda þingsins er þannig leitast við að skapa
eins konar margradda samræðu bókmennta-
fræðinga Háskólans við heim skáldsögunnar á
liðinni öld.
Lesendur ræða við lesendur
Ástráður og Matthías eru í fyrstu spurðir
hver sé grunnhugmyndin að baki þingi sem
þessu.
Ástráður verður fyrri til svara og segir hug-
myndina upphaflega hafa orðið til í kringum
fyrirætlanir um að gefa út fræðirit um skáld-
söguna. „Við Matthías höfum um árabil verið
ritstjórar Fræðirita sem gefin eru út á vegum
Bókmenntafræðistofnunar, og skiptumst við á
að sjá um það rit. Nú var komið að mér og fór
ég að velta fyrir mér hvernig hægt væri að
virkja þá sem starfa við bókmenntakennslu í
heimspekideild og gera jafnframt eitthvað
sem væri spennandi fyrir almenning. Þá
kviknaði þessi hugmynd, þ.e. að fá stóran hóp
fræðimanna til að halda stutta fyrirlestra um
eina skáldsögu hver, og búa þannig til form
sem gæti höfðað til fræðimanna og almenn-
ings.“ Ástráður bar hugmyndina undir Matth-
ías sem fannst hún góð og þróuðu þeir hana
frekar í kjölfarið. „Víð ímyndum okkur nefni-
lega að fræðileg gagnrýni komi öllum við, ekki
aðeins sérvitringum í fílabeinsturnum Háskól-
ans,“ segir Matthías. „Þannig er þingið byggt
upp á stuttum fimmtán mínútna fyrirlestrum.
Reynt er að tryggja fjölbreytni og hraða, flæði
fram og aftur um bókmenntasöguna, sem
verður vonandi skemmtilegt áheyrnar. Fram-
setningin er með öðrum orðum miðuð við
„ÍSLENSK MENNING ER
SAMSETTUR HEIMUR“
Heimur skáldsögunnar er
yfirskrift viðamikils þings
sem haldið er nú um
helgina í stofu 101 í
Odda. HEIÐA
JÓHANNSDÓTTIR ræddi
af því tilefni við tvo skipu-
leggjendur þingsins, þá
Ástráð Eysteinsson pró-
fessor og Matthías Viðar
Sæmundsson dósent, um
þingið og viðfangsefni
þess, bókmenntirnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ástráður Eysteinsson og Matthías Viðar Sæmundsson skeggræða um viðfangsefni skáldsagnaþings sem haldið er nú um helgina.
LAUGARDAGUR 24. MARS
9.30 Þingsetning
9.40 Álfrún Gunnlaugsdóttir: Undra-
borgin eftir Eduardo Mendoza
10.00 Úlfhildur Dagsdóttir: Augu þín sáu
mig eftir Sjón
10.20 Svavar Hrafn Svavarsson: Ódysseif-
ur eftir James Joyce
10.40 Ármann Jakobsson: Íslandsklukkan
eftir Halldór Laxness
11.00 Hlé
11.15 Viola Miglio: Nafn Rósarinnar eftir
Umberto Eco
11.35 Árni Bergmann: Meistarinn og
Margaríta eftir Búlgakov
11.55 Lise Hvarregaard: Gestaboð Ba-
bette eftir Karen Blixen
12.15 Hádegishlé
13.30 Svanhildur Óskarsdóttir: Bréfbáta-
rigningin eftir Gyrði Elíasson
13.50 Ásdís Egilsdóttir: Morgunþula í
stráum eftir Thor Vilhjálmsson
14.10 Geir Svansson: Björn og Sveinn eft-
ir Magnús Þór Jónsson
14.30 Sari Päivärinne: Manillareipið eftir
Veijo Meri
14.50 Ásdís R. Magnúsdóttir: Gargantúi
og Pantagrúll eftir Rabelais
15.10 Hlé
15.30 Baldur Gunnarsson: Moby Dick eft-
ir Herman Melville
15.50 Matthías Viðar Sæmundsson: Djúp-
ið eftir Steinar Sigurjónsson
16.10 Kristján Árnason: Gullasninn eftir
Apuleius
16.30 Gro Tove Sandsmark: Ofurnæfur
eftir Erlend Loe
16.50 Gottskálk Þór Jensson: Satýríkon
eftir Petróníus
SUNNUDAGUR 25. MARS
10.00 Rúnar Helgi Vignisson: Vansæmd
eftir J.M. Coetzee
10.20 Sveinn Yngvi Egilsson: Hjartað býr
enn í helli sínum eftir Guðberg
Bergsson
10.40 Jens Lohfert Jörgensen: Frú María
Grubbe eftir J.P. Jacobsen
11.00 Hlé
11.15 Gauti Kristmannsson: Vörnin eftir
Vladimir Nabokov
11.35 Birna Bjarnadóttir: Sú kvalda ást
sem hugarfylgsnin geyma eftir Guð-
berg Bergsson
11.55 Margrét Jónsdóttir: Don Kíkóti eft-
ir Cervantes
12.15 Hádegishlé
13.30 Guðni Elísson: Vængjasláttur í þak-
rennum eftir Einar Má Guðmunds-
son
13.50 Oddný Sverrisdóttir: Blikktromman
eftir Günter Grass
14.10 Ástráður Eysteinsson: Ameríka eft-
ir Frans Kafka
14.30 Garðar Baldvinsson: Leigjandinn
eftir Svövu Jakobsdóttur
14.50 Njörður P. Narðvík: Ragnar Finns-
son eftir Guðmund Kamban
15.10 Hlé
15.30 Soffía Auður Birgisdóttir: Íslensk-
ur aðall eftir Þórberg Þórðarson
15.50 Irma Erlingsdóttir: Í leit að glöt-
uðum tíma eftir Marcel Proust
16.10 Guðrún Nordal: Innansveitarkron-
ika eftir Halldór Laxness
16.30 Guðrún Björk Guðsteinsdóttir:
Stúlkan með Botticelliandlitið eftir
W.D. Valgardssson
16.50 Þingslit
Fyrirlestrar sem verða ekki fluttir á
þinginu en verða með í ritinu sem gefið
verður út með öllum fyrirlestrum þingsins:
Bergljót Kristjánsdóttir: Gerpla eft-
ir Halldór Laxness
Torfi Tulinius: Sjálfstætt fólk eftir
Halldór Kiljan Laxness
Vefslóð þingsins er: http://
www.skaldsagnathing.hi.is
DAGSKRÁ ÞINGSINS HEIM-
UR SKÁLDSÖGUNNAR
STOFA 101 Í ODDA