Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. APRÍL 2001 3 V ARLA er til nokkuð erf- iðara fyrir son en að fyr- irgefa móðurbana sínum. Um það þekkja landsmenn þó nýlegt dæmi. Hvílíkur himinhrópandi munur er á afstöðu þessa manns og þeirra manna og þeirra ríkja sem lögleiða líflátshegningu fyrir áþekka glæpi. Þó að það hljómi undarlega verður í raun- inni að ætla að í báðum tilfellum, með dauðarefsingu og fyrirgefningu, sé ætlunin að gera eins gott úr málunum og mögulegt er. Því er ómaksins vert að reyna að gera sér grein fyrir rökstuðningnum fyrir svo gerólíkum lausnum á miklum vanda. Nú veit ég ekki hvort ég met rétt hugs- anagang hins göfuglynda sonar sem taldi rétt að fyrirgefa misgerðarmanninum. Ég tel þó víst að hann álíti nauðsynlegt að fleiri ráðstafanir fylgi. Tvenns þarf þá að gæta. Það er í samræmi við fyrirgefninguna að leita afbrotamanninum allra þeirra lækn- inga sem tiltækar eru, en um leið þarf að tryggja sem best að hann haldi ekki upp- teknum hætti. Þegar betur er að gáð fara þessar ráðstafanir vel saman. Hvort sem af- brotið stafar af tímabundinni vímu eða öðr- um truflunum á lundarfari, meðfæddum eða áunnum, ætti lækningin, ef möguleg er, að draga úr þeirri hættu að hann haldi áfram á sömu óheillabraut. Auðvitað er æskilegast að hann gangist sjálfviljugur undir þessa meðferð, en líka getur verið nauðsynlegt að fylgja málinu eftir með að- haldi, jafnvel eins konar frelsissviptingu. Fangelsi, eins og þau tíðkast hér á landi og annars staðar, ættu þó að vera allra síðasta neyðarúrræðið sem ekki yrði gripið til nema til að afstýra hættu sem af afbrota- manninum stafaði að öðrum kosti. En nú munu menn spyrja: Hvað um for- dæmið sem er gefið með því að miklar sakir séu svo að segja gefnar upp? Verður það ekki til þess að ýta undir að sams konar af- brot verði framin? Fyrirfram er erfitt að dæma um það. En úr því vandamáli ætti að mega skera með víðtækum samanburði á mismunandi réttarfari, ströngum og væg- um refsingum, og að því verður vikið á eftir. Dauðarefsing tíðkast enn í mörgum lönd- um þó að flestar siðmenntaðar þjóðir hafi útrýmt henni hjá sér með því að samþykkja mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóð- anna án skilyrða. Varla er hægt að líta á slíka hegningu öðruvísi en eins konar hefnd, blóðhefnd. Þessari tilhögun fylgir þó sá kostur, ef kost skyldi kalla, að tryggt er að brotamaðurinn muni ekki halda áfram af- brotum. En það eru augljós mótrök að með lífláti er í rauninni verið að fremja grimmi- legan glæp, sem er því verri sem fórnar- lambið er gersamlega varnarlaust, en það er einmitt ódrengilegur verknaður af versta tagi. Önnur veigamikil andmæli eru þau að ekkert réttarfar í heiminum er eða hefur verið óskeikult. Því getur vel til þess komið, og það gerist hvað eftir annað, að eftir að líflátshegningu hefur verið framfylgt komi í ljós að hinn ákærði var saklaus. Þriðja og kannski þýðingarmesta röksemdin er sú að ýmsar athuganir hafa bent til þess að strangar refsingar dragi ekki úr glæpum. Um þetta má vitna til ritsins Afbrot og Ís- lendingar eftir Helga Gunnlaugssson kenn- ara í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Hann segir að rannsóknir fræðimanna bæði vestan hafs og austan sýni að jafnvel stór- hertar refsingar hafi almennt ekki meir en tímabundin áhrif í mesta lagi á tíðni afbrota. Sérstaklega segir hann að þetta eigi við um ofbeldisbrot fremur en fjármunabrot, enda séu mörg ofbeldisbrotin persónulegir harmleikir, framin í hita augnabliksins án mikillar fyrirhyggju. Þá kemur kalt mat gerandans á þyngd refsinga lítið við sögu og hefur þar af leiðandi ekki sýnt sig að vera fælandi frá slíkum afbrotum. Í þessu riti bendir Helgi á ýmis manneskjuleg viðurlög. Þar á meðal telur hann samfélagsþjónustu, að láta menn vinna ýmis þjóðþrifaverk, svo sem í tengslum við afleiðingu brota sinna eða umhverfisvernd í stað þess láta þá dúsa meira og minna iðjulausa bak við lás og slá sér til mannskemmda, en ársfangelsi kostar reyndar samfélagið þrjár milljónir króna á ári. Afplánun í heimahúsum með vissum skilyrðum hefur sums staðar borið góðan árangur. Og ekki er kannski þýðingar- minnst að draga úr pólitískri og efnalegri mismunun í þjóðfélaginu því að hún eykur líkur á auðgunar- og ofbeldisbrotum. En ég tel líka umhugsunarvert hvort strangar refsingar eins og líflát geti ekki haft aðrar óhugnanlegar keðjuverkanir. Það er áberandi í fréttum frá sumum lönd- um að óbreyttir þegnar geri háværar kröf- ur um að afbrotamenn verði dæmdir til dauða. Þessu fylgja oft tilfinningaþrungnar yfirlýsingar um hvílíkur léttir og fróun það yrði fyrir þá sem brotið hefur verið á eða vandamenn þeirra. Í kjölfarið kemur svo stundum magnað almenningsálit sem tekur undir kröfurnar. Kannanir sýna að veruleg- ur meirihluti sumra þjóða er hlynntur dauðarefsingu.. Og til samræmis við þessa afstöðu verður það gjarnan afstaða almenn- ings að ætlast til álíka hörku á öðrum svið- um, ekki síst í deilum við önnur ríki. Þessa afstöðu fjöldans til refsinga og styrjalda gera ráðamennirnir svo að sinni og telja vænlegt til fylgis í kosningum að mæla fyrir ómannúðlegum hegningum innan lands og níðingsverkum gagnvart öðrum þjóðum.Til þessa má jafnvel rekja ýmsar árásarstyrj- aldir og viðskiptabönn sem hafa valdið ómældum þjáningum og fjöldadauða. Þann- ig hefur líflátshegningin ef til vill alvarlegri afleiðingar fyrir friðinn í heiminum en flesta grunar. Og það er sorglegt að íslensk stjórnvöld hafa látið hafa sig til þess að fylgja öðrum voldugri og refsiglaðari þjóð- um í svo miskunnarlausum aðgerðum gagn- vart saklausum almenningi hjá framandi þjóðum. Meiri ástæða væri til að krefjast þess á alþjóðavettvangi að allar þjóðir und- irriti skilyrðislaust mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og útrými þar með líf- látshegningunni, einni af orsökum kúgunar og styrjalda. Markmið viðurlaga við af- brotum ætti að vera betrun í eiginlegri og góðri merkingu, en ekki hefnd, og þaðan af síður blóðhefnd. VIÐURLÖG VIÐ AF- BROTUM: HEFND EÐA BETRUN? RABB P Á L L B E R G Þ Ó R S S O N GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON REYKJAVÍK Við sævarljómans silfurskrúð þú situr, flóans drottning prúð með lýsigull um ljósan fald við loftsins heiðblátt sumartjald. Í ljóði’ og söng þjer lútum vjer, líf vort og starf skal dáðríkt helgað þjer! Þín framtíð Íslands örlög ber um aldir fram í skauti sjer, – ef heilnæmt er þitt hjartablóð, skal hraust í landi ríkja þjóð. Mót heiðum degi hreinan skjöld hef þú og kveð til dáða nýja öld! Og mun þú, mun þú umfram alt, að íslenzk móðir vera skalt, og ger þú útlægt glys og prjál, sem glatar þinna barna sál: Við arineld þinn stöndumk vjer, unga tímans dís, með lyftum hug og höndum, – á himin dagur rís! Vjer bindumst traustum tengslum að tryggja hjer vort ból, í djúpum dagaþrengslum, þótt dragi fyrir sól! Guðmundur Guðmundsson (1874–1919), sem hafði auknefnið skólaskáld, orti í anda nýrómantíkur. Af ljóðabókum hans má nefna Ljóðmæli (1900). Hann er talinn aðalhöfundur Alþingisrímna (1902).FORSÍÐUMYNDIN Place de l’Europe, París, 1932, eftir Henri Cartier-Bresson. Sýning á verkum ljósmyndarans verður opnuð í Listasafni Akureyrar í dag. Vampýran, vinir hennar og ættingjar eru umfjöllunar- efni Úlfhildar Dagsdóttur í grein sem hún kallar Blóðþyrstir berserkir. Úlfhildur seg- ir að vampýran sé ekki endilega sú sem við höldum, það er Drakúla greifi, heldur birt- ist hún í ýmsum gervum og hlutverkum. Halldór Laxness er ekki höfundur sem menn herma auðveld- lega eftir,“ segir Einar Már Guðmundsson í grein um skáldið sem hefði orðið 99 ára á mánudaginn kemur, Degi bókarinnar, „og slíkt er í sjálfu sér ekki eftirsóknarvert,“ heldur Einar Már áfram. „Slíkt væri eins og falsað málverk. Hver höfundur finnur sinn tón sjálfur en það gerir hann með hjálp annarra höfunda. Á þann hátt verða bók- menntirnar til.“ Beckett-hátíð verður haldin í Borgarleikhúsinu á morgun kl. 14.30 og annað kvöld hefjast í Sjónvarp- inu sýningar á nýjum kvikmyndum sem gerðar hafa verið eftir öllum 19 leikritum Samuels Beckett. Af því tilefni fjallar Soffía Auður Birgisdóttir um írska Nóbelsskáldið og nokkur verka þess og Árni Þórarinsson um kvikmyndirnar sem sýndar verða. Hans Werner Henze verður 75 ára á árinu. Sigrún Davíðsdóttir sá nýja uppsetningu á fyrstu óperu þýska tónskáldsins, Boulevard Solitude, í Covent Garden og rennir yfir feril Henzes. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 1 5 . T Ö L U B L A Ð - 7 6 . Á R G A N G U R EFNI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.