Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Qupperneq 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. APRÍL 2001 neskjulegt götulíf og grófur lífsmáti endur- spegluðu oft hið frumstæða í mannseðlinu. Þegar hér var komið sögu var hann byrjaður að taka ljósmyndir. Cartier-Bresson hafði séð ljósmynd eftir Martin Munkasci af þremur drengjum að leik í flæðarmáli; hann heillaðist þá af möguleikum miðilsins. „Þessi mynd fang- aði mannlífið og sýndi mér að ljósmyndun væri aðferð til að fanga líf, það sem ekki væri hægt að teikna á hefðbundinn hátt,“ segir hann. Cartier-Bresson átti gamla og klunnalega myndavél sem ljós lak inní og á hana eru tekn- ar elstu myndirnar sem til eru eftir hann, frá 1931. Um haustið sama ár var hann í verslun í Marseilles og keypti myndavél sem var ný- komin á markað. Það var þýsk Leica. Þótt þetta væri ekki fyrsta vélin sem var hönnuð fyrir 35mm filmur, þá var hún mun fullkomnari en aðrar myndavélar þess tíma; létt og sterk- byggð, hljóðlát og linsan ákaflega skörp og vönduð. Þarna má segja að ferill þessa mikla ljósmyndara hafi hafist. Leican varð óaðskilj- anlegur hluti af Cartier-Bresson og segja má að afköst hans við myndatökur og gæði mynda áranna sem fóru í hönd, séu með ólíkindum. Fáar ljósmyndir hafa varðveist frá 1931 en eitthvað um 30 frá 1932. Þær sýna hversu góðu valdi hann náði strax á tækninni og ekki síður hæfileika hans við að nýta myndflötinn. Inn- römmunin, hreyfingin og síðan svipbrigði fólks á myndunum; allt er þetta í samræmi. Frá þessum tíma hefur Cartier-Bresson einbeitt sér að fólki; sýnir það í umhverfi sínu. Súrrealistinn Í fyrstu var hann hvað hrifnastur af ljós- myndaranum Eugéne Atget og vildi mynda götuuppstillingar, vinna í svipuðum stíl og hann. En með Leica-vélinni tóku áherslurnar að breytast. Hann fór að skoða heiminn á nýj- an hátt, og að hans sögn var myndavélin ein- ungis framlenging augans. Hann varð fyrir áhrifum frá Man Ray, Brassai, en þó sérstak- lega André Kertész, sem hann sagði hafa verið Henri Cartier-Bresson var áhrifamesti ljósmyndari tuttugustu ald- arinnar. Hann hafði ómetanleg áhrif á þróun frétta- og heimilda- ljósmyndunar og það hvernig ljósmyndarar hafa túlkað hversdags- lífið. Meistari í myndbyggingu sem sýndi fólki hvernig ætti að fanga augnablikið. Í dag verður opnuð í Listasafni Akureyrar sýn- ing á myndum Cartier-Bressons frá París; sýning sem er viðburður í íslensku listalífi. Í júní verður hún sett upp í Ljósmyndasafni Reykja- víkur. EINAR FALUR INGÓLFSSON fjallar hér um ljósmyndarann. Ile de France, París. 1956. LJÓSMYNDARI Sjaldgæf sjón; ljósmynd af Henri Cartier-Bresson, tekin í sýning- arsal í París fyrir rúmu ári. Þá var ljósmyndarinn sem vill ekki láta mynda sig 91 árs gamall. Associated Press T UTTUGUSTA öldin var öld ljós- myndunar. Þessi miðill sem sleit barnsskónum á þeirri nítjándu og ógnaði þá hefðbundnum listform- um, varð að almenningseign þar sem ljósmyndir skrásettu jafnt hversdagslegt einkalífs fólks sem fjarlægar deildir jarðar. Ljós- myndin varð um leið áhald fyrir lista- og fréttamenn. Þessi tvö svið, persónuleg túlkun atburða og hlutlæg lýsing þeirra, birtast bæði í höfundarverki þess manns sem fullyrða má að sé áhrifamesti ljósmyndari aldarinnar sem er nýliðin. Þar á ég við þau áhrif sem Henri Cart- ier-Bresson hafði á sviði listrænnar og mann- lífsljósmyndunar, og á fréttaljósmyndun. Svo hefur einfaldlega enginn ljósmyndari tekið jafn mikið af framúrskarandi góðum og hríf- andi ljósmyndum og hann. Það er mikið fagnaðarefni, og stórviðburður í íslensku listalífi, að loksins skuli verða opnuð á Íslandi einkasýning með úrvali mynda þessa franska meistara. Á sýningunni, sem Listasafn Akureyrar og Ljósmyndasafn Reykjavíkur höfðu samstarf um að fá til landsins, gefur að líta myndir sem Cartier-Bresson tók á hálfrar aldar tímabili í heimaborg sinni, París. Cart- ier-Bresson flakkaði víða á ferli sínum en ætíð sneri hann aftur heim og myndaði í borginni við Signu. Og líklega á hann stóran þátt í að skapa þá ímynd sem Frakkar og Frakkland hafa í hugum manna í dag. Henri Cartier-Bresson fæddist árið 1908 og býr enn við ágæta heilsu í nágrenni við Louvre-safnið í París, kominn á nítugasta og þriðja aldursár. Það er þó ólíklegt að hann birt- ist hér í tilefni sýningarinnar, þar sem hann er hættur að fljúga; hefur um sína daga séð meira af heiminum en flestir aðrir. Hann er af auð- ugu fólki kominn og hneigðist ungur að listum. Á unglingsárum hlaut hann tilsögn í málun, meðal annars hjá J-B Blance, en nokkur mál- verka hans eru á frönsku sýningunni Náttúru- sýnir sem hefur staðið yfir í Listasafni Íslands síðustu vikurnar. Blance tók unglinginn undir sinn verndarvæng og fór með hann að hitta skáldkonuna Gertrude Stein. Þegar Stein sá myndir unga mannsins ráðlagði hún honum að halda sig við vefnaðariðnað fjölskyldunnar. Framlenging augans Cartier-Bresson var sautján ára er hann kynntist nýstofnaðri hreyfingu súrrealistanna í París og hugmyndafræði þeirra átti eftir að hafa varanleg áhrif á unga manninn. Auk þess gleypti hann í sig skrif um heimspeki og fram- úrstefnubókmenntir þess tíma; hann var kom- inn í uppreisn gegn borgaralegum bakgrunni sínum. Hann dvaldist um tíma í Cambridge og var að teikna, en var kallaður til að gegna her- þjónustu í eitt ár þegar heim kom. Hann fyr- irleit hermennskuna og fór ekki dult með það. Hann átti að standa á verði á herflugvelli við París og hefur sagt frá því að hafa mætt á vakt með riffil á öxlinni og eintak af Ódysseifi eftir Joyce undir hinum handleggnum. Næturvökt- um var eytt í veislum á nálægu vændishúsi. 1930 hélt Cartier-Bresson til Afríku og dvaldist í eitt ár á Fílabeinsströndinni; veiddi dýr á næturna og seldi. Þar gerði hann sam- klippur í anda vinar síns Max Ernst og límdi á póstkort með safa úr gúmmítré. Þegar hann sneri aftur til Parísar hélt hann sig með hópum sem kenndu sig við nýstefnu í listum. Hann ferðaðist einnig mikið, til Austur- Evrópu, Ítalíu og Spánar. Enginn af þessum stöðum var eins framandi og Afríka en Henri gerði sér far um að leita uppi dularfyllstu stað- ina og verstu hverfi borganna, þar sem harð- sér sem „ljóðræn uppspretta“. Rétt eins og Kertész var hann ástfanginn af augnablikinu en formgerð mynda Cartier-Bressons er þó iðulega sterkari. Hann útskýrði hvað skipti máli í því sambandi: „Að taka ljósmynd er að veita athygli – samtímis og á sekúndubroti – bæði sjálfri staðreyndinni sem ber fyrir augun og hárnákvæmri niðurskipan sjónrænna for- ma sem gefa henni merkingu. Til þess þurfa höfuð, auga og hjarta að vinna saman og bein- ast í sömu átt.“ Myndir áranna 1932 til 35 bera aðdáun Cart- ier-Bressons á súrrealismanum skýrt vitni og einnig þeirri trú hans að listina mætti greina frá daglega lífinu. Ljósmyndin átti að sýna ein- hverjar aðstæður sem yrðu að list í sjálfu sér, myndin yrði listræn eining sem áhorfandinn þyrfi ekki að vita neitt meira um, úr henni mætti í senn lesa allt og ekkert. Honum fannst að hlutverk súrrealismans væri að taka brot úr hversdagslegum aðstæðum og skapa úr því list – og ef til vill auðnaðist honum það betur en nokkrum öðrum. Haustið 1933 var fyrsta sýningin á myndum Cartier-Bressons haldin. Sýningarsalurinn var í New York og gagnrýnendur voru hrifnir. Í kjölfarið fór ljósmyndarinn til Mexíkó þar sem hann dvaldist um hríð og hélt síðan sýningar þar og í Bandaríkjunum með Manuel Alvares Bravo og Walker Evans. En hugur Cartier- Bresson var farinn að hneigjast að kvikmynda- gerð og við tók tímabil þar sem hann starfaði meðal annars sem aðstoðarleikstjóri hjá Buñ- uel og Jean Renoir. En 1937 urðu enn á ný um- skipti í lífi hans, þegar hann gekk að eiga dans- ara frá Balí. Þá dugði honum ekki lengur til viðurværis peningarnir sem hann fékk frá fjöl- skyldunni og hann réð sig sem ljósmyndara á Ce Soir, vinstrisinnuðu síðdegisblaði sem Lou- is Aragon ritstýrði. Í fyrsta sinn var Cartier- Bresson að ljósmynda eftir óskum annarra. Við blaðið störfuðu samtímis honum ljósmynd- ararnir Robert Capa, sem oft hefur verið kall- aður mesti stríðsljósmyndari allra tíma, og Chim. Með þeim tókst vinátta; þeir nutu meira

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.