Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Page 17
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. APRÍL 2001 17
NÆSTU tónleikar á afmælisári íGarðabæ verða haldnir í Tónlistar-skóla Garðabæjar á morgun,sunnudag, kl. 17. Tónleikar voru
áður auglýstir í Kirkjuhvoli 21. apríl en flytj-
ast til.
Á tónleikunum koma fram tveir rússneskir
listamenn, fiðluleikarinn Elena Denisova og
píanóleikarinn og hljómsveitarstjórinn Alexei
Kornienko, en þau eru nú bæði búsett í Aust-
urríki og hafa austurrískt ríkisfang.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Hel-
muth Neumann, Johannes Brahms, Heifetz,
J.S. Bach, K.M. Weber, J. Brahms, I. Albeniz,
G. Dinicu, M. Ponce Estrellita og D. Milhoud.
Elena Denisova er fædd í Moskvu og hóf
nám í fiðluleik við Tónlistarháskólann þar í
borg fimm ára gömul. Kennarar hennar voru
m.a. Valerij Klimov og Oleg Kagan.
Hún hefur unnið til verðlauna í alþjóðleg-
um fiðlukeppnum svo sem í Prag (1976) og
Zagreb (1985).
Denisova hefur getið sér góðan orðstír fyr-
ir leik sinn bæði hjá áheyrendum og gagnrýn-
endum hvort heldur sem einleikari með
hljómsveit eða með eiginmanni sínum, píanó-
leikaranum Alexei Kornienko. Þá hefur hún
hlotið alþjóðlegt lof fyrir leik sinn með kamm-
erhópum Gustav Mahler Ensamble svo og
„Þjóðarkvartett Moskvu“.
Alexei Kornienko, sem fæddur er í Novo-
sibrisk, hóf kornungur píanónám við Tónlist-
arháskólann í Moskvu og síðar hljómsveit-
arstjórn við sama skóla.
Hann hlaut fyrstu verðlaun í 1. píanó-
keppninni sem haldin var í Los Angeles í
Bandaríkjunum og kennd er við Rachman-
inoff. Síðan hefur hann leikið í öllum helstu
tónleikasölum bæði austanhafs og vestan.
Hann hefur vakið athygli, ekki eingöngu
með rússneskri píanótónlist og Chopin heldur
og Beethoven en píanósónötur hans allar 32
hefur hann leikið víða og fengið lof fyrir.
Alexei er einnig eftirsóttur hljómsveitar-
stjóri bæði í óperum og á hljómleikum. Hann
er listrænn stjórnandi hinnar nýstofnuðu
listahátíðar í Austurríki „Wörthersee Clas-
sic“. Í júní 2002 stjórnar hann „The Royal
Philharmonic Orchestra“ í London.
Alexei KornienkoElena Denisova
Rússnesk-
ir tónlist-
armenn
í Garða-
bæ
YFIRGRIPSMIKIL sýning á verkum nor-
rænna ljósmyndara hefur verið opnuð í
Norræna húsinu í New York. Þar er að
finna um 50 verk 12 ljósmyndara undir yf-
irskriftinni Svipir og ásýnd; Samtímaljós-
myndun á Norðurlöndum. Meðal þeirra eru
verk íslensku ljósmyndaranna Spessa, Ein-
ars Fals Ingólfssonar og Ragnars Axels-
sonar.
Verkin á sýningunni spanna síðari hluta
20. aldar og fara þar saman verk vel
þekktra og áhrifamikilla ljósmyndara á borð
við Christer Strömholm og Sune Jonsson
frá Svíþjóð og Kare Kivijarvi frá Noregi,
yngri ljósmyndara sem skapað hafa sér nafn
auk síður kynntra norrænna ljósmyndara.
Manneskjan í miðið
Þetta er í þriðja sinn sem Norrænu sam-
tökin í New York efna til sýningar á verkum
norrænna ljósmyndara. Sú fyrsta var haldin
í Walker-listamiðstöðinni í Minneapolis árið
1982 og önnur í Alþjóðlegu ljósmyndamið-
stöðinni í New York árið 1994 þar sem hald-
ið var áfram að rekja sögu ljósmyndunar á
Norðurlöndum. Að þessu sinni er sjónum
beint að verkum ljósmyndara þar sem meg-
inviðfangsefnið er manneskjan.
Umsjón með sýningunni höfðu þau Oivind
Storm Bjerke, yfirmaður Norska ljós-
myndasafnsins í Horten, og Ann Sass, sýn-
ingarstjóri Norræna hússins í New York,
sem stýrði vali íslensku þátttakendanna.
Sass segir markmiðið með vali á verk-
unum ekki síst það að sýna fram á al-
þjóðlegt samhengi norrænnar ljósmyndun-
ar. „Því er gjarnan ranglega haldið fram að
norræn ljósmyndun sé köld, slétt og felld og
oftar en ekki bundin við landslagsljósmynd-
un. Sannleikurinn er hins vegar sá að þó að
umhverfið hafi áhrif á stemmingu verkanna
er nærvera manneskjunnar öðru yfirsterk-
ari,“ segir Sass. „Hvað þetta varðar eru við-
fangsefni norrænna ljósmyndara í engu frá-
brugðin og ekki síður eftirtektarverð en það
sem hæst ber í ljósmyndun annars staðar í
Evrópu og í Bandaríkjunum um þessar
mundir.“
Verk Spessa á sýningunni eru úr mynda-
röðinni Hetjur frá 1998. Þetta eru portrett-
myndir af hversdagshetjum Spessa heima á
Ísafirði. Einar Falur Ingólfsson sýnir hluta
stærra verks, röð dags- og staðsettra sjálfs-
mynda sem teknar eru víða um heim og
hann hefur unnið að allt frá árinu 1992.
Ljósmyndir Ragnars Axelssonar eru mynd-
röð úr verkefni sem sýnir lífshætti á Íslandi,
Grænlandi og í Færeyjum. Sýningin stend-
ur til 29. júlí.
Ásýnd nor-
rænnar
samtímaljós-
myndunar
í New York
Gestir á opnun norrænu ljósmyndasýningarinnar Faces and Figures í Scandinavia House í New
York, skoða tuttugu sjálfsmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gestir skoða fjórar af tíu myndum Ragnars Axelssonar frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
New York. Morgunblaðið.
FRANSKA ríkið ætti að koma á stofn
ríkishappdrætti til að viðhalda listaarfi
landsins að mati Pierre Rosenberg,
fyrrum forstöðumanns Louvre safns-
ins. Rosenberg sem lét nýlega af emb-
ætti hefur að sögn bandaríska dag-
blaðsins New York Times lýst yfir
áhyggjum sínum af því að frönsk lista-
verk séu oft á tíðum seld úr landi þar
sem ekki séu nægir fjármunir ætlaðir
söfnum til listaverkakaupa.
Vikulegt happdrætti á borð við
breska lotteríið telur Rosenberg hins
vegar geta gagnast listaverkaeign
Frakklands, en Bretar hafa frá því á
miðjum tíunda áratugnum notað hluta
vikulegs happdrættis síns til viðgerða
og uppbyggingar á listasöfnum, leik-
húsum og tónleikasölum.
Í Frakklandi hefur hins vegar jafnan
verið litið svo á að ríkisstjórnin beri
fulla ábyrgð á menningararfleifð lands-
ins þó að mati Rosenbergs séu fjárveit-
ingar ríkisins til menningarmála engan
veginn fullnægjandi. En söfnin deila nú
með sér rúmlega tveggja milljarða
króna fjárveitingu á ári. Kaup á verki
eftir listamann á borð við Cézanne kann
því að reynast safni of þungur baggi að
bera, segir Rosenberg sem kveður vá-
leg teikn á lofti því verk eftir meistara á
borð við Degas, Rubens, Modigliani séu
meðal þeirra sem seld hafi verið úr
landi á undanförnum árum.
Kleópatra
í nærmynd
Egypska drottningin Kleópatra er
viðfangsefni nýrrar sýningar sem opn-
uð var í British Museum í London um
páskana. Kleópatra sem heillað hefur
margan í gegnum aldirnar, m.a. rithöf-
undinn og leikritaskáldið William
Shakespeare og endurreisnarlista-
manninn Michaelangelo, er þar skoðuð
með augum fornleifafræðinga sem leit-
ast við að draga fram sem réttasta
mynd af drottningunni. Sýningin nefn-
ist Kleópatra frá Egyptalandi: Frá
sögu til goðsagnar og eru forleifafundir
tengdir drottningunni þar notaðir til að
sýna persónu hennar með augum sam-
tíðarmanna hennar.
Danskur Hamlet með
bosnískum augum
Leikstjórinn Jasenko Selimovic, sem
fyrir átta árum kom til Svíþjóðar sem
bosnískur flóttamaður, frumsýndi í gær
nýja uppsetningu á Hamlet í Mungo
Park leikhúsinu í Danmörku. Þetta
þekkta verk breska leikskáldsins Willi-
am Shakespeares um danska prinsinn
Hamlet fær þó nokkuð sérstaka með-
höndlun hjá Selimovic, einum virtasta
leikstjóra Svía um þessar mundir. En
með uppsetningunni beinir Selimovic
sjónum sínum einkum að yfirvofandi
styrjöld Noregs og Danmerkur. Leik-
stjórar hafa til þessa gjarnan litið fram
hjá styrjaldarhluta verksins og segir
Selimovic ástæðu þess þá að enginn
trúi því að stríð sé mögulegt. „Þegar
maður byrjar að tala um stríðið þá horf-
ir fólk á mann undrunaraugum líkt og
maður sé ofstækissinni,“ segir Selim-
ovic í viðtali við danska dagblaðið Berl-
ingske Tidende og viðurkennir að bak-
grunnur hans frá átakasvæðum fyrrum
Júgóslavíu eigi sinn þátt í uppsetning-
unni.
ERLENT
Happdrætti
bjargi franskri
menningu
Pierre Rosenberg