Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.2001, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. MAÍ 2001
MENNINGARVEFURINN Kistanverður opnaður með pompi ogprakt í dag, laugardaginn 12. maí,klukkan 16 í Listasafni Reykjavík-
ur. Hér er um metnaðarfullt vefrit að ræða
sem ætlað er að stoppa upp í göt sem sumum
þykir hafa myndast í fræðilegri menningar-
umræðu hér á landi á allra seinustu árum.
Kistunni er ætlað að spegla vítt svið og menn-
ingarviðburði af öllu tagi. Meðal annars verður
sú nýbreytni tekin upp að sjónvarpa beint frá
viðburðum. Þá mun Kistan einbeita sér að
gagnrýni og fréttum úr menningarlífinu. Það
sem vekur athygli er að Kistan er öllum opin til
tjá- og skoðanaskipta og ætti það að auka mjög
á hróður ritsins meðal almennings.
,,Þetta vefrit er stofnað upp úr gömlu Kist-
unni sem var vefrit sem rekið var frá 1999 og
sneri einkum að Háskólanum, og innihélt
greinar, einkum fræðigreinar og fyrirlestra-
raðir í rauninni,“ segir Geir Svansson ritstjóri.
,,Í vetur var ákveðið að leggja þá Kistu niður
og stofna nýja á hennar grunni og víkka jafn-
framt út umfjöllunarefnið og hafa hana ekki
svona tengda við háskólafyrirlestra til dæmis,
heldur líka við fréttir og almenna menningu.“
Þetta er þá allt önnur Kista en var?
,,Já, þetta er allt önnur Kista,“ svarar Geir.
Verður þetta alhliða menningarrit?
,,Já, það er meiningin með tiltækinu. Við er-
um áfram í samvinnu við ýmsar deildir Háskól-
ans, Hugvísindastofnun til að mynda, en ætl-
um að reyna að gera fræðilegt efni aðgengilegt
og tengja það umræðunni. Síðan verða venju-
legar menningarfréttir og við reynum að nota
miðilinn til fulls, verðum með myndrænt efni
líka. Við sýnum frá atburðum beint og svo
verðum við með upptökur sem hægt verður að
skoða á vefnum. Svo verða þarna pistlar í því
formi að þú getur skoðað viðkomandi þegar
hann les pistilinn.“
Er þá meiningin að senda beint út á Netinu
þegar um menningardagskrár og fyrirlestra er
að ræða?
,,Já, það er ætlunin að senda beint út á Net-
inu og jafnvel verður möguleiki á því að skoða
styttri búta frá ráðstefnum, eða einhverjum
viðburðum. Og það er kannski rétt að geta
þess að Kistan er ekki bara hlutlaus fréttamið-
ill, eða menningarmiðill, heldur tekur virkan
þátt í umræðunni og efnir til atburða. Þannig
höfum við t.d. nú þegar, ásamt öðrum, staðið
að atburðum eins og Beckett-hátíð í Borgar-
leikhúsinu 22. apríl síðastliðinn, sem við skipu-
lögðum. Við stóðum líka fyrir skemmstu að
tveggja kvölda dagskrá í Nýlistasafninu sem
var helguð Megasi og svokölluðum hljómorð-
um. Þetta munum við gera áfram og komum til
með að sýna beint frá þessum atburðum, auk
þess að fygja þeim eftir með umfjöllun á Kist-
unni.“
Öllum opið
Verður menningargagnrýni fyrirferðarmikil
í Kistunni?
,,Við ætlum að leggja töluvert upp úr rýni af
öllum toga og stefnum til dæmis að því að
bjóða upp á lengri bókadóma en nú tíðkast.“
Hverjir standa að nýju Kistunni?
,,Það eru einkaaðilar sem eiga hlut í þessu
fyrirtæki og svo ReykjavíkurAkademían. Síð-
an höfum við gert viðamikinn samstarfssamn-
ing við Háskólann og þá Hugvísindastofnun
Háskólans sérstaklega.“
Er vefritið opið öllum almenningi?
,,Það er opið öllum og alls ekki miðað við ein-
hverja ímyndaða menningarelítu: mennta- og
menningarhroki er eitur í beinum ritstjórnar.“
Og það er frjáls aðgangur á Netinu fyrir
hvern þann sem vill kynna sér ritið?
,,Já, ritið er öllum aðgengilegt á Netinu.“
Þið ætlið að efna til opnunarveislu á laug-
ardaginn?
,,Það er opnunarhátíð á laugardaginn í
Listasafni Reykjavíkur. Hátíðin stendur á
milli fjögur og sex síðdegis. Á hátíðinni kemur
fram góður gestur frá Kanada, Bill Bourne,
dótturdóttursonur Stephans G. Stephansson-
ar, sem leikur og syngur nokkur lög. Bill er
þjóðlagasöngvari sem kemur svo til með að
leika víðar hérna á landinu næsta mánuðinn.
Hann er kominn hingað til að kynnast landinu
og fer meðal annars norður á slóðir langafa
síns. Mér hefur gefist færi á að kynnast og
hrífast af tónlist hans að undanförnu: hér er
enginn aukvisi á ferð.“
En hvað mun greina Kistuna frá öðrum
menningarmiðlum?
,,Það verður auðvitað að koma í ljós! Sér-
staða okkar felst kannski svona fyrst í stað sér-
staklega í tengslum okkar við háskólafólk og
fræðasamfélagið en við þykjumst ætla að sýna
fram á að fræðileg umfjöllun þarf síður en svo
að vera leiðinleg og þurr heldur á mikið og
nauðsynlegt erindi inn í umræðu samtímans.
Við hyggjumst líta yfir töluvert stórt svið og
vefritið þarf því tíma til að þróast og þroskast.
Það verða nú ekki allir flokkar fullir hjá okk-
ur þegar við opnum, en það kemur smám sam-
an. Við ætlum okkur að skoða sem flesta menn-
ingar- og listmiðla, og alls ekki bara bók-
menntir og fræði heldur einnig tónlist og kvik-
myndir, teiknimyndir, ljósmyndir, myndlist,
svo eitthvað sé nefnt. Ef til vill tekst okkur að
skapa okkur nokkra sérstöðu með því að bjóða
upp á ítarlegri umfjöllun en gerist og gengur í
öðrum miðlum.“
ALLT ÖNNUR KISTA
Í dag verður efnt til hátíðar í Listasafni Reykjavíkur í
tilefni af því að nýtt og glæsilegt menningarvefrit,
Kistan, lítur dagsins ljós. Kistan stendur á gömlum
grunni en gengur nú í endurnýjun lífdaga undir rit-
stjórn Geirs Svanssonar bókmenntafræðings.
ÞORVARÐUR HJÁLMARSSON spjallaði við Geir um
tilurð og tilgang hins nýja rits.
Geir Svansson
YFIRSKRIFT hátíðarinnar er „Búmm,krass, bang“ og er óhætt að segja aðhún gefi tóninn fyrir það sem komaskal á Degi slagverksins. Það eru þeir
Eggert Pálsson, Pétur Grétarsson og Steef
van Oosterhout slagverksleikarar sem sjá um
að setja saman dagskrá hátíðarinnar, sem
haldin er í samstarfi Gerðubergs og Félags ís-
lenskra tónlistarmanna. Þar munu átta slag-
verksleikarar leika á slagverkshljóðfæri af
ýmsu tagi, en það eru auk ofangreindra þau
Snorri Sigfús Birgisson, Tena Palmer, Herdís
Jónsdóttir, Frank Aarnink og Matthías M.D.
Hemstock.
Ekki er að sjá annað en skipuleggjendur
hafi fyllt tónleikasalinn í Gerðubergi af hljóð-
færum af öllum stærðum og gerðum. Pétur
viðurkennir að þurft hafi nokkra sendibíla til
að koma hljóðfærunum á staðinn, en bætir því
við að nokkur hefð sé fyrir því að mæla tónlist í
bílförmum. „Atli Heimir Sveinsson talar til
dæmis gjarnan um „fjögurra til fimm bíla
verk“. Það má segja að dagskráin á morgun
verði svona þriggja bíla hátíð. Engu að síður
þurftum við að velja og hafna, því það er til svo
gríðarlegur fjöldi slagverkshljóðfæra,“ segir
hann. Steef bendir á að hljóðfærunum verði
dreift á nokkra staði um húsið, svo eitthvert
pláss verði nú fyrir gestina. „Niðri verður t.d.
trommusett sem gestir geta fengið að prófa að
spila á,“ segir Steef. „En við viljum líka leyfa
gestum að kynnast betur slagverkshljóðfær-
unum með því að skoða þau og spyrja hljóð-
færaleikana, milli þess sem tónlistin verður
spiluð.“
En hvers konar tónlist munu gestir fá að
heyra á Degi slagverksins? Þeir Eggert, Pétur
og Steef benda á að fáir þekki líklegast þær
margvíslegu tegundir slagverkshljóðfæra sem
til eru, auk þess sem slagverkið eigi sér til-
tölulega stutta sögu sem konsert- eða einleiks-
hljóðfæri. Því hafi þeir leitast við að setja sam-
an dagskrá sem er í senn skemmtileg og gefur
gestum góða yfirsýn yfir sögu hjóðfærisins.
Þeir sem hafa áhuga á að vera allan daginn
munu þannig fá að heyra sitt lítið af hverju úr
sögu slagverksins en fólk getur líka komið og
farið; dagskráin verður flutt í nokkrum lotum
með hléum á milli,“ segir Steef.
Pétur segir að í byrjun dagskrárinnar verði
flutt nokkur verk frá þeim tíma þegar slag-
verkið var að festast í sessi sem konserthljóð-
færi. „Við munum því flytja nokkur af fyrstu
konsertstykkjunum, sem flest eru frá tuttug-
ustu öldinni, en auk þess ætla þeir Eggert og
Steef að flytja dúett fyrir pákur frá sautjándu
öld, sem er elsta þekkta konsertstykki fyrir
slagverk.“ Auk þess verður lota í dagskránni
sem felur í sér nokkurs konar heimstónlist-
aryfirreið, þar sem sýnishorn verða gefin af
hinum ýmsu hefðbundnu hljóðfærum heims-
ins, allt frá handtrommum í anda regnskóg-
anna til seiðandi tóna írsku bohdran-tromm-
unnar. „Við höfum sankað að okkur talsverðu
af slíkum hljóðfærum, og þau gætu gestir haft
gaman af að skoða.“
Þá segir Pétur hópinn hafa valið á dag-
skrána talsvert af lögum frá tuttugustu öld-
inni, sem þeim eru sérstaklega kær. „Þar er
um að ræða tónlist eftir John Cage og Takem-
itsu. Við leikum t.d. verk eftir þann fyrrnefnda
sem er samið fyrir píanó, útvarpstæki, blikkt-
rommu og dyrabjöllu.“ Að lokum ber að nefna
íslenska dagskrá sem flutt verður á Degi slag-
verksins, þar sem leikin verða verk eftir Jón
Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Atla Ingólfsson
og Áskel Másson. Þeir félagar draga fram ým-
is slagverkshljóðfæri sem Jón Leifs hannaði
fyrir verk sín, en þar er m.a. að finna skildi sem
slegið er saman til að líkja eftir vopnaglamri og
keðjuspil og íslenskt grjót, sem Jón notaði til
að endurskapa íslenska náttúru í verkum sín-
um. Dagur slagverksins er fjórða tónlistarupp-
ákoman af þessu tagi sem Gerðuberg og FÍT
standa fyrir, en áður hafa verið haldnir dagar
gítarsins, flautunnar og hinna djúpu tóna við
góða aðsókn. Á morgun er röðin komin að slag-
verkinu og er óhætt að segja að þar sé um að
ræða einstakt tækifæri fyrir fólk að kynnast
heimi slagverksins í sinni fjölbreyttustu mynd.
ÞRIGGJA BÍLA SLAGVERKSHÁTÍÐ
Morgunblaðið/Þorkell
Eggert Pálsson, Steef van Oosterhout og Pétur Grétarsson við slagverkið.
Á morgun verður handa-
gangur í öskjunni í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðu-
bergi, er Dagur slag-
verksins verður haldinn
hátíðlegur milli kl. 14 og
18. HEIÐA
JÓHANNSDÓTTIR rann
á hljóðið og heimsótti
skipuleggjendur við
undirbúning.
heida@mbl.is