Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2001, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2001, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. SEPTEMBER 2001 11 Hvað er kósangas og hvernig brennur það? SVAR: Kósangas er öðru nafni nefnt própangas og er ýmist unnið úr jarðolíu eða með efna- breytingu á skyldu efni sem nefnist propene. Í gasinu eru sameindir með 3 kolefn- isatómum (C) og 8 vetnisatómum (H) og er það því auðkennt með efnaformúlunni C3H8(g). Við sýnum hér líkanmynd af sam- eindinni. Einkennisbókstafurinn g táknar form eða ham efnisins, sem er gas. Eins og nafnið bendir til er efnið á loftkenndu formi við eðlilegar kringumstæður (staðalað- stæður, 25°C og 1 loftþyngdar þrýsting). Eðlismassi kósangass er um 1,9 grömm á lítra (g/l) við staðalskilyrði og er það því þyngra en loft, sem hefur eðlismassa um það bil 1,3 g/l við sömu aðstæður. Bruni kósangass felst í því að sameindir efnisins (C3H8(g)) ganga í efnasamband við súrefni andrúmsloftsins (O2(g)). Þegar brun- inn verður þar sem gnægð er af súrefni, eins og til dæmis utan dyra eða í vel loftræstu herbergi, rofna sameindir gassins og tengj- ast súrefnisatómum með þeim hætti að ann- ars vegar myndast vatnssameindir sem þétt- ast og mynda vatn á vökvaformi, til dæmis sem vatnsdropa (H2O(l)), og hins vegar koltvíildi eða koltvíoxíð á gasformi (CO2(g)). Einkennisbókstafurinn l táknar að vatnið er í vökvaham og stendur fyrir upphafsstafinn í enska heitinu liquid. Þetta má tákna með eft- irfarandi hætti: C3H8(g) + 5 O2(g) -> 4H2O(l) + 3CO2(g) Fyrir hverja eina sameind af kósangasinu þarf að jafnaði 5 sameindir súrefnis. Ef súr- efnisframboðið er hins vegar minna, til dæmis í lokuðu rými, getur átt sér stað „takmark- aður bruni“ sem felst í því að í stað CO2(g) myndast koleinildi eða kolmónoxíð á gasformi CO(g). Þetta má tákna með eftirfarandi hætti: C3H8(g) + 3,5O2(g) -> 4H2O(l) + 3CO(g) Fyrir hverja eina sameind af kósangasinu nýtast einungis 3,5 súrefnissameindir að jafn- aði. Ef veruleg takmörkun er á súrefn- isframboði getur átt sér stað enn „takmark- aðri bruni“. Þá myndast hreint kolefni sem sest til sem svart fast efni (C(s)), sem við þekkjum sem sót. Þá er talað um að gasið sóti, líkt og þegar kerti sótar. Einkenn- isbókstafurinn s táknar fast form kolefnisins og stendur fyrir upphafsstafinn í enska heit- inu solid. Þetta má tákna með eftirfarandi hætti: C3H8(g) + 2O2(g) -> 4H2O(l) + 3C(s) Fyrir hverja eina sameind af kósangasinu nýtast hér einungis 2 súrefnissameindir að jafnaði. Af þessu má sjá að tvær gastegundir geta myndast við bruna kósangass, koltvíildi (CO2(g)) sem myndast við mikið súrefn- isframboð og koleinildi (CO(g)) sem myndast við takmarkað súrefnisframboð. Koltvíildi er fyrir í andrúmsloftinu í litlu magni (0,03%) og gegnir mikilvægu hlutverki í lífkerfi jarðarinnar. Það efni, ásamt vatni, er meginmyndefni öndunar og efnanið- urbrots lífvera og myndast meðal annars í fráöndun okkar mannanna. Koleinildi er hins vegar hættulegt lífríkinu, meðal annars vegna þess eiginleika sameindanna að geta bundist burðarsameindum súrefnis í blóði, hemóglóbínsameindunum, á þeim stað þar sem súrefnið á og þarf að bindast til að við- halda eðlilegri öndun. Þannig geta CO sam- eindir hindrað öndun hjá lífverum og leitt til köfnunar og dauða. Koltvíildi (CO2(g)) hefur eðlisþyngd um 1,9 grömm per lítra og er því þyngra en loft (1,3 g/l), en koleinildi (CO(g)) hefur svipaða eðlisþyngd og loft (1,3 g/l). Koltvíildi getur verið hættulegt mönnum þó að það sé ekki eins bráðdrepandi og koleinildi. Vegna eðl- ismassans getur það til dæmis safnast fyrir í námugöngum og í kjöllurum eða lægðum í landslaginu í eldgosum og ýtt súrefni burt þannig að menn og dýr ná ekki að anda. Koltvíildi sem myndast við bruna á gasi í lok- uðu herbergi getur hins vegar varla orðið mönnum að bana vegna þess að koleinildi fer að myndast vegna súrefnisskorts áður en menn kafna beinlínis úr honum. Ágúst Kvaran, prófessor í efnafræði við Háskóla Ís- lands. Heimildir: Molecules eftir P.W. Atkins, Scientific American Library, (1987) The Penguin Dictionary of Chemistry, D.W.A. Sharp, Penguin Books, (1983) Handbook of Chemistry and Physics, 63. útgáfa, 1982- 1983. Hvenær er talið að Jökulsá á Fjöllum hafi byrjað að mynda undirlendi í Öxarfirði með fram- burði sínum? SVAR: Sennilegast er að Jökulsá á Fjöllum hafi byrjað að bera set í Öxarfjörð þegar í ísald- arlok, fyrir 12.000 árum eða svo. Þetta má sýna fram á með því að skoða malarhjalla sem myndast þar sem straumvötn renna í sjó eða stöðuvötn. Í ísaldarlokin urðu hraðar sjávarstöðubreytingar: fyrst stóð sjór hátt miðað við núverandi sjávarstöðu vegna þess að jöklarnir höfðu þrýst landinu niður, og þegar þeir bráðnuðu flæddi sjórinn inn yfir landið. Þetta tók þó aðeins 500-1000 ár, en þá mynduðust strandlínur í allt að 110 m hæð. Í Öxarfirði munu hæstu strandlínur vera í um það bil 50 m hæð. Næst reis landið úr sæ og var sjávarborð þá um 30 m neðan við núver- andi sjávarstöðu – þetta sést af rofflötum og malarhjöllum á 30 m dýpi – en síðan reis sjávaryfirborð smám saman að núverandi stöðu. Þegar jöklarnir voru mestir náðu þeir al- veg fram á landgrunnsbrún og undir þeim var ber klöppin, því að jöklarnir óku öllu lauslegu á undan sér. Ísaldarlokin urðu með allmikilli skyndingu, jöklar hopuðu hratt og bræðsluvatnið myndaði gríðarlegar jökulár. Færð hafa verið að því rök að Jökuls- árgljúfur og Ásbyrgi hafi myndast í „ham- farahlaupum“ sem svo eru nefnd – gríð- arlegum hlaupum sem verða þegar heilt stöðuvatn tæmist skyndilega. Slík hlaup hafa feiknarlegan rofmátt samanborið við venju- leg straumvötn. Talið var að hlaup þessi hefðu tengst ísaldarlokunum – nefnilega að jökulstíflur hefðu brostið og valdið hamfara- hlaupum – en rannsóknir á gjóskulögum sanna að Jökulsá hefur flætt langt yfir bakka sína og um Ásbyrgi fyrir minna en 2800 ár- um. (Gjóskulagið Hekla-3, sem féll fyrir 2800 árum, finnst ekki í jarðvegi). Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði við Háskóla Íslands. HVAÐ ER KÓSANGAS? Í vikunni sem er að líða fjallaði Vísindavefurinn meðal annars um hvort til séu staðreyndir, hvaða þjóð veiði mest af hvölum og hvernig hægt sé að nálgast óend- anlega einhvern punkt en ná samt aldrei til hans. Þar er einnig sagt frá því hvort höfundur Hávamála hafi vitað hvað api er, en á einum stað í kvæðinu stendur að margur verði af aurum api. VÍSINDI SAMHENT hefur fjórar kveður í hverri línu og eru allar stýfðar. Er hátturinn að því leyti eins og stafhent sem fjallað var um í síðasta þætti nema hvað allar línur samhendu ríma í lokin. Þessi aðsenda vísa ÞK er óbreytt sam- henda Yfir höfin breið og blá bárust skip með segl við rá. Reis við stafna hrönnin há, hvítum faldi skrýddist þá. Hátturinn er mjög gamall en er þó sjaldgæf- ari en stafhenda í eldri rímum. Örn Arnarson orti Rímur af Oddi sterka að mestu undir sam- hendum hætti hringhendum sem einnig var nefndur hagkveðlingaháttur. Þannig hefst fjórða ríma: Tækni breyta tímans völd, tískan þreytir aldinn höld. Hugur leitar helst í kvöld heim í sveit á nítjándu öld. Þá brá hann fyrir sig dýrara afbrigði hátt- arins með því að láta innrím og endarím kallast á. Var slíkt kallað áttþætt eða áttþættingur: Ein er, veit ég uppi í sveit, ekki þreyti neina leit, æskuteit og hjartaheit, hökufeit og undirleit. Stikluvik virðist ekki koma fyrir í varðveitt- um rímum fyrr en á seinni hluta 16. aldar. Fyrsta, þriðja og fjórða braglína eru ferkvæð- ar og allar stýfðar og ríma saman. Önnur brag- lína er aftur á móti þríkvæð og óstýfð og rímar ekki við hinar. Sem dæmi um háttinn óbreytt- an má taka þessa vísu úr Háttatali Sveinbjarn- ar Beinteinssonar: Aftur hljóma lögin ljúf, lengja tekur daginn. Vísu ritar höndin hrjúf, hugur dvelst við rímnastúf. Eftir Magnús Magnússon í Magnússkógum (1763-1840) er þessi hringhenda stikluviksvísa úr Rímum af Bernótusi Borneyjarkappa: Hittu góða höfn við möl, hestum flóða áðu; gengu rjóðar geirs af fjöl Gauts á fljóð með enga dvöl. Annars var algengt að menn kvæðu undir þríhendu stikluviki. Var þá innrím fyrstu, þriðju og fjórðu línu þversetis en önnur lína var sér um innrím langsetis. Var þannig bæði lögð áhersla á sérstöðu annarrar braglínu með innrími og endarími. Er eftirfarandi vísa Sig- urðar Bjarnasonar (1841-1865) úr Rímum af Áni Bogsveigi dæmi þessa háttar: Mörg og stór eg merki fann mín að fín er gifting; oft mig Jórunn vara vann við að klóra gylfa þann. Valstýft eða valstýfa er vafalaust sprottin upp úr dverghendu. Frumlínur (fyrsta og þriðja lína) háttarins eru ferkvæðar, ýmist stýfðar eða óstýfðar en síðlínur (önnur og fjórða lína) eru aðeins tvíkvæðar og alltaf stýfðar. Oft er forliður á undan þeim, einkum séu frumlínur stýfðar. Braglínur ríma allar saman og er það reyndar einn munur valstýfu og dverghendu sem er víxlrímuð. Guðmundur Bergþórsson (um 1657-1705) er fyrstur talinn hafa ort undir hættinum óbreyttum en í Bál- antsrímum, sem ortar munu 1701, segir hann: Þennan brag eg fyrstur fann og fór með hann; vil eg heiti valstýfan, ef vitnast kann. Magnús Jónsson í Magnússkógum orti Rím- ur af Þorsteini Víkingssyni og er þar í þessi frumframhenda valstýfa: Herjans kera öl er eytt og ekki neitt fríðum lýðum verður veitt til vilja greitt. Hér skal að lokum birt ein valstýfa hálykluð úr Háttatali Sveinbjarnar Beinteinssonar en hályklað kallast þegar fyrstu kveður frumlína (fyrstu og þriðju línu) ríma saman. Rekkur telur tugi þrjá með tygin blá. Ekki vill hann flýja frá og forðast þá. Vísur frá lesendum: Lesendur eru hvattir til að senda inn vísur undir ofangreindum bragarháttum á vefsíð- una: www.ferskeytlan.is eða í pósti með utanáskriftinni: Vísnaþáttur Ferskeytlunnar, Ferskeytlan, Háholti 14, 270 Mosfellsbær. VÍSNAÞÁTTUR SAMHENT, STIKLUVIK OG VALSTÝFT U M S J Ó N K R I S T J Á N E I R Í K S S O N O G J Ó N B R A G I B J Ö R G V I N S S O N Kristján er íslenskufræðingur og Jón Bragi verkfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.