Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2001, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2001, Síða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. NÓVEMBER 2001 Þ AÐ er komið fram á haust, ég er á göngu um borg æsku minnar. Ég kem að neðanjarðarbrautinni þar sem heitir Rauða Présnja, hér var einu sinni verksmiðjuhverfi og þar börðust verkamenn við lögreglu og kósakka árið 1905. Á aðaltorginu rís stórt minnismerki um þá at- burði: verkamenn standa með hetjulegu látbragði undir baráttufánum. Og þaðan sem ég stend sé ég að þessar koparhetjur fyrstu rússnesku bylting- arinnar eru að steyta hnefana framan í stórt nýtt hús hinum megin við torgið og á því stendur stórum stöfum: MacDonalds. Amrískur skyndibitastaður og rússnesk bylt- ingarrómantík hlið við hlið. Slík dæmi er að finna um alla borg. Enda eru borgir undarlega þolin- móðar, í þeim standa margir tímar hlið við hlið og enginn getur séð fyrir hvað úr þeirri blöndu verð- ur. Á Rauða torginu er á sínum stað kirkjan und- ursamlega með mörgum laukturnum sem Ívan grimmi lét byggja, þar hefur hún alltaf verið þótt á sovéttímanum hafi komið fram tillögur um að fjarlægja hana. Grafhýsi Leníns er líka á sínum stað fyrir miðju torginu, þótt mikið hafi verið um það rætt á valdadögum Jeltsíns að fjarlægja Len- ín sjálfan úr því húsi. Götunni sem skrúðgöngur fóru áður eftir inn á Rauða torgið á byltingaraf- mælum hefur verið lokað með því að endurreisa yfir hana borgarhlið frá keisaratímanum og kap- ellu þar sem geymd er Guðs móðir frá Íversk, helgimynd sem allt frá sautjándu öld var verndari borgarinnar. Sumt hverfur, annað kemur aftur. Og hver nýr höfðingi vill setja sinn eigin svip á höfuðborgina, það er líka gömul saga og ný. Borg- arstjórinn Lúzhkov á sér eftirlætis höggmynda- smið sem heitir Tsereteli og hefur leyft honum að reisa út um allt stórar og fáránlegar styttur, til dæmis af bjarndýrum, hestum og þjóðsagnaper- sónum sem stungið er ofan í gosbrunnaröð þarna rétt hjá, undir Kremlarmúrum. Undir þessum þjóðlegu steinkvikindum eru lúxusverslanir fyrir ríka fólkið grafnar þrjár hæðir niður í jörðu, flott- ar, alþjóðlegar og leiðinlegar. Óvissa, ótti Ég gæti vissulega haldið lengi áfram að segja frá því sem augað sér, frá gömlum og þó nýopn- uðum kirkjum, frá endalausum söluskálum um allan bæ sem gera Moskvu alla að stóru Kola- porti, frá glæsihúsum nýríkra Rússa sem rísa bak við háa múra og harðlæst hlið, frá betlandi börn- um og gömlum konum allslausum. En það sem fyrir augu ber vekur spurningar, bæði um liðna tíma og nýja, sem ég verð að láta gamla vini og kunningja um að svara, og það eru þau svör sem skipta máli í slíkri kynnisferð. Margt af því sem fyrir eyru ber gat ég búist við að heyra: Það er hægt að kaupa allt, en ekki hefi ég aura nema fyr- ir nauðþurftum. Lítil klíka hefur stolið þjóð- arauðnum og komið miklu af honum úr landi. Spillingin er gífurleg. Glundroðinn afskaplegur. Menningin í molum. Lög og réttur nafnið tómt. Enginn hjálpar okkur, öðru nær. En samt lifum við. Kannski höfum við orðið fyrir svo mörgum og djúpum vonbrigðum að vonin blíð hljóti að bíða okkar við næstu vegamót? Menn eigra í óvissu um samtíðina og óttast framtíðina: kannski eigum við von á hækkaðri húsaleigu, kannski þurfum við bráðum að borga meira í strætó og metró? – og öngvir peningar til. Og ekki er óvissan minni þegar talið berst að for- tíðinni. Hvað finnst rússneskum vinum mínum og kunningjum um þau Sovétríki sem nú eru liðin tíð? Hvað finnst þeim til dæmis um grimmasta hluta sovéskrar sögu, Stalíntímann? Fortíðin og Stalín sjálfur Ég fór að finna gamlan vin, sagnfræðinginn Marlen Korallov. Foreldrar hans voru í bylting- unni og gáfu honum nafn sem er sett saman úr nöfnum Marx og Leníns, Mar+Len. Þau fórust bæði í fangabúðum Stalíns. Sjálfur var hann handtekinn ungur stúdent og sat í fangabúðum fimm síðustu æviár Stalíns. Hann tók þátt í merkilegri uppreisn pólitískra fanga í nokkrum illræmdum fangabúðum. Þeir tóku sig saman um að steypa af stóli glæpamannaforingjum sem kúguðu og misþyrmdu pólitísku föngum og rændu þá – og það varð ekki gert nema með manndrápum. Sem ég tók þátt í, sagði Marlen. Hann er að skrifa minningar sínar um fangabúð- irnar. Um það hvernig tvítugum pilti verður við þegar hann fær 25 ára dóm vegna þess að kunn- ingi hans hefur kjaftað frá meinlegri athugasemd um Stalín. („Það er eins og að hrapa ofan í botn- lausa tunnu.“) Um kynni af skáldum og herfor- ingjum og litháískum skæruliðum og uppreisn hinna pólitísku gegn glæpalýð og svo gegn yf- irstjórn Kengaz-fangabúðanna. Öll erum við hé- gómleg, segir hann, öll teljum við að okkar reynsla sé merkilegust og mér, sem er orðinn 75 ára, finnst synd að fara úr heiminum án þess að opna kjaftinn um allt sem ég vissi best. (Vinkona okkar Lara segir mér að Marlen líti niður á alla sem ekki hafi setið í fangabúðum, hon- um finnist að enginn skilji mannlífið nema þeir.) Nokkuð til í því, segir Marlen og hlær þegar ég minni hann á þetta. Svo mikið er víst að Gúlagið er óendanlegt frásagnarefni og rannsóknarefni. Marlen talar um þessa tíma frá sjónarmiði manns sem ber virðingu fyrir kommúnistum bylt- ingartímanna (kynslóð foreldra sinna) en hatast við stalínistana „sem stálu hugmyndum frá fyrri kynslóð og fóru með þær að eigin geðþótta og í anda þeirrar einu dyggðar sem þeir þekktu – auð- sveipni við leiðtogann“. Og hann er varaforseti í samtökum fyrrverandi pólitískra fanga, Memori- al, sem vinna gegn því að þessir ógnartímar falli í gleymsku. En það gengur ekki of vel, segir hann. Þeim fækkar ört sem vilja á okkur hlusta. Fyrir tíu ár- um voru allir svo vonglaðir. Menn ætluðu að segja skilið við alræðisfortíð, kasta öllu sovésku fyrir borð og taka upp vestræna hætti og þóttust vissir um að þá yrði allt gott. En síðan hafa menn orðið fyrir svo miklum vonbrigðum, að harmleikir eins og pólitíska galdraæðið 1937 eða blóðug sam- yrkjuvæðing í sveitum Rússlands hlýtur að víkja fyrir öðrum áhyggjum. Og við fáum að heyra nýj- an söng: æ er ekki búið að skrifa meira en nóg um þessar fangabúðir? Það er rétt, segir Lara: ungt fólk veit ekkert um fortíðina og vill ekki vita. Gleymdu því ekki heldur, segir Nína, að kannski hugsa fleiri með söknuði til tíma Stalíns en byltingarára Leníns! Hvernig getur staðið á því? Ég rekst á grein- argerð um könnun félagsfræðinga á því, hvað Rússar telja að hafi verið jákvætt í sögu þeirra á tuttugustu öld. Þeir nefna fátt annað en sigurinn yfir Hitler í heimsstyrjöldinni síðari. Þessi styrj- öld er næstum því hið eina sem sameinar minn- ingar Rússa með jákvæðum hætti. Þá vorum við í sameiginlegum lífsháska, þá unnum við mikil af- rek saman, upp úr þeirri raun risum við sem vold- ugt ríki sem allir báru óttablandna virðingu fyrir. Stalín græðir mikið á þessum viðhorfum. Stríðs- árin voru líka hans tími. Þegar spurt er sérstak- lega um afstöðu Rússa til Stalíns svarar um þriðj- ungur því til að hann hafi verið skelfilegur harðstjóri, sem bar ábyrgð á dauða fjölda sak- lausra manna. Annar þriðjungur segir: hvað sem öðru líður unnum við okkar sigur á Þýzkalandi Hitlers undir hans forystu. Og enn einn þriðj- ungur segir: við vitum enn ekki allan sannleikann um Stalín – hvað sem þeir nú meina með því. Hvers sakna menn? Tökum annað dæmi: fortíð og nútíð menning- arinnar. Svotil allir sem ég tala við sakna þess menningarástands sem ríkti á Sovétrímanum. Auðvitað sakna þeir ekki ritskoðunar sem stöðv- aði margar merkar bækur, greinar og leiksýn- ingar. En margir Rússar sakna þeirrar stöðu sem listir og bókmenntir áður höfðu í samfélagi þeirra, stöðu einskonar veraldlegrar kirkju sem leitast, þrátt fyrir ýmsar þrengingar, við að vera gagnrýnið og mannbætandi afl. Við lifðum á helgisögnum um list og listamenn, sgir Marlen, á trúnni á það að við gætum fundið okkur athvarf og björgun í listum og bókmenntum. Þegar á heildina er litið eru rússneskir vinir og kunningjar fegnir því að vera lausir við smá- smugulegt pólitískt eftirlit, ritskoðun, skort á ferðafrelsi og vöruskort sovéttímans. En þeir sjá um leið eftir starfsöryggi, félagslegu öryggisneti og mörgu í menningarlífi þess sama tíma. Margir hefðu helst viljað blanda saman því skásta í sov- ésku kerfi og markaðskerfi. En í hvaða hlutföllum og hvernig væri það hægt? – Það vita menn ekki. Þessar þversagnir komu vel fram í skoðanakönn- un um það hvað Rússar vildu helst í pólitík og efnahagsmálum. 35% skiluðu auðu og töldu sig ekki vita hvað þeir vildu. Samtals um 19% studdu hugmyndafræði kommúnista og sósíalista. Jafn- margir vildu blöndu af ýmsum hugmyndum og stefnum. Og um 20% mæltu með „þjóðlegri rúss- neskri endurreisn“ í staðinn fyrir að skipa sér til vinstri eða hægri í pólitík. Reyndar varð það niðurstaðan af mörgu sem ég heyrði og sá í Moskvu í vetur leið, að mjög margir Rússar, hvort sem þeir að öðru leyti telja sig til vinstri eða hægri í tilverunni, væru á hraðri leið inn í þjóðernishyggju. Við eigum ekki samleið með Vesturlöndum, segja menn. Við hugsum öðruvísi og erum öðruvísi en Þjóðverjar og Am- ríkanar. Við þurfum á vissum skammti af þjóð- ernishyggju að halda til að lifa af, sagði vinur minn Júra Alexandrovitsj. En þá er að spyrja: hvernig þjóðernishyggju? Og hvað eiga menn við þegar þeir ætla að sækja styrk í hugmyndir sínar um að Rússar séu öðru- vísi en aðrir? Sérstaða menntamanna Lítum til menntamanna, sem löngum hafa sem álitsgjafar haft drjúg áhrif á það hvernig Rússar skilja hlutskipti sitt í heiminum. Það er hefð fyrir því í Rússlandi, að menntamenn séu ekki fyrst og fremst langskólagengið fólk heldur þeir sem telja sér skylt að skipta sér af málum sem varða al- mannaheill. Nota þekkingu sína til að gera gagn. Ekki síst með því að uppfræða alþýðu og segja sannleikann um fólsku valdhafa. Þessari afstöðu fylgdi svo einatt ofmat á vísindum og skynsemi og á því að menntamenn hefðu höndlað sannleikann: ef á þá væri hlustað mundi vel fara. HEYRT OG SÉÐ Í MOSKVU VIÐ RÚSSAR ER- UM ÖÐRUVÍSI… E F T I R Á R N A B E R G M A N N Verkalýðshetjur úr ko Stytta af Stalín í geymslu með öðrum sovétminni isvarði um Pétur mikla: þessa tvo menn tengja R mest til um: Rússland verður stórveldi á 18. öld o Viktor Rozov leikrita- skáld: Það er búið að eyðileggja meira en Hitler tókst í stríðinu. Marlen, fyrrverandi pólitískur fangi, gefur öllum helstu stjórn- málahreyfingum fall- einkunn. „Ég gæti vissulega haldið lengi áfram að segja frá því sem augað sér, frá gömlum og þó nýopnuðum kirkjum, frá endalausum söluskálum um allan bæ sem gera Moskvu alla að stóru Kolaporti, frá glæsihúsum nýríkra Rússa sem rísa bak við háa múra og harðlæst hlið, frá betlandi börnum og gömlum konum alls- lausum. En það sem fyrir augu ber vekur spurningar, bæði um liðna tíma og nýja, sem ég verð að láta gamla vini og kunningja um að svara, og það eru þau svör sem skipta máli í slíkri kynnisferð.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.