Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.2002, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. JÚLÍ 2002
ÞÓRÐUR Magnússon er staðartónskáld í
Skálholti um helgina, og verða verk eftir
hann flutt á tónleikum bæði í dag og á
morgun.
Dagskrá helgarinnar hefst kl. 14 með er-
indi í Skálholtsskóla. Að þessu sinni fjallar
dr. Gavin Lucas fornleifafræðingur um
nýja fundi í fornleifauppgreftrinum í Skál-
holti í sumar.
Georg Philipp Telemann er tónskáld
fyrri tónleika dagsins, sem hefjast kl. 15,
en flytjendur á þeim eru Marta Halldórs-
dóttir sópran, Camilla Söderberg blokk-
flautuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir
barokkfiðluleikari og Guðrún Óskarsdóttir
semballeikari.
Verk staðartónskáldsins, Þórðar Magn-
ússonar, hljóma svo á seinni tónleikum
dagsins, kl. 17. Þetta eru þrjú ný verk, en
tvö þeirra heyrast í fyrsta sinn á þessum
tónleikum. Flytjendur eru Eþos-kvartett-
inn, skipaður Auði Hafsteinsdóttur og
Gretu Guðnadóttur fiðluleikurum, Guð-
mundi Kristmundssyni lágfiðluleikara og
Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, en
þeim til fulltingis í einu verka Þórðar verð-
ur Marta Halldórsdóttir sópran.
Þessi efnisskrá verður endurtekin á tón-
leikum á morgun kl. 15.
Kl. 16.40 hefst orgelstund, en í messu kl.
17.00 á morgun verða fluttir þættir úr tón-
verkum helgarinnar, og Marta syngur stól-
vers úr fornu handriti.
Verk Þórðar eru tveir strengjakvartett-
ar og verk fyrir strengjakvartett og sópr-
anrödd. „Þetta er frumflutningur beggja
strengjakvartettanna, sá númer eitt er
reyndar orðinn nokkuð gamall, saminn
1996, en þann númer tvö var ég bara að
klára fyrir viku. Þriðja verkið heitir Ó,
Jesú, eðalblómi en ég samdi það fyrir
tveimur árum, en þá fyrir fjórar raddir,
eða kór. Nú er ég búinn að skrifa það út
fyrir strengjakvartett og eina rödd. Ég
held að þessi verk séu frekar ólík, eitt
þeirra samið út frá sálmalaginu Ó Jesú eð-
alblómi. Það eru tilbrigði kringum sálminn.
Tónefniviðurinn er því ekkert rosalega
framúrstefnulegur og takmarkast af
sálmalaginu. Kvartettarnir eru tvær til-
raunir í kvartettasmíð. Í þeim fyrri langaði
mig til að búa til verk í einum samstæðum
þætti. Innan hans eru þó skýr kaflaskipti,
en það er púls sem ég held gjörsamlega
gegnumgangandi í verkinu sem fólk finnur
fyrir jafnvel þótt það sé hægt. Í seinni
kvartettinum, sem ég var að ljúka við að
semja, eru hins vegar meiri kaflaskipti og
fleiri stílbrigði, þar sem kaflarnir eru mjög
ólíkir.“ Þórður hefur dvalið með tónlist-
arfólkinu í Skálholti alla vikuna og segir
það mjög spennandi að heyra verkin lifna
við. En það er ekkert mikið verið að breyta
eftirá, eða hvað?
„Ég er búinn að bæta við einni nótu, að
öðru leyti leyfi ég tempói og slíku að ráða
sér. Einn kaflinn í Ó, Jesú eðalblómi er
töluvert hraðari en ég hafði ímyndað mér,
en ég vona að það verði hægt að laga það
til.“
Að vanda er veitingasala í Skálholtsskóla
milli tónleika og barnagæsla, og tekið skal
fram að ókeypis er á alla Sumartónleika í
Skálholti.
Þrjú verk eftir Þórð Magnússon staðartónskáld flutt á tónleikum í Skálholti um helgina
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þórður Magnússon tónskáld.
EINNI NÓTU BÆTT VIÐ
MAGNÚS Sigurðarson myndlistar-maður hefur látið hafa eftir sér aðviðfangsefni innsetningar sinnarSogið í Galleríi Hlemmi liggi á svið-
um næringarfræðinnar og svokallaðrar papp-
írs-ákefðar. Hvað hann á við með því, er spurn-
ingin sem óhjákvæmilega leitar á blaða-
manninn þegar hann rennir að galleríinu við
Hlemmtorg. Engu að síður er honum ómögu-
legt annað en að brosa þegar skrítna hugtakið
pappírs-ákefð er annars vegar. Sérlega fyrir
þann sem vinnur við blaðaútgáfu. Það kemur
líka heim og saman þegar litið er inn á sýn-
inguna – þar eru stórir staflar af rennblautum
Morgunblöðum, sem agnarlitlar plöntur vaxa
uppúr. Innsetninguna hefur Magnús sett fram
á þann hátt, að stafla hundruðum Morgunblaða
með lúpínufræjum á milli í þrjá stafla og setja
upp úðunarkerfi á veggi salarins, sem viðheldur
raka í blaðastöflunum og nærir þannig fræin.
Einnig hefur Magnús sett fræ í gangstéttina
fyrir utan og úðunarkerfi á húsið utanvert, svo
óhjákvæmilegt er að vökna nokkuð þegar geng-
ið er inn á sýninguna. Gestir fá svo ítarefni titl-
að Applied physiology ásamt sýningarskrá í
hendur þegar komið er á sýninguna.
Næringarfræðilegt samhengi
Næringarfræði og pappírs-ákefð er efst í
huga blaðamanns, sem innir Magnús hið fyrsta
eftir samhenginu. „Þessi svokallaða pappírs-
ákefð hefur fylgt mér lengi. Ég hef alltaf rifið
dagblöð, þuklað á pappírnum og gert svo ein-
hverja hluti úr rifrildunum,“ segir hann og
bendir á gamla svart/hvíta ljósmynd á veggnum
í forsal gallerísins. Þar sjást turnar úr dagblöð-
um á eldhúsborði foreldra hans. „Á tímabili
varð þuklið og ástundunin að einskonar turnum
eins og þessum. Ég hef rifið, þuklað og brotið
dagblöð frá því að ég var barn. Faðir minn og
ég gerðum með okkur samkomulag um hvaða
síður ég fengi í Morgunblaðinu, því ég mátti
ekki taka fréttatengdar greinar og Lesbókina.
Hinsvegar fékk ég úthlutað minningargreinum
og fasteignablaðinu,“ segir Magnús. Hann seg-
ir sýninguna nú vera einskonar áframhald af
þessari ákefð í dagblaðapappír. „Nú geri ég
hlutina stærri og nota blaðið sjálft í stað valinna
síðna,“ segir Magnús.
Næringarfræðina segir hann liggja í fræinu
og ástandi pappírsmassans. „En auðvitað snýst
það mest um næringarfræði listarinnar,“ segir
hann og vísar í tilvitnun, sem hann setur fram í
sýningarskrá: „Sonur sæll, löngun kálfsins í
spenann er mikil en löngun kýrinnar til að næra
hann er enn meiri.“ Magnús segist finna í setn-
ingunni allegoríska vísbendingu um stöðu lista-
mannsins í samfélaginu og það næringarfræði-
lega samhengi sem þar fer fram. „Samfélagið
verður að næra listamanninn og listamaðurinn
gefur eitthvað til baka. Það er þetta ferli, sem
er eiginlega sýningin,“ segir Magnús.
Að sjúga eða vera soginn
Má setja þetta þannig upp að samfélagið sé í
hlutverki kýrinnar sem nærir
listamanninn sem er þá kálfurinn? „Ja, til-
vitnunin felur í sér að það er hin móðurlega um-
hyggja en jafnframt tilgangur kýrinnar að kálf-
urinn sjúgi spenann. Samkvæmt þessu er þörf
kýrinnar meiri og sterkari við gjöfina, en kálfs-
ins við það að sjúga. En það má alveg snúa
þessu við, listamaðurinn getur allt eins verið í
hlutverki kýrinnar. Þannig kemur líka fram
þetta hringferli samfélags og listar, sem má
líka finna í dagblaðastöflunum. Spurningin er
bara hver þurfi meira á hinum að halda,“ segir
hann. „Þetta eru hugleiðingar um það að gefa
og þiggja, en ég vil heldur nota hugtökin að
sjúga eða vera soginn. Fræið sýgur næringu
sína úr blaðastaflanum, en það sem stendur í
blöðunum skiptir fræið engu máli. Það vex
vegna þess að í pappírnum finnur það skjól og
næringu. Þetta er kannski allegorísk táknmynd
um samfélagið, fjölmiðlana og listina, að jafnvel
í grópum gangstéttarinnar finnur listamaður-
inn hjá sér þrá til að skapa eitthvað – þrátt fyrir
að ástandið sé ekki gott og áhugi og skilningur
á samtímamyndlist sé ekki mikill um þessar
mundir.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Magnús tekur
fyrir stöðu myndlistarmanna í samfélaginu í
verkum sínum. Fyrir einu og hálfu ári hélt hann
aðra sýningu í Galleríi Hlemmi. Var þá salurinn
fylltur af salti, ásamt þremur iðnaðarviftum og
lokað fyrir áhorfandann með plexigleri. Þannig
varð til einskonar snjóstormur inni í salnum, en
sýningin bar titlinn Stormur. „Sú sýning
fjallaði að vissu leyti um stöðu listamannsins á
hjara veraldar,“ segir Magnús. „Ég vil gjarnan
að finna megi augljósa listpólitíska eða exís-
tensíalíska hlið í verkum mínum, þó að auðvitað
sé alltaf kostur að lesa megi margt útúr þeim.
Að maður geti haldið áfram að finna nýjar hlið-
ar á sama listaverkinu.“ Hann segir innsetn-
ingar hafa verið sína aðferð. „Og svo „konsept“
innan gæsalappa. Það verður að vera þannig,
mín list er ekki konsept-list í þeim skilningi.“
Magnús er menntaður á Íslandi og lauk MA-
gráðu í myndlist í Bandaríkjunum árið 1997.
Hann segir pappírs-ákefðina hafa fylgt sér
þangað. En ekki hafði hann Morgunblaðið til að
vinna með þar úti? „Jújú, ég fékk Mogga. Önn-
ur blöð ganga ekki. Ég þarf mjúkan dagblaða-
pappír og hann finnst ekki í þarlendum dag-
blöðum, né erlendum yfirleitt. Pappírinn í New
York Times er til dæmis handónýtur,“ segir
Magnús.
Sýningin Sogið stendur til 21. júlí. Hún er op-
in fimmtudag til sunnudags, kl. 14–18.
HRINGRÁS
NÆRING-
ARINNAR
Næringarfræði og pappírs-ákefð? Magnús Sigurð-
arson sýnir þessa dagana í Galleríi Hlemmi, þar sem
INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR blotnaði rækilega.
Morgunblaðið/Arnaldur
Magnús Sigurðarson vætir hliðar eins Morgunblaðsstaflans á sýningunni Sogið.
ingamaria@mbl.is