Pressan - 01.06.1989, Page 8

Pressan - 01.06.1989, Page 8
8 PRESSAN . ...........■■lllllff VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM I Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Auglýsingastjóri Blað hf. Hákon Hákonarson Jónína Leósdóttir Órnar Friðriksson Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sfmi 68 18 66. Setning og umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu- blaðið: 900 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 125 kr. eintakió. Áfengislager á heimilum ráðherra Vitnaleiðslur í dómsmáli ríkisins gegn Magnúsi Tlioroddsen vegna áfengiskaupa hafa leitt í Ijós að nokkrir ráðherrar hafa einnig fengið áfengi til veisluhalda utan samkomusala ríkisins á sérkjör- um. Þannig kom frarn sl. þriðjudag að Steingrímur Hermannsson fékk t.d. vín í 15 kössum á diplómataverði sem utanríkisráðherra á síðasta ári. Flutti einkabílstjóri hans vínkassana á heimili Stein- gríms á sjö mánaða tímabili. Þá kom fram að fleiri ráðherrar fengu áfengi á síðasta ári vegna veislna sem þeir héldu í tengslum við fundi eigin stjórnmálaflokka. Hér er ekki um lítið magn að ræða heldur tugi kassa með mörg- hundruð vínflöskum. Ráðherrar hafa komið upp áfengislager á heimilum sínum. Ennfremur kom það fram að tveir ráðherrar hefðu leitað til ríkisendurskoðunar varðandi það hvort það sam- ræmdist reglum að þeir keyptu vín vegna afmælisveislna sinna á kostnaðarverði. Mál Magnúsar Thoroddsen er öfgafyllsta dæmið sem komið héf- ur upp um áfengiskaup ráðamanna. Fyrirspurnir og eftirgrennslan verjanda Magnúsar hafa smám saman leitt í ljós að langtum fleiri hafa notfært sér þessi fríðindi. Ekkert eftirlit hefur verið haft með þessum málum. Það hefur til að mynda komið í Ijós að engar upp- lýsingar eru til um það hversu mikið magn ráðherrar hafa notað til hverrar veislu og ekkert uppgjör farið fram þegar ráðherrarnir létu af embætti. Nú hefur fengist staðfest að ráðamenn á æðstu sviðum dóms- valds, framkvæmdavalds og löggjafarvalds hafa notfært sér sér- fríðindi til áfengiskaupa ýmist til einkanota eða veisluhalda utan ríkisstofnana og það áfengismagn í stóruin mæli. Þessi mál öll eru siðlaus og síst til þess fallin að efla virðingu og traust almennings á valdhöfuni landsins. Hrossarækt undir gagnrýni Á undanförnum árum hefur það vakið töluverða athygli hvernig vali ungfola á Stóðhestastöð ríkisins í Gunnarsholti er háttað og hefur það sætt nokkurri gagnrýni áhugamanna um hrossarækt. í PRESSUNNI í dag er birt grein um þessi mál og rætt við hrossa- ræktarráðunaut Búriaðarfélagsins. Þar kemur fram að þeir aðilar sem starfa við að velja stóðhestaefni inn á Stöðina þurfa að tak- marka mjög þann fjölda hesta sem komast að í Gunnarsholti, en stóðhestarnir sem þar eru ræktaðir eru meðal verðmíetustu hrossa landsins og hafa að undanförnu selst á um eða yfir tvær milljónir króna. Það er því mikilvægt að vandlega sé staðið að þessum mál- um og hlutlægt niat látið ráða ferðinni. í grein PRESSUNNAR kemur frarn að nefndarmenn í svokall- aðri kynbótanefnd, sem annast val á ungfolum inn á stóðhestastöð- ina, hafa í nokkrum tilfellum valið eigin fola þar inn. Þá liafa sömu menn starfað við dóma á folum á stóðhestastöðinni. Ráðunautur Búnaðarfélagsins upplýsir í PRESSUNNI að til standi að breyta þessu skipulagi á grundvelli nýrra búfjárræktarlaga sem Alþingi samþykkti í vor og koma á stofn fagráðum sem annist þessi mál. Hér er mikilvægt mál á ferðinni og brýnt að þeir sem veljast til trún- aðarstarfa séu hafnir yfir grunsemdir um að hagsmunir þeirra geti haft áhrif á opinber störf þeirra fyrir hrossarækt í landinu. „Hvers vegna hefur engum nemanda dottið i hug að hefja skaðabótamál við ríkiö?“ — Árni Thoroddsen. Kjallaragrein i DV. „Að öllu samanlögðu sýnist mér að þessi hervallarhugmynd sé stórhættulegt fyrirbæri.“ — Friöjón Guömundsson i Timanum. „Ef Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki til myndi ég stofna hann.“ — Davið Oddsson borgarstjóri i ræðu. „Eins og hvert annað grín.“ — Davió Oddsson um sorplosun í Leirdal. Fyrirsögn i Morgunblaðinu. „Borgarstjóri er auövitað sjálf- ráður að þvi hvaða orðaval hann notar.“ — Heimir Pálsson, forseti bæjar- stjórnar Kópavogs, i samtali við Morg- unblaðið. „Ég veit að margar kaþólskar konur hafa þjáðst vegna þessarar afstöðu páfans." — Séra Auöur Eir I Morgunblaðinu. í æfingabúðum „ Við œfum okkur bara svona á hverjum degi ogþá getur enginn sagt að við séum illa undirbúnir, ef hœttuástand skapast. “ „Ég tek meira mark á þvi sem þessi ágæti lagaprófessor viö há- skólann segir." — Ingólfur A. Þorkelsson, skóla- meistari MK, í Þjóðviljanum. „Þegar ég var staddur þar (í Ungverjalandi, innsk.) var einmitt verið að klippa niður gaddavírs- girðingar milli Ungverja/ands og Austurríkis. “ — Steingrimur Hermannsson for- sætisráðherra i Timanum. „Hún (Madonna) kemur nú fram í kjólum ... og hefur litaö háriö dökkt.“ — Tíminn. „Madonna er oröin Ijóshærð aftur.“ — Sviðsljós i DV. „Ég er kannski ekki sú krafta- verkamanneskja sem ég hafði vonaö.“ — Silja Aðalsteinsdóttir, fráfarandi rit- stjóri Þjóðviljans, i samtali vió Morgun- blaðið. „Aðalatriðið er að þetta eru gamlar lummur og mér finnst hallærislegt að vera að draga upp svona gömul plögg.## — Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í DV. hin pressan „Það má þvi segja að sundið sé mitt dóp!“ — Ragnheiður Runólfsdóttir sund- kona í Þjóðviljanum. „Húsvikingar snemma undir græna torfu." — Fyrirsögn i Timanum. „Það á að segja fólki satt, ekki óvirða það með þvi að slá ryki í augun á þvi.“ — Árni Björnsson lýtalæknir i Þjóð- viljanum. „Flugfreyjurnar hegðuðu sér að minu mati mjög heimskulega." — Anna Margrét Bjarnadóttir spænskunemi i viðtali við Timann. „Hann var ofsalega stressaður og mjög mikið vesen á honum.“ — Úr sama viðtali i Tímanum.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.