Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 9

Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 1. júní 1989 9 Færri komast að en vilja með ungfola sína í ;v. ^ Stóðhestastöð rikisins ' KLIKUSKAPUR í GUNNARSHULTI • Hestamenn í kynbótanefnd völdu hesta frá sjálfum sér inn á stóðhestastöðina. • Aldrei er auglýst eftir hestum sem fá tamn- ingu og þjálfun í Gunnarsholti. • Engar reglur gilda um utanaðkomandi stóð- hesta sem eru dœmdir eða koma fram á sérsýn- ingum í Gunnarsholti ár hvert. í Gunnarsholti í Rangárvallasýslu rekur Búnaðarfélag íslands Stoðhestastöð ríkisins. Hrossaræktin í Gunnarsholti er öllum hesta- mönnum kunn. Að sögn Þorkels Bjarnasonar, hrossaræktarráðunauts búnaðarfélagsins, eru það nær undantekningarlaust ungfolar sem fá þar inni og eru í ræktun til fimm vetra. Hrossaræktar- og hestamönnum er Ijóst að stóðhestar frá Gunnarsholti eru milljóna virði. Að sögn Þorkels eru dæmi þess að stóðhestar hafi selst á tvær og hálfa milljón króna. Það er því eftir miklu að slægjast að koma folum inn á stóðhestastöðina, en hún liggur undir mikilli gagnrýni margra hestamanna. Settar hafa verið fram áleitnar spurningar um starfsemi stöðvarinnar og hvort aljir sitji við sama borð við val hesta á stöðina. í kynbóta- nefnd, sem velur fola inn á stöðina, sitja nokkrir menn sem hafa m.a. valið eigin fola í stóðhestaræktun í Gunnarsholti. EFTIR: ÓMAR FRIORIKSSON Af samtölum við hestamenn má ráða að gagnrýnt er hve margir fol- ar eru frá sömu ræktendum og hvernig dómum á stöðinni er hátt- háttað. M.a. hefur verið bent á að meira en 10% ailra stóðhestanna hafa verið úr ræktun eins einstakl- ings. í kynbótanefndinni, sem ræður vali ungfola inn á stóðhestastöðina, sitja eftirtaldir menn: Þorkell Bjarnason, Leifur Kr. Jóhanncs- son, Sveinn Guðmundsson, Har- aldur Sveinsson og Skúli Kristjóns- son. Þann 30. nóvember sl. hittust þessir ntenn á fundi. Þar var ákveð- ið hvaða fola skyldi velja í hrossa- rækt á Gunnarsstöðum þetta árið. Samþykkt var m.a. að taka inn fol- ann Hag frá Svignaskarði, sem fæddur er í eigu Skúla Kristjóns- sonar, Hrannar frá Sauðárkróki, í eigu Sveins Guðmundssonar, Dug frá Mosfellsbæ, í eigu Leifs Kr. Jó- hannessonar, og Guma frá Laugar- vatni, sem er i eigu sonar eins nefndarmanna, Bjarna Þorkels- sonar. Að þessu sinni var enginn foli frá Haraldi Sveinssyni tekinn inn á stöðina, en Haraldur á þar fyrir einn hest. Þess má geta að Haraldur er for- niaður Hrossaræktarsambands Suðurlands. Sambandið á hesta í uppvexti í Gunnarsholti. Greinilegt er því að nefndarmenn velja hesta frá sjálfum sér inn á stöðina, en skv. upplýsingum Þorkels eru nálægt fimmtíu hestar á stöðinni um þessar mundir. Þetta hefur verið gagnrýnl og bent á að eðlilegra sé að aðeins menn sem engra hagsmuna hafa að gæta fjalli unt þessi mál. Dæma eigin hesta 1 maí sl. fóru fram dómar á folum í stóðhestastöðinni. í dómnefnd sátu eftirtaldir: Haraldur Sveins- son, Leifur Kr. Jóhannesson, Sveinn Guðmundsson, Skúli Krist- jónsson og Sigurður Oddur Ragn- arsson. Haraldur átti sjálfur hest sem kom fyrir dóminn og auk þess var þar dtemdur stóðhestur sem er í eigu Hrossaræktarsambands Suð- urlands og var nýverið keyptur fyrir tvær milljónir króna. Skv. sýning- arskrá má sjá að fimm þeirra fola sem dæmdir voru eru fæddir hjá Sveini og þar af' einn i eigu bróður- sonar Sveins. Þessi skipan hefur vakið spurningar unt hvort hér geti ekki verið ttm beina hagsmuni að ræða. Dómar af þessu tagi geta haft rnikið gildi. Ýmsir telja að þeir hafi verið of vægir að þessu sinni og að of margir stóðhestar hafi þar hlotið hin eftirsóttu fyrstu verðlaun. Boðin lótin berast Auk hinna eiginlegu stöðvarhesta sem eru í Gunnarsholti eru þar nokkrir aukahestar til lengri eða skemmri tíma og hafa sumir hest- eigendur getað fengið fola sína dæmda í Gunnarsholti um leið og stöðvarhestana. Þorkell Bjarnason viðurkennir í samtali við PRESS- UNA að ekki sé auglýst þegar þess- um „aukahestum“ er veitt rými á stöðinni til tamningar og þjálfunar. Boðin væru bara látin berast og þannig kæmu menn hestum að. Engar reglur eru heldur um það hvaða utanaðkomandi stóðhestar eru dæmdir með stöðvarhestunum á vorin. Ekkert er auglýst um að slíkt standi til boða eða hverjir fái að komast þar að. Þetta staðfesti Þorkell einnig. „Hvað réð því að t.d. stóðhestarnir Þokki frá Garði og Goði frá Saudárkróki voru dæmdir nú í vor? Hvenær var t.d. sú ákvörðun tekin, af hverjum og í hvaða tilgangi?“ spurði hestamaður. Þá hefur verið gagnrýnt val stóð- hesta á sérsýningar í Gunnarsholti. Það er heldur ekkert auglýst eins og gert er t.d. fyrir sýningar í Reiðhöll- inni í Reykjavík, þrátt fyrir áhuga þúsunda áhugamanna um hrossa- rækt. Þessi mál og fiéiri til hafa orðið æ háværari í umræðu hestamanna að undanförnu. Enginn efast um gildi hrossaræktarinnar í Gunnarsholti og mikilvægi hennar. Þess vegna telja ntenn nú brýnt að farið sé gætilega viö val þeirra sem veljast til trúnaðarstarfa þar og að komið sé i veg l'yrir allt eiginhagsmunapot og fjölskyldutengsl. Milljónir króna eru í veði á bak við hvern hest og því verður krafan um að val og dómar í Gunnarsholti fari fram fyr- ir opnum tjöldum sífellt sterkari. „ Þetta eru bara áhugasömustu mennirnir" — segir Þorkell Bjarnason hrossarœkt- arráðunautur um kynbótanefnd stöðv- arinnar í Gunnarsholti „Það eru engar reglur til um að það þurfi eitthvert visst hlutfall eða hver maður eigi ekki meira en svo og svo mikið af liestum í cinu á Gunnarsstóðum," segir Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðu- nautur búnaðarsambandsins. „Það er bara reynt að velja eftir útliti og ætt en ekki eftir því hver er eigandi." — Er ekki ócðlilcgt að ncfnd- armcnn í kynhótancfnd velji cigin hesta þarna inn? „Það getur vel verið að það sé óeðlilegt, en einhverra hluta vegna hafa þessir menn verið áhugasam- astir og starfað mest í þessum málum og eru brennandi ræktun- armenn. Þ.a.l. verður það oft svo að sömu mennirnir eru kosnir í svona nefndir og eru hvað mest í ræktun hrossa. Það gæti orðið erfitt að koma þessu í kringef það ætti að leita uppi nienn sem eru ekkert inni í þessum málum. Framundir þetta hefur það ekki verið stór hópur manna sem starf- ar í þessum málum af lífi og sál.“ Um dóma þar sem dómnefnd- armenn hafa jafnvel dæmt eigin fola segir Þorkell að þetta stafi að hluta til af því að það sé gamall siður frá upphafi stöðvarinnar fyrir unt 15 árum að kynbóta- nefndin sjái um þessi mál öll. „Til að fylgjast vel með gerðu þeir hvort tveggja að fylgjast með livort hestarnir væru hæí'ir til ræktunar, eins og nefndinni ber, og eins að dænia hcstana. Á næstaári verðurdómnefndin hins vegar eflaust valin öðruvísi en ver- ið hefur. Það standa til ýmsar breytingar skv. nýjum búfjár- ræktarlögum og þá m.a. að stofn- uð verði sérstök kynbótaráð í hverri búfjárgrein sem hafi með öll þessi mál að gera, nokkurs- konar fagráð,“ segir hann. „Ástæðan fyrir vali hesta inn á stóðhestastöðina fyrir utan þessa stóðhesta er sú að það voru færri hestar þarna í vetur, þeint hafði fækkað og það var ákveðið að nýta plássið. Við vildum líka afla frekari tekna til húsbyggingar sem þarna stendur yfir. Og svo til að iefla stóðhestakyn í landinu." — Það var ekki auglýst? „Nei, það var ekki gert opin- berlega. Það var bara látið berast að það væri pláss fyrir nokkra hesta og svo valið úr umsóknum. “ — Nú liljóta hestamenn aó sækja það fast að koma folum þarna að. Er ekki eðlilegt að þess sé krafist að staðið sé að þessum málum þannig að cnginn efist um að blutlægni ráði ferðinni? „Það vita það allir að þessi stöð starfar og menn sækja hér skrif- lega um inntöku. Svo eru um- sóknirnar bara teknar fyrir af kynbótanefndinni.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.