Pressan - 12.10.1989, Side 2
2
Það þarf að hýggja
að mörgu áður en
ungt sýningarfólk
gengur á svið. Hér
er verið að rifja upp
helstu atriðin. Börn-
in sýndu peysur,
sem Ásta Bjarna-
dóttir og Birna Páls-
dóttir hafa hannað.
!
! ! !
ARARIBAT
íslenskir fatahönnuðirætla ekki að leggja áraríbát og gefast
upp fyrirerlendri fataframleiðslu. Það sýndu þeirá laugardag-
inn var er félag fata- og textílhönnuða, FAT, efndi til tiskusýn-
ingar áHótel Borg, þar sem sjá mátti nýjustu línurnar í íslenskri
fatahönnun.
Salarkynni Hótels Borgar voru orðin troðfull á slaginu fjögur
síðdegis þegar sýningin átti að byrja, og komust greinilega
faerri að en vildu á þessa tískusýningu. íslenskir fatahönnuðir
fá ekki mörg verkefni í hendur, og auk þess sem samdráttar
hefur orðið vart í fataframleiðslu á síðustu mánuðum hefur
samkeppni við innfluttan fatnað aukist. Er því eðlilegt að is-
lenskir hönnuðir líti ekki alltof björtum augum til framtíðarinn-
ar, en félagarnir í FATætla ekki að gefast svo auðveldlega upp.
Meðlimir i FAT-félaginu eru nú um 30 talsins, en félagið var
stofnað fyrir réttum þremur árum. Fatahönnuðirnir héldu
fyrstu samsýningu sína fyrir tveimur árum, en hyggjast nú
mæta andstreyminu með bros á vör og berjast fyrir aukinni ís-
lenskri framleiðslu. Það var því ánægjulegt að sjá þann hóp
sem fyllti Hótel Borg þetta laugardagssíðdegi; fólk sem greini-
lega hefur áhuga á að fylgjast með hvað er að gerast á heima-
slóðum og styðja við bakið á löndum sínum.
velkomin i heiminn
Hún svaf vært dóttir þeirrar Ingi-
bjargar Gísladóttur og Magnúsar
Karlssonar þegar Ijósmyndarinn
mætti á Fæðingarheimilið. Daman
fæddist 2. október og var 15
merkur og 52 sm löng við fæö-
ingu.
„Ég er ekkert sofandi, ég er bara
að þykjast!" Arnar Freyrfæddist 2.
október og var skírður á sunnu-
daginn var, & október. Hann er
sonur Rósu Hansen og Sigurðar
Samúelssonar, var 15Vi mörk á
þyngd og 53 sm langur.
„Ætti ég að opna augun eða
ekki?" Þessi drengur er sonur Mar-
íu Sigurgeirsdóttur og Friðriks
Ámundasonar. Hann fæddist 1.
október, vó 15 merkur og var 52
sm langur.
„Oh hvað mér líður vel!" Dóttir
Rósu Morthens og Þrastar Jóns-
sonar fæddist 30. september sl.
Við fæðingu vó hún 14 merkur og
var 50 sm löng.
„Ég er líka strákur og ætta sko alls
ekki að opna augun, mér líður svo
vel!" Sonur Sigríðar Þorbjarnar-
dóttur og Þórhalls Ásgeirssonar
fæddist 2. október og var stór og
myndarlegur. Vó 17 merkur og var
55 sm langur við fæðinguna.
„Fyrst að þú horfir á mig, þá horfi
ég bara á þig á móti!" gæti þessi
dökkhærða dama verið aö hugsa.
Hún fæddist 5. október, dóttir
Katrínar Einarsdóttur og Gunnars
Rafns Erlingssonar. Stúlkan vó 13
merkur við fæðingu og var 50 sm
löng.
Inga Vigdís Einarsdóttir og Hjálm-
ar Jóhannsson eru foreldrar þess-
arar fallegu telpu, sem fæddist 5.
október. Hún var 14 merkur á
þyngd og 51 sm að lengd.
Þessi stúlka hefur þegar fengið
nafniö Katrín. Hún fæddist 21.
septembersl. og var 13 merkurog
49 sm. Foreldrarhennareru Hildur
Sigurðardóttir og Steinþór Jóns-
son.
Þessi drengur fæddist einnig 5.
október og var jafnþungur döm-
unni hér við hliðina á, 14 merkur.
Hann var 50 sm langur. Foreldrar
hans heita Hrefna Hermannsdótt-
ir og Örn Jóhannsson.
„Hei, hei, hvað voruð þið eiginlega
að hugsa? Að kalla mig strák...
Égi ersko stelpa\" Mynd af þessari
stúlku, dóttur Jónu Oddnýjar
Njálsdóttur og Einars Ágústsson-
ar, birtist í síðustu PRESSU og þar
var litla daman sögð vera strákur.
Hún fæddist 28. september, vó 17
merkur og var 53 sm löng.
STELPA, ekki strákur.
Fimmtudagur 12. okt. 1989
3
PRESSU
á hefur Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra lagt
fram frumvarp sitt til fjárlaga fyrir
næsta ár. Þetta eru í mörgum efnum
niðurskurðarfjárlög, þar sem ber
hæst pennastrikin á endurgreiðslu
söluskatts í sjávarútvegi, skerðingu
uppbóta á lífeyri, skerðingu hjá
byggingarsjóðunum, skerðingu út-
flutningsuppbóta, afnám jöfnunar-
gjalds í iðnaði, skerðingu niður-
greiðslna á rafmagni og skerðingu á
fjárfestingum og fjárfestingafram-
lögum. En skerðing á mörgum litl-
um póstum vekur líka athygli. Marg-
ir aðilar þurfa að bíta í það súra epli
að sjá fjárveitingar minnka í krónu-
tölu frá fjárlögum yfirstandandi árs,
sem í raun þýðir 30—50% skerð-
ingu. Meðal þessara liða í frumvarp-
inu eru Búnaðarfélagið, umferð-
arráð, Söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar, SÁA, Fasteignamat ríkis-
ins og Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins . . .
Þótt haustið sé
komið er óstæðulaust
að loka sig inni og
kvarta um kulda. Það
vita kapparnir sem
sigldu út ffró Seltjarn-
arnesi i síðustu viku
og Einar Ólason, Ijós-
myndari PRESSIINN-
AR, rak augun i. Það
var að visu nokkuð
kalt að detta i sjóinn,
— en samt, menn létu
sig haffa það og nutu
iþróttarinnar, veðurs-
ins og lifsins
almennt ...
...kjörin leið til sparnaðar
er Kjörbók Landsbankans
Betri, einfaldari og öruggari leið til ávöxtunar sparifjár er vand-
fundin. Háir grunnvextir og vérðtryggingarákvæði tryggja góða
ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 1 6 og 24
mánuði. Samt er innstæða
Kjörbókar alltaf laus.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna