Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 9

Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 12. okt. 1989 9 • Þrjár kœrur birtar í dag. Sakborningar eiga yfir höfdi sér allt ad 10 ára fangelsi. • Lögreglan telur ad bílaleiga hafi verid stofnud til að nota afraksturinn í kókaín- kaup. • Margir mánuðir liðu áður en fíkniefnalögreglan fékk spurnir af smyglinu. • Fundu 350 grömm í bankahólfi. L% Unnusta sakbornings sett í einangrun. Var hún sett inn til að þrýsta á að hann játaði? „Kannski, “ svarar lögreglufulltrúi. Á Geirsnefi við Elliðaár viðra hundeigendur gjarnan gæludýrin. Þarfannst hluti kókaínsins. Einangrunarvist í Síðumúlafangelsi var beitt til hins ýtrasta við rannsókn málsins. En hvers virði eru jótning- arnar? Myndin er sviðsett. fundust áhöld sem notuð eru við neyslu kókaíns og eitthvað lítið af efninu sjálfu. Næsta mánuðinn var Gunnar í stöðugum yfirheyrslum, en þess á milli hafður í einangrun í Síðumúla- fangelsinu. Fíkniefnalögreglan fékk margar ólíkar frásagnir af því hvern- ig Gunnar komst yfir kókaínið. í fyrstu sagðist hann einungis hafa keypt lítið magn af efninu og sendi lögregluna á staðinn sem hann geymdi það. Lögreglan kom tóm- hent tilbaka. Þegar á leið jókst magnið sem Gunnar játaði að hafa smyglað til landsins. Gunnar gerði svo betur grein fyrir geymslu efnisins og eftir hans forsögn fundu lögreglumenn um 350 grömm af kókaíni í banka- hóifi í Breiðholtsútibúi Landsbank- ans. Hann sagði í yfirheyrslu að sam- tals einu kílói af kókaíni hefði verið smyglað frá Bandaríkjunum. Sjálfur hefði hann farið til Bandaríkj- anna og keypt efnið. Eitrið hefði verið falið í varadekki bifreiðar sem hann keypti og flutti inn fyrir kunn- ingja sinn, Karl (nafni breytt af ritstj.). Lögrggjan sannfearist um sek* Alberts Þó að nafn Karls hafi borið á góma þegar í fyrstu yfirheyrslu yfir Gunnari var Karl ekki yfirheyrður fyrr en tveim vikum síðar. I stað þess að rannsaka strax hlutdeild Karls einbeitti lögreglan sér að tengslum Gunnars við Albert. Ein útgáfa af framburði Gunnars var að hann og Albert hefðu staðið fyrir smyglinu og væri Albert frum- kvöðullinn. Lögreglan fékk Gunnar til að játa að bílaleiga þeirra félaga hefði verið stofnuð vorið 1988 og rekin með það fyrir augum að fjármagna fíkni- efnakaup. Þegar kókaínið fannst í banka- hólfinu sannfærðist fíkniefnalög- reglan um sekt Aiberts. Hann var handtekinn í annarri viku maímán- aðar. Frá fyrstu stundu neitaði Albert allri þátttöku í smyglinu. Hann sat í einangrun í Síðumúlafangelsi frá 12. maí tii 31. júlí, eða í 80 daga. Síðasta mánuðinn í einangrun var Albert aðeins yfirheyrður einu sinni, sem bendir til að gæsluvarðhaldinu hafi verið beitt til að þvinga fram játn- ingu fremur en það hafi verið nauðsynlegt rannsóknarinnar vegna. Reynir Kjartansson lögreglufull- trúi andmælir því að gæsluvarðhald hafi verið notað fram úr hófi. „Það er stefna okkar að halda mönnum ekki lengur en nauðsyn krefur," segir hann. Nauðsyn er teygjanlegt hugtak í þessu samhengi og litlar skorður eru reistar í lögum við mis- beitingu gæsluvarðhalds. Fíkniefnalögreglan vildi fram- lengja einangrunarvist Alberts þeg- ar hún rann út 31. júlí og fór fram á að hann yrði hafður í einangrun til 30. september. Dómara sem ætlað var að samþykkja kröfuna var hins- vegar nóg boðið og hafnaði kröfu lögreglu. Ásgeir Friðjónsson saka- dómari segir gæsluvarðhald Alberts vera það lengsta sem hann muni eft- ir frá síðustu árum. Ásgeir breytti einangruninni í einfalt varðhald. Al- bert var fluttur í fangelsið á Skóla- vörðustíg 9, þar sem hann getur um- gengist aðra fanga og fær heimsókn einu sinni í viku. Albert verður geymdur á Skólavörðustíg þangað til dómur fellur. Löflfglan tekur unnustuna wm gi»l Fíkniefnalögreglan er óvön því að einstakiingar, sakaðir um fíkniefna- misferli, standi fastir á sakleysi sínu. Nokkurra vikna einangrunar- vist brýtur mótþróa flestra á bak aft- ur og sakborningar játa til að losna úr prísundinni. Sannleiksgildi slíkra játninga er oft takmarkað. „Það er sjaldgæft að menn neiti, en þekkist þó," segir Reynir Kjart- ansson lögreglufulltrúi. Albert er eitt af þessum sjaldgæfu filfellum. Þess vegna þurfti hann sérstaka meðferð. I byrjun júní var unnusta Alberts tekin höndum og sett í einangrunar- vist í Síðumúla. Lögreglan hafði litla ásíæðu til að ætla að unnustan tengdist smyglinu. Engu að síður taldi fíkniefnalögreglan nauðsyn á að unnustan yrði svipt frelsi. Saka- dómari féllst á mat lögreglunnar. Stúlkan sat inni í fimm vikur og allan tímann í einangrun. Ungu barni hennar og Alberts var komið til vandamanna. Spurningunni um það hvort unn- ustu Alberts hafi verið haldið í ein- angrun í fimm vikur til að þrýsta á að Albert játaði svarar Reynir Kjart- ansson lögreglufulltrúi með þessu orði: „Kannski.” Þrátt fyrir ýtrustu þvinganir gaf Albert sig ekki og heldur til streitu sakleysi sínu. Vitni deyr i meðferd Húsleit á heimili Aiberts var árang- urslaus. Rannsókn á fjárreiðum hans skilaði sömuleiðis litlum ár- angri. Það eina sem lögreglan hafði í höndunum var framburður Gunn- ars og óljós vitnisburður tveggja til þriggja annarra manna, sem tengd- ust málinu í gegnum sölu á kókaín- inu. Söluaðilum bar ekki saman um hver hefði látið þá fá kókaínið. Einn þessara aðila, Lárus (nafni breytt af ritstj.), kvaðst hafa tekið að sér sölu á litlum hluta efnisins. Lárus var fíkniefnaneytandi og lést af völdum neyslunnar rétt eftir að hann var tekinn inn á meðferðar- stofnun. Þegar hér var komið sögu þótti lögreglunni sýnt að rannsóknin væri komin í blindgötu. Fyrir utan þau 350 grömm sem lögreglan fann í bankahólfinu fundust um 100 grömm á Geirsnefi við Elliðaárnar, eftir vísbendingu frá sölumanni. Af- gangurinn hefur ekki komið í leit- irnar og vantar þá rúmlega helm- inginn af því magni sem lögreglan telur að hafi verið smyglað hingað. Kókaínið var flutt til fslands falið í varadekki bifreiðar sem Gunnar sagðist hafa keypt fyrir Karl. Karl var fyrst tekinn til yfirheyrslu rúmri viku eftir að Gunnar sagði frá inn- flutningnum. Karl neitaði allri aðild, en staðfesti að hafa beðið Gunnar að kaupa og flytja bíl til íslands frá Bandaríkjunum haustið 1988. Eftir þessa yfirheyrslu var Karli sleppt. Þrem vikum síðar losnaði Gunnar úr fangelsinu. Karl og Gunnar voru frjálsir ferða sinna, en Albert lokað- ur inni. Karl teklnn qftur Þegar hvorki gekk né rak með Al- bert beindi lögreglan sjónum sínum aftur að þátttöku Karls. Hann var handtekinn síðari hluta júní og úr- skurðaður í einangrun. Nú bar svo við að Karl játaði á sig hlutdeild í málinu. Hann mun hafa játað hvorttveggja að hafa lagt til peninga fyrir fíkniefnakaupum og bifreiðinni sem smyglið var falið í. Karl bar að Albert hefði verið að- alhvatamaður að framtakinu og tók þar með undir orð Gunnars um frumkvæði Alberts. Sá framburður Gunnars sem iög- reglan tók góðan og gildan gengur út á það að Albert hafi verið upp- hafsmaðurinn að smyglinu og skipulagt það. Gunnar segist ekki hafa vitað um þátt Karls. Karl segir svipaða sögu og mun hafa sagt lögreglu að sér hafi verið ókunnugt um hlutdeild Gunnars. Á meðan Albert neitar standa orð hans á móti hinna tveggja, sem bera hvor um sig að Albert sé höfuðpaur- inn. Gunnar og Karl hafa augljósra hagsmuna að gæta þar sem afbrot þeirra verður óverulegra ef sakir sannast á Albert. Akssruvaldið gHm-nt i fikniefnqmálum Fíkniefnalögreglan skilaði af sér rannsókninni þann 12. september og saksóknari hóf undirbúning málshöfðunar sem leiddi til ákæru í gær. Hvorttveggja lögregla og ákæru- vald taka fast á fíkniefnamálum. Dæmi um það er hve gæsluvarð- haldi er beitt miskunnarlaust. í lög- um um meðferð opinberra mála er sú smuga gefin að manni sem sak- aður er um brot er varðar tveggja ára fangelsi eða lengri refsingu má halda í gæsluvarðhaldi allt þar til dómur fellur. Vanalega er þessi möguleiki ekki notaður nema þegar ofbeldismenn eiga í hlut, menn sem taldir eru hættulegir umhverfi sínu. Upp á síðkastið hefur það færst í vöxt að sakborningar í fíkniefna- málum fái sömu meðferð og ofbeld- ismenn og nauðgarar hvað gæslu- varðhald áhrærir. Einkum gildir það þegar „hvítu" fíkniefnin (m.a. kóka- ín og amfetamín) eru tilefnið. Það er litið mildari augum á kannabisefni eins og hass og maríjúana. Dómstólar eru að sama skapi harðir í horn að taka í fikniefnamál- um. Almennu hegningarlögin leyfa allt að 10 ára fangelsisdóm fyrir inn- flutning og viðskipti. með fíkniefni. í sumar féll dómur í Hæstarétti í máli manns sem borinn var þeim sökum að hafa flutt inn rúm 50 grömm af kókaíni. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Egill R. Stephensen saksóknari fer með málið fyrir hönd ríkissak- sóknara. Hann segir að þótt aðeins þrír séu ákærðir núna muni emb- ættið innan tíðar leggja fram ákæru á hendur öðrum aðilum sem tengjast málinu. Stærstur hluti kókaínsins sem fannst var geymdur í bankahólfi í BreiAholtsúti- búi Landsbankans.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.