Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 22

Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 22
22 Fimmtudagur 12. okt. 1989 Nýi Dómkirkjupresturinn í Reykjavík Jakob Ágúst Hjálmarsson vildi verða engill / október 1972 var madurinn háskólanemi í Reykjavík. Eiginkona hans var líka við nám þar ogþau áttu engin börn. Ioktóber 1973 — nákvœmlega ári síðar — voru þau orðin prestshjón á Austfjörðum með þrjá lítil börn! EFTIR: JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR — MYND: EINAR ÓLASON Hjónin, sem upplifðu þessa róttæku breytingu á heimilishögum á einu ári, eru þau Jakob Ágúst Hjálmarsson, nýskipaður Dómkirkjuprestur, og Audur Daníelsdóttir, sem er að taka við starfi hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Blaðamaður PRESSUNNAR mælti sér mót við Jakob fyrir skemmstu til að fræðast örlítið um þennan unga mann, sem nú í haust tók við einu besta brauð- inu innan Þjóðkirkjunnar. Maðurinn, sem kom til dyra í tvíbýlishúsinu úti á Seltjarnarnesi, minnti helst á íþróttaþjálf- ara frá Austur-Evrópu. Hávaxinn og kraftalegur með rautt hár og stríðnislegt blik í augum. Hann rétti mér hægri höndina og hún gleypti mína ... Mikill reynslutimi Jakob er Vestfirðingur, fæddur á Bíldudal, sonur þeirra Suanhvítar Ásmundsdóttur og Hjálmars Ágástssonar. Vegna skólagöngu fór hann að heiman alla vetur frá sextán ára aldri. Fyrst á Núp, þar sem hann tók landspróf, og síð- an í Menntaskólann á Akureyri, en þaðan lauk hann stúdentsprófi árið 1967. Jakob kynntist konuefninu sínu Auði Daníels- dóttur í MA, en fyrstu búskaparárin bjuggu þau í Reykjavík þar sem hann stundaði nám við guð- fræðideild háskólans en Auður nam félagsfræði. En stúdentslífið tekur enda og haustið 1972 tók líf þeirra Jakobs og Auðar mikilli stökkbreyt- ingu. Þau eignuðust þá tvo stráka og þann þriðja haustið á eftir, skömmu áður en Jakob tók við embætti sóknarprests á Seyðisfirði. í október 1973 var það því fimm manna fjölskylda, sem fluttist austur á firði. — Pessi umbylting hefur eflaust reynt heilmik- iö á ykkur? „Þetta var auðvitað afskaplega mikil breyting. Ekki síst ef haft er í huga að námsmaður lifir í mjög vernduðu umhverfi. Hann keppist við að leysa huglæg verkefni og getur bætt um betur, ef illa gengur, en þegar skólanum lýkur er mað- ur kominn út í raunveruleikann. Alvöru iífsins. Ég var ekki lengur bara eitt lítið hjól í stórri vél, heldur einn af áberandi embættismönnum kaupstaðar, þó ég væri ekki nema 26 ára gamall. Það segir sig því sjálft að þetta var erfiður tími, en sem betur fór vorum við hjónin bæði ung og hraust og fundum því ekki svo mikið fyrir þessu. Og þó ... Það var auðvitað ýmislegt, sem tók á. Fyrsta veturinn fengum við t.d. íbúð til bráða- birgða, þar sem verið var að gera við prestsbú- staðinn, en það húsnæðið var bæði þröngt og óhentugt fyrir barnafólk. Maður var líka fjarri öllum skyldmennum, sem hefðu getað hlaupið undir bagga, og veðráttan þetta haust var með eindæmum slæm. Þar að auki var óvenjulega mikið um dauðsföll á staðnum, því það dóu níu manns frá miðjum október og fram að áramót- um — þar á meðal héraðslæknirinn." Eldskirn i bókataflegri murkingu Jakob verður alvarlegur í bragði, þegar hann rifjar upp atvik frá þessum fyrsta vetri fyrir aust- an: „I eitt skipti á þessum fyrstu mánuðum dóu hjón og tvö börn, þegar hús brann nóttina fyrir Þorláksmessu. Það var eldskírnin mín í prests- starfinu ... Síminn hringdi um miðja nótt og í honum var kona í miklu uppnámi, sem sagði mér að hús eitt í bænum væri að brenna. Mér fannst þetta af- skaplega óraunverulegt og ótrúlegt, en klæði mig þó og fer út í bæ. Þá var verið að slökkva í rústunum og ekki ráðlegt að fara strax inn, svo ég fór heim til konunnar sem hafði hringt, en hjá henni gisti þessa nótt telpa úr húsinu sem brann. Þegar ég kom frá konunni sá ég hvar slökkvi- liðsmennirnir stóðu fyrir utan brunarústirnar og höfðu sig greinilega ekki í að fara inn. Mér fannst ég þess vegna mega til að ganga fyrstur inn í húsið — og það var alveg hrœdileg reynsla. Það var ekki einu sinni vitað hversu margir hefðu verið í húsinu, því þar höfðu margir verið saman komnir kvöldið áður, svo við þurftum að leita um allt að líkum og bera kennsl á þau. Og ég, sem hafði nýverið séð dána manneskju í fyrsta sinn! Við uppgötvuðum það síðar, ég og yfirlög- regluþjónninn, að við hefðum báðir gert ná- kvæmlega það sama, þegar heim kom um sjö- eða áttaleytið um morguninn. Við gengum inn til barnanna okkar og tókum þau í fangið. Það var mikil fróun í því að vita þau heil á húfi og finna þessa huggunarríku andstæðu við óhugn- aðinn, sem við höfðum orðið vitni að.“ Munur ú AusHirðingum og_________________ VesHirðlngum____________________________ — Var prestsfjölskyldan ekki líka undir tölu- verdu álagi, þar sem menn œtlast oft til ad hán sé öörum til fyrirmyndar? „Auðvitað er prestsfjölskyldan undir nokkurs konar smásjá og það er álag að lifa lífi sínu svona opinberlega. Ég geri þó ráð fyrir að þetta hafi verið miklu erfiðara fyrir Auði og strákana en fyrir mig. Þetta er starfið mitt, sem ég geng inn í, en það dregst upp á þau. Ég geri ráð fyrir að strákarnir hafi nú stundum fundið fyrir því að vera synir prestsins, þó þeir hafi ekki kvartað neitt óskaplega undan þessu.“ Eftir fjögurra ára dvöl á Seyðisfirði fékk Jakob embætti sóknarprests á ísafirði og flutti þangað með fjölskylduna. En skyldi hann finna ein- hvern mun á mannfólkinu fyrir austan og vest- an? Hann þurfti ekki að hugsa sig um, heldur svaraði að bragði: „Ég finn greinilegan mun á fólki á Austfjörð- um og Vestfjörðum, þó þeir, sem búa á fjörðun- um fyrir austan, eigi að vísu margt sameiginlegt með Vestfirðingunum. Á Austfjörðum er stöðug- lyndara veður og fiskislóðin ekki jafnviðsjár- verð og hún getur verið fyrir vestan. Sjó- mennskan fyrir austan er því öruggari og takt- fastari. Þar að auki hefur töluvert af fólki flust frá Héraði og niður á firði — sveitafólk, sem er stöð- uglyndið uppmálað. Fyrir vestan eru hins vegar hreinlega villi- menn, þó ég meini það alls ekki í vondum skiln- ingi. Okkur leið mjög vel á ísafirði og eignuð- umst þar ótal vini. Þarna hefur fólk búið í villtri náttúru, kynslóð fram af kynslóð, og þar er sko ekki stöðuglyndinu fyrir að fara, nema í úthald- inu og viðleitninni til að bjarga sér. Vestfirðingar gera þad sem þarf, burtséð frá því hvort þeir geta það eða ekki. Þetta er í senn undarlega hart og blítt fólk. Þeir geta verið'mjög góðir og sannir vinir og blíðir við sína nánustu. En líka fjári grimmir, þegar því er að skipta, og þeir láta heyrast í sér. Meiningin er sögð fullum hálsi. Maður gæti þess vegna ímyndað sér að þetta fólk særði hvað annað meira en aðrir, en það held ég að sé ekki rétt. Þetta er bara talsmáti." Þurfti ekki uð verq brúðheilagur Eins og áður sagði er Jakob mjög ólíkur þeirri ímynd, sem margir hafa óneitanlega af klerkum. Ekki síst þar sem hann sat í íþróttagalla í stof- unni heima hjá sér, með kitlandi prakkarasvip á andlitinu eftir að hafa lýst fyrir mér hinum villi- mannslegu vestfirsku persónueinkennum. Ég stóðst ekki mátið og spurði hvað hefði orðið til þess að hann fór í guðfræðideildina á sínum tíma. Jakob tók spurninguna greinilega ekkert illa upp, heldur hló dátt og sagði: „Ég hélt raunar lengi að einungis rosknir og virðulegir menn yrðu prestar, svo það hvarflaði ekki að mér að ég ætti sjálfur eftir að gegna þessu starfi — a.m.k. ekkert frekar en að ég yrði engill, sem var draumur minn í æsku. Mér fannst englar einstaklega fallegir og í svo nánu sambandi við guðdóminn. Ég var mjög trúað barn og vildi gjarnan verða einn af þessum vild- arvinum Guðs. Á unglingsárunum hætti maður að mestu að „pæla“ í þessum málum og þegar menntaskól- anum lauk fór ég í læknisfræði, án þess að langa þó til að verða læknir. Ég sá það aldrei fyrir mér, enda hætti ég fljótlega og réð mig sem kennara vestur í Stadarsveit. A Staðarstað var virðulegur eldri prestur, séra Þorgrímur Sigurdsson, en hann var í leyfi þennan vetur og í þjónustu fyrir hann var bráðungur maður, séra Arni Pálsson. Og þá rann upp fyrir mér ljós. Ég sá nefnilega að hægt væri að vera töluvert mikill galgopi, án þess að vera meiri galgopi en hann! Maður þyrfti sem sagt ekki endilega að vera alveg bráðheil- agur til að vera prestur. Þessi uppgötvun var þó raunar mest í undir- meðvitundinni. Á yfirborðinu fann ég mikið til þess að standa á krossgötum og verða að ákveða hvað ég vildi gera með lífið.“ Guð talaði til min „Eg ákvað sem sagt að fara í guðfræðina, m.a. til að fá einhvern botn í tilveruna, en ætlaði mér ekkert að gerast prestur. Helst bjóst ég við að verða síðar meir kennari eða skólastjóri. En deildin mótaði mig og allt í einu áttaði ég mig á því ég væri búinn að flækja mig inn í samband við söfnuð austur á fjörðum, sem ég sagðist ætla að verða prestur hjá! Ég gleymi aldrei hvernig þessu laust skyndilega niður í mig eins og eld- ingu — og ég varð svo hræddur að ég gekk bók- staflega með veggjum í marga daga. Mér fannst ég ekki hafa nokkra köllun til að sinna þessari stöðu, sem ég var búinn að lofa að taka að mér. Ég var í fúlustu alvöru skelfingu lostinn .. . Þetta lagðist verulega á mig. Við þessa togstreitu bjó ég um sinn og þá fann ég til mikillar löngunar til að vita að Guð væri með í dæminu og að hann ætlaði virkilega nota mig. Ég bað fyrir þessu, talaði við Guð og bað hann að fyrirgefa mér þetta frumhlaup. En allt í einu man ég eftir svokölluðum „mannakorn- um“, sem voru það eina sem ég átti eftir ömmu mína. Ég gróf upp þessa miða og setti þá í fallega krukku, sem við Auður áttum. Síðan horfði ég á krukkuna í marga daga, án þess að þora að draga, á meðan ég velti því fyrir mér hvort ég mœtti biðja Guð um að tala til mín í gegnum miðana. Að endingu dró ég og þar var kominn sáttmálinn á milli mín og Guðs. Það var engin spurning. Á miðanum stóðu eftirfarandi úr Jesaja: „En nú segir Drottinn svo, sá er skóp þig Jakob og myndaði þig ísrael: Óttast þú eigi, því að ég frelsa þig. Ég kalla á þig með nafni, þú ert minn. Gangir þú gegnum vötnin, þá er ég með þér, gegnum vatnsföllin, þá skulu þau ekki flæða yfir þig. Gangir þú gegnum eld, skalt þú eigi brenna þig, og loginn skal eigi granda þér. Því að ég, Drottinn, er Guð þinn. Hinn heilagi í ísrael frels- ari þinn.“ Þetta var sláandi, því ég var m.a.s. ávarpaður með nafni!" Sársaukafull reynsla________________________ „Reynslan hefur líka sýnt að ég hef getað treyst Guði. Það kom t.d. glögglega í ljós á þessu ári. Það hefur ýmislegt gerst á þeim sextán ár- um, sem ég hef verið prestur. Ekkert hef ég þó tekið jafnmikið nærri mér og það, sem gerðist á ísafirði eftir að sóknarkirkjan brann. Þá kom allt í einu í Ijós að fólkið í söfnuðinum var ekki sam- mála formlegum samþykktum safnaðarins, sem gerðar höfðu verið á opnum og lýðræðislegum fundum. En söfnuðurinn hafnaði því, sem unnið hafði verið að, svo þetta var ónýtt mál. Þetta reyndist mér ákaflega sársaukafullt. Mér fannst bókstaflega sem starf mitt þarna væri runnið út í sandinn. Ég leit ekki bara á þessa af- stöðu sem höfnun á kirkjubyggingunni, heldur á þeirri safnaðaruppbyggingu, sem ég hafði stað- ið fyrir. Ekki svo að skilja að þetta hafi orsakast af óvandaðri hugsun eða einhverju fúski. Þarna varð einfaldlega ákveðinn múgæsingur eða hópefli, sem enginn mannlegur máttur fékk við ráðið. Mér hefði hins vegar að mörgu leyti verið erf- itt að starfa þarna áfram og þess vegna sótti ég um embætti Dómkirkjuprests. Og það, sem mér hafði fundist hið versta óefni, snerist upp í dæmalaust góða niðurstöðu, sem mér finnst mikil Guðsgjöf — hvernig svo sem hún er til komin." Betra að bæta við en breyta — Hvernig var fyrir ungan og þróttmikinn mann að koma til starfa í jafnrótgróinni og íhaldssamri stofnun og kirkjan er? „Ég viðurkenni, að þetta var oft erfitt til að byrja með. Ég hafði mikinn hug á að fá ýmsum hlutum skipað á annan veg innan kirkjunnar. En það reyndist ekki auðvelt... Raunar hafa þó orðið töluverðar breytingar á þeim sextán árum, sem ég hef verið prestur. Þátttaka safnaðarfólks í kirkjustarfinu er orðin meiri — þ.e.a.s. kannski ekki almennari, heldur meiri að magni. Það hefur líka orðið breyting á guðsþjónustunni og á þjónustu safnaðanna. Þetta sýnir okkur að það er hægt að breyta ýmsu, en svo er auðvitað annað sem ekki má snerta við. Núna hef ég hins vegar sjálfur breytt svolítið um afstöðu. Ég er hættur að vilja breyta jafn- miklu og áður. Þess í stað einbeiti ég mér að því, sem hægt er að bœta við. Það er nefnilega miklu auðveldara að byggja upp nýja hluti en að um- bylta þeim, sem fyrir eru. Svo dæmi sé tekið get ég t.d. nefnt fjölskylduguðsþjónustur, sem við erum að byrja með í Dómkirkjunni, daglegar belgistundir um fimmleytið á virkum dögum og ýmislegt fleira, sem við höfum á prjónunum.“ — Hvaða skoðun hefur þá á sálarrannsókn- um og lœknamiðlum, Jakob? „Mér dettur ekki í hug að segja að öll þessi fyr- irbrigði, sem lýst er af sálarrannsóknarmönn- um, séu markleysa. Ég veit hins vegar ekkert um raunveruleikann þarna á bakvið, þó ég gefj gert ráð fyrir því að hann sé einhver. Ég get a.m.k. ekki efast um sannfæringu þeirra, sem upplifa þetta. Mér finnst, að menn verði að sinna þessum málum með mjög mikilli gát, enda held ég, að hér sé um að ræða skilningsform, sem eru al- gjörlega á mörkum mannlegrar getu. Það liggur raunar í augum uppi, því það eru einungis fáir, sem eru þessum hæfileikum búnir . . . Ég get vel ímyndað mér að maðurinn sé enn að þróast og með honum sé að eflast einhver hæfileiki, sem við köllum í dag „yfirskilvitlegan". Hæfileiki, sem í fjarlægri framtíð gæti átt eftir að verða al-' mennari og sjálfsagðari. í dag vitum við hins vegar svo óskaplega lítið um þessi mál. Hver veit t.d. nema læknamiðlar njóti alls ekki að- stoðar framliðinna manna, eins og sálarrann- sóknarmenn halda fram, heldur engla?!“ — En eru englar ekki bara látnir menn? „Nei, nei. Alls ekki. Samkvæmt Biblíunni eru englar þjónustubundnir andar hjá Guði. Hitt er annað mál að englar eru sendiboðar og það er fullt af englum í mannlífinu." Mismunandi hjónaskilnaðir — Er ekki svolítið sárt að gefa saman uppá- klœdd bráðhjón, þegar þér hlýtur að vera manna Ijósast hve mörg hjónabönd enda í skiln- aði eftir nokkur ár? „Vissulega er það sár tilhugsun. Við þurfum hins vegar ekki að vera svo hissa á því að hjóna- bönd gangi illa. Þjóðfélagið er þess eðlis að það byggir mjög mikið á hverjum einstaklingi og bæði hjónin eru þess vegna að leita að sjálfum sér og sinni hillu í lífinu. Það er óhjákvæmilegt og þar með rekur í ákveðnum tilvikum að því að þau eiga ekki lengur samleið — nema annar að- ilinn sé reiðubúinn að fórna sér fyrir hinn. Og hver getur krafist slíkra fórna? í slíkum tilfellum segir maður bara „Það var ekkert við þessu að gerá', enda getur margt af þessu fólki skilið í vináttu. En í öðrum tilvikum skilja hjón eingöngu vegna þess að þau eru ekki tilbúin að halda út, þegar erfiðleikar steðja að. Þetta eru afleiðingar neysluþjóðfélagsins. Fólk trúir því að það eigi ávallt heimtingu á galla- lausri vöru! Það heldur líka að lífið eigi að vera gallalaust og þegar illa gengur er þessum hluta lífsins einfaldlega „skilað". Með þetta veganesti hvarf ég af fundi Jakobs úti á Seltjarnarnesi. Hann hefur eflaust tekið til við að semja stólræðu eða rifja upp fræðin sín, en í huganum sá ég hann samt fyrir mér snúa sér að lóðalyftingum eða annarri líkamsrækt um leið og ég væri úr augsýn ...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.