Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 6

Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 12. okt. 1989 VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Blað hf. Hákon Hákonarson Jónína Leósdóttir Ómar Friðriksson Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1000 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 150 kr. eintakið. ÓSVÍFNI ÓLAFS RAGNARS Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra boðaði fréttámenn nokkurra fjölmiðla á leynilegan kynningarfund um fjárlagafrumvarpið sl. mánudags- kvöld. Hér var ekki um eiginlegan blaðamannafund að ræða heldur svokall- aðan „off record-fund eins og slíkt er stundum kallað. Þar er tekið loforð af viðstöddum að þeir greini í engu frá því sem fram kemur á fundinum. í gær var svo hinn opinberi fréttamannafundur um fjárlagafrumvarpið hald- inn og eftir þann fund var fréttamönnum fyrst frjálst að greina frá efni fjár- lagafrumvarpsins. Trúnaðarfundir á borð við kynningarfund fjármálaráðherra hafa nokkuð tíðkast í öðrum löndum en verið harkalega gagnrýndir. Trúlega telur Ólafur Ragnar að hann sé með þessu að innleiða nútímaleg samskipti við blaða- menn. Það er hróplegur misskilningur. Víða um lönd gengur umræða frétta- manna mest á þann veg að draga úr möguleikum stjórnmálamanna og emb- ættismanna til að mata fjölmiðla með upplýsingum undir nafnleynd. Það er viðurkennt að fjölmiðlar verða oft að vernda heimildarmenn sína en það er fjölmiðlanna sjálfra að ákveða hvort slíkt er nauðsynlegt. Á mikilli ráð- stefnu sem haldin var með mörgum helstu ritstjórum og fréttamönnum í Bandaríkjunum fyrir fáum árum var mikið rætt um trúnaðarfundi stjórn- valda með fréttamönnum. Enginn mælti slíkum fundum bót og upplýst var að nokkrir stærstu fjölmiðlarnir sinntu þeim ekki. Það þjónar í engu hag al- mennings að fréttamenn sitji á trúnaðarfundum með ráðherra. Það er held- ur ekki hlutverk ráðherra að matreiða skýringar ofan í fréttamenn. En Ólafur Ragnar gengur enn lengra. Skv. fréttum DV í gær er ráðherra farinn að velja úr þá fjölmiðla sem honum eru þóknanlegir til að sitja slíka leynifundi. Til að bæta svo gráu ofan á svart blaðrar hann um það opinber- lega hvaða fjölmiðlum hann telur treystandi og hverjum ekki. Þetta er ein- stæð ósvífni manns í ábyrgðarstöðu sem getur aðeins gengið út á að skaða traust einstakra fjölmiðla meðal almennings. Ólafur Ragnar er í opinberri ábyrgðarstöðu og er skylt að veita opinberlega upplýsingar án tillits til þess hvað sá fjölmiðill heitir sem leitar eftir þeim. Fordómar Ólafs Ragnars sem lýsa sér í athöfnum hans og orðum undanfarið eru til þess fallnir að draga fréttaumfjöllun áratugi aftur í tímann. Mætti ráðherra minnast þess að upp- lýsingahlutverk fjölmiðlanna er ekki síður mikilvægt í þroskuðu lýðræði en embættisverk hans sjálfs úr ráðherrastólnum og fjölmiðlum á ekki að stjórna úr fjármálaráðuneytinu. þankabrot Harkan í fyrirrúmi Hérna áður fyrr glumdu oft í eyr- um manns þær fullyrðingar að ,,ís- lendingar væru eins og ein stór fjöl- skylda”. Við vorum sögð svo sam- heldin að það hálfa væri nóg; eng- inn mátti vita af neinum sem minna mætti sín, þá væri helmingur þjóð- arinnar risinn upp til hjálpar. Nú er öldin önnur. Við þurfum ekki annað en horfa á stjórnmálamennina, þar sem hver snýr bakinu í annan um leið og færi gefst til að sjá hvað það er sem gildir hér; þeim ruddaieg- ustu gengur best að komast áfram og „rýtingsstungurnar" sem fólk sjokkeraðist yfir fyrir nokkrum ár- um eru orðnar daglegt brauð. — ooo — En það eru fleiri en pólítíkusar sem beita hörku. Það var til dæmis hérna í fyrravetur að 87 ára gömul kona skrapp niður í Kjörgarð að kaupa jólagjöf. Hún tók strætisvagn niður Laugaveginn og ætlaði síðan með vagninum frá Hverfisgötu upp á Rauðarárstíg til baka. Þegar hún kom upp í vagninn á heimleið rétti hún bílstjóranum — sem var kona — skiptimiðann sinn. Hann hafði runnið út um það bil tveimur mínút- um áður. Það skipti engum togum, strætisvagnsstjórinn skipaði gömlu konunni annaðhvort að fara út úr vagninum eða borga fargjaldið. „Skiptimiðinn gildir ekki lengur.” Gamla konan var ekki með buddu fulla af smáaurum, eins og yngra fólk gengur gjarnan með, aðeins 1000 króna seðil. En gat strætis- vagnsstjórinn gefið til baka? O, nei, ekki aldeilis. Meðan gamla konan leitaði eftir aurunum sínum hafði vagninn haldið ferð sinni áfram upp á næstu stöð á Hverfisgötunni. Þeg- ar ljóst var að gamla konan hafði ekki þessa aura sem ellilífeyrisþeg- um er gert að greiða í strætó opnaði vagnstjórinn hurðina og vísaði henni á dyr. Fullorðin frú, farþegi með vagninum, tók upp smápen- inga og greiddi fargjaldið. — ooo — Þetta er í sjálfu sér engin stórfrétt og hefði aldrei lent á forsíðu né ver- ið tekin fyrir í útvarpsfréttum. Það að kona í vondu skapi sem keyrir strætó hendi gamalli konu út úr vagninum þykir ekkert tiltökumál. Þegar menn borga ekki skuldir sín- ar á gjalddaga er farið í hart, það er varla til hugtakið ,,að semja” lengur. Þegar heiðvirður maður — sem skipt hefur við sama bankann árum saman — er ekki búinn að borga Visa-reikninginn sinn að morgni sjötta, þegar gjalddaginn var fjórða, þá hefur útibússtjórinn ekkert ann- að að gera en hringja í viðkomandi og skamma hann. Þetta viðhorf „ég geri eins og mér hentar" sést víðar, til dæmis þegar sótt er um atvinnu. Alls konar stjórum berast alls konar bréf á ári hverju, en fæstir kunna þá almennu kurteisisreglu að svara. Þannig hefur skrifstofustjóri við eina æðstu stofnun landsins til dæmis engu sinnt umsókn um at- vinnu sem ég veit að honum var af- hin pressan „Ágreiningur hér innanhúss er bara hluti af okkar lýðræði." — Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri i Morgunblaðinu. „Fréttastofan lýtur stjórn fréttastjóra og yfirstjórn Stöðvar 2 hefur ekkert með fréttastefnuna að gera." — Páll Magnússon fréttastjóri í Morgun- blaðinu. „Það fæst enginn til að vera þarna." — Guðjón Magnússon aöstoöarlandlæknir um læknisskort á Þingeyri í DV. „Hvað meinar Morgunblaðið?" Lesendabréf í DV. „íslendingar hafa, að því er virðist, mjög takmarkaðan áhuga á „skít- verkum" ýmiskonar." — Frétt í Tímanum „Normaljóninn ræki í hvern roga- stansinn eftir annan, upp á hvern dag, væri ekki endaleysan og dellusíbyljan búin svo að sverfa til í honum skilningarvitin og sál- ina að hann er löngu orðinn dof- ineyröur fyrir henni sem og öðru — Eyvindur Erlendsson í Þjóðviljanum „53,7% íslendinga lesa bækur liggj- andi..." — Frétt í Morgunblaðinu hent persónulega fyrir rúmu ári. Harkan og ókurteisin í fyrirrúmi, það er hið nýja mottó íslensku þjóð- arinnar. Skyldi hún hafa þetta nýja mottó að leiðarljósi móðirin sem gekk vestur Ránargötuna nýlega með tvö börn sín? Sú ágæta móðir í fínni dragt öskraði svo á eldra barnið, á að giska fjögurra ára stelpu, að íbú- ar við götuna ruku út í glugga til að vita hvað gengi á. Sú fjögurra ára átti að ganga við hliðina á barna- vagninum, ekki á undan honum. Og ef maður hlýðir ekki, hvort sem maður er fjögurra ára eða fjörutíu og fjögurra, þá er öskrað á mann. íslenskan þjóðin þarf á mörgu öðru að halda en því að menn týni niður þeirri litlu hlýju sem þó býr innra með flestum. Kjaftforir stjórn- málamenn, geðillar kerlingar sem keyra strætó eða óánægður útibús- stjóri eru engin fyrirmynd. Þeir sem eru óánægðir með sjálfa sig breiða óánægju um allt. Látum þá ekki komast upp með það! „Ég hef leitaö mér aö vinnu, en þaö viröist enginn vilja ráöa menn, sem orönir eru fimmtugir. “ — Hrafn Bachmann í DV. „Það er með Davíð eins og gæðing, sem eigandinn lofar og prísar fyrir kosti og lætur aðeins keppa á hér- aðsmótum, en hleypir honum ekki í stóru keppnina á landsmótinu." — Guömundur Einarsson í Alþýðublaðinu. „Paö sem ísland hef- ur fram yfir stórþjóöir er aö hér vantar lýö- inn . . .“ — Gunnar Eyþórsson í DV. „í suðurlöndum er það sem sé út- breidd venja, þegar karlmaður kemst í návígi við konu, að hann hafi í frammi við hana alls kyns graðhesta- tilburði, þó svo að gervallar aöstæð- ur séu á þá leið að slíkt sé fullkom- lega úr takt og með öllu tilgangs- laust." — E.M.J. I Þjóðviljanum „Pepsi kærir kók og kók kærir pepsí." — Fyrirsögn í DV.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.