Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 5
5
Fimmtudagur 12. okt. 1989
Enn falla vígin
FYRSTI
K VENÞIN GVÖRÐUR
LANDSINS
Hún var ó lýðháskóla i Noregi þegar hún
ákvað að verða lögreglukona. Hún sinnti
þvi starfi i átta ár, ffram að ffyrsta sept-
ember siðastliðnum að hún yffirgaf ffé-
laga sina i lögreglunni, reyndar mest
ffyrir tilstuðlan gamalreynds lögreglu-
manns.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND: EINAR ÓLASON
Margrét Sigurbjörnsdóttir er
28 ára gamall Reykvíkingur og
fyrsta konan sem gegnir starfi þing-
varðar. Hún ber á móti því að hún
hafi einhvern sérstakan áhuga á að
sækja í störf sem karlmenn hafa
næstum einokað og segir að sér hafi
boðist að prófa þingvarðarstarfið í
eitt ár:
„Erlendur Sveinsson yfirþing-
vörður var aðalvarðstjóri hjá lög-
reglunni og ég hafði unnið með
honum á aukavöktum. Hann bað
mig að koma til starfa sem þing-
vörður á Alþingi í eitt ár til reynslu.
Það er stefna hans að ráða lögreglu-
menn til starfa og hann langaði að
prófa konu í þetta starf. Aðstoðaryf-
irþingvörður var varðstjóri í lög-
reglunni, annar lögregiumaður er
hér þingvörður ásamt mér og von
er á enn einum lögreglumanni um
næstu mánaðamót."
Margrét segir starf þingvarðar fel-
ast í mörgum hlutum: „Við gerum
allt milli himins og jarðar; mikill
hluti starfsins felst í að aðstoða þing-
menn, en starfið felur einnig í sér ör-
yggisgæslu. Þegar þingfundir
standa yfir erum við með „pósta".
Ég verð fyrir framan þingsalinn; sé
um þingsalinn, sameinað þing, efri
og neðri deild. Hingað inn kemur
fólk alla daga, er á pöllum og annars
staðar, og við þurfum að gæta þess
að allt fari sómasamlega fram auk
þess sem við gætum þess að engir
„óæskilegir" komi inn."
Margrét var í lögreglunni í átta ár,
fyrstu fjögur í almennri deild, síðan
í boðunardeild, fangaflutningum og
við sektainnheimtu, en í fyrravetur
sá hún um umferðarfræðslu barna í
skólum og ætlaði sér að vera í því
starfi áfram í vetur: „Mér leið mjög
vel í lögreglunni og ætlaði mér ekk-
ert að hætta!“ segir hún. „Mér
fannst hins vegar freistandi að prófa
eitthvað annað þar sem mér bauðst
tækifæri, en kosturinn er sá að ef
mér líkar ekki get ég hætt eftir eitt
ár og snúið mér aftur að fyrri störf-
um.“
Hún á einn son, Sigurbjörn Inga
Guðlaugsson, sem er þriggja ára og
hvort hún telji að þetta starf henti
betur fyrir móður en lögreglustarfið
svarar hún: „Nei, að mörgu leyti
ekki. Þingverðir þurfa að vinna á
kvöldin þegar þingfundir eru en
meðan ég var í umferðarfræðslunni
var hvorki kvöld- né helgarvinna.
Ég er því ekki að skipta um starf
barnsins vegna, enda á hann svo
góðar ömmur að það skiptir í raun
litlu máli hvernig ég vinn.“
Margrét hóf störf hjá Alþingi 1.
september síðastliðinn og segir að
sér lítist mjög vel á byrjunina:
„Hérna sé ég í rauninni fleiri konur
en í fyrra starfi! Mér líkar vel við
þingmennina, þeir eru almennilegir
og hressir. Ég tek enga ákvörðun
strax um hver framtíðin verður, það
kemur í Ijós eftir árið hvernig mér
líkar við Alþingi — ög ekki síður:
hvernig Alþingi líkar við mig . . .“
SVÍAR Í
SJOKKl!
Síödegisblaö í Stokkhólmi segir Svía-
konung hafa sent flugvél eftir þremur ís-
lenskum borödömum
Fyrir hálfum mánuði, fimmtudaginn 28. september
sl., einum mánuði eftir að Svíakonungur hélt ásamt fé-
lögum sínum frá íslandi eftir veiðiferð, skýrði sænska
síðdegisblaðið Aftonbladet frá því að með í veiðiferð-
inni hefðu verið þrjár dömur. í grein síðdegisblaðsins
er látið að því liggja að samkvæmt frétt Tímans um
sama málefni frá 31. ágúst sé gefið til kynna að um-
ræddar stúlkur hafi verið „símavændiskonur".
PÝTT OG ENDURSAGT: ANNA KRISTINE MAGNÚSDÓTTIR
Greinin ber yfirskriftina Hvad
gerdu slúlkurnar í veidiferð kon-
ungsins? og byggir á frásögn og
viðtali við tvo Islendinga, fram-
reiðslustúlku og ferðaskrifstofu-
forstjóra:
„Samkvæmi Karls Gústafs bauð
sérstökum borðdömum til veislu í
ágústmánuði" eru upphafsorð
greinarinnar, sem heldur síðan
áfram á þessa leið: „Sænski kon-
ungurinn er mjög almennilegur
og mikið prúðmenni. Það er langt
síðan ég hef skemmt mér svona
vel," segir Helga, ein af þremur
borðdömum konungs.
Greinarhöfundur Aftonbladet
segir íslenska blaðið Tímann hafa
komið með stóran uppslátt 31. ág-
úst, sem hafi vakið mikla athygli á
íslandi. „í greininni var gefið til
kynna að stúlkurnar í samkvæmi
konungsins væru símavændiskon-
ur,“ segir í grein blaðsins.
Ekkert sannað
segir í millifyrirsögn sænska síð-
degisblaðsins og síðan: „í lok ág-
úst fór konungurinn með tíu veiði-
félögum sínum til íslands að veiða
hreindýr. Birgir Erlendsson, sem
rekur ferðaskrifstofuna Islands-
sérfrœðinginn, skipulagði ferð
konungsins til Islands. Hann held-
ur því fram að greinin í Tímanum
hafi verið á misskilningi byggð:
„Konurnar voru framreiðslustúlk-
ur sem hjálpuðu til,“ segir Birgir í
samtali við Aftonbladet. „Þetta
var ekkert merkilegt."
Föstudaginn 25. ágúst hélt kon-
ungur ásamt félögum sínum aust-
ur á land í tveimur litlum hópum.
Konungurinn og veiðifélagar hans
gistu á stórbýlinu Skriðuklaustri í
nágrenni Egilsstaða.
Um tvöleytið á laugardaginn
flaug flugvél til Reykjavíkur og
sótti stúlkurnar þrjár. „Það voru
bara ég og tvær vinkonur mínar
sem voru um borð,“ segir Helga.
Hverjar eru þœr og við hvað vinna
þœr? spyr blaðamaður Aftonblad-
et: „Ég bara veit það ekki og man
ekki hvað þær heita," er svar
Helgu.
Sjálf starfar Helga á veitingahúsi
í miðborg Reykjavíkur: „Ég er á
þrítugsaldri og hef áður starfað
sem ljósmyndafyrirsæta."
Eftir kvöldverðinn, sem var lok-
ið klukkan hálftólf á laugardags-
kvöldið, fluttist samkvæmið upp á
næstu hæð í stórt herbergi, segir í
greininni. „Við fengum okkur
nokkur glös,“ segir Birgir Erlends-
son.
„Ég talaði ekki ýkja mikið við
kónginn," segir Helga, en bætir
við að sér finnist hann hafa verið
„skemmtilegur og spennandi
maður. Þetta var reglulega
skemmtilegt kvöld og þetta voru
óvenjulegir karlmenn”, segir
Helga.
Klukkan 12.58 daginn eftir flugu
konurnar til baka til Reykjavíkur.
„Ég hefði gjarnan viljað vera leng-
ur, en viö urðum að fara i vinn-
una,“ segir Helga.
Birgir Erlendsson staðhæfir aö
aðeins tvær framreiðslukonur hafi
verið með í þessari ferð.
Konungurinn bjó einn
segir í næstu millifyrirsögn.
„Það var ekkert merkilegt við
þetta," segir Birgir. „Við vorum
boðnir velkomnir og síðan var
okkur sýnt hvar við ættum að
gista.“
Á býlinu, þar sem þeir sváfu,
voru tveir um hvert herbergi: „En
konungurinn gisti einn í svítunni,"
segir Birgir Erlendsson.
„Það var mjög mikið talað um
þessa ferð þegar við komum
heim," segir Helga sem vill gera lít-
ið út greininni í Tímanum. „En
lætin gengu yfir á tveimur dögum.
Eftir það fengu landar mínir ann-
að til að tala um.“
PRESSAN náði tali af umræddri
Helgu, sem staðfesti að ofangreint
viðtal hefði verið haft við sig af
blaðamanni Aftonbladet. Hún
sagði að flest af því sem eftir henni
væri haft í blaðinu væri rangt en
vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um
fréttina: „Ég er búin að fá nóg af
umtalinu. Hér er verið að gera úlf-
alda úr mýflugu og reyna að láta
hlutina líta illa út.“
— Varstu þarna fyrir austan á
vegum veitingastaðarins sem þú
vinnur á? „Það kemur engum við
á hvers vegum ég var," svaraði
Helga.
Birgir Erlendsson mun starf-
rækja áðurnefnda ferðaskrifstofu
í Stokkhólmi og veiðiferð konungs
var eitt af fyrstu stórverkefnum
hans.