Pressan - 12.10.1989, Síða 15
Fimmtudagur 12. okt. 1989
fellt hraðar og hraðar. Tölvubylting-
in frá 1960 og hátæknibyltingin á
þessum áratug leiða tii þess að það
eru gífurlegar ytri breytingar sem
eru auðsjáanlegar og árangur sést
af. Fólk verður ekkert nema augu
og eyru og sækist eftir auknum
gæðum og aukinni hamingju í ytri
gæðum. Það hefur hins vegar ekk-
ert gerst í þróun á andlegum verð-
mætum og það kemur skýrt í ljós
þegar við skoðum nútíma þjóðfélag.
Þrátt fyrir að við köllum þetta „vel-
megunarþjóðfélag”, þar sem allir
hafa í sig og á, þá koma fram „vel-
megunarsjúkdómar”. Orðið er sam-
sett úr andstæðum; velmegun og
sjúkdómar. Fólk hefur ekki kunn-
áttu til að laga sig að breyttum að-
stæðum og þótt það hafi tækifæri til
að lifa hollara og betra lífi og upplifa
meiri lifshamingju, þá virðist and-
stæðan koma í ljós. Helstu sjúkdóm-
ar sem herja á fólk í dag og helstu
dánarorsakirnar eru áunnin. Hér
eru ekki á ferðinni veirusóttir sem
enginn ræður við; lömunarveiki,
svarti dauði, bólusóttir eða smit-
sjúkdómar, heldur áunnir sjúkdóm-
ar eins og kransæðastífla, magasár
og of hár blóðþrýstingur. Trygginga-
félög hafa rannsakað ástæður slysa
og þær eru í langflestum tilfellum
gáleysi. Gáleysi er ákveðið meðvit-
undarleysi. Ef meðvitund er ræktuð
þá verður gáleysið minna og þar
spilar streitan aftur inn í.“
Tlmamót:
Lífsgæðakapp-
hlaupinu hafnað
Rafn segist þó telja að komið sé að
tímamótum: „Fólk er að fá sig full-
satt af þessu lífsgæðakapphlaupi,”
segir hann. „Þessar nýju leiðir sem
byggja á hollari lífsstíl eru mikilvæg-
ar því nú stendur fólk á mótum þess
að taka ákvörðun um hvað það vill
gera. Þetta gamla er ekki nógu gott,
en hvað býðst? Við sjáum augljós
dæmi þess í kringum okkur hvað
gerist ef mannshugurinn er ekki í
kyrrð og rólegur. Hann getur þá
nýst til neikvæðrar uppbyggingar í
stað jákvæðrar, eins og kjarnorku-
vopnin eru gott dæmi um. Sumir
halda að það að þroska hugsunina
sé að þroska alveg geysilegt vit í
huganum. En síðan sjáum við
hvernig þetta vit er notað: Vísinda-
menn eru ráðnir til að framleiða
kjarnaodda og sjötíufalt sprengi-
magn fram yfir það sem nægir til að
gjöreyða öllu lífi á jörðinni. Jafnvel
þótt ímyndin sé sú að sá sem hefur
þroskað hugsun sína til fulls sé há-
skólamaðurinn þá sjáum við hvað
gerist ef sú orka er nýtt í að búa til
sprengjur, sem ekki geta eytt lífi
einu sinni, heldur sjötíu sinnum.
Þetta er jafnóraunhæft og ef við ætt-
um sjötíu einkabifreiðir til að kom-
ast til vinnu og frá. Ég held að nú sé
komið að nýju tímabili þar sem fólk
hefur áhuga á að hafna þessu kapp-
hlaupi eftir efnislegum gæðum og
fer að sækjast eftir raunverulegum
gæðum, þeim sem búa innra með
okkur öllum. Til þess þarf fólk að
iðka æfingar og lifa hollu lífi. Þá fara
þessi innri gæði að birtast, gæði
sem felast í friði og ró, jafnvægi og
ákveðinni lífshamingju."
Veitingahús við Alfabakka
— rekstur veitingasölu
1. nóvember næstkomandi mun íþrótta- og tómstunda-
ráð Reykjavíkur taka við rekstri veitingahúss við Álfa-
bakka (Broadway). Auglýst er eftir aðilum, sem vilja
koma til álita sem leigutakar að rekstri veitingasölu í
húsinu.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. október n.k. á
sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu
ÍTR, Fríkirkjuvegi 11.
iiuma,
Mhskylfo s
’manna men
FÍMl laiMamn
KARTGRIPUR SEM
MÆ
R
N
M A
N
GILBERT ÚRSMIÐUR
LAUGAVEGI 62, SÍMI: 14 100
JÓN OG ÓSKAR
LAUGAVEGI 70, SÍMI: 2 49 30
GUOMUNDUR B. HANNAH
LAUGAVEGI 55, SÍMI: 2 37 10
>/c// á stoðgreiðslufe
pierrecardi
SAMEIGINLEGA
BJÓÐUM VIÐ MESTA
ÚRVAL LANDSINS
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
oW>aS'S^u,9'*'<“
.......
9 a launa9reiöslna
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15.. hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega