Pressan - 12.10.1989, Page 16

Pressan - 12.10.1989, Page 16
16 Fimmtudagur 12. okt. 1989 sjúkdómar og fólk Hósti Ég fór í leikhúsið um daginn til að sjá Macbeth. Sýningin var magn- þrungin, leikurinn ágætur og leik- tjöldin sérlega áhrifamikii. Það eitt spillti sýningunni, að fyrir aftan mig í salnum sat maður sem hóstaði í sí- fellu. Hann var prúðbúinn í dökkum jakkafötum glansandi af elii og þreytu, í lúinni hvítgulri skyrtu með íitiaust slifsi. Hann hóstaði inn i ióf- ann sinn og hvíslaði aftur og aftur í eyra konu sinnar: — Ertu viss um, að þú eigir engan vasaklút? Konan svaraði alitaf neitandi. Þegar spenn- an í leikritinu var í hámarki og Mac- beth reikaði um sviðið frávita af sektarkennd og sá ofsjónir eða nornirnar hrærðu af kappi í öriaga- súpunni fékk maðurinn yfirleitt óvenju siæm hóstaköst og oft var erfitt að greina orðaskil. Eiginlega hurfu fiestallar orðræður nornanna inn í hóstahviðurnar. í hiéinu stóð ég við hliðina á honum í sæigætis- röðinni og við keyptum okkur sitt hvorn brjóstsykurspokann. Ég heyrði hann segja hóstandi við kon- una sína: — Ég keypti þennan sterka brjóstsykur svo hann slægi eitthvað á þennan hósta, sem ætlar mig lif- andi að drepa. Ég ætti kannski að fara til læknisins á morgun og fá eitt- hvað krassandi? Hann kveikti sér síðan í einni Camel og saug reykinn af áfergju. — Hvernig væri að hætta að reykja? sagði konan hans með þreyttan mæðusvip á andlitinu, eins og hún hefði ekkert sofið síðustu ár- in vegna hóstans í kallinum. Maður- inn hóstaði eitthvað minna eftir hlé, svo leikritið skilaði sér betur en áð- ur í mín eyru. Á leiðinni heim fór ég að velta hóstanum fyrir mér, hverju hlutverki hann gegndi og hvort ætti að gefa eitthvað „krassandi" við honum. Hvað er hósti? Hóstinn er ákaflega öflug vörn fyrir öndunarveginn til að verjast slími og alls konar aðskotahlutum sem berast ofan í kokið, barkann og berkjurnar. Hóstinn er flókið ósjálf- rátt viðbragð sem á upptök sín í slímhimnunum í öndunarveginum. Þegar þær verða fyrir áreiti senda þær boð til mænunnar og svörunin kemur síðan frá stjórnstöðvum önd- unarinnar. Einstaklingurinn dregur þá djúpt andann og hár þrýstingur myndast inni í brjóstkassanum, þar sem öndunarvöðvarnir dragast saman gegn lokuðum öndunarveg- inum. Síðan pressast loftið út og ber með sér slím og aðskotahluti. Hósti er venjulegt einkenni alls konar sjúkdóma í lungum sem valda áreiti í slímhimnum svo sem sýkinga, asma, bronkíta og æxlissjúk- dóma. Hósti getur verið slímugur (pródúktífur) eða þurr. í slímhósta myndast mikið af slímkenndum vökva í lungunum og líkaminn losar sig við með hóstanum, sem þá er gagnlegur og nauðsynlegur. I slík- um tilfellum er hóstinn besta vörn líkamans til að halda öndunarvegin- um hreinum. í þurrhósta veldur yfir- leitt eitthvert áreiti hóstanum en ekkert slím berst upp úr lungunum. Það er mun rikari ástæða til að með- höndla slíkan þurran hósta heldur en slímugan hósta, sem gegnir ákveðnu hlutverki í vörnum líkam- ans. Þurr hósti getur verið mjög þreytandi og gert sjúklingnum og öðrum í kringum hann lífið leitt. Meðferð Áður en hósti er meðhöndlaður verður læknirinn að gera sér grein fyrir orsökum hans. Hósti er varnar- viðbragð líkamans sem verður að bera virðingu fyrir. Þó geta komið upp þær aðstæður að hóstinn sé svo erfiður að einhverrar meðferðar sé þörf, annaðhvort með eða án lyfja. Lyfjalaus meðferð á hósta felst í heitum drykkjum, hætta að reykja og forðast ýmiss konar áreiti sem gerir hóstann verri eins og ertandi loftkennd efni. Ýmiss konar lyíja- meðferð hefur verið reynd við hósta, bæði slímlosandi og slím- þynnandi lyf svo og hóstastillandi lyf. Dæmigerð slímlosandi lyf eru t.d. Expigen og Tússol. Menn eru ekki á eitt sáttir um gagnsemi þess- ara lyfja og spurning hvort þau gera yfirleitt nokkuð gagn. Vísindarann- sóknir hafa ekki sannað að svo sé. Bisolvon er talið verka ágætlega á slímlosunina en þó eru menn ekki sammála um það. Nýlega komu á markaðinn hin svokölluðu slím- þynnandi lyf, en þau eiga að verka vel á þykkt slím í lungum sem erfitt er að hósta upp. Þetta eru lyf eins og Fabrol og Mucomyst. Þessi lyf koma stundum að góðu haldi hjá sjúklingum með króníska bronkíta, þar sem þau koma að einhverju leyti í veg fyrir mjög slæm bronkítaköst, en þá þarf að nota þau til lengri tíma. Hóstastillandi lyfin hafa dempandi áhrif á hóstann og koma að góðum notum, þegar sjúklingur á erfitt vegna þurrs hóstakjölturs, sem ekki virðist koma líkamanum að neinu haldi. Kodein, Nipaxon og Dexomet eru slík lyf. AUs konar blöndur ýmissa efna, hóstastillandi og slímlosandi auk ofnæmislyfja, eru talsvert notaðar. Dæmigerð slík lyf eru t.d. Paradryl með efedríni og norakir brjós tdropar en þar er blandað saman ýmsum efnum sem hafa áhrif á hóstann. Ekki hefur ver- ið sýnt fram á aukna gagnsemi af slíkum blöndum. Sumar slíkar blöndur innihalda talsvert áfengi eins og t.d. Tússol sem hefur að geyma 7,5% alkóhól. Slík mixtúra er því mjög óheppileg fyrir alkóhól- ista. Á að meðhöndla hósta? Hvaða hósta á að meðhöndla og með hverju? Sennilega er ástæða til aö gefa eitthvað við ákaflega seigu slími sem sjúklingurinn getur ekki komið frá sér. Best er þá að gefa Bis- olvon sem léttir undir með sjúkl- ingnum að hósta því upp. Þetta á sérstaklega við um þá sem eru haldnir krónískum lungnasjúkdóm- um eins og asma og lungnaþani. Mucomyst og svipuð slímþynnandi lyf geta komið að einhverju haldi hjá sjúklingum með króníska bronk- íta og langtímameðferð með lyfinu kemur að einhverju leyti í veg fyrir bráð veikindaköst. Þurr hósti getur reynst erfiður bæði fyrir sjúklinginn og nánasta umhverfi hans. Slíkur hósti getur haldið fyrir mönnum vöku og gert þeim ókleift að sækja mannamót. Þá má gefa töflur eins og Nipaxon sem oft reynast vel. Flestir sem skrifa í einhverri alvöru um hóstann og lyf við honum telja ekki ástæðu til að gefa lyf nema í undantekningartilfellum. Ég held að obbinn af öllum þessum hósta- mixtúrum sem gefinn er og fólk drekkur eins og vatn við hósta sé meira eða minna gagnslaus. Best er að drekka vel og fara vel með sig en hóstasaft er venjulega allsendis út í hött. Oft þarf líkaminn á hóstanum að halda og því rangt að gefa eitt- hvað til að dempa hann. Ef maður- inn úr leikhúsinu hefði komið til mín hefði ég rannsakað hann með tilliti til orsaka hóstans en ekki gefið nein krassandi lyf fyrr en það lægi fyrir af hverju þessi hósti stafaði. Síðan hefði ég reynt að meðhöndla grunnsjúkdóminn og sjá hvort hóst- inn lagaðist ekki af því. GUÐMUNDSSON Jr pressupennar Þau eiga sér draum, og þvi aræt eg Hvilík er sú tilfinning ástvina, er barnið skríður frá vöggunni, prílar á fætur og réttir, skjögrandi, fram hendur í bæn um hjálp til gangs. Hún verður aldrei fönguð í orð, svo er oftast um stærstu undur lífsins. Aðeins tár hæfa. Við teljum sjálf- sagt, að allir foreldrar fái notið þess- arar gleði, eigi kröfu til þess. En, gott fólk, lífið er ekki þannig. Tár falla ekki aðeins á gleðistundum, heldur líka sorgar. Hjarta sem slær örar af gleði eða harmi á sama mál: TÁRIÐ. Kraftaverk Alltaf annað slagið réttir lífið okk- ur í faðm elskuleg börn sem hafa ekki afl né þrótt til þess að yfirgefa vögguna. Þau eldast samt; stækka samt; eiga vonir og þrár, sem þau geta ekki hlaupið uppi og höndlað eins og við hin. Þau eru háð því að hvíla í kærleiksföðmum systra okk- ar og bræðra, sem hafa lagt á sig iangt og strangt nám, til þess að grafa eftir og fægja þau gull, sem þessi hömluðu börn eru send með í hljómkviöu lífsins. í dag eru unnin stórkostleg kraftaverk þeim til hjálpar. Rimlar og múrar molaðir af líknarhugum, sólskin og gleði leidd að hlið þeirra sem ekki geta gengiö móti árgeislum daganna, eins og þú og eg. Þetta vitum við, teljum sjálf- sagt, og stærum okkur jafnvel af að lifa í svo mennilegu þjóðfélagi. Við teljum okkur vita, að í lífiop vega Ijós og skuggi salt, teljum eðMlegt að VIÐ séum Ijósmegin og sendum meira að segja hinum, sem í skugg- anum dvelja, heila bílfarma af sam- úð. En er þetta nóg til að ná svefni? Lífið hefir kennt mér, að ekki er TÁRIÐ aðeins tengt sorg og gleði, heldur líka blygöun Bjartsýni Það var dag einn i sumar, að eg átti erindi við starfsfólk Vistheimilis- ins við Holtaveg, einnar þeirra líkn- arstöðva sem bera sólstafi í líf haml- aðra barna. Á hlaðinu var stór set- laug í kassa. Eg hafði orð á, hvað þetta væri gleðilegt. En þá kom saga, sem yfirgefur mig ekki síðan: Kerið er gjöf frá kvennadeild Rauðakross Islands, ekki afhent í gær eða fyrradag, HELDUR FYRIR ÁRl! Kerið þarf að grafa í jörð, tengja það og byggja yfir það, svo það komi að notum. Starfsfólkið taldi slíkt lítið mál og leitaði, bjart- sýnt, í þá sjóði sem því komu í hug. En svörin voru: ÞVI MIÐUR... Þá tóku sig saman foreldrar, aðstand- endur og starfsfólk og stofnuðu sjóð, til þess að gera drauminn að dag- mynd. Þau safna dósum við veg okkar hinna; þau halda í Kolaportið og bjóða varning falan; þau ieggja fram arðinn úr sparibaukum heimil- anna, og eiga nú um 200 þúsundir króna. En enn er setlaugin við Holtaveg aðeins tundur til draums. Þegar eg gekk af fundi starfsfólksins, þá var það ekki aðeins himinninn sem grét á kassann með kerinu í, heldur fann eg á vanga tár blygðunar, að vera ekki sá maður að geta grafið kerið í jörð, tengt það, byggt yfir það, eða rétt fram fjármuni til þess. Inná heimilinu eru börn, sem þarfnast þess að hitta þann er getur. Hvorki samvizku mína né kerið hefi eg ráð- ið við. En kannske ert þú sá eða sú sem aflið hefir? Saman gætum við örugglega unnið létt verk. Er gleðin sem hríslast um okkur, er við störum í augu heilbrigðra barna okkar, ekki þess megnug að tengja hendur okkar til sameigin- legs átaks, breyta draumi þeirra á Vistheimilinu við Holtaveg í dag- mynd? „Kerið er gjöf frá kvennadeild * Rauöakross Islands, ekki afhent í gœr eða fyrradag, heldur fyrir

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.