Pressan - 12.10.1989, Page 28
PRESSU
MOJLAR
M
yfirborðinu litur út fyrir að
Davíd Oddsson hafi ekkert gert til
þess að fá Friðrik Sophusson til að
hætta við framboð til varaformanns
Sjálfstæðisflokksins og koma
þannig í veg fyrir kosningaslag á ný-
afstöðnum landsfundi. Kunnugir
segja hins vegar að slík skilaboð hafi
þrátt fyrir allt borist frá borgarstjór-
anum, þó það hafi raunar veriö
óbeint. Mun einn samherja Davíðs
hafa gengið á fund eins samherja
Friðriks og fært þetta í tal . . .
BlÉýlega hleypti Stöð 2 af stokk-
unum þáttaröð um starfsfræðslu
— sem sýnd er í framhaldi af 19:19.
Ymsum starfsstéttum er boðin þátt-
taka og jafnvel að hafa áhrif á hand-
ritið sem unnið er eftir. Sá böggull
fylgir þó skammrifi að Stöð 2 vill að
starfsstéttirnar borgi brúsann.
Samtökum kennara var nýlega boð-
ið að verá með að kynna kennara-
starfið og borga fyrir 600 þúsund
krónur...
Ic
H vkonur innan Kvennalistans
munu lítt hrifnar af nýlegum bækl-
ingi, sem jafnréttisráð gaf út og
kallaði ,,Nú er lag. Fleiri konur í
sveitarstjórnir, fleiri konur á þing".
Fjallar ritið um kynjahlutfall í sveit-
arstjórnum og á Alþingi og hvernig
koma megi fleiri konum úr öllum
flokkum framarlega á framboðs-
lista. Það sem kvennalistakonurnar
eru ósáttar við og finnst nánast
sögufölsun er að ekki einu orði er
vikið að Kvennalistanum í þessum
bæklingi — ekki einu sinni í kafla
með yfirskriftinni ,,Hvað hefur ver-
ið gert?" . . .
H^Éenn hafa verið að rifja
upp eitt og annað úr veislum sem
ríkið hefur haldið í gegnum tíðina í
kjölfar máls Jóns Baldvins á dögun-
um. Og eðlilega kemur það.æ betur
i Ijós að það var lítið mál i frumskógi
annarra og stærri. T.a.m. hefur nú
verið rifjað upp hve veglega var
veitt vínið á vígsluhátíðinni í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar vorið 1987,
sem sumir hafa kallað dýrustu kosn-
ingahátíð Sjálfstæðisflokksins
fyrr og síðar. Þá veittu Flugleiðir
snittur handa veislugestum en
freyðivínið flæddi líka; alls voru
teknir út 70 kassar af freyðivíni
úr fríhöfninni á Vellinum vegna
veislunnar. Allt á rikiskostnað og
tollfrjálst að sjálfsögðu . . .
u
m þessar mundir stendur yfir
kosning nýs formanns hjá Hinu ís-
lenska kennarafélagi. Wincie
Jóhannsdóttir gefur ekki kost á-
sér til endurkjörs, en í framboði eru
þeir Eggert Lárusson og Gísli Ól-
afur Pétursson. Ný stjórn tekur
síðan við á þingi £fÍK þann 23. nóv-
ember.. .
leysa á Vestmannaeyjaferjuna
Herjólf af hólmi með nýju skipi og
hefur smíði þess þegar verið boðin
út. Það vekur athygli að nýja fleyið
á að vera vel við vöxt fyrir hið rúm-
lega fjögur þúsund manna samfélag
í Eyjum, því gert er ráð fyrir að skip-
ið rúmi um 450 manns. Gárungarnir
hafa velt því fyrir sér hvort Vest-
manneyingar búist við svona mikilli
fólksfjölgun á næstu árum eða hvort
til stendur að fjölga þjóðhátíðunum
eitthvað . . .
c
^Hamkvæmt frétt í nýútkomnu
fréttabréfi flugmálastjórnar hef-
ur stofnunin tryggt íslenskri fegurö
varanlegan sess í alþjóðlegu flugi.
Frá 16. nóvember ber öllum flugvél-
um á ákveðinni flugleið á milli ís-
lands og Færeyja að tilkynna sig til
flugstjórnar á Islandi á svokölluðu
stöðumiði, sem heitir Linda. Það er
alheimsfegurðardrottningin Linda
Pétursdóttir, sem verður þess
heiðurs aðnjótandi að iáta skíra
stöðumið i háloftunum í höfuðið á
sér . . .
|c
■Hkvennalistakonur halda
sinu striki, þó einhverjar þreifingar
hafi verið í gangi í þá veru að minni-
hlutaflokkarnir i borgarstjórn
bjóði sameiginlega fram í kosning-
unum á næsta ári. Þær hafa þegar
skipað fimm konur í uppstillingar-
nefnd til að koma með tillögur um
framboðslista ...
b ......
málshátturinn. Nú hefur færst aukin
harka í verkfall rafiðnaðarmanna,
þar sem fremstur í flokki fer Magn-
ús Geirsson formaður. Lítið þokast
í stappinu við samninganefnd ríkis-
ins, en í henni situr einmitt bróðir
Magnúsar, Þorsteinn Geirsson
ráðuneytisstjóri. Nú, Póstur og
sími er meðal aðila sem leitað hafa
til Magnúsar og félaga um undan-
þágu, enda símkerfi að bila út um
allt. Þá þarf Magnús að eiga við sím-
stöðvarstjórann í Reykjavík, bróður
sinn Agúst Geirsson. Og Magnús
getur ekkert gert fyrir Ágúst bróður,
því Þorsteinn bróðir vill ekki ganga
að kröfum rafiðnaðarmanna. Fjórði
bróðirinn gæti síðan blandast inn í
málið ef símkerfið klikkaði hjá SÍS,
því þar er nálægt toppnum Geir
Geirsson . . .
M
hinni sameinuðu ferðaskrif-
stofu Úrvals og Útsýnar bíður
starfsfólk í ofvæni eftir því að vita
hverjir fá áframhaldandi starf hjá
ferðaskrifstofunni. Þegar
sameiningin hafði verið kunngjörð
varð starfsfólk Útsýnar öskuillt út í
Ómar Kristjánsson, aðaleiganda
Útsýnar, þar sem framkvæmda-
stjórinn, Anna Gudný Aradóttir,
fékk fyrst fréttir af sameiningunni í
fjölmiðlum. Starfsfólk Utsýnar
mun hafa tekið ákvörðun um að
segja upp störfum fái framkvæmda-
stjórinn fyrrverandi ekki góða stöðu
á ,,nýju" ferðaskrifstofunni . . .
\$kí?o
Hvemig er
frádráttarheimildin
í viróisaukaskatti?
f sjty }r lív'1' ~
i ' Z\vO/V ,, -r-’/u .,111)1 '/•///<••
wWmwmM* ,;■«,,,
Endurgreiðsla ef innskattur
er hærri en útskattur
■ nnskattur á ákveðnu uppgjörstímabili
kann að verða hærri en útskattur sama tímabils. Þetta
geturt.d. gerst vegnafjárfestingar (bygging eða viðhald
fasteignar fyrir reksturinn eða kaup á dýrum tækjum)
íífáHíC!'* 'jÍC '. Veða ef fyrirtækið safnar birgðum. Einnig ef fyrirtæki selur
■ undanþegna vöru eða þjónustu (t.d. útflutningur).
í þessum tilvikum endurgreiðir rikissjóður
-mismun innskatts og útskatts.
Skilyrði frádráttar
Innskattur dregst frá útskattí
'irðisaukaskattur sem fyrirtæki greiðir af
vöru og þjónustu sem það kaupirtil nota í rekstrinum er
nefndur innskattur. Virðisaukaskattur sem fyrirtæki
innheimtir af sölu sinni er hins vegar nefndur útskattur.
Við uppgjör til ríkissjóðs dregur fyrirtækið þann
innskatt sem það greiðir á hverju uþþgjörstímabili frá
útskattinum sem það hefur innheimt á sama tímabili,
þ.e. fyrirtækið greiðir aðeins mismuninn á útskatti og
innskatti.
Innskattur af flestum
aðföngum er frádráttarbær
"kilyrði fyrir frádrætti eru:
• Að fyrirtækið stundi skattskylda starfsemi.
• Að keypt vara eða þjónusta sé til nota í rekstrinum.
• Að innskatturinn sé bókfærður á grundvelli löglegs
fylgiskjals (reiknings eða tollskýrslu).
Endurgreiðsla er heimil
þóttvaransé óseld
I nnskattinn má dragafrá á því
uppgjörstímabili sem vara eða þjónusta er keypt. Ekki
skiptir máli hvort aðföngin eru staðgreidd eða keypt með
greiðslufresti. Innskatt af vöru sem keypt er til endursölu
eða úrvinnslu má draga frá þótt hún sé óseld í lok
uppgjörstímabils.
Uppgjörstímabilin
eru mislöng
rádráttarheimildin nær til innskatts af svo
til öllum aðföngum fyrirtækja sem varða skattskylda
sölu þeirra. Það er ekki aðeins innskattur af endursölu-
vörum og hráefnum sem kemurtil frádráttar, heldur
einnig innskattur af fjárfestingu og rekstrarvörum sem
notaðar eru fyrir reksturinn.
í nokkrum tilvikum erfrádráttarheimildin
takmörkuð. Innskattur af hlunnindagreiðslum, risnu og
gjöfum er ekki frádráttarbær. Sama gildir alrriennt um
innskatt vegna fólksbifreiða.
Llmennt uppgjörstímabil er tveir mánuðir,
en ef útskattur er að jafnaði lægri en innskattur, þannig
að fyrirtækið eigi yfirleitt rétt á endurgreiðslu, getur
fyrirtæki fengið heimild skattstjóra fyrir skemmra
uþpgjörstímabili. Uppgjörstímabil bændaersex
mánuðir.
■ aam i
ÍRSK
_
er
RSK
RfklSSKATTSTJÓRI