Pressan


Pressan - 30.11.1989, Qupperneq 8

Pressan - 30.11.1989, Qupperneq 8
Fimmtudagur 30. nóv. 1989 PRBSSaM VIKUBLAD Á FIMMTUDÖGUM Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Jónína Leósdóttir Ómar Friðriksson Blaöamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Páll Vilhjálmsson Ljósmyndari: Einar Ólason Útlit: Anna Th. Rögnvaldsdóttir Prófarkalestur: Sigríður H. Gunnarsdóttir Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, simi: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1000 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 150 kr. eintakiö. SNÖGG VIÐBRÖGÐ BORGARSTJÓRNAR í KJÖLFAR PRESSUFRÉTTAR Að tillögu Davíðs Oddssonar borgarstjóra samþykkti borgar- ráð sl. þriðjudag að starfsmenn byggingarfulltrúa borgarinnar þyrftu framvegis sérstakt leyfi byggingarnefndar til að taka að sér aukaverkefni fyrir aðila úti í bæ. Upphaf þessa máls má rekja til fréttar sem birt var hér í PRESSUNNI í byrjun nóvem- ber um að dæmi væru þess að umræddir starfsmenn bygging- arfulltrúans tækju að sér hönnun fyrir almenna byggingarað- ila í hjáverkum. Bent var á að í byggingarreglugerð væri skýrt kveðið á um að byggingarfulltrúum væri óheimilt að gera húsateikningar nema sérstaklega stæði á. í beinu framhaldi af grein PRESSUNNAR lögðu fulltrúar minnihlutans í borgar- stjórn fram fyrirspurn um umfang þessara starfa starfsmanna byggingarfulltrúans. Niðurstaðan var kynnt á fundi borgarráðs í vikunni og þar kom m.a. fram að einn starfsmaður hafði teiknað alls 13 einbýlishús í hjáverkum á einu ári. Mál þetta vakti athygli og gagnrýni eftir að PRESSAN dró það upp á yfir- borðið, en nú hefur borgarráð ákveðið að skerða valdsvið borgarverkfræðings á þann veg að allar undanþágur sem hann kann að veita í þessu skyni skuli fara fyrir byggingar- nefnd til samþykktar eða synjunar og ber að fagna skjótum viðbrögðum borgaryfirvalda. SENDIHERRAFRÚIN SEGIR FRÁ í dag birtir PRESSAN ítarlega frásögn af bók sem fyrrverandi sendiherrafrú, Heba Jónsdóttir, er að senda frá sér og á ugg- laust eftir að valda fjaðrafoki á næstu vikum. Par sviptir sendi- herrafrúin hulunni af lífi þeirra sem veljast til opinberrar þjón- ustu fyrir íslands hönd á erlendum vettvangi. Frásögnin er op- inská og óvægin og spannar mörg ár í utanríkisþjónustunni. Þar koma m.a. fram alvarlegar upplýsingar um bruðl og jafn- vel misferli í tengslum við opinber embættisstörf á árum áður. Enginn vafi er á að bókin verður umdeild, en eins og frásögn PRESSUNNAR af efni bókarinnar ber með sér kemur þar sitt hvað fram sem vekur spurningar um ábyrgð embættismanna á opinberu fé og siðferði í opinberri þjónustu. Hér er ekki unnt að leggja endanlegan dóm á réttmæti þessara lýsinga, sem sendiherrafrúin fyrrverandi ber á borð, en tvímælalaust eru þær einstæðar samanborið við íslenskar æviminningar eins og menn þekkja þær best. pólitisk þankabrot Múr til einskis Pólitísk þankabrot skrifa Birgir Árna- son, aðstoðarmaður viðskipta- og iðn- aðarráðherra, Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, og BolliHéð- insson hagfræðingur. „Eftir að múrinn féll hef ég oft hugleitt öll þau „mannúr" sem fóru I þetta einskis nýta eftirlit og hvort ekki hefði mótt nýta þennan herskara ungra manna og kvenna í öðrum og hagnýtari tilgangi." Það er nánast útilokað að setja texta á blað þessa dag- ana án þess að geta hinna sögulegu viðburða í Mið-Evr- ópu. Að horfa á fall Berlínar- múrsins (þó í sjónvarpi sé) markar svo merkileg tima- mót að tímarit eitt flokkaði þennan atburð sem ?líkan heimssögulegan viðburð, að fólk kæmi til með að muna hvar það var statt og hvað það var að gera þegar það heyrði tíðindin. Sögulegir at- burðir seinni ára sem falla í þennan flokk viðburða hafa einna helst verið upphaf styrjalda ásamt morðinu á Kennedy Bandaríkjaforseta. (Kennedy tengist á hinn bóg- inn Berlínarmúrnum frá því hann mælti hin fræknu orð „Ig bin æn Belliner" á úti- fundinum við þinghúsið í Berlín hér um árið.) Ég minnist þess hversu kynnin af múrnum, járntjald- inu og þjóðfélaginu þar fyrir austan verkuðu sterkt á mig þegar ég fór þar fyrst um. Ég gat aldrei varist þeirri hugsun að þýskir kommúnistar hefðu ekki alveg haft nægjanlega glöggmótaðar hugmyndir um hvernig haga bæri hinu nýja þjóðfélagi þegar þeir voru alit í einu komnir með í hendurnar bæði land og þjóð, að afloknu seinna heimsstríð- inu. Hægust voru því heima- tökin hjá þeim að leita aftur til þess þjóðfélags og þeirra samfélagshátta er þjóðin bjó við fyrir stríð. Þar sem alræð- isvald flokksins leyfði síðan ekki nema takmarkaða þró- un var sem þarna væri um að ræða staðnaða þjóðfélags- skipan frá fjórða áratug ald- arinnar. Þetta máttu Austur- Þjóðverjar síðan búa við allt til ársins 1989. Samfélagið í Austur-Þýskalandi líktist mest því sem ég gerði mér í hugarlund að það hefði verið ■ Þriðja ríkinu, aðeins hafði verið skipt um formerki. Þegar ég vildi heimsækja vini austan múrsins á náms- árum mínum í Þýskalandi lét maður sig hafa það að fara jafnvel einu sinni á sólarhring út úr Austur-Þýskalandi til þess eins að koma þangað aftur, því það var auðveldari leið til að ná dvalarleyfi til nokkurra daga en að sækja um með margra vikna fyrir- vara til „bjúrókratanna" í Austur-Berlín. Það var óneit- anlega kyndugt augnaráð sem mætti mér stundum hjá landamæravörðunum í Warnemunde þegar ég sneri aftur með sömu ferjunni og ég hafði farið með nokkrum klukkustundum áður. Á Checkpoint Charlie-landa- mærastöðinni í Berlín fannst mér að eftirlitsmennirnir litu mig slíku hornauga að engu væri líkara en ég væri mætt- ur á staðinn í þeim eina til- gangi að kollvarpa þjóð- skipulaginu hjá þeim, rétt á meðan ég skryppi austurfyrir eina dagstund. Ef farið var með lest kostaði landamæra- eftirlitið margra klukku- stunda töf á meðan starfs- menn skrifræðisins umturn- uðu lestarklefunum og létu hunda þefa hvern krók og kima undir lestinni, þar sem einhver mannvera gæti leynst. Þetta þurftu þeir nátt- úrulega að gera mörgum sinnum á dag við hverja lest sem fór um en voru alls ekki neinar sérstakar trakteringar við mig þó ég væri þarna á ferð. Skrifræðið hafði reynd- ar náð slíkri fullkomnun að eftirlitsmennirnir höfðu kom- ið sér upp sérstöku ferðaskrif- borði sem hékk á þeim fram- anverðum og auðveldaði þeim skriffinnskuna. Hef ég hvorki fyrr né síðar séð svona skrifborð. Eftir að múrinn féll hef ég oft hugleitt öll þau „mannár" sem fóru í þetta einskis nýta eftirlit og hvort ekki hefði mátt nýta þennan herskara ungra manna og kvenna, sem vann við þetta eftirlit í gegnum tíðina, í öðrum og hagnýtari tilgangi. Það hlýtur að hafa verið einkennileg til- finning fyrir landamæraverð- ina að horfa upp á „ævistarf- ið“ brotið niður svo að segja á einni nóttu. Allt í einu, einn góðan veðurdag í nóvember, kemur í Ijós að allt sem þeir hafa verið að gera umliðna áratugi var bara misskilning- ur. Þeir voru dregnir á asna- eyrunum við að leggja sitt af mörkum til að halda úti kerfi sem síðan fékk ekki staðist. Ekki svo að skilja að þessir menn hafi tregað það að múr- inn féll, miklu heldur að þeir áttu oft ekki annarra kosta völ. í ágúst 1961 þegar Erich Honecker, síðar leiðtogi Aust- ur-Þýskalands, lét reisa Berl- ínarmúrinn, sem var reyndar ekkert nema gaddavírsflækj- ur fyrst í stað, var vöruskort- urinn í Austur-Þýskalandi slíkur að Honecker mun hafa orðið að fá gaddavírinn keyptan af umframbirgðum Bandaríkjahers í Vestur- Þýskalandi! Smám saman var síðan múrinn sem slíkur byggður úr múrsteinum og enn mátti Honecker leita vesturfyrir að kaupa múr- steina af vestur-þýskum fram- leiðendum til að fullgera mannvirkið. Austur-Þjóðverj- ar voru ekki sjálfum sér næg- ir um steina í eigin fangelsis- múra. Sú „iðandi kös“ sem Berlín- arborg er þessa dagana og Mið-Evrópa verður á næstu árum gæti um margt breytt heimsmyndinni sem við ís- lendingar höfum búið við síð- ustu áratugi. Þau svæði sem nú eru að losa sig úr álaga- ham úreltra kennisetninga hafa lengst af verið á hefð- bundnu áhrifasvæði Þýska- lands, bæði menningarlega og stjórnmálalega. Lengst af hafa þau heldur ekki fengið að hafa landamæri sín í friði fyrir þessum fyrirferðarmikla granna. Enginn vafi er á að Vestur-Þýskaland mun gegna langstærstu hlutverki við enduruppbyggingu þessara þjóðfélaga og auka enn áhrif sín langt út fyrir Mið-Evrópu, einnig hingað til lands. Þann- ig gæti hugsanlega heldur dregið úr engilsaxneskum menningaráhrifum hér á landi, þó enn sé langt í land með að það verði líkt og var í byrjun aldarinnar, þegar menn lærðu þýsku í stað ensku og fleiri íslendingar fóru utan til Þýskalands í nám en til hins samanlagða enska málsvæðis. Ótal spurningar vakna um hversu lengi skipan austur- þýskra efnahagsmála geti haldist með opin landamæri við allt annað hagkerfi. Fyrir Austur-Berlínarbúa er það auðvitað freistandi að sækj- ast eftir vestrænum neyslu- varningi vestan múrs og fyrir Vestur-Berlínarbúa gæti það verið eftirsóknarvert að sækja í austur þýska matvöru bæði niðurgreidda og fram- leidda með langtum lægri vinnulaunum. Allar þessar spurningar og hið risavaxna verkefni sem bíður Þjóðverja við endurreisn Austur-Evr- ópu gera Mið-Evrópu að þeirri „iðandi kös“ sem áhugavert verður að beina huganum að á komandi tím- um. I hfn pressan „Ég heff skrifað saksóknara rikisins bréff og ffarið ffram á það við hann að hann rann- saki hvernig ég heff staðið að mólum../# — Stefán Valgeirsson þingmaður i DV „Svo verða „flokkseigendurn- ir" eftir með Þjóðviljann sinn og minningarnar um stétta- baráttuna og veröld sem var. Rökréttast væri auðvitað að þeir kæmu sér fyrir á Þjóð- minjasafninu." — Guðmundur Magnússon sagn- fræðingur í DV „Það liggja þvi engin rök á bak við frestunina nema þá óskilj- anleg hræðsla Júlíusar Haf- stein viö embættismenn borgarinnar." — Össur Skarphéðinsson i Þjóðvilj- anum „Vegna sprengingarinnar hljótum við að hafa misst heyrn í smástund, því við heyrðum engar rúður brotna, enga bíla aka í burt og sáum engan umgang..." — Jóhann G. Friðbertsson nemi í Morgunblaöinu „Lífshamingja flestra fer eftir því hvað þeir eru duglegir við að blekkja sig með hinu og þessu." — Guðbergur Bergsson rithöfundur í DV „Hins vegar hefur gengið erf- iðlega að halda við ríkisfangi Leifs Eiríkssonar..." — Garri i Timanum „Við mælumst til þess að héð- an í frá verði skepnurnar i girð- ingum en ekki fólkið í land- inu." — Herdis Þorvaldsdóttir formaður Lifs og lands í DV „Þau Jón (Gröndal) og Eva Ás- rún (Albertsdóttir) þurfa ekki á aðstoðarmönnum að halda..." — Ólafur M. Jóhannesson fjöl- miölarýnir Morgunblaðsins „Okkur var Ijóst að fólk gerir meiri kröfur til Ingólfs en ann- arra manna hvað varðar um- fjöllun um einkalíf hans." — Sveinn Guðjónsson í Morgun- blaðinu um endurminningabók Ing- ólfs Guðbrandssonar „Fundurinn fór að mestu í um- ræður um skuldahala sjón- varpsstöðvarinnar." — Frétt um Stöð 2 í fimanum „Eg veit til þess aö stjörnumerki manna hafa kom- iö til álita viö ráöningarmál hér á landi og yröi satt aö segja ekki undrandi þótt þau fœru aö skjóta hér upp kollinum í auknum mœli á nœstunni, ef marka má straumana í þessu efni erlendis frá.“ — Guðni Jónsson atvinnumiðlari i Morgunblaðinu

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.