Pressan - 30.11.1989, Side 14
mmmm
14
Fimmtudagur 30. nóv. 1989
Aktu eins og þú vilt
aðaðriraki!
(KUM EINS OG MENN'
LÍKAMLEG SNERTING ER ÖLLUM LÍFSNAUÐSYNLEG.
FÆRÐ ÞÚ ÞINN SKERF AF FAÐMLÖGUM?
Fyrir skemmslu birtum við glefsur úr
dcmskri bók um listina að kyssa, en
frændur vorir i Danmörku mæla með
fleiru en kossum til heilsubótar.
SAMANTEKT JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR
Kossabókin á nefnilega systur,
sem heitir Nus hinanden (útgef-
andi: Borgens forlag), og í henni má
lesa ýmislegt fróðlegt um „kelerí"
— þ.e.a.s. þá kúnst að hjúfra sig upp
að þeim, sem manni þykir vænst
um. Við köllum það einfaldlega
hjúfur!
Það hefur verið vísindalega sann-
að að líkamleg snerting er heilsu-
bætandi. Eiginlega er hún alveg lífs-
nauðsynleg. Þess vegna látum við
flakka hér nokkrar teikningar úr
fyrrnefndri bók í von um að lesend-
ur fái góðar hugmyndir, sem stuðlað
geta að fjölbreyttara hjúfri. Og þar
með betra og skemmtilegra lífi...
Þetta getur
eyðilagt
innilegt hjúfur:
1. Þröngur fatnaður
2. Spariföt. (Það getur verið
erfitt að stunda hjúfur af innlif-
un, þegarmaður er uppá-
kiæddur. Bíðið þangað til
nokkuð er liðið á veisluna og
minni hætta er á að fólk taki
eftir krumpunum á fötunum
ykkar.)
3. Stór armbönd, eyrnalokkar,
spennur úr málmi, grófar háls-
festar og breið belti.
4. Símhringingar og óvæntir
gestir.
MUNDU líka að hjúfra þig ein-
göngu upp að manneskju, sem
þú ert bálskotin/n í. Það er auð-
velt að svindla, þegar kossar eru
annars vegar, en það kemst
strax upp um þig ef þú kelar við
einhvern án þess að meina nokk-
uð með því.
Ef þið hjúfrið ykkur vel og iengi
hvort upp að öðru getur ástand-
ið orðið varanlegt.
Sækist þið eftir aukinni lífsfyll-
ingu er upplagt að lífga upp á
leiðinlegar stundir með innilegu
hjúfri. Faðmaðu elskuna þína
t.d. að þér í föstudags-biðröðinni
úti í búð, þegar þið eruð stödd í
lyftu og á meðan þið bíðið eftir
strætisvagni eða leigubíl. Lífið
verður þá mun ljúfaral
Það er nákvæmlega ekkert nei-
kvætt við hjúfur. Það er álíka frá-
bært og hitaeiningasnautt
súkkulaði, kampavín sem hefði
ekki timburmenn í för með sér
og innkaup sem maður þyrfti
ekki að greiða fyrir. Einfaldlega:
dásamlegt!
Hjúfur hrekur burt streitu og
þunga þanka, kyndir undir róm-
antík og veitir sálarró og öryggi.
Hjúfur er líka gott ráð við ein-
manaleika, því það er ekki hægt
að stunda það nema með annarri
manneskju.
Það er vel hægt að stunda keierí,
þó maður sé upptekinn við lest-
ur. Engar afsakanir!
við hjúfur á veitingastöðum. Þú
ferð bara varlega úr öðrum
skónum og strýkur fót ástvinar
þíns með tánum. Ef fleiri sitja við
borðið er mikilvægt að fara ekki
fótavillt!
^roum
CHA
FLYGLAR
Vorum að fá sendingu af hinum rómuðu YOUNG CHANG
flyglum. Hverjum flygli fylgir 10 ára ábyrgð, og við
bjóðum mjög hagstæða afborgunarskilmála,
til allt að 2 ára.
Verð frá krónum 356.000.-
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
ÁRMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SÍMI91-32845
JAPIS - AKUREYRI
SKIPAGATA1 - SÍMI 96-25611