Pressan - 30.11.1989, Page 24
24
Fimmtudagur 30. nóv. 1989
Framh. af síðustu síðu
„Höfum ekki enn
náð botninum"
Svo við snúum okkur á ný að
samdráttar-tali. Telurðu að botnin-
um hafi verið náð, það er að á
komandi sumri fari farþegum til
útlanda fjölgandi á ný?
„Nei, ég er þeirrar skoðunar að
ferðum Islendinga til útlanda
muni fækka enn frekar á næsta
ári, en fari síðan að aukast á ný.
Minnkandi markaður gæti svo
þýtt að menn einbeittu sér að því
að bjóða upp á hluti sem heilla
fólk. Bjóða upp á einhverjar nýj-
ungar og þar fram eftir götunum.
Það fer líka töluvert eftir því
hvernig samningar takast við þá
erlendu aðila sem við eigum í við-
skiptum við. Verði þeir hagstæðir
má að einhverju leyti sporna við
þeirri fækkun íslenskra ferða-
manna sem annars er fyrirsjáan-
leg. Nú lítur út fyrir að samningar
við aðila á Spáni verði mjög hag-
stæðir fyrir næsta ár, þannig að
kannski mun það hafa eitthvað að
segja í þessa átt. Sé litið á þróun
síðastliðinna ára sést að með vissu
millibili hefur orðið verðhrun á
þessum markaði og það er að ger-
ast nú. Árið í ár var lélegt víðast
hvar við Miðjarðarhafið og því
fylgir óhjákvæmilega leiðrétting á
verði."
„Þurfum að hlú að
erlendum
ferðamönnum"
Starfsemi ferðaskrifstofanna
byggist ekki eingöngu á útflutn-
ingi Islendinga, heldur einnig á
innflutningi útlendinga. Hver
sérðu fyrir þér að þróun í þeim
málum þurfi að vera á næstunni?
,,Eg held að við hljótum að
beina sjónum okkar i auknum
mæli að móttöku erlendra ferða-
manna. Þessi starfsgrein útvegar
nú þegar um 10 milljarða í gjald-
eyristekjur á ári og að mínu mati
er tiltölulega litill vandi að tvö-
falda þá upphæð á u.þ.b. 10 árum.
Túrismi er að verða ein mikilvæg-
asta atvinnugreinin í löndunum
umhverfis okkur og ísland er kjör-
inn ferðamannastaður. Það hefur
hins vegar vantað mikið upp á að
þessi atvinnugrein hafi fengið að
njóta sín hér og það er mjög mið-
ur. Samkvæmt íslenskum lögum á
ferðamálaráð til dæmis að fá 10%
af tekjum fríhafnarinnar á ári
hverju tii landkynningar. Þetta
hlutfall hefur hinsvegar farið nið-
ur i það að vera aðeins um fimmt-
ungur þess sem það á að vera!
Það hlýtur að vera öfug þróun
að undanfarin tvö ár hefur orðið
stöðnun í fjölda erlendra ferða-
manna hingað til lands eftir að
þeim hafði fjölgað á hverju ári
nokkur undanfarin ár þar á und-
an. Það er líka stór-undarlegt að
ráðamenn þessa lands skuli vera
svona sofandi gagnvart þessari at-
vinnugrein sem hægt væri að tvö-
falda tekjurnar í á tíu árum. Það er
grátlegt að horfa á þennan vaxtar-
brodd, sem auðvelt væri aö rækta,
nánast visna upp fyrir augum
manns."
Umsjón með sérblaði um
VETRARFERÐIR
Árni Magnússon
STOFA STÚDENTA
Það helsta sem setur svip sinn á þjónustuna hjá Ferðaskrifstofu stúdenta í vetur eru ævin-
týraferðirnar um Asíu, Afríku og S-Ameríku með E.C.O. Þessi skemmtilegi og jafnframt
óvenjulegi ferðamáti hefur orðið æ vinsælli með hverju árinu enda gefur nýútkominn
bæklingur um safaríferðirnar það glöggt til kynna þar sem 17 nýir ferðamöguleikar hafa
bæst í safnið. Þannig bjóðast nú 95 skipulagðar hópferðir á sérbyggðum trukkum. í vin-
sælustu férðirnar er boðið upp á allt að 25 brottfarardaga á ári.
Þær ferðir sem vinsælastar hafa verið eru einkum lengri ferðirnar en þær taka allt frá
þremur til fjögurra mánaða. Vinsælasta ferðin um Suður-Ameríku er ferðin frá Ríó þvert
yfir landið til Quito en hún tekur u.þ.b. 13 vikur. í Asíu hafa ferðirnar sem lagt er upp í
frá Kathmandu verið vinsælastar enda gefa þær mikla möguleika á að sameina fleiri
styttri ferðir um þetta svæði. Ferðin frá London til Kathmandu hefur líka verið mjög eftir-
sótt, en sú ferð tekur u.þ.b. 16 vikur. Vinsælasta safaríferðin í Afríku er þó tvímælalaust
ferð frá London sem endar í Dar Es Salaam og er lengd hennar u.þ.b. 16 vikur.
Enda þótt lengri safaríferðirnar hafi verið einna vinsælastar hafa styttri ferðirnar hent-
að vel þeim sem ekki hafa mikinn tíma aflögu. í því sambandi má t.d. nefna ferðina um
Egyptaland en hún tekur 14 daga.
Eftirspurn eftir fleiri ferðamöguleikum hefur verið mikil og til að gefa fólki í ævintýra-
hug einhverja hugmynd um nýju safaríferðirnar má t.d. nefna að nú er hægt að ferðast
um Mið-Ameríku og velja á milli fleiri möguleika í Asíu eins og t.d. tveggja ferða í Tyrk-
landi, fleiri styttri ferða um Nepal og Indland. Einnig er hægt að fara í safaríferð frá Thai-
landi til Indónesíu og þá er nú orðið æði freistandi að halda áfram yfir til Ástralíu og jafn-
vel enn lengra ...
Fyrst talið berst að hnattferðum má til gamans nefna að Ferðaskrifstofa stúdenta, í sam-
vinnu við stúdentaferðaskrifstofur á Norðurlöndunum, gaf á dögunum út heimsreisu-
bækling. Þar eru kynntir 7 möguleikar á heimsreisum ásamt verði. I bæklingnum er einn-
ig að finna haldgóðan fróðleik um ýmislegt sem varðar þá er hyggja á langt ferðalag.
JÓLAFERÐIR
VERALDAR
COSTA DEL SOL
Vetrardvöl á Costa del Sol hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna og jólaferð þangað er
nú árviss viðburður, enda völ á stórgóðri aðstöðu og yndislegu veðri fyrir lægra verð en
víðast hvar annars staðar á þessum árstíma.
Ferðamiðstöðin Veröld býður nú jólaferð með íslenskum fararstjóra og sérstakt tilboðs-
verð á einn besta gististaðinn á ströndinni, Castillo de Vigia, sem er frábærlega staðsettur
og býður þægindi eins og sjónvarp, síma, loftkælingu og innisundlaug.
Fjöldamargt er hægt að gera á Costa del Sol á þessum tíma, mannlífið ótrúlega mikið,
enda flykkjast nágrannaþjóðir okkar þangað yfir jólin.
Boðnar eru kynnisferðir til Granada, Sevilla, Gíbraltar og Marokkó ásamt veislukvöld-
verði á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi á
þessum vinsælasta ferðamannastað Evrópu.
Thailand
Fyrir þá sem vilja upplifa nýja heillandi menningu og stórkostlega náttúrufegurð alls
ólíka hinni íslensku er Thailand einstakur valkostur.
Jólaferð Veraldar er byggð á reynslu ferðaskrifstofunnar af skipulagningu hópa til
Thailands hefur verið valinn sá ferðamáti sem íslendingar hafa best kunnað að meta.
Hótelverð í Thailandi er mjög hagstætt og í þessari ferð eru aðeins boðin glæsileg hótel
þar sem ekkert er til sparað svo gestum líði vel.
Ferðatilhögun er sú að ferðin hefst í Bangkok þar sem borgin er skoðuð og farið í athygl-
isverðar dagsferðir, t.d. til Damnern Saduak þar sem einstakt mannlíf á fljótinu er skoðað.
Eftir að hafa notið menningar og mannlífs borgarinnar er haldið til Pattaya þann 25.
desember þar sem næstu viku er notið í hita og sól á stórglæsilegu hóteli, hinu nýja Dusit
Resort, sem er eitt glæsilegasta hótel Asíu. Boðið er upp á kynnisferðir á Pattaya með ís-
lenskum fararstjóra og heimferð er svo þann 2. janúar áleiðis til íslands.
peislMsalwr
Afmaelisuetslur
Árs hátiöir
Blaöamannafun
Brúökaups^elS
Dansleikir
Danssýningar
Erfidry^^ur
fermi«9ar?clslur
fundir
QrimudansW|cir
jólaboll
Matarboö
Ráöstefnur
Sumar/aguadu
veirarfagnaöu-
þorrablót
/Ettarmót
Eöa bara st““ f|)comiö
all* fra fieutar
hUóöKerfi djscoteki
tt,JÓrgUriSuum.
Eitt símtal -
veist^n » Þ°fn*
MAJVNHIVG,
Si»AK 686880.
678967