Pressan


Pressan - 29.12.1989, Qupperneq 12

Pressan - 29.12.1989, Qupperneq 12
12 Föstudagur 29. des. 1989 orniars konar viðhorf Sérhlífni Hætt er við að erfitt reyndist aö hafa ofan í sig og á ef enginn nennti að vinna. Ýmsar ástæður geta vald- ið því að við þurfum að vera frá vinnu, svo sem tímabundinn heilsu- brestur^ líkamleg eöa andleg fötlun auk erfiðra heimilisaðstæöna. í þjóðfélaginu, á vinnustöðum og inni á heimilum er líka til fólk sem er of sérhlífið og lítur jafnvel svo stórt á sig að þaö kemur sér undan eölilegri vinnu, ýmist af leti eða er haldiö svokölluöu vinnusnobbi. Fólk sem annars vegar finnst eðli- legt aö láta aðra jafnvel þræla fyrir þörfum sínum eöa eyöir tímanum í að bíða eftir draumastarfinu sem aldrei kemur af því aö ekkert er nógu gott fyrir viðkomandi per- sónu. Afstaða þessa fólks felur í sér gróft vanmat á eölilegri vinnu. Þetta fólk kemst ekki hjá því að misbjóða og hryggja samferðafólk sitt. Þeir sem nenna að vinna eru oft í mikl- um vanda þegar kemur að því að þolinmæði þeirraþrýtur og athuga- semda er þörf viö þessar persónur, jrví hér vill heyra aö hann sé ónytj- ungur? Óttast sérhlífin manneskja erfidi og ábyrgö? Sérhlífin persóna þarf ékki aö vænta þess að hún veki áhuga og eftirtekt annarra. Þvert á móti fer slíkt fólk fyrir brjóstið á iðjusömum einstaklingum og ekki að ástæðu- lausu. Sá sérhlífni verður nefnilega oft sérfræðingur í aö skipuleggja annað fólk sjálfumsér til framdrátt- ar. Honum finnst jafnvel í lagi þótt þreytt fólk sé á kafi í vinnu fyrir hann, oftast ofan ásína eigin vinnu. Sá sem telst heill heilsu á ekki að eiga allar ytri þarfir sínar undir öðr- um. Er ekki undarlegt ef slíkur aðili getur ekkert sjálfur? Þiggur bara og kemst þar af leiðandi ekki hjá að íjryngja þeim sem fyrir kröfunum verður? Flótti frá eðlilegri vinnu er flótti frá réttu lífi. Vinnan er uppspretta margra eftirsóknarverðra eðlisþátta sem alls ekki fá að þroskast og dafna Vandað blað með fjölbreyttu efni. Þú getur pantað blaðið í síma 621616. ef fólk er í hópi iðjuleysingja. Ótti við erfiði er býsna algengur og furðulegt hvað fólk verður lagið við að forðast það. Vinnan er áreynsla sem er holl og á auk þess að vera ánægjuleg en ekki byrði á okkur. Öll störf eru í eðli sínu mikilvæg og ættu ekki að vera metin öðruvísi. Menntasnobb Hver kannast ekki við orðatiltæk- in sem hljóma svona: Hún er bara húsmóðir, hann vinnur í fiski greyið. Svo er ekki sjaldgæft að fólk lygni aftur augunum af hrifningu og segi: Allt mitt fólk er vel menntað og í góðum stöðum. Ágætt dæmi: Hún er forstjóri hjá stóru fyrirtæki, þú skilur, og hann er mikilsvirtur lækn- ir. Ekki er ætlunin að gera lítiö úr slíkum viöhorfum, en víst er að allt vanmat livað gildi starfa snertir er kjánalegt. Stundum liggur á bak við slíkt óréttlátt snobb og vanmat á öðrum sem í raun ætti að hafa horf- ið frá fólki sem telur jákvæð lífsvið- horf einhvers virði. Njótum þess aö hafa fyrir hlutunum Heimtum ekki að aðrir leysi sjálf- sagða hiuti fyrir okkur, reynum frek- ar að gera sem flest sem fellur að daglegu amstri sjálf og höfum ánægju af. Það er nefnilega ekki eðli starfsins sem skiptir svo miklu máli í raun og veru, heldur með hvaða hugarfari við tökum á því. Drífum okkur úr hópi letilapp- anna yfir í flokk jreirra sem nenna að hafa fyrir hlutunum og strita pínulítið. Þannig nýtur maður best ávaxtanna, ekki satt? Flestum venjulegum störfum get- ur fylgt dálítið af vandræðum auk einhvers konar þreytu, sem við verðum að reyna að yfirstíga var- færnislega án þessað bugast. Áhugi og einlæg trú á góðan árangur eru líka býsna mikjlvægir hvatar til að örva starfsgleði okkar og því meg- um við altírei gleyma. Fegurð vinn- unnar og vöxtur fara líka mikið eftir því með hvaða hugarfari við göng- um til hennar. Ef okkur hættir til að mikla fyrir okkur störf sem bíða úr- lausnar er sennilegt að þau verði fráhrindandi og heldur drungaleg. Sum störf eru auk þess svo orkufrek að við hreinlega höfum ekki efni á að eyða dýrmætu lífsafli í svo og svo miklar vangaveltur um hvort þetta, eða hitt kunni kannski að fara úr- skeiðis. Verum jákuœö í uerki Hyggilegast væri að eyða sem minnstum tíma í allan neikvæðan efa um góðan árangur sem við get- um að lokum sætt okkur við. Betra er að við beinum sjónum okkar að öllum þeim miklum kostum sem við erum búin til verkanna. Ekki væri verra að reyna að trúa að með ein- lægum vilja og staðfestu séu fá verk okkur ofviða. Ef við þreytumst á fólki sem að okkar mati hlífir sér við vinnu á okkar kostnað er heppi- legra að vera hreinskilinn og neita að láta nota sig heldur en að bölva í hljóði og vinna svo verkin með vaxandi þunga og biturð. Innri pirr- ingur sem tengist heilbrigðri rétt- lætiskennd þarf að ganga út og ekki síst þegar eiga í hlut letingjar sem neyða vinnu sína upp á okkur. Sér- hlífin persóna þarf að fá orð í eyra, annars er líklegt að hún gangi eins langt og hægt er í að yfirfæra vinnu sem henni ber að leysa yfir á okkur hin sem sjáum ekki ávinning í leti. Eða eins og vingjarnlega verkakon- an sagði á árum áður: „Elskurnar mínar, mannkynið verður að vinna fyrir lífi sínu, annars verður enginn afgangs á jörðinni til að flaka fisk."

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.