Pressan - 29.12.1989, Side 25
Föstuc(agur 29. des. 1989
25
spáin
29. desember—3. janúar
(21. murs—20. upril)
Einhverskonar endurfundir eru afar líklegir
þessa dagana. Annaöhvort skipulagöir eöa
fyrir hreina tilviljun. Gamall vinur mun ef til
vill birtast aö óvörum, þér til mikillar ánægju.
Heppilegt væri fyrir þig aö hafa samband
viö fjarstadda ættingja og styrkja böndin
ykkar í millum. Þaö er rómantík í loftinu.
(21. upril—20. muí)
Nú er kominn tími til aötaka mál föstum tök-
um og breyta viöhorfi til margra þeirra mála
sem þú hefur veriö aöfást viö. Einhver sem
þú hélst þér vinveittan er þaö sennilegast
ekki og annar sem þú hélst aö væri svika-
hrappur mun reynast þér vel. Reyndu aö
eyöa sem mestum tíma meö fjölskyldunni.
(21. mui—21. júní)
Morgunstund gefur gull í mund og núna er
þaö einkum ástin sem gefið getur gull í
mund á morgnana. Geröu þér far um aö
stökkva ekki framúr þegar þú vaknar heldur
fara aö öllu rólega og eyöa tímanum í sam-
ræöur og vingjarnlegheit. Og kannski fleira.
(22. júní—22. júlí)
Þaö er einhverskonar upplausnarástand ríkj-
andi víöa í kringum þig, og tengist bæöi ver-
aldlegum og andlegum fyrirbærum. Þú
munt aö öllum líkindum veröa fyrir því aö
ástvinir þínir bregöist öðruvísi viö en vaninn
er og þeir koma þér úr jafnvægi. Hinsvegar;
þolinmæöin þrautir vinnur allar.
(23. júlí—22. úyúst)
Líklegast veröur eilíf árátta þín til aö tor-
tryggja allt og alla ansi rík í þér þessa næstu
daga. Gættu þín á því aö þaö sem sýnist
vera óvenjulegt getur einfaldlega veriö ný
aðferð til aö nálgast gömul vandamál. Ekki
láta hnjóösyröi á þig fá, líklegast stendur
ekkert á bak viö þau, taktu undir gríniö jafn-
vel þó þú sért skótspónninn; sá hlær best
sem síöast hlær.
(23. úuúst—23. sept.)
Nú er rétti tíminn til aö hefja máls á erfiðum
málum sem hafa verið aö brjótast um í þér
og fleirum aö undanförnu. Heiöarlegar um-
ræöur, þó svo þær séu sársaukafullar meö-
an á þeim stendur, munu á endanum skila
sér í betri skilningi á ööru fólki og sjálfum
þér. Ekki gera ráö fyrir því aö börn skilji ná-
kvæmlega hvaö viö er átt hverju sinni, þú
verður aö skýra mál vandlega fyrir þeim.
(23. sepl.—24. okt.)
Þú getur leyst erfiö verkefni á mettíma ef þú
einbeitir þér, hugsar hratt og framkvæmir
samkvæmt því. Snörp hugsun gerir þér
kleift aö taka snöggarog góöar ákvarðanir í
mikilvægum málum. Þessir dagar um ára-
mótin eru hagstæðir til aö kaupa og selja
gamla hluti.
(24. okt.—22. nóu.)
í þessum heimi er ekkert öruggt og aldrei
hægt aö skipuleggja langt fram í tímann.
Þaö er rétt aö hafa í huga aö þaö sem ákveö-
iö er á þessu ári getur þurft á breytingum aö
halda á því næsta. Þessvegna er rétt aö vera
ætíö reiðubúinn aö breyta til og endurskoða
og skipuleggja.
(23. nóu.—21. des.)
Þrátt fyrir aö þér finnist þú hafa allt á hreinu,
þá er þaö bara ekki rétt. Breytingar munu
sækja stíft á og þér finnst þú vera aö missa
tökin aö einhverju leyti. Þetta smitar allt sem
þú gerir; fjölskyldlíf, vinnuna, fjármálin.
Gættu þín á aö taka ekki fljótfærnislegar
ákvaröanir sem fela í sér kvöl síöar meir.
(22. des.—20. jan.)
Fólki í merki steingeitarinnar finnst þaö ör-
uggt um þessar mundir. Tilfinningar þess
mynu aö ölium líkindum ekki fara á sama
flug og gerðist fyrir skemmstu. TilvaliÖ er aö
koma ástvini eða -vinum
á óvart, t.d. meö góöum mat heima fyrir, eöa
bjóöa út i kvöldverð. Allt getur gengiö vel ef
rétt er aö farið.
(21. junúur—19. febrúur)
Nú er rétti tíminn til aö vera svolítið sam-
kvæmisglaður en þar munu vinir þínir veröa
þér til mestrar ánægju. Þaö er ekki að sjá, þ.e.
fyrir ókvænta, aö ástin leynist neinsstaöar í
kallfaeri. Einhver mun samt hrósa þér fyrir
þaö sem þú þó ert, ekki þaö sem þú átt.
(20. febrúar—20. mars)
Ráö sem þér mun veitast af örlæti er meira
en vel þess viröi aö fara eftir. Fólk sem
stendur þér nærri hefur gleggri sýn yfir þaö
sem kann aö angra þig hverju sinni. Kímni
getur veriö gott ráð gegn léttvægari kvillum.
Ekki taka mikla áhættu, þaö borgar sig ekki
sem stendur.
Lframhiáhlaupi
Helgi Már Arthúrsson
fréttamaöur
Hræddur við brunabíla
09 Ijón
— Hvaöa persóna hefur haft
mest áhrif á þig?
„Það hafa margar persónur
haft áhrif á mig."
— Án hvers gætiröu síst ver-
iö?
„Ég gæti síst verið án matar
held ég, matar og bíls."
— Hvaö finnst þér leiðinleg-
ast?
„Mér finnst leiðinlegast að
geta ekki fundið neinar almenni-
legar jólabækur til að lesa um
þessi jól."
— En skemmtilegast?
„Mér finnst skemmtilegast að
vera í góðra vina hópi og ræða
málin."
— Manstu eftir einhverri
ákvörðun sem breytti miklu
fyrir þig?
„Já, það breytti miklu fyrir mig
þegar ég ákvað að fara til náms
í Danmörku. Vegna þess að ým-
islegt lærði ég þar sem opnaði
bæði augu og eyru upp á gátt,
enda má með nokkrum rökum
halda því fram að hvortveggja
hafi verið hálflokuð fram að
þeim tíma."
— Viö hvaö ertu hræddur?
„Ég er hræddur við brunabíla
og Ijón."
— Hver er tilgangurinn meö
lífinu?
„Það er nú ekki auðvelt að
svara því. Ætli tilgangurinn sé
ekki sá að taka þátt í neyslusam-
félaginu fyrir þöndum seglum."
— Ef þú þyrftir að skipta um
starf, hvaö vildirðu helst taka
þér fyrir hendur?
„Ef ég gæti fengið greitt fyrir
að leggjast í ferðalög þá þætti
mér það óvitlaust."
— Hvaö er betra en kvöld-
stund í góöra vina hópi?
„Það er þá bara að færa sig
framar á daginn. Síðdegiskaffi í
góðra vina hópi."
lófalestur
í þessari viku:
Regína
(kona, fædd 24.12. '48)
Æsku- og unglingsárin voru
þessari konu ekki auðveld og hún
á jafnvel enn við einhverja erfið-
leika að etja. Það ríkir ákveðin
óvissa í lífi hennar. Hún þarf að
ákveða hvaða stefnu hún ætlar að
taka og það gæti tengst fjármál-
um eða frágangi á einhverjum
málum.
Hvað varðar atvinnu finnur kon-
an til léttis á árunum 1991 til 1993,
en hún verður að gæta þess að of-
keyra sig ekki. í tilfinningamálum
verður þessi kona gæfusamari á
fullorðinsárum en hún var á yngri
árum.
Hún hefur þurft að basla og
strita mikið og takast á við fjár-
málaerfiðleika á síðustu árum,
þegar hún var 36 til 41 árs.
draumar
. . .Það á að gefa
börnum brauð að
bíta í á jólunum. ..
Þetta vitum við nú öll. Flestir
biryðu sig upp fyrir jólin af alls kon-
ar matvælum eins og umsáturs-
ástand væri yfirvofandi. Og gjafir
leyndust í skápum. En gjafirnar í
skápum drauma okkar, hvað skyldu
þær tákna?
Já, nú vandast málið. Það er þá
fyrst frá hverjum gjöfin er. Ef ungt
fólk dreymir að einhver af gagn-
stæðu kyni gefi því blóm eða skart-
gripi er trúlegt að þar verði um
frekari kynni að ræða. Ef dreym-
andinn er trúlofaður eða giftur og
þykist fá slíka gjöf frá maka sínum
er það vísast fyrir börnum. Að
dreyma að maki manns gefi manni
hníf eða eitthvaö annað sem hægt
er að skaða sig á mun hann eða hún
valda sársauka eða slíta samband-
inu.
Að fá fallegar gjafir sem maður er
ánægður með frá bðrnum sínum
bendir til þess að maður verði hepp-
inn framvegis. Að vera gefinn mat-
ur ber fólki ekki saman um hvað
tákni, sumir segja það boða höpp en
aðrir telja slíkan draum fyrir tapi og
peningaáhyggjum. Að gefa hand-
klæði eða dúka táknar að dreym-
andinn gefur einhverjum traust sitt,
því handklæði eða dúkur er tákn-
rænt fyrir ævi manns. Það er því
gott að dreyma slíkt lín fallegt og
hreint. Þykist maður fá slíkar gjafir
sýnir þá einnig að þér er treyst.
Að vera gefið Ijós í draumi höfum
við áður rætt að er gæfudraumur.
Þykist maður frá hest eða bíl að
gjöf er það líkast til fyrir góðri heilsu
eöa giftingu. Að vera gefiö höfuð-
fat er einnig fyrir trúlofun eða gift-
ingu. Að vera gefið fallegt dýr get-
ur táknað góöan vin eða þá barn í
fjölskyldunni. Margir jólapakkar í
skrautlegum umbúðum er hætt
við að þýði skammvinna hamingju.
Að fá gjafir frá veraldlegum valds-
mönnum er sjaldan fyrir góðu.
Gjafir frá álfum og vættum eru
góðs viti en slæmt ef maður þykist
týna þeim eða brjóta þær.
Afleitt er að dreyma að manni sé
gefin eða einhver vilji gefa manni
jörð eða lóð, þá má búast við lífs-
háska. Sá sem vill gefa manni jörð í
draumi er raunar að bjóða manni
hana til eilífrar dvalar. Að þiggja
gjafir af ókunnu fólki er oft nei-
kvætt nema önnur tákn dragi úr því.
Þannig að þó okkur finnist stundum
erfitt að fást við gjafir í vökunni er
það þó enn varasamara í svefni. Ver-
um því öll ánægð með jólagjafirnar
okkar!