Pressan - 29.12.1989, Side 27
S SS ' r)sT) .•?.1: >| / Sb w.'• •O'
Föstudagur 29. des. 1989
sjónvarp
FÖSTUDAGUR
29. desember
Stöð 2 kl. 22.40
SVIKIN
(Intimate Betrayal)
Bandarísk sjónvarpsmynd
Gerð 1987
Leikstjóri Robert M. Lewis
Aðalhlutverk James Brolin,
Melody Anderson, Pamela
Bellwood, Morgan Stevens
Hér er á ferð svikavefur hinn mesti.
Kona nokkur kemst að því að eigin-
maður hennar er allur annar en
hann hefur virst vera. í fyrstu virðist
allt leika í lyndi hjá þeim hjónum en
þegar þess er síst von hverfur eigin-
maðurinn og í Ijós kemur að hann er
skuldum vafinn, allt sparifé konunn-
ar er horfið og sömuleiðis kemur á
daginn að hann á sér aðra konu og
hefur getið við henni barn.
Sjónvarp kl. 23.10
GRÁIFIÐRINGURINN
★★★
(Twice in a Lifetime)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1985
Leikstjóri Bud Yorkin
Aðalhlutverk Gene Hackman,
Ann-Margret, Ellen Burstyn, Ann
Madigan, Ally Sheedy, Brian
Dennehy
Einvala leikaralið í þessari mynd
sem segir af miðaldra fjölskylduföð-
ur sem verður ástfanginn af sér
yngri konu og yfirgefur konti sína
og börn. Þetta er góð mynd, einkum
vegna þess að hún dregur upp á trú-
verðugan hátt hvernig mismunandi
fólk bregst við erfiðum tilfinninga-
málum og sömuleiðis vegna þess að
myndin er einkar vel leikin.
LAUGARDAGUR
30. desember
Stöð 2 kl. 2025
í SKÓLANN Á NÝ ***
(Back to School)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1986
Leikstjóri Alan Metter
Aðalhlutverk Rodney Dangerfield,
Sally Kellerman, Burt Young, Keith
Gordon, Robert Downey Jr., Ned
iBeatty
Dreng nokkrum til mikillar armæðu
ákveður faðir hans að innrita sig í
sama háskóla og hann sjálfur stund-
ar nám í. Meiningin hjá föðurnum er
að hvetja drenginn áfram í náminu
en það gengur eins og það gengur.
Faðirinn er að vísu efnaður, hins-
vegar um leið ómenntaður, sjálfum-
glaður en í rauninni besti maður
þegar nánar er að gáð. Þetta er fjör-
mn k'íi
eftir Mike Atkinson
leiKrAKG/'tíVNWR!
% > > > > > > > > > V > > > 'A
•*ta •* 'avmvrvivnyi'rtVi' t
ug mynd, oft á tíðum bráðfyndin,
einkum í orðaleikjum þess ágæta
gamanleikara Rodneys Dangerfield.
Afbragðs afþreying þegar á allt er
litið.
Stöð 2 kl. 22.50
KRAMER GEGN
KRAMER ★★★★
(Kramer vs Kramer)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1979
Leikstjóri Robert Benton
Aðalhlutverk Dustin Hoffman,
Meryl Streep, Jane Alexander,
Justin Henry
Hér er á ferðinni ein af umtalaðri
myndum áttunda áratugarins. Segir
af hjónum sem verður eitthvað á í
samlífinu og endar með því að kon
an yfirgefur manninn og ungan son
þeirra og nú verður eiginmaðurinn
að taka til hendinni við hluti sem
hann hefur ekki mikið vit á á heimil-
inu. Þetta er falleg mynd, vel skrifuð
og slær mann beint í viðkvæmt
hjartað. Myndin fékk fimm óskars-
verðlaun á sínum tíma, sem besta
myndin, besti karlleikarinn (Hoff-
man), besta leikkona í aukahlut-
verki (Streep), besti leikstjóri og
besta handrit eftir bók. Pottþétt, ef
mönnum á annað borð hugnast
myndir sem þessi.
Sjónvarpið kl. 23.20
GINGER 0G FRED ***
(Ginger and Fred)
ítölsk bíómynd
Gerð 1986
Leikstjóri Federico Fellini
Aðalhlutverk Giulietta Masina,
Marcello Mastroianni, Franco
Fabrizi
Fellini gerir hér napurt grín að sjón-
varpinu sem fyrirbrigði og ekki síð-
ur skyndifrægðinni sem því fylgir
oft á tíðum. Við fylgjumst með eldri
skemmtikröftum sem eru að koma
fram aftur eftir langt hlé. Þau hafa
eytt ævi sinni í að líkja eftir Ginger
og Fred, en eru í raun og veru ekk-
ert sjálf. Þetta er afslöppuð mynd,
háðið missir að vísu svolítið marks
vegna þess hversu augljóst er að
hverju það beinist, en aðalleikararn-
ir, einhverjir þeir bestu á Ítalíu á
þessari öld, eru alltaf jafnindælir og
sjarmerandi.
Stöð 2 kl. 0030
HINIR VAMMLAUSU
★★★
(The Untouchables)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1987
Leikstjóri Brian De Palma
Aðalhlutverk Kevin Costner,
Robert De Niro, Sean Connery,
Charles Martin Smith, Andy Garc-
ia
Ein af þeim þéttari frá Holly-
wood-verksmiðjunni á seinni árum.
Tekur fyrir hina ódrepandi sögu af
Elliot Ness og hans góðu mönnum
sem unnu bug á A1 Capone og hyski
hans um 1930 í Chicago í Bandaríkj-
unum, en Capone réð þeirri borg.
Pottþétt handrit, góður leikur, flott
kvikmyndataka oft á tíðum, sérstak-
lega í lokaatriðinu sem er eitt það
flottasta í seinni tíð í bíó.
SUNNUDAGUR
31. desember
Stöð 2 kl. 0010
ARTHUR ★★★V2
Bandarísk bíómynd
Gerð 1981
Leikstjóri'Steve Gorkon
Aðalhlutverk Dudley Moore, Liza
Minnelli, John Gielgud, Geraldine
Fitzgerald, Jill Eikenberry,
Stephen Elliott
Bráðskemmtileg gamanmynd þar
sem segir af flottræflinum Arthur
sem er svo ríkur og svo ábyrgðar-
laus að annað eins hefur ekki
þekkst. Hann eyðir tíma sínum í
drykkju og yfirleitt það sem kallast
getur hreinn óþarfi. Hann á hins-
vegar við það vandamál að stríða að
hann er ástfanginn af gengilbeinu,
frekar af Iægri stéttum, en fjöl-
skylda hans hótar að gera hann arf-
lausan giftist hann ekki konu af
sömu stétt. Og Arthur þarf að taka
ákvörðun! Myndin fékk tvenn ósk-
arsverðlaun á sínum tíma, John Gi-
elgud, sem leikur einkaþjón Art-
hurs, fékk verðlaun sem besti leikari
í aukahlutverki, lagið Arthur’s
Theme eins og það er kallað fékk
líka verðlaun.
Stöð 2 kl. 02.45
HÓTELIÐ ***
(Plaza Suite)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1971
Leikstjóri Arthur Hiller
Aðalhlutverk Walther Matthau,
Maureen Stapleton, Barbara Harris,
Lee Grant, Louise Sorel
Myndin er byggð á einu af leikritum
Neils Simon, og þetta þykir reyndar
eitt hans fyndnasta. Hér eru á ferð
þrjár sögur af fólki sem á það eitt
sameiginlegt að staldra við í sama
hótelherberginu í New York. Walt-
her Matthau leikur aðalhlutverkið í
öllum þremur sögunum og þykir
takast best upp í þeirri þriðju og síð-
ustu, þar sem hann leikur áhyggju-
fullan föður stúlku sem á að fara að
giftast.
MÁNUDAGUR
1. janúar
Sjónvarpið kl. 20.25
STEINBARN
íslensk sjónvarpsmynd
Gerð 1989
Leikstjóri Egill Eðvarðsson
Aðalhlutverk Lilja Þórisdóttir,
Rúrik Haraldsson, Margrét Olafs-
dóttir
Myndin fjajlar um unga konu sem
kemur til Islands úr námi í kvik-
myndagerð. Hún tekur sér fyrir
hendur að skrifa handrit um bresk-
an vísindamann sem bjargaðist úr
sjávarháska við strendur Islands.
Hún leigir sér gamalt hús á eyðileg-
um strandstaðnum til að icömast í
snertingu við atburðinn. Þar kynn:
ist hún gömlum vitaveröi og fer að
forvitnast um fortíð hans og sögu
staðarins. Heimsókn dóttur hennar
hrindir af stað atburðarás sem flétt-
ar saman örlög þeirra. Gert eftir
verðlaunahandriti þeirra Vilborgar
Einarsdóttur og Kristjáns Friðriks-
sonar, en það var framlag íslands í
samkeppni ervrópskra sjónvarps-
stöðva árið 1988 og fékk þar góðar
viðtökur.
Sjónvarpið kl. 22.35
DIVA ★★★’/z
(Gyðjan)
Frönsk btómynd
Gerö 1982
Leikstjóri Jean-Jacques Beineix
Aðalhlutverk Wilhelmina Wiggins
Fernandez, Frederic Andrei,
Richard Bokringer, Thuy Ah Luu,
Jacques Fabri
Bréfberi nokkur, afar tónelskur, tek-
ur ólöglega upp söng frægrar óperu-
söngkonu sem ekki leyfir að rödd
sín sé hljóðrituð. Hann lendir þó í
enn verri málum þegar segulbands-
upptakan fer á vergang og hann fær
aðra í staðinn sem tilheyrir harð-
snúnu glæpagengi. Þetta er góð
mynd, afar fallega kvikmynduð og
tónlistin er bráðskemmtileg og fal-
leg. Beineix var aðeins 23ja ára þeg-
ar hann gerði myndina sem var
hans fyrsta. Myndin er dálítið mikið
tæknileg og það verður aðeins
þreytandi til lengdar. Eltingaleikur á
mótorhjólum í neðanjarðarkerfi
Parísarborgar verður síðar meir án
efa talinn klassískt atriði í kvik-
myndalistinni.
VOFF'
VOFv%r,
&
))
Jt
öVwJTX-FtGA'ZrA (SJÖrSEM ÉSHE’P
FeN<5/£>'
VOPFf VOFF/ VöFF/ . VOFF^ ^ /
(?)
AJ 1 'fOFFt
— VOFFf
dagbókin
hennar
dúllu
/
Ég hef aldrei á minni lífsfæddri
ævi skammast mín jafnmikið og á
aðfangadagskvöld. Þetta var bók-
staflega mesti bömmer, sem ég hef
upplifað!
Ég fékk nefnilega rúmföt i jóla-
gjöf, alveg eins og ég hafði heyrt
mömmu segja við vinkonu sína í
símann, en þetta var EKKl svona
hallærislegt bómullarsett með
blómum, eins og ég hafði haldið.
Gömlu hjónin gáfu mér sko mellu-
rúmfötin (eins og mamma kallar
þau!), sem ég var svo mikið að
sverma fyrir, og þau eru algjört æði!
Og ég sem gaf þeim rosa nánasar-
legar gjafir, af því ég hélt þau ætluðu
aö vera svona púkó við mig. Guuuð,
hvað þetta pakka-augnablik varð
neyðarlegt. . . En pabbi og mamma
tóku þessu voða vel og þóttust alveg
hafa húmor fyrir misskilningnum.
Mamma sagði bara að ég ætti að
nota þetta sem kenningu, eða þann-
ig, og hætta að hlera annarra
manna símtöl.
Rúmfötin eru sem sagt ógeðslega
töff. Þau eru úr svörtu, glansandi
satíni, en það var vinkona mömmu,
m saumaði þau af því það eru vist
eiijtar búðir á íslandi, sem selja
svona?>^Það er bara eitt verst. Ég
renn rosalega til í rúminu og er
tvisvar búin að- detta framúr um
miöja nótt. Þetta er'SsJdið eins og að
sofa í rennibraut. En ég'þef sjaldan
séð neitt lekkrara og meF-^r skit-
sama þó Adda bróður þyki sjuklpga
fyndið að spyrja hvað ég taki fyrk
nóttina. x
Boðið á Einimelnum á annan í jól-
um var pínu mislukkað í þetta sinn,
vegna þess að amma var algjörlega
að lognast út af allan tímann. Hún
hafði líka nánast ekki sofið dúr frá
því á aðfangadagskvöld, þegar hún
opnaði pakkann með bókinni um
sendiherrafrúna. Amma er nú ekki
mikið fyrir að lesa annað en dönsku
blöðin (og auðvitað Moggann), en
þessa bók hafði hún verið veik í frá
þvi hún frétti af henni og gat ekki
einu sinni lagt hana frá sér til að
borða eða sofa. Henni tókst þó að
koma öllum helstu kjaftapunktun-
um til skila i boðinu og fá mömmu
til að rífast við sig, eins og venju-
lega.
Amma vissi fyrst ekki nákvæm-
lega hvort hún ætti að halda með
sendiherrafrúnni eða manninum
hennar. En um leið og mamma
hafði skammast út í konuna fyrir að
skrifa svona bók vissi amma hvað
henni fannst. Hún varði konuna í
rauðan dauðann og kallaði hana
„vesalinginn” í öðru hverju orði.
Sagði líka að mamma gæti trútt um
talað, með margvottaðan kaup-
mála upp á vasann svo hún gæti
gengið út frá pabba og samt lifað el-
egant lífi í vellystingum. Vesalings
sendiherrafrúin hefði sko nánast
ekki fengið krónu, þegar hún skildi,
og staðið eftir í spjörunum einum
saman með þrjá hungraða munna
starandi á sig. (Hún amma kann nú
að orða hlutina!)
Það bjargaði boðinu að amma fór
snemma að sofa. Ég veit ekki hvar
þetta hefði annars endað. Líklega á
slysó eða með lögregluútkalli. . .