Pressan - 08.03.1990, Síða 13

Pressan - 08.03.1990, Síða 13
Fimmtudagur 8. mars 1990 13 ÁRA KRAKKA HITTIST VIKULEGA í LKIRKJU OG RÆÐIR UM LÍFIÐ OG TILVERUNA I HELSTU AHYGGJUEFNI UNGLINGA afar hárprúð ljóshærð stelpa gekk í salinn. Sú „strípaða" greip höndum um höfuðið og reyndi að skýla hár- inu, en fyrr en varði hafði áhugi hópsins beinst að öðru. Hannes Guðrúnarson, tónlistarkennari og starfsmaður æskulýðsfélagsins, var að koma fyrir stórri töflu í salnum, því til stóð að spila teiknispilið svo- kallaða — greinilega við mikinn fögnuð viðstaddra. hað, sem fram fer á þessum mánu- dagskvöldum í Fella- og Hólakirkju, er af ýmsum toga. Oft fá þau Ragn- heiður og Hannes góða gesti í heim- sókn, sem halda fyrirlestra eða spjalla við krakkana. Einnig eru sýndar skuggamyndir og jafnvel far- ið í kvikmyndahús, ef áhugaverðar bíómyndir eru á ferðinni. Síðan er rætt um efnið og unglingarnir hvatt- ir til að tjá sig, þó þeir ráði alveg hversu virkan þátt þeir taka i um- ræðunni. Engum er þröngvað til að gera hluti, sem hann treystir sér ekki til. Það sama gildir á íhugunarstund- inni seinna um kvöldið. Þegar klukkan nálgast tíu um kvöldið er haldið inn í kirkjuna, kveikt á kert- um, sungið og lesnar bænir. Þeir krakkar, sem ekki vilja taka þátt í bænalestrinum, segja einfaldlega „amen" þegar röðin kemur að þeim. Þá tekur næsti maður við. I lok kvöldsins er síðan opnuð sjoppa, sem krakkarnir sjá sjálfir um að reka, en um ellefuleytið er oftast haldið heim á leið. Krakkarnir safnast alltaf saman við kertaljós inni í Fella- og Hólakirkju undir lok æskulýðskvöldanna. Þar er sungið og lesnar bænir. Þeir, sem kunna á hljóðfæri, sýna þá lika hvað í þeim býr. Afslappandi og fínt í kirkjunni Það stóð ekki á sjálfboðaliðum, þegar blaðamaður varpaði þeirri spurningu fram í lok spilamennsk- stað þess að horfa t.d. á Dallas í sjónvarpinu eins og fjölmargir jafnaldrar ykkar? „Þetta er svo frábær félagsskapur! Enda hittumst við líka oftar en bara á mánudögum. Við förum t.d. stund- um í bíó saman um helgar og það kemur fyrir að við skellum okkur saman í ferðalög. Við erum m.a. ný- búin að vera á þriggja daga æsku- lýðsmóti." — Nú hafið þið í kvöld verið að eruð að ná þessu. Þið eruð að ná þessu." Teiknispilið „Pictionary" var spilað með gífurlegum tilþrifum og spennu. spila teiknispil með mikium til- þrifum og trúmál hefur ekkert borið á góma. Snýst æskulýðs- starfið þá ekki eingöngu um kristna trú? „Við förum á eftir inn í kirkju og þá biðjum við bænir og syngjum og svoleiðis. Það er alltaf gert eftir hvern einasta fund og okkur finnst það mjög afslappandi og fínt. Það er svo gott að vera í ró og friði inni í kirkjunni. Á eftir opnum við síðan sjoppu, sem við rekum sjálf. Sumir krakkar halda að við séum að tala um Jesúm allt kvöldið eða liggjum allan tímann á hnjánum og biðjumst fyrir, en það er náttúrulega algjört rugl. Þeir krakkar, sem gefa unnar hvort einhverjir krakkar vildu koma í stutt viðtal. Hendur sá- ust strax á lofti og þrír unglingar stukku á fætur. Þeir kváðust heita Kristinn Þór Kristinsson, Re- gína Laufdal og Daníel Már Sig- urðsson, öll 15 ára gömul. — Hvers vegna eruð þið í kirkju á mánudagskvöldum í Daníel Már Sigurðsson 15 ára: „Sumir krakkar halda að við sé- um aö tala um Jesúm allt kvöldið eða liggjum allan tímann á hnjánum og biðjumst fyrir, en það er náttúrulega algjört rugl." Regína Laufdal 15 ára: „Þetta er svo frábær félagsskapurl" Kristinn Þór Kristinsson 15 ára: „Við erum sko engin englabörn!" þessu séns oglcoma og prófa — þeir hafa yfirleitt haldið áfram að mæta í æskulýðsstarfið. Við höfum reynt að taka vini okkar úr skólanum með hingað, en;það er svolítið misjafnt hvernig þeir taka þessu. Einu sinni kom stelpa, sem hió all- an tímann á fyrsta fundinum. Hun sprakk alveg úr hlátri á fyrstu mín- útunni. Við vorum að syngja og gera einhverjar hreyfingar og hún var alveg í keng. . . Hún kom heldur aldrei aftur. En það liafa margir ofsalegá gott af því að vera hérna. Til dæmis krakkar, sem eiga erfitt heima hjá sér. Hér getum við verið mjög opin og talað um vandamálin og hjálpast að við að leysa úr þeim 7 samein- ingu. Við treystum hvert öðru al- gjörlega! Við mælum sko með því að krakk- ar komi a.m.k. á einn fund til að sjá hvað fer fram í svona æskulýðs- starfi. Ef þeim líkar ekki þurfa þeir þá ekkert að koma aftur. En það er vel þess virði að prufa." ( Áhyggjur af skóla og foreldrum — Hvað finnst foreldrum ykk- ar um að þið séuð í æskulýðs- starfi kirkjunnar? „Þeir hvetja okkur og vilja endi- lega að við séum í þessu. Annars var einu sinni fundur, sem foreidrarnir áttu að koma á, en það mætti eigin- lega enginn." — Eruð þið meiri „englabörn" en aðrir unglingar? „Ne-hei!!! Við getum sko alls ekki sagt það!“ — Hvað haidið þið að sé helsta áhyggjuefni krakka á ykkar aldri? „Hiklaust skólinn og foreldrarnir! Það eru svo margir krakkar í vand- ræðum með foreldra sína.. . Það er til fólk, sem skiptir sér ekk- ert af börnunum, talar ekkert við þau, hlustar ekkert á þau eða neitt. Svo þegar krakkarnir eru komnir út í einhverja vitleysu er allt orðið of seint. Það þýðir ekki að byrja fyrst að tala við börnin, þegar þau eru farin að skrópa í skólanum og haga sér illa. En sumir krakkar eru óskaplega heppnir með foreldra, þó þeir kunni ekki að meta það. Svoleiðis foreldr- um er ekki sama hvar börnin eru eða hvað þau eru lengi úti og þann- ig. Þetta er fólk, sem er ekkert sama um krakkana sína, en þeir sætta sig kannski voðalega illa við þennan aga og vilja vera jafnlengi úti á kvöldin og krakkar, sem eiga for- eldra sem skipta sér ekkert af þeim."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.