Pressan - 08.03.1990, Blaðsíða 15

Pressan - 08.03.1990, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 8. mars 1990 15 fíngerðar Ijósar rendur (strípur) út frá andlitinu og lýsa endana. Hér er klippingin og litunin aðalatriðið, því hárið er slétt. Þessi lína minnir mig óneitanlega á tískuna síðast á átt- unda tugnum og sannar það sem mér er alltaf að verða ljósara, að tískan gengur í hring!" „Þessi tíska minnir mig óneitan- lega á hárgreiðsluna á sjöunda tugn- um," segir Svava. ,,Á þeim tíma þeg- ar Cilla Black og Twiggy voru sem vinsælastar. Sömu hugmyndirnar koma aftur í Ijós, ef maður bíður nógu lengi. Tískan fer í hringi, með öðrum orðum. Þessi tíska er þægi- KR. 29.130,- Flug og gisting í 5 nætur KR. 39.450,- Flug og gisting í 6 nætur Dúddi segir sumartískuna 1990 nánast sérhannaða fyrir íslenskar aðstæður. Þriðja og síðasta útfærslan á ,,Off- Shore" heitir ,,Pile ou Face" sem gæti útlagst „hlutkesti" á íslensku. Greiðslan heitir þessu furðulega nafni, vegna þess að klippingin veit- ir möguleika á tvenns konar greiðslu. Um þessa greiðslu segir Bára Kemp: „Þessi klipping er styttri en „Stone". Samt er hárið nokkuð sítt. Síð-stutt lina, gæti maður ef til vill sagt. Hún er „geómetrísk" eins og sú fyrri. Hárið er slétt og hér er ekki notað permanent. Hún er frjálslegri en hinar. Toppurinn er greiddur fram en hnakkinn er stuttur. Gabri- elle Fosse, sem er frábær hár- greiðslumeistari og sýndi þessa greiðslu, notar túperingu sem mað- ur hefur ekki séð lengi. Litunin er mikið atriði hér. Ljósar rendur eru penslaðar í hárið. Þær eru mjög fín: gerðar, næstum þvi gegnsæjar. í heild má segja um þessa greiðslu að hún sé bæði falleg og kvenleg." Slæmt ef allir verða eins Um sýninguna i heild segir Elsa: Það er afar mikilvægt að allir geti fundið sinn eigin stíl og að það sé ekki bara „ein tíska" í gangi. Maður verður að reyna að fyrirbyggja að fólk verði svo ginnkeypt fyrir einni ákveöinni tískustefnu að allir verði eins. Ég held þess vegna að við séum að gera mjög góðan hlut með því að sækja hingað straumana og kynna þá íslendingum. Frakkar eru „avant-garde" í tískunni. Þeir eru höfundar tískunnar og leggja lín- urnar. Við íslendingar vöndum hins vegar vinnu okkar mjög mikið og tæknilega hliðin er til fyrirmyndar hjá okkur. Mér finnst þær greiðslur sem hafa verið sýndar hér mjög at- hyglisverðar og þær eiga eflaust eft- ir að verða vinsælar heima en satt að segja kom mér ekkert á óvart hér." leg og auðveld í meðförum og á sjálfsagt eftir að ná vinsældum." Hár fyrir íslenskar aðstæður Þær Hanna Kristín, Bára, Svava og Elsa eru allar stuttklipptar og hárgreiðsla þeirra ekki ósvipuð nýju línunni. En Lovísa er með mikið rautt, sítt hár. Dúddi leggur til að Lovísa verði notuð sem módel og fallega síða hárið verði klippt eftir nýjustu tísku! En Lovísa er ekki sammála: Hver segir að hárgreiðslukonur eigi allar að vera með stutt hár? Það er númer eitt að finna sinn stíl og hafa sína eigin ímynd. Það má ekki leggja alltof mikla áherslu á að fylgja nýrri tísku. Auðvitað er það okkur í hag að fólk vilji breyta til og það er óneitanlega skemmtilegra að hafa breidd í smekknum. Þessi sum- artíska er mjög skemmtileg og það er eins og hún hafi verið gerð fyrir Island og okkar veðráttu enda heitir hún líka „Úti á sjó'T' Látum Dúdda hafa síðasta orðið áður en hópurinn heldur heim með nýjar hugmyndir og hressandi and- blæ frá hinum stóra tískuheimi í far- teskinu: „Það er auðvitað mjög mikilvægt að sækja sér nýjar hugmyndir til annarra og kynnast því hvað á döf- inni er hjá öðrum þjóðum, en okkur er það öllum Ijóst, eftir að hafa séð þessa sýningu, að við íslendingar erum engir eftirbátar annarra í tísk- unni, fremur en öðru. Konurnar í hópnum eru meira að segja margar hverjar þegar klipptar samkvæmt þessari nýju sumartísku! Hún á ef- laust eftir að verða mjög vinsæl hjá okkur í sumar, því það er eins og hún sé gerð með okkar aðstæður í huga!" S4S S4S KR. 47.800,- Flug og gisting í 5 nætur Pr. gengi 20.02 ’90 S4S FERDASKRIFSTOFAN Viltu breyta til, komast í nytt umhverfi. slappa af og njóta þess að vera til. Komdu þá til Akureyrar Þú lætur okkur eftir ad sjá um málin, panta hótel, bílaleigubílinn, miða í leikhús eða hvað annað sem þú vilt. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR HF, AKUREYftl TOUftlST BUftEAU FLUGLEIDIR I s'

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.