Pressan - 26.04.1990, Side 28

Pressan - 26.04.1990, Side 28
I i f c ^^tjórnarliðar telja að sögulegir atburðir hafi átt sér stað á nætur- fundi forystumanna flokkanna í fyrrinótt þegar samkomulag náðist um kvótafrumvarpið. Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra varð undir í málinu þegar forsætis- ráðherra snerist ásveif með krötum um að samkomulagið næði til þess að frumvarp um Ureldingarsjóð fiskiskipa yrði afgreitt samhliða kvótafrumvarpinu og sjóðurinn fengi 10% kvótans til úthlutunar. í afgreiðslu frumvarpsins er talið fel- ast þýðingarmikiðskref í átt til sjón- armiða krata, sem eins og kunnugt er leggja höfuðáherslu á að stefnt verði að veiðileyfagjaldi í sjávarút- vegi. .. pplausn ríkir nú á Tímanum. Stór hluti starfsmanna blaðsins hef- ur sagt upp störfum vegna almennr- ar óánægju og samstarfsörðugleika. Meðal þeirra sem fullvíst er að hafi nú sagt upp eru Eggert Skúlason fréttastjóri og Hallur Magnússon, blaðamaður og borgarstjórnarfram- bjóðandi. Því fylgir sögunni að sjálf- ur Indriði G. Þorsteinsson rit- stjóri sé í uppsagnarstellingum. Ekki fylgdi sögunni nákvæmlega hver rót óánægjunnar væri, en eitthvað er hægt að rekja hana til Kristins Finnbogasonar framkvæmda- stjóra. . . b rátt fer að heyrast kunnugleg rödd á Bylgjunni, því þar er von á Hallgrími Thorsteinssyni til starfa. Hann mun sjá um morgun- þátt á milli klukkan 7 og 9 á morgn- ana og er ætlunin að hafa þáttinn ólíkan öllum öðmm morgunþátt- um, hvernig svo sem það verður gert. Hallgrímur kemur til með að ýta þættinum úr vör, en hann mun ekki skjóta rótum á Bylgjunni að þessu sinni, þar sem hann telur sig enn eiga eitthvað ólært í fjölmiðla- fræðum í Bandaríkjunum . .. ægi frímúrarareglunnar hefur þótt fara minnkandi á síðustu árum, þótt þar sévissulega að finna marga af „máttarstólpum" þjóðfé- lagsins. Áhugamenn um komandi borgarstjórnarkosningar hafa nú komið auga á athyglisverða sam- þjöppun frímúraraá borgarstjórnar- lista Sjálfstæðisflokksins. Þar er að finna fjóra frímúrara; Magnús L. Sveinsson, formann VR og forseta borgarstjórnar, Ragnar Júlíusson skólastjóra, Harald Blöndal, lög- fræðing og uppboðshaldara, og séra Þóri Stephensen, staðarhaldara í Viðey. Það sem þykir hvað merki- legast í þessu er, að allir eru þeir [ einni og sömu stúkunni; Mími. í sömu stúku er aðfinna ýmsa „valin- kunna sæmdarmenn", svo sem Björgúlf Guðmundsson og Ragn- ar Kjartansson, fyrrum stjórnend- ur Hafskips, Hallvarð Einvarðs- son /íkissaksóknara, yfirmann hans Ola Þ. Guðbjartsson dóms- málaráðherra, Guðmund H. Garð- arsson þingmannog þá Ingimund og Sigfús Sigfússyni í Heklu. En hvers eiga aðrar hæstvirtar stúkur leynireglunnar að gjalda? ... Þ ótt skráðum bílum hafi fækk- að lítillega á síðasta ári voru þeir um síðustu áramót 137.778. Þetta þýð- ir einn bíll á hverja tvo einstaklinga og um leið tveir tílar á hverja vísi- tölufjölskyldu. Innrás japanskra bíla hefur ekki farið framhjá neinum og frá 1986 til 1989 jókst markaðshlut- deild slíkra bíla lir tæplega 30% í 40%. Af tíu algengustu tegundun- um hér á landi eru fimm tegundir japanskar. Toyota hefur velt Ford úr efsta sætinu, en Lada heldur sínu öðru sæti. Spúttnikkinn á síðustu ár- um er þó ekki To>wta, heldur Mitsu- bishi. 2.195 slíkirvoru skráðir 1986, en 6.589 eða þrefalt fleiri árið 1989. Á sama tíma eru sumar fornfrægar tegundir óðum að hverfa alveg af skrám bifreiðaskoðunar og má nefna t.d. Hillman, Morris, Mosk- witch, Simca, Vbuxhall, Austin, Volga og Wartburg. . . lítið hefur farið fyrir kosninga- baráttu sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar, en á degi verkalýðsins, 1. maí, hyggst flokkurinn hefja herútboðið með fundi á Hótel Borg . . . Þ að gerist ekki oft að fulltrúar meirihluta og minnihluta í nefndum og ráðum borgarinnar verði sam- mála um tillögur. Það átti sér þó stað í menningarmálanefnd borgar- innar um daginn, þegar allir nefnd- armenn urðu sammála um breytta tilhögun á úthlutun starfslauna listamanna. Ndndin samþykkti einróma að í stað umsókna skyidi leita tilnefninga Igá samtökum lista- manna og hjá borgarbúum sjálfum. Þegar samkomulag þetta barst síð- an borgarráði gerðist það, að Sig- urjón Pétursson Alþýðubandalagi greiddi atkvæði og bókaði gegn til- lögunni. Áhangendur tillögunnar gátu aðeins komiðauga á eina skýr- ingu: Fulltrúi Alþýðubandalagsins í nefndinni er Kristín Á. Ólafsdótt- ir, en hún telst ekki lengur fulltrúi G-listans heldur Nýs vettvangs, og fulltrúi krata í ndndinni er annar fulltrúi sama Iista, Rut L. Magnús- son . . . f ■ rettamenn reyndu stift að kom- ast yfir hverjir stæðu á bak við 100 milljóna króna staðgreiðslutilboðið í Stöð 2 en árangurslaust, þar til Eignarhaldsfélag Verslunar- bankans fékk upplýsingarnar í hendur sl. þriðjudagskvöld. Oft hafa stjórnarmenn bankanna verið gagnrýndir fyrir stífa bankaleynd eri eitthvað hefur brugðið út af að þessu sinni því ekki liðu nema tíu mínútur frá því formaður stjórnar félagsins las upp nöfn tilboðsgjaf- anna þar til fréttamenn Stöðvar 2 voru komnir meðfréttina glóðvolga í hendur... M Fegurðarsamkeppni Is- lands, sem haldin var á Hótel ís- landi í síðustu viku, tefldu mat- reiðslumeistarar djarft og buðu gestum þá nýbreytni í matargerð að framreiða súluunga. Miðaverð var einhvers staðar í kringum 7000 krónur og margir þeirra sem sam- komuna sóttu sáu víst eftir að hafa ekki horft á keppnina af sjónvarps- skjánum heima hjá sér. Súluungarn- ir voru misjafnlega steiktir og þeir sem lentu á hráu ungakjötinu voru lítt hrifnir . .. Er veisla framundan? ERTU KANNSKI MEÐ PARKETGÓLF? Þú veist að skóhælar eru verstu óvinir parketgólfa. Það er því bráðnauðsynlegt að hlífa parketgólfinu og draga úr skóhljóðinu og skemmdunum því ekki ferðu að reka gestina úr skónum. Hugsaðu málið — Með mottum og dreglum getur þú margfaldað endingu parketgólfsins. TEPPABOÐIN er alhliða gólfefnamarkaður Fyrsta flokks gólfefni í heilum rúllum — einnig íslensk Álafoss ullarteppi — okkareigin framleiösla. Frábærir, þykkirog mjúkir ARMSTRONG heimilisgólfdúkar sem ekki þarf að líma í 2, 3 og 4 metra breidd. ítalskar og spánskar gólf- og veggflísar í mörgum stæröum — fyrsti gæðaflokkur. Úrvals BOEN parkett, norsk gæöavara. Stök teppi, mottur, dreglar og renningar. Hlífðarmottur og slabbdreglar. Gúmmímottur og kókosdreglar. Lím og að'rar hjálparvörur fyrir gólfefni. Teppahreinsivélar og hreinsiefni. TEPPABÚÐIN GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950 V

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.