Pressan - 24.05.1990, Síða 9
Fimmtudagur 24. maí 1990
9
ÍBÚAR Á SELTJARNARNESI KVARTA UNDAN ÓNÆÐI:
' _. f -
I Oi > ?s'< * % fm* ■ mmtern
V. 1 'íf. * .• :p3)>X ifX\
/\ /\ / \ / \ / \ / \ / \ / \ / \ /.. \ / \ / IHSl p
• í { »! : : • • « - lllilfli
I þessu húsi, á Sæbraut 2, búa einhverfu unglingarnir. Garðurinn er afgirtur með háu grindverki.
UNDIRSKRIFTALISTI6E6N
EINHVERFUM BÖRNUM
/ gær átti að taka til meðferðar í bæjarstjórn Sel-
tjarnarness beiðni um að meðferðarheimili fyrir
einhverf börn yrði flutt burt. Það eru íbúar úr
hverfinu sem hafa safnað undirskriftum og beðið
um að heimili einhverfu barnanna verði fjarlægt
vegna þess að börnin valdi ónæði í nágrenninu.
„Þetta eru harkaleg viðbrögð, sem ég á erfitt
með að ski!ja,“ segir forstöðukona heimilisins. Um-
ræðunum á fundinum í gær var frestað í von um að
hægt væri að finna aðra lausn á málinu.
EFTIR BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR
ÁSAMT ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR
MYND: EINAR ÓLASON
Meðferöarheimilið á Sæ-
braut 2 á Seltjarnarnesi
tók til starfa í september í
fyrra. Fyrst voru þar aöeins
tveir íbúar en þeim var smám
saman fjölgaö og voru í
febrúar orönir sex. Starfs-
menn við heimiliö eru, talið í
stöðugildum, 13,8 á íbúana
sex, og miðað er við að ein-
hverfu börnin geti haft mann-
inn með sér þegar þörf kref-
ur. Sum barnanna eru ekki
talin þurfa stöðugt eftirlit, en
vitaö er aö einstök atvik, þar
sem gæslumaður hefur ekki
veriö nálægur, hafa valdið
nágrönnunum ónæði. Einnig
viðurkenna forráðamenn
heimilisins að erfitt sé að
koma í veg fyrir eitthvert
ónæði sökum þess hve stutt
er yfir í næstu hús.
Allmargir íbúar i nærliggj-
andi götum á Skerjabraut,
Sólbraut, Sæbraut og Sel-
braut hafa kvartað yfir ná-
býlinu. Meðal annars hefur
Guðrún Sverrisdóttir
hjúkrunarkona sent bréf til
félagsmálaráöherra og til
bæjarstjórnarinnar á Sel-
tjarnarnesi, þar sem hún fer
þess á leit að meöferöarheim-
ilið verði flutt.
PRESSAN hafði samband
við Guðrúnu Sverrisdóttur,
en hún óskaði ekki eftir því
að gera grein fyrir þeirri hlið
málsins sem að henni snýr.
Þeir nágrannar heimilisins
sem PRESSAN hafði sam-
band við og höfðu skrifaö sig
á undirskriftalistann sem var
afhentur bæjarstjórninni
vildu heldur ekki tjá sig um
málið undir nafni.
Skiptar skoðanir
nágranna
Jónína Bergmann, íbúi á
Selbraut 5, segist aldrei hafa
orðið fyrir ónæöi frá ungling-
unum á Sæbraut 2: ,,Ég hitti
þetta unga fólk oft á göngu
hér um hverfið og það er æv-
inlega í fylgd með eftirlits-
manni," segir Jónína, en hún
tók fram að þau hjón hefðu
ekki veriö beöin aö skrifa
nöfn sín á listann, ,,enda hefð-
um við aldrei skrifað á hann",
segir Jónína Bergmann.
Bolli Thoroddsen er íbúi
á Sæbraut 6. Hann segist
ekki hafa sett nafn sitt á list-
ann, en hins vegar viti hann
til þess að íbúar í næstu hús-
um við heimili einhverfra
barna hafi orðið fyrir ónæði
af völdum þeirra. Bolli segist
ekki vilja tjá sig um það hvort
eina leiðin til úrbóta sé að
börnin flytji úr hverfinu. Hins
vegar sagðist hann telja að
samkvæmt lögum hefði átt
að kynna fyrir íbúum hverfis-
ins hvers konar starfsemi ætti
að fara fram í húsinu, þar sem
þarna væri ekki um heimili
að ræða heldur stofnun.
Að húseignir
lækki í verði
Forráðamenn meðferðar-
heimilisins hafa tvívegis hald-
iö fund til þess að kynna starf-
semi sína og kynnast ná-
grönnunum, en engin kynn-
ing fór fram áður en sambýliö
tók til starfa. Forstöðumaður
heimilisins, Sigríður Lóa
Jónsdóttir, segist hafa snúið
sér til bæjaryfirvalda og
kynnt sér sérstaklega hvort
kynna þyrfti starfsemina fyr-
irfram en svo hafi ekki verið.
Þetta snýst um jafnan rétt fatj-
aöra til íbúðarhúsnæðis, að
sögn forstöðumannsins.
Lítil aðsókn var aö fyrri
fundi meðferðarheimilins, en
á fund 8. maí sl. mættu fleiri
og þá var andstaöa nágrann-
anna við heimilið orðin áber-
andi. Þar voru m.a. kynnt
fyrrnefnd bréf Guðrúnar
Sverrisdóttur. Samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR
var meðal annars nefnt á
fundinum að húseignir í ná-
grenninu gætu lækkað í verði
vegna heimilisins. Fulltrúar
foreldra barnanna voru meö-
al þeirra sem sátu þennan
fund.
Gengur vel í
Trönuhólum
,,Ég skil ekki hvers vegna
við höfum fengiö þessi viö-
brögð. Aukin þekking hefði
ef til vill getað hjálpað til og
aukinn vilji til samstarfs. En
við viljum ekki gera lítiö úr
ábyrgð okkar. Börnin þurfa
tíma til þess aö laga sig að
nýju umhverfi og í því sam-
bandi hefur sumt komið okk-
ur á óvart. En þetta eru ein-
stök atvik og ég vil fullyröa
að í þau fáu skipti sem kvart-
að hefur verið við okkur, þá
hafa þau mál samstundis ver-
ið tekin alvarlega til athugun-
ar. Heimilið er ágætlega
mannað en þaö hafa komið í
ljós gallar við húsið, til dæmis
þyrfti að hljóöeinangra þaö
betur," segir Sigríður Lóa
Jónsdóttir, forstöðumaöur
heimilisins, en hún er einnig
forstöðukona annars sámbýl-
is fyrir einhverf börn i Trönu-
hólum í Reykjavík.
Trönuhólaheimilið hefur
verið starfrækt í átta ár og að
sögn Sigríðar Lóu hefur sam-
býlið viö nágrannana þar
gengið vel. Hún segir þessi
tvö heimili sambærileg.
PRESSAN hafði samband við
nágranna Trönuhólaheimilis-
ins, sem sagði að þar hefðu
komiö upp vandamál í byrjun
vegna þess að starfsemin var
ekki kynnt fyrirfram. Vanda-
málin hafi þó verið smávægi-
leg og auöleyst með samstarfi
nágranna og heimilisins.
,,Ég hef ekki oröiö fyrir
svona viðbrögðum í þau
þrettán ár sem ég hef starfað,"
segir Anna Elísabet Ólafs-
Einhverf börn
eða tala alls ekki.
dóttir, deildarstjóri Sæbraut-
arheimilisins. ,,Við erum und-
ir smásjá. Ég skil ekki af
hverju hlutirnir þróast á
þennan hátt. Þetta er ákveð-
ið álag á starfsfólk. Hvert
minnsta frávik er stórt,
stærra en ef um heilbrigöan
einstakling væri að ræöa, og
skilningur á hegðun barn-
anna virðist ekki vera nægur.
Ákveðin atvik hafa verið
rangtúlkuð, einhverf börn
hafa ekki áhuga á að áreita
aðra eða skemma eitthvaö
viljandi."
hafa takmarkað mál
Einhverf börn leika sér ekki eins og
önnur börn, en endurtaka sífellt einhæfar
athafnir.
Einhverf börn eru oft ofvirk og sofa
ekki um nætur.
Einhverf börn skynja ekki hættur og
þurfa því stöðuga umsjón.
Einhverf börn bregðast oft ein-
kennilega við umhverfi sínu. Þau hlæja,
gráta eða hljóða og fá hræðslu- eða reiði-
köst án skiljanlegrar ástæðu.
Einhverf börn þola afar illa breyt-
ingar á umhverfi og daglegu lífi.
ilr bæklini>i lImsjónarfúlai’s cinhrurírd.
Einhverf börn horfa sjaldnast í augu
fólks og þola flest illa snertingu og atlot.
Bak við byrgða
giugga
,,Það hefur verið reynt að
koma til móts viö íbúa í ná-
grenninu. Við gerum eins vel
og við getum. Það stendur
líka til að halda áfram með
frekari úrbætur. Húsið veröur
hljóðeinangrað betur og við
erum búin að kaupa rimla-
gardínur fyrir alla glugga, til
þess að nágrannarnir verði
ekki fyrir sjónáreiti. Ef það
nægir ekki getur komið til
greina að sett verði skyggt
gler í gluggana," segir Sigríö-
ur Löa.
,,Mér þykir verst hve mikil
áhersla hefur veriö lögö á hið
neikvæða i fari þessara ein-
staklinga. Þetta er svo sann-
arlega fólk sem hefur mikla
kosti og margt gott til að
bera," segir Sigríður Lóa enn-
fremur.
Deildarstjórinn og for-
stöðumaðurinn segja að tím-
inn verði aö leiða í Ijós hvað
gerist frekar í málinu. „Við
kvíðum því ekki á meðan við
vitum að við erum að gera
okkar besta."
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra hefur
fundað með málsaðilum en
málið er á viðkvæmu stigi og
óvíst hvert framhaldiö verð-
ur. „Það hefur ekkert form-
legt erindi borist til mín frá
bæjarstjórninni vegna þessa
máls," segir Jóhanna. „Hins-
vegar barst mér bréf frá ein-
um íbúa úr nágrenni meö-
ferðarheimilisins. Ég hef
haldið fund með aðilum
málsins og það er veriö að
reyna aö finna lausn á þessu.
Þetta skýrist vonandi næstu
daga, en ég vil ekki tjá mig
frekar á þessu stigi málsins."
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hefur félags-
málaráðherra mælt með að
reynt verði að koma á sáttum
meö því að geröar verði
ákveönar ráðstafanir í sam-
ráði við málsaöila.
Ekki náðist í Sigurgeir Sig-
urðsson bæjarstjóra út af máli
þessu.