Pressan - 24.05.1990, Side 15
Fimmtudagur 24. maí 1990
15
sem
ritaOi
sagður vera eins og dýrið; þrjós!
og ruddalegur.
En á nítjándu öld var andlitslestur orðinn
yfirvegaðri. Svissneskur prestur og skáld,
Johann Kaspar Lavater, eyddi drjúgum
tíma í að kanna andlit og gaf út um þau efni
SkilaIffid þðglu ríiyndai
komu með ájidJitunum
Shakespeare var emqig einn þeirri
leituðu eftir tengingu persónuleika og út-
lits. Þar má benda á að hárkollur og mikil
andlitsförðun hafa jafnan verið notuð í
leikritum til að skapa ákveðnar persónu-
imyndir. Stjörnur þöglu myndanna, eins og
Charlié Chaplin, ýktu viljandi þetta sam-
band. Þannig gátu áhorfendur lesið glögg-
lega þau bpð sem bárust úr andliti hans. Og
hvort sem það er með vilja eða ekki þá
taka leikir sem lærðir mark á fyrstu tilfinn-
ingunni sem þeir fá við að horfa í andlit ein-
Við skulum fyrst líta á andlitslögun.
Erfðir skípta að sjálfsögðu miklu máli varð-
andi útlit okkar. Húðgerð hárlitur, hæð og
önnur séreinkenni getum við erft frá for-
eldrum okkar, en við getum líka alveg eins
líkst langalangömmu og jafnvel fjarskyld-
um ættingja sem allir hafa löngu gleymt.
Þótt erfitt sé að alhæfa um hvernig per-
sónuleiki býr á bak við vissa andlitsgerð
eru nokkrir punktar sem hægt er að byggja
á. Hins vegar bendum við á að til að læra
aö lesa úr andliti þarf í upphafi að skoða
það í heild sinni, síðan hvert atriði fyrir sig,
augabrúnir, augu, nef, varir o.s.frv.
Við skulum byrja á andlitsfalli:
Andlit hafa mismunandi áhrif á
okkur. Sum þeirra eiskum við, önn-
ur óttumst við. Sum finnst okkur
fráhrindandi, önnur gefandi, en öll
andlit hafa einhver áhrif á okkur.
ÞÝTT OG ENDURSAGT
AF ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR
Aöferöin að lesa úr andliti og líkama er
ævaforn. I Kína, jíar sem hún gengur undir
nafninu Siang Mien, er hún einnig notuð
til að kynnast fortíð fólks og spá í framtíð
þess. I Vesturlöndum er hún stundum
tengd „svipfræöi" sem sögð er byggjast á
því að með því að kanna höfuðlag persónu
sé hægt að fá innsýn í huga hennar.
Andlit sem minna á
dýraandlit
Forn-Grikkir trúðu á áreiðanleika and-
litslestrar með því að líkja mannsandlitun-
um við ýmsar dýrategundir. Þannig sam-
anburður var sagður gefa ótvirætt til
kynna persónuleika viðkomandi. Þannig
átti sá sem haföi andlitsfall sem svipaði til
hests að vera einlægur, vingjarnlegur og
örlátur. Sá sem aftur á móti líktist asna var
KRINGLÓTT ANDLIT
Þannig andlit eru með sterka
beinabyggingu án þess þó að
manneskjan sé feit. Manneskja
með slíkt andlit hefur afarmikla
andlega getu, veitir góða mótstöðu
gegn sjúkdómum og er sjálfsör-
ugg. Þó getur hún að vissu marki
verið löt. Fólk með svona andlits-
fall nær venjulega háum aldri.
„RÉTTHYRNT" ANDLIT:
„Rétthyrnt“ andlit má kalia það
sem virðist vera lengra en það er
breitt. Ennið er stórt og kinnbein
sjást varla. Þetta andlit sýnir að
manneskjan hefur ríka sköpunar-
gleði, er vel gefin og býr yfir mik-
illi sjálfsstjórn. Persóna með svona
andlit getur átt það til að vera
ótrygg.
DEMANTSLAGAÐ ANDLIT
Lítið enni, framstæð kinnbein og
hvöss haka eru einkenni þessa
andlitslags. Manneskja með þann-
ig andlitslögun er venjulega hlý og
býr yfir miklu viljaþreki og gengur
vel í starfi. Stundum er þetta fólk
eigingjarnt og samviskulaust.
BREITT ENNI,
FERKÖNTUÐ HAKA
Breitt enni, þykkar varir og fer-
köntuð haka gefa til kynna að
manneskjan sé í góðu jafnvægi,
hún er nokkuð slungin og hefur
ríka sköpunargáfu. Þeir sem hafa
svona andlitsfall mega nokkuð ör-
ugglega reikna með löngu, árang-
ursríku lífi og innri ró.
FERKANTAÐ ANDLIT
Stórt enni og kjálkabein og sterk-
leg beinabygging gefa til kynna að
þarna sé stöðugur persónuleiki
sem er heiðarlegur og í góðu jafn-
vægi. Þetta er andlit manneskju
sem er vön að taka ákvarðanir og
margir stjórnmálamenn og
frammámenn í viðskiptalífi hafa
þetta andlitsfall. Þetta fólk giftist
oft oftar en einu sinni og er tilfinn-
ingaríkir elskendur.
BREIÐUR KJÁLKI
OG MJÓn ENNI
í svona andliti er enni mjórra en
kjálki, munnur og nef venjulega
smátt. Hjá karlmönnum táknar
svona andlitsfall líkamlegan þrótt
og mikinn samkeppnisanda en
konur með svona lagað andlit hafa
tilhneigingu til að stjórna öðrum
og hafa hæfileika til að ná langt í
starfi.
ÞRÍHYRNT ANDLIT
Blandan af breiðu enni, framstæð-
um kinnbeinum, oddhvassri höku
og þunnum vörum er merki um
gott skapferli, gáfur og metorða-
girnd. Þessi manneskja er senni-
lega svolítill nautnaseggur. Með
andlitsfall af þessu tagi voru marg-
ar af mest aðiaðandi konum sög-
unnar, sem og margar drottningar.
FRAMSTÆÐ KINNBEIN
Þeir sem hafa framstætt enni,
kinnbein og höku eru sterkir per-
sónuleikar, þeir eru fastheldnir,
orkumiklir og eiga auðvelt með áð
rísa upp eftir fall. En þessar per-
sónur eiga iíka til eigingirni og
hættir oft til að vera lítt gjafmildar.