Pressan - 04.01.1991, Blaðsíða 13

Pressan - 04.01.1991, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR PRESSAN 4. JANÚAR 1991 13 HRINGORMANEFND LÆTUR SAUMA A SIG SELSKINNSPELSA Fyrir kynfæri selsins, það er legið og eggjastokkana úr urtunni og eistun úr brimlinum, greiðir hringormanefnd 500 krónur. Hringormanefnd, sem hef- ur það meginmarkmið að út- rýma sel við íslandsstrendur, hefur fengið Eggert Jóhanns- son feldskera til að sauma og hanna á sig selskinnspelsa. Nefndarmenn œtla sér að ganga í pelsunum við hin ýmsu tœkifœri og leita þar meö markaða fyrir selskinn. Nokkrir nefndarmanna hafa þegar fengið pelsa til afnota. Erlingur Hauksson, sjávar- líffræðingur, starfsmaður hringormanefndar, segir sels- pelsana vera eign nefndar- innar þótt þeir séu sniðnir eft- ir vaxtarlagi einstakra nefnd- armanna. Þannig verði hæg- lega hægt að breyta þeim vilji einhverjir kaupa. Nefndarmennirnir heppnu eru: Björn Dagbjartsson, fyrr- um forstjóri Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins og núver- andi starfsmaður Þróunar- samvinnustofnunar, formað- ur nefndarinnar, Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ, Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri SÍF, Magnús G. Friðgeirsson forstjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum, Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater, Árni Benedikts- son hjá SIS og Hjalti Einars- son hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Hringormanefnd greiðir skyttum fyrir að skjóta útsel. Fyrir kílóið eru greiddar 30 krónur. Sem dæmi má taka að nefndin mundi greiða 1350 krónur fyrir 45 kílóa kóp. Fyrir 350 kílóa útsels- brimil greiðir nefndin 10.500 krónur. Ofan á þetta verð leggst sérstök þóknun fyrir sýni, það er ef skytturnar senda þau sérstaklega. Fyrir vígtennur eru greiddar 1000 krónur, 500 krónur fyrir mag- ann og 500 krónur fyrir kyn- færin, það er legið og eggja- stokkana úr urtunni og eistun úr brimlinum. Vígtennurnar eru sagaðar í sundur til að greina aldurinn, orma er leit- að í maganum og kynfærin eru notuð til að „finna við- komuna". Ofan á kílóverðið koma því samtals 2000 krón- ur. Þess má geta að fyrir skömmu seldi Eggert feld- skeri selspels til Finnlands fyrir um hundrað þúsund krónur en hingað til hafa seÞ skrokkarnir, oft með húð og hári, farið í refáfóður. „Þetta er kjörið efni í loð- feldi. Selurinn er eitt af grimmustu dýrum hafsins og það er með ólíkindum hvað þessum svokölluðu dýravin- um hefur tekist vel í baráttu sinni," sagði Eggert feldskeri í samtali við PRESSUNA. Hann sagðist bjartsýnn á að eftirspurn ætti eftir að aukast á nýjan leik en dýravinir hafa með starfi sínu nánast þurrk- að út markaðinn. Siálfstœð útfararfvrirtœki vildu eigin kirkiuqaröa KIRKJUGARBAR REYK JAVIKUR NIBUR- GREIBA JARBARFARIR MEfl SKATTFE Sjálfstœðir útfararþjón- ustuaðilar og Verslunarráð íslands halda því fram að Kirkjugarðar Reykjavíkur noti tekjur af kirkjugarðs- gjaldi til að greiða að stórum hluta niður kostnaö vegna út- fararþjónustu. Tvö sjálfstœð útfararfyrirtœki sóttu til borg- arinnar um lóðir undir eigin kirkjugarða í því skyni að fá hluta kirkjugarðsgjaldanna en umsóknunum var hafnað. Verslunarráð íslands sendi stjórn Kirkjugarða Reykjavík- ur bréf nýverið, þar sem bent var á þessa niðurgreiðslu á út- fararkostnaði. „Einungis þeir sem kaupa útfararþjónustu hjá Kirkjugörðum Reykjavík- urprófastsdæmis fá slíka meðgjöf með þjónustunni í Reykjavík meðan þeir sem kaupa þjónustu af sjálfstæð- um útfararþjónustum þurfa að greiða fullt verð. Verslun- arráð íslands telur heimildir skorta til þess að greiða niður útfararþjónustu með þessum hætti " segir í bréfinu. „Við teljum að þarna sé verið að verja skattpeningum á ólöglegan hátt. Verslunar- ráðið telur að mismunun sé ósanngjörn gagnvart þeim sem þurfa að kaupa þessa þjónustu og fá hana ekki nið- urgreidda af skattfé sínu hjá einum aðila meðan þeir fá slíkt hjá öðrum. Það eiga allir að sitja við sama borð,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri ráðsins, í sam- tali við PRESSUNA. í gildandi lögum um kirkju- garða er skýrt tekið fram áð aðrir aðilar en Þjóðkirkjan eða utanþjóðkirkjusöfnuðir, sem hafa löggiltan forstöðu- mann, geti ekki tekið upp kirkjugarð og á grundvelli þess var umsóknunum hafn- að. Hins vegar tekur Jón G. Tómasson borgarritari sér- staklega fram, í bréfi til borg- arráðs, að kirkjugarðsgjöld- um sé ætlað að mæta kostn- aði við kirkjugarða, þ.e. vegna framræslu, uppfylling- ar, hleðsluefnis, ofaníburðar og vegagerðar o.s.frv. „Heim- ild til annarrar ráðstöfunar er ekki í lögum." INGIBJÖRN SPYR IIM SJÁLFSVÍG SEXHUWUR SVKNABIR Sex fangar á Litla-Hrauni hafa verið sýknaðir af ákœr- um um að hafa sammœlst um að strjúka úr fangelsi síð- astliðiö vor. Fangarnir struku allir sam- an í skjóli nætur. Á flóttanum stálu þeir bíl og óku honum til Reykjavíkur. Þeir voru ákærðir fyrir að hafa sammælst um strok úr fangelsinu og fyrir að hafa stolið bílnum. Þeir voru sýkn- aðir af því en dæmdir fyrir bílstuldinn. VÖLUNDARVERK ER í VANDA Ingi Björn Albertsson þing- maður hefur lagt fram fyrir- spurn til dómsmálaráðherra um sjálfsvíg á Islandi síðast- liðin tíu ár og biður um sund- urliðun á fjölda sjálfsvíga eft- ir aldri, kynjum og árstíðum. Þá vill Ingi Björn vita hvort rannsókn fari fram á ástœð- um sjálfsvíga og áform séu uppi um fyrirbyggjandi að- gerðir. „Tilefni þessarar fyrir- spurnar eru áhyggjur vegna gruns um að sjálfsvígum ungs fólks hafi fjölgað verulega og að aldurinn fari lækkandi. Eg hef áhuga á því að nefnd eða starfshópur geri tillögur um fyrirbyggjandi aðgerðir. Ég ímynda mér að efnahags- ástandið geti í þessu sam- bandi haft töluverð áhrif og það þarf að bregðast við slíku með aðstoð, fræðslu og öðru," sagði Ingi Björn í sam- tali við PRESSUNA. PRESSAN fjallaði um sjálfs- víg á íslandi 18. október síð- astliðinn. Þar kom fram að tíðni sjálfsvíga meðal ungra manna væri hvergi eins há og hér á landi. Völundarverk, sem var stofnaö á rústum Steintaks hf. til að taka yfir byggingar- framkvœmdir á Völundar- lóðinni, hefur ekki fengið þá bankafyrirgreiöslu sem til þarftil að halda framkvœmd- um áfram. Þeir sem keypt hafa íbúðir í húsunum á lóðinni eru nú al- varlega að hugsa um að stofna nýtt hlutafélag og taka yfir framkvæmdirnar. Ef af stofnun félagsins verður er sennilegt að veðsetja þurfi hverja íbúð fyrir um 200 þús- undum króna. Eins er ætlun- in að ráða Völundarverk til að halda framkvæmdunum gangandi. íbúðareigendur sjá með þessu möguleika á að sleppa frá því að tapa um einni millj- ón á hverja íbúð. Ef tekst að halda framkvæmdum áfram mun væntanlegur söluhagn- aður renna til að fullgera hálf- kláraðar sameignir. Innan fárra daga mun ráð- ast hvert framhald þessa máls verður. lUNDIR ■OXINNi I Ólafur | Rat/nar I Grímsson B fjármála- H ráðherra 9 8 — Eftir hlutabréfa- kaupaveislu fyrir ára- mót vilt þú nú draga í land og þrengja skatt- afsláttarheimildina. Hvers vegna? „Þetta kerfi sem nú er við lýði er niður- staða málamiðlunar milli annars vegarFrið- riks Sophussonar og Jóns Sigurðssonar og hins vegar fjármála- ráðuneytisins. Þeir vildu fara lengra í af- slætti og hlunnindum en við vildum fara var- legar í sakirnar. Fteynslan nú hefur sýnt að okkar leið er raunhæfari og því rétt að þrengja þessar heimildir." — Hvað er svona slæmt við þessi kaup? „Ég óttast að fólk muni standa frammi fyrirþví að þessi hluta- 3 bréf falli í verði. Fólkið var fyrst og fremst að kaupa hlutabréf skatt- afsláttarins vegna en framboðið á hlutabréf- um var ekki í samræmi við eftirspurn." — Sérðu svona mikið eftir skattpen- ingunum? „I sjálfu sér ekki. En fólk hefur vart fjárfest í hlutabréfum um ára- tugaskeið. Þegar það loksins gerir það má markmiðið ekki vera að kaupa bréfin vegna afsláttar en selja þau eftir skamman tíma aftur. Ég vil sjá raun- veruleg hlutafjárkaup en ekki spilverk." — Mátti ekki sjá slíkt fyrir? „Ég var einmitt að benda á að reynslan nú hefði sýnt að sú stefna okkar að fara varlegar i sakirnar hefði reynst rétt. — Verða ekki að vera ákveðnar leik- reglur í gangi? Er 2 1 0 ekki verið að mis- muna fólki með því að þrengja þessar heimildir skyndilega? „Þessu verður ekki breytt gagnvart því fólki sem nú hefur keypt hlutabréf og breytingar á þessu ári munu fyrst taka gildi vegna skattframtals 1992. í slíkum breyt- ingum fælist skilyrði um að fólk verði að eiga hlutabréfin tiltek- inn árafjölda." Fólk flykktist i fésýslufyrirtæk- in fyrir áramót til að kaupa hlutabréf — og skattafslátt. ól- afi Ragnari Grimssyni varð nóg um, tapar enda talsverðum skatttekjum og vill þrengja heimildirnar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.