Pressan


Pressan - 04.01.1991, Qupperneq 14

Pressan - 04.01.1991, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR PRESSAN 4. JANÚAR 1991 PRESSAN Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson Kristján Þorvaldsson Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson Hrafn Jðkulsson Siguröur Már Jónsson Sigurjón Magnús Egilsson Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Ljósmyndari: Sigurþór Hallbjörnsson Útlitsteiknari: Jón Óskar Hafsteinsson Prólarkalesari: Helgi Grímsson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson Setning og umbrot: Leturval Prentun: Oddi hf. Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, simi: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Áskriftargjald 550 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressán og Alþýðublaöiö: 1100 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 170 kr. eintakiö. Hörmungarsaga ríkissaksóknara í PRESSUNNI í dag er fjallað um embætti ríkissaksóknara. Þar kemur fram að þeir sem stýra því embætti hafa gert sig seka um fjöldamörg mistök á undanförnum árum. Sum þessara mistaka hafa leitt til þess að sakamenn hafa fengið styttri refsingu en þeir hefðu annars fengið. Það er í sjálfu sér kannski ekki mikið tiltökumál. Við íslendingar erum vanir sífeild- um breytingum á leikreglum þjóðfélagsins. ísiand er eins konar happdrættisland. Ríkissaksóknari hefur veitt viðkomandi saka- mönnum slíka vinninga með mistökum sínum. Það er hins vegar alvarlegra þegar ríkissaksóknaraembættið ákærir menn að tilefnislausu. Stundum liða nokkur ár áður en hið sanna kemur í ljós. Á meðan verða mennirnir og aðstandendur þeirra að sætta sig við ruglið í ríkissaksóknara eins og hvert ann- að hundsbit. Mörg stærstu sakamál seinni ára hafa ýmist klúðrast í höndum rannsóknaraðila og ríkissaksóknara eða reynst tilhæfulaus della. Geirfinnsmálið, okurmálið og Hafskips- og Útvegsbankamálið eru stærstu dæmin. í þessum þremur málum var hátt á annað hundrað manns ranglega ákært og aðrir hnepptir í gæsluvarð- hald að tilefnislausu. Allir þurftu að líða fyrir mistök ákæruvalds- ins. Ferill embættis ríkissaksóknara hlýtur að benda til þess að starfsmenn þess og stjórnendur finni lítið fyrir þeirri ábyrgð sem hvílir á þeim. Sú staðreynd að þeir geta skaðað saklausa virðist ekki halda aftur af þeim. Sjálfsagt má afsaka þessa menn fyrir því að íslendingar virðast hafa afskaplega litla tilfinningu fyrir borgaralegum réttindum. Kannski er það sökum þess að þeir þurftu aldrei að berjast að ráði til að fá þau. Þau fylgdu einfaldlega með þegar íslendingar öðluð- ust sjálfstæði. En þótt þjóðin hafi ekki ríka tilfinningu fyrir borgaralegum rétt- indum eiga þeir sem fara með ákæruvaldið ekki að slá af kröfum sínum. Þeir eiga að standa og falla með verkum sínum. Það er umhugsunarefni að hörmungarsögur nokkurra um- fangsmestu sakamála síðari ári skuli ekki hafa leitt til afsagnar neins af starfsmönnum ákæruvaldsins að Jónatan Þórmundssyni slepptum. Þegar hann tók þá ákvörðun urðu meira að segja marg- ir til þess að gagnrýna hann og sögðu hann hætta í miðjum leik. Hann hefur ef til vill ekki litið á hlutverk sitt sem einhvern leik. Það hefði verið nær fyrir Hallvarð Einvarðsson, sem stuttu áður hafði einnig birt saklausum mönnum ákærur í sama máli, að segja líka af sér eftir niðurstöður Sakadóms. Tímasprengjan Það er ekki að furða að sumir ráðherrar vilji rjúfa þing og efna til kosninga hið bráðasta. Þeir sitja á tifandi tímasprengju því að þeir not- uðu ekki það svigrúm sem hinir hóflegu kjarasamningar („þjóðarsáttin") í ársbyrjun 1990 veittu þeim til þess að kippa ríkisfjármálum og pen- ingamálum í lag. Peninga- magn í umferð hefur stórauk- ist árið 1990 en það er ekkert annað en ávísun á verðbólgu einu eða tveimur árum síðar. Peningar eru eins og önnur vara: ef framleitt er of mikið af þeim þá falla þeir í verði. Og Ólafi Grímssyni fjármála- ráðherra hefur þrátt fyrir óskapleg mannalæti á opin- berum vettvangi mistekist að stjórna ríkisfjármálum: þar hefur allt farið úr böndum. Næsta haust hlýtur að verða sprenging á vinnu- markaðnum vegna undanfar- andi peningaþenslu. Það er ekki hið eina sem á áreiðan- lega eftir að gerast. Þá verður enn ljósara en nú hversu mörg hundrúð milljónum og jafnvel milljörðum króna hef- ur verið sóað í að halda óhag- kvæmum fyrirtækjum á floti með Stefánssjóðum þeim sem ríkisstjórnin stofnaði strax fyrsta ár sitt. í þriðja lagi bíður auðvitað stjórnin dóms í málinu sem höfðað hefur verið vegna bráðabirgða- laganna gegn Bandalagi há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna, en verið getur að setning þeirra verði úrskurð- uð stjórnarskrárbrot þar sem formlegum skilyrðum fyrir bráðabirgðalögum hafi ekki verið fullnægt og um sé að ræða eignaupptöku hjá af- mörkuðum hópi manna. Þetta er ríkisstjórn skamm- tímalausna og sjónhverfinga. Þeir Fattur og Brattur, Jón Baldvin og Ólafur Grímsson, láta sér hvergi bregða hvað sem á dynur. Jón Baldvin kaupir inn áfengi á kostnað- arverði fyrir ritstjóra Alþýðu- blaðsins, notar sendiherra- embætti sem skiptimynt í pólitískum hrossakaupum og raðar frændum sínum í feit- ustu forstjóraembætti lands- ins (hjá íslenskum aðaiverk- tökum). Ólafur Grímsson reynir að bjarga gjaldþrota fyrirtæki (Svörtu á hvítu) eins stuðningsmanns síns með því að leyfa veðtöku í verðlaus- um hugbúnaði og sigar lög- reglusveitum á fyrirtæki landsins. Þeir félagar Fattur og Brattur eru ekki einir um hneykslin, smá og stór. Stein- grímur Hermannsson setti mann frá Stefáni Valgeirssyni á launaskrá forsætisráðu- neytisins, á meðan kaupa þurfti atkvæði Stefáns á þingi. Hann hafði opinber- lega eftir rakalausar kjafta- sögur um erlent fjármagn sem stæði að baki fyrirtæki dugnaðarkonu úr Hafnar- firði, Guðrúnar Lárusdóttur útgerðarmanns. Annar hand- hafi forsetavalds, Guðrún Helgadóttir, leyfði sér að taka lán úr sjóðum Alþingis þvert á allar reglur, um leið og hún og aðrir forystumenn stjórn- arflokkanna skoruðu á lands- menn að herða sultarólina. Sterkur grunur leikur lika á því að hún hafi brugðist trún- aði og veitt fréttamanni Ríkis- útvarpsins upplýsingar sem leiddu til brottrekstrar Magn- úsar Thoroddsens úr emb- ætti hæstaréttardómara. Verður ekki að aftengja hina tifandi tímasprengju? Er ekki nóg komið af hneyksl- um? Höfundur er stjórnmálafræð- ingur og lektor við Háskóla ís- lands. VIÐ ÆTLUM AÐ KAUPA SKATTAFRÁDRÁTT teikning: ómar stefánsson Heimsstyrjöldin kvödd?? ■ MÖRDUR ÁRNASON Stundum hittir maður fólk sem hefur ekki átt mikið sam- an við mann að sælda, fólk úr ólíku umhverfi, með ólíkan feril og ólíka skapgerð. Við slík tækifæri hættir samræð- um til að verða formlegar og almennar, jafnvel stirðbusa- legar og óþægilegar — þang- að til það finnst snertiflötur, sameiginlegur kunningi, kennari úr skóla, svipuð ferðareynsla, eða álíka um- ræðuefni umræðuefnisins vegna. Stundum dettum við í slík- um samræðum báðum að óvörum niðrá sameiginlegt áhugamál sem hvorugur grunaði hinn um. Og förum að skeggræða heimsstyrjöld- ina síðari. Ég verð alltaf jafn hissa, hélt næstum að þetta væri einkamá! síðan ég marg- las mig í gegnum heimsstyrj- aldarsögu Olafs Hanssonar í kringum tíu ára aldurinn. Svo áttar maður sig. Þær kynslóðirsem nú eru komnar á svokallaðan miðjan aldur eiga sér eiginlega sögulegt upphaf í þessu stríði, —■ við sem erum fædd náiægt mið- biki aldarinnar hljótum að líta á heimsstyrjöldina síðari sem einskonar genesis, sköp- un eða fæðingarhríðir þeirra tíma sem teljast okkar tímar, eða vorir tímar þegar menn vilja lyfta andanum og sjálf- um sér. Heimsstyrjöldin síðari dregur auðvitað að sér um- fram önnur söguskeið vegna dramatískra átaka á vígvöll- unum, vegna þess að í flest- um aðalhlutverkum voru sér- kennileair leiðtocar oc eftir- minnilegir: Mussolini, Hitler, Stalin, Churchill, Roosevelt' (hver man áreynslulaust eftir leiðtogum úr heimsstyrjöld- inni fyrri?). Mannfall var ægi- legt í þessari styrjöld, eyði- legging líka. Og hún vekur líka athygli um alla framtíð vegna þess að þar voru drýgðir stórkostlegri glæpir en dæmi eru um af þjóðum sem héldu að þær væru sið- aðar, — eða kannski er rétt- ara að orða það svo að áfall Evrópumanna hafi fyrst og fremst verið sú uppgötvun að þeir skyldu geta reynst slíkir glæpamenn hverjir við aðra. Þótt allt sé þetta bæði ógn- arlegt og litskrúðugt sýnist manni að þessi höfðun heimsstyrjaldarinnar síðari sé enn sérstakari fyrir okkur sem komum í heiminn með- an hún stóð eða áratuginn eftir að henni lauk. Hún hefur umfram annað gildi sem eins- konar goðsaga, mýta, ein- hverskonar nútímaleg ragna- rök, að vísu með amerískum happi-end. Mönnum kann að hafa fundist tíðindalítill síðari hluti ársins sem við vorum að kveðja, meðal annars vegna þess að úrslitaleiknum yfir stórborgum Bretlands lauk með nokkurskonar jafntefli. En okkar ár verður sögulegt. Eftir mikil átök við Miðjarð- arhaf og í Austurlöndum nær framan af ári tekur Hitler af skarið um framtíðarstefnuna í átökunum. í býtið 21. júní ræðst þýski herinn inní Sovét- ríkin og sækir hratt fram allt til ársloka. Umsátrið grimma um Leníngrad hefst í ágúst, og Rauði herinn virðist jafn ráðþrota og sá franski gagn- vart hernaðaryfirburðum Þjóðverja. í árslok verður hinsvegar ljóst að Moskva fellur ekki. Og rétt áður verða önnur mikil tíðindi. Tójó hershöfðingi í Japan ákveður að stefna flugflota sínum til árásar þar sem er mikil hafn- arborg á Kyrrahafseyjum: Perluhöfn á Hawaii. Banda- ríkjamenn fyllast hneykslun og reiði, og Roosevelt fær kærkomið casus belli, bæði á Kyrrahafi og í Evrópu, Kan- arnir af stað. En eru áður komnir hingað að taka við af Bretunum, — og reyndar ekki farnir enn. Þetta gerist semsé í árslok á þessu ári, væntanlega með miklum skrautsýningum og flugeldaskotum bæði vestan- hafs og austan, — og sam- tímaafleiðingum. í Banda- ríkjunum gætu minningar- athafnir aukið Japansandúð sem nú er aftur orðin póli- tískt og efnahagslegt mál þar vestra, — í Sovét verður minningin um upphaf Föður- landsstyrjaldarinnar miklu væntanlega velþegið hráefni fyrir áróðursmeistara Gorb- atsjovs. Ef Föðurlandið verð- ur þá til enn í sæmilega heilu lagi. Það vill til að þessi fimmtíu ára minningarár heimsstyrj- aldarinnar síðari marka jafn- framt lok styrjaldarinnar. Þetta gerist reyndar bæði í eiginlegum skilningi og óeig- inlegum. Annarsvegar var í fyrra gerður Moskvusamn- ingurinn sem batt enda á sameiginlega herstjórn Bandamanna í Þýskalandi. Hinsvegar finnst okkur sem höfum alla okkar ævi lifað „eftirstríðsárin" að núna loks- ins hafi tekið við önnur hreyfiöfl. Kommúnisminn er dauður. Kaida stríðið slæm minning. Alveldi Bandaríkja Norður- Ameríku í okkar heimshluta líka horfið. Meira að segja ís- lensk pólitík er gjörbreytt, jafnvel þótt við höfum ekki ennþá haft vit á að viður- kenna það með því að breyta formlegri umgjörð flokka- kerfis og stjórnskipunar. Og þá er að vona að sam- tímanum gefist andrúm áður en næsta stríð dynur yfir. Höfundur er blaðamaður

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.