Pressan - 04.01.1991, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR PRESSAN 4. JANÚAR 1991
23
SfÖD 2
... fær Jón Bjartmarz,
yfirmaður víkingasveit-
ar lögreglunnar, fyrir
besta áramótaskaupið.
Skot í myrkri (A Shot in the
Dark) föstudaginn 4. janúar
kl.21.30. Peter Sellers upp á sitt
besta í hlutverki hins sein-
heppna Clouseau lögreglufor-
ingja sem ævinlega dettur niður
á lausnir flókinna glæpamála
fyrir tóman misskilning. Besta
Clouseau-myndin.
Aftökusveitin (Firing Squad)
föstudaginn 4. janúar kl.23.10.
Ein af þessum „stranglega-bönn-
uð-börnum‘‘ dellumyndum sem
því miður taka sjálfar sig alvar-
lega.
SJÓNVARPID
Rainbow Warrior-samsærið
föstudaginn 4. janúar kl.22.25.
Nýsjálensk sjónvarpsmynd um
sprengju frönsku leyniþjónust-
unnar sem sökkti skipi Green-
peace. Það er ekkert grín að vera
„grínpísari”.
Mannshvarf (Anmald Försv-
unnen) laugardaginn 5. janúar
kl.23.15. Hér er sænsk hasar-
mynd fyrir þá sem vilja tilbreyt-
ingu frá bandarískum hasar-
myndum. Uppskriftin er að vísu
sama: Löggan Hassel fer eigin
leiðir í starfi og einkalífi, drekkur
eins og svín og leysir málin.
urreisnarinnar. Ekkert til sparað
að framkalla andrúmsloft himn-
eskrar gleði og geggjunar.
BIOIN
Ryð Regnboganum kl. 5, 7, 9 og
11. Þetta er spurning um þjóð-
rækni — auðvitað fara allir á ís-
lenskar myndir, jafnvel þótt þeim
hundleiðist. Þar fyrir utan er
þess virði að forvitnast um það
hvort þeir Sigurjón og Lárus eru
bara frægir í útlandinu.
Vetrarfólkid Winter People
Stjörnubíói kl. 5, 7, 9 og 11. Halla
og heiðarbýlið upp á ensku. Stór-
brotið, ekki satt? Er þetta ekki
bara mynd fyrir Alpaklúbbinn
og flugbjörgunarsveitirnar?
Árið hófst eins og það
endaði, með ávarpi
Markúsar Arnar Antons-
sonar, útvarpsstjóra
Ríkisútvarpsins, og hon-
um sjálfum á skjánum.
^■■■■^^^■■■^■^■■■^■■■■1 ELLERT SCHRAM
Trípólíbíói árið 1945 en Jónas og
Halldór eru auðvitað óháðir tím-
ans hvössu tönn. Ljóðalestur, list-
dans og ljúfir tónar.
TÓNLISTIN
Tvöfalda beatið á Tveimur vin-
um við Laugaveg föstudag og
laugardag. Hljómsveit sem skip-
uð er alkunnum gleðigjöfum:
Stefáni Hilmarssyni, Jóni Ólafs-
syni, Stefáni Hjörleifssyni, Eiði
Arnasyni og Ólafi Hólm.
en allir lofa. Einnig hefur hún
fengið verðlaun í útlandinu, sem
fer vel í snobbaða íslendinga.
Prakkarinn Problem Child
Laugarásbíói kl. 5, 7, 9 og 11.
Úr myndabók Jónasar Hall-
grímssonar í leikgerð Halldórs
Laxness á litla sviði Þjóðleik-
hússins, Lindargötu 7, föstudag
og sunnudag. Fyrst sett á svið í
Sex-menn riða á vaðið á Gauki á
Stöng föstudag og laugardag.
Hljómsveitin er raunar skipuð
fjórum piltum en ekki sex eins og
nafnið gæti gefið til kynna. Þeir
LJÓSMYND: SIGURÞÓR HALLBJÖRNSSON
Skrautsýning í Flórens (Una
Stravaganza dei Medici o.s.frv.)
sunnudaginn 6. janúar kl.16.00.
Glæsiframreiðsla á 400 ára gam-
alli skrautsýningu frá Ítalíu end-
Trylltást Wiid at Heart Háskóla-
bíói kl. 5.10, 9 og 11.15. Þetta er
önnur spurning um þjóðrækni.
Þar fyrir utan er þetta ein af
þeim myndum sem enginn skilur
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT: 1 þoka 6 bragðs 11 tólg 12 ótraust 13 rotta 15 bjargarlaus
17 þjálfa 18 drabb 20 þögull 21 umrót 23 kvabb 24 lögun 25 eðlið
27 einblíni 28 ruglukollur 29 háð 32 góðs 36 illgresi 37 brún 39 hár
40 ævi 41 fim 43 lög 44 klaufsk 46 kvarnaði 48 hleyp 49 kámað 50
borðandi 51 bleytan.
LÓÐRÉTT: 1 fasmikla 2 dafna 3 hlýju 4 löðurs 5 duglegs 6 grasrót
7 mæt 8 tré 9 greinast 10 rifu 14 mjög 16 ásakar 19 ríkidæmi 22
skrína 24 gráðu 26 gagn 27 forsögn 29 kvenmannsnafn 30 klifur 31
ágengur 33 hélt 34 loddara 35 eftirtölusamur 37 stakri 38 menn 41
uppspretta 42 hrogn 45 erfðavísir 47 draup.
Ekki fyrir barnafólk. Það ætti að
vera leyfilegt að henda sumum
börnum.
Skjaldbökurnar Teenage Mut-
ant Ninja Turtles Háskólabíói kl.
5, 7, 9 og 11. Góðu tíðindin eru
þau að þú færð 10% afslátt á pits-
um ef þú sérð þessa mynd.
MYNDLISTIN
Listasafn Islands. Verk úr eigu
safnsins prýða alla sali Lista-
safnsins um þessar mundir. Kjör-
ið tækifæri til að kynnast göml-
um og nýjum meisturum í glæsi-
legu húsnæði. Og listaverkin á
kaffistofunni eru raunar ekkert
siðri.
LEIKHÚSIN
Á köldum klaka eftir Ólaf Hauk
Símonarson og Gunnar Þórðar-
son í Borgarleikhúsi föstudag og
sunnudag. Islenskur ærsla- og
söngleikur þar sem gamalt vín er
sett á nýja belgi. Tæknilega
margbrotin sýning en ekki eftir-
minnileg.
Ættarmótið eftir Böðvar Guð-
mundsson hjá Leikfélagi Akur-
eyrar föstudag og laugardag. LA
er einna duglegast leikfélaga við
að setja ný íslensk leikrit á svið:
Ættarmótið er þjóðlegt og dálít-
ið lævíslegt verk sem kemur á
óvart. Norðanmönnum til sóma.
Rígólettó eftir Giuseppe Verdi í
íslensku óperunni föstudag og
laugardag. Glæsileg sýning þar
sem öllu er kostað til, og kannski
aðeins rúmlega það. Tilvalin
sýning fyrir þá sem hefur lengi
langað en aldrei þorað.
Þetta rauðvín kemur
frá héraðinu Piemonte á
(talíu. Það er gert úr
nebbiolo-vínberjum og
er náskylt Barolovíninu.
Árgangurinn er '78 og er
hann fullþroskaður.
Bragðið er nokkuð tann-
ískt, það er eftirbragðið
er svolítið beiskt eða
rammt. Þetta telst
þokkalegt rauðvín og
hentar ágætlega með
bragðmiklum kjötrétt-
um. Barbaresco kostar
1100 krónur í ríkinu.
troða upp í fyrsta skipti og eng-
inn veit hvort Sex-menn eru
snillingar, meðaljónar — eða. ..
Perez-brædur á Blúsbarnum
Laugavegi 73. Fy.rir þá sem hafa
gaman af tilefnislausum lífs-
háska: Perez-bræður eru til alls
líklegir þegar það fer að hitna í
kolunum...
BÓKIN
Mýrarenglarnir falla eftii ,g-
fús Bjartmarsson. Fyrsta p"ösa-
bók Sigfúsar en það er fráleitt
nokkur byrjendabragur á Mýrar-
englunum. Sigfús hefur stáltök á
stílnum og getur galdrað fram
magnþrungna stemmningu.
Sterkasta fyrsta bók íslensks höf-
undar í háa herrans tíð.
VEITINGAHÚSIN ■
Kaffistofan Splitt Laugavegi 20
b er líklega huggulegasta kaffi-
húsið í bænum. Ekki dregur úr
að kaffið er hið ágætasta, ex-
presso, cappochino og svo venju-
legt kaffi í pressukönnum sem
bornar eru á borð. Hægt er að fá
meðlæti margs konar, súpu, dí-
sætar kökur og brauð með osti.
Raunar allt nema vín. Kaffi-Splitt
er kjörstaður fyrir fólk í róman-
tískum stellingum hvaða tíma
dags sem er og ágætis upphafs-
punktur á næturrölti. Staðurinn
er venjulega opinn til hálf tólf á
kvöldin.
NÆTURLÍFIÐ
N 1 Bar eða öllu heldur „Enn
einn bar“ byrjaði með látum og
virtist ætla að verða athvarf bó-
hema og mismisskilinna lista-
Vinsœlustu
myndböndin
1. Total Recall
2. Internal Affair
3. We are no Angels
4. Always
5. Hunt for Red Octo-
ber
6. A Cut Above
7. Nuns on the Run
8. An Innocent Man
9. Foxtrot
10. Look Who's Talking
manna. Innréttingin er kuldaleg:
járn, speglar og plast og ekkert
kjaftæði. Einar Örn Sykurmoli
afgreiddi á barnum til skamms
tíma og Gunnþór úr Q4U gætti
dyranna af hæfilegri einurð. Nú
eru þeir báðir hættir og N 1 Bar
hefur daprast flugið. Flest kvöld
eru fáir gestir og flestir með
hauströkkrið yfir sér. Um helgar
er enn þá margt um manninn.
Þetta er staður fyrir þá sem vilja
drekka, tala gáfulega og skiptast
á þýðingarmiklum augnatillit-
um. En því miður er N 1 Bar bara
enn einn bar. . .
FJÖLMIÐLAR
Stundum átta ég mig á að
það er ekki til einn heimur
heldur margir heimar, ekki
ein Reykjavík heldur margar
Reykjavíkur.
Það gerðist til dæmis þeg-
ar kona nokkur hringdi í út-
varpið fyrir nokkrum árum
og kvartaði yfir öllum plast-
pokunum sem fykju um göt-
urnar, þrýstust á framrúður
á bílum svo bílstjórarnir
sæju ekki út og legðust fyrir
öll vit á smábörnum svo
þeim lægi við köfnun. Þetta
var ekki sú Reykjavík sem ég
bjó í.
Sama gerðist þegar ég las
lesendabréf frá manni sem
krafðist þess að ruslaralýð-
urinn niðri í miðbæ yrði fjar-
lægður. Hann sagði þetta
fólk sitja á öllum bekkjum
svo heiðvirt fólk gæti hvergi
tyllt sér niður, æti sorp og
hrifsaði mat af fólki á veit-
ingastöðum. Þetta var enn
ný Reykjavík og einhver allt
önnur en ég hafði búið í.
Sama tilfinning kemur oft
upp þegar ég les DV og síð-
ast núna á miðvikudaginn.
Eins og flestum var kunn-
ugt höfðu nágrannaerjur á
Laugaveginum komist í
æðra veldi á nýársdag. Þar
hafði maður hreytt morðhót-
un i annan og sá klagað í
lögguna. Þetta hefðu sjálf-
sagt ekki þótt tíðindi frekar
en annað drykkjuröfl ef vik-
ingasveit lögreglunnar hefði
ekki heyrt af þessu, lokað
Laugaveginum og staðið
með lambhúshettur úti í
kuldanum í heila fimm
klukkutima. Þegar hún
braust loks til inngöngu fann
hún ekki neitt sem svipaði til
skotvopna. Það var helst tal-
ið líklegt að maðurinn hefði
hótað að skjóta nágranna
sinn með sturtuhenginu.
En þrátt fyrir að þjóðin
væri fyrir löngu farin að
hlæja að þessu öllu, og þá
sérstaklega vikingasveitinni
og nágrannanum, þá sló DV
upp frétt af þessu eins og um
einhvern voðalegan hildar-
leik hefði verið að ræða.
Þótt fréttin hafi ekki verið
í takt við raunveruleikann
var hún í takt við fjölmargar
fréttir DV af einhverri ein-
kennilegri Reykjavík þar
sem ríkir hernaðarástand á
götum borgarinnar og alls
kyns undirheimalýður veð-
ur uppi og hrellir góðborg-
ara. Áf þessum fréttum má
ráða að Reykjavík fari versn-
andi og sé á lóðréttri leið til
andskotans. Þetta er ekki sú
Reykjavík sem ég lifi i. ^
Gunnar Smári Egilsson