Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991
13
veir gamlir samstarfsmenn á
Stöð 2 munu sjá um sameiginlegan
þátt fyrir ríkissjónvarpið í sumar.
Það eru þau Val-
gerður Matthías-
dóttir og Helgi Pét-
ursson en þau voru
sem kunnugt er
saman í 19.19 á sín-
um tíma. Hefur
þeim stundum verið
eignað hönnun og útlit þeirrar
merku nýjungar . . .
I
nnan Borgaraflokksins er vand-
ræðaástand með framboðslista fyrir
kosningar. Formaður flokksins,
Júlíus Sólnes, sem
bauð sig síðast fram
í Reykjanesi, mun
nú hafa farið fram á
efsta sætið í Reykja-
vík. Formaður upp-
stillingarnefndar,
Anna Guðmunds-
dóttir, mun hafa brugðist ókvæða
við ósk formannsins og sent frá sér
bréf um úrsögn úr flokknum. Þá
heyrist að þingmennirnir_ Guð-
mundur Ágústsson og Ásgeir
Hannes Eiríksson, hafi ekki sagt
sitt síðasta orð varðandi uppstilling-
una í Reykjavík. Að minnsta kosti
muni Ásgeir Hannes ekki leggja ár-
ar í bát, þótt hann njóti engra sér-
stakra vinsælda innan uppstillingar-
nefndarinnar . . .
H
■ ■ afskipsmálið er komið með
dagsetningu á málaskrá hæstarétt-
ar, þann 9. apríl næstkomandi. Þar
er að finna meinlega villu í nafni
Björgólfs Guðmundssonar fyrr-
um forstjóra Hafskips. Hann er
sagður heita Björgúlfur og segjast
vinir hans ekki kannast við hann
undir því nafni. Líklega hafi því ver-
ið um vitlausan mann að ræða allan
tímann ...
|f
H^^osningaskjálftinn inn í út-
varpsráði eykst með hverjum degi.
Á síðasta fundi sá til dæmis Magnús
Erlendsson, full-
trúi Sjálfstæðis-
flokksins, sig knúinn
til að kvarta yfir
Stefáni Jóni Haf-
stein og þáttastjórn-
un hans. Kvörtunin
beindist að þættin-
um þegar þeir Ólafur Ragnar
Grímsson og Pálmi Jónsson
komu saman til að ræða fjármála-
ráðherra. Eitthvað hefur Magnúsi
þótt halla á Pálma því hann lét bóka
að Stefán Jón hefði dregið mjög
taum fjármálaráðherra .. .
C
C^íðasta dag þingsins tókst að
klúðra mikilvægum nefndarkosn-
ingum, þannig að þær bíða næsta
þings. Kjósa átti í
stjórnir Landsvirkj-
unar, viðlagatrygg-
ingar og Kísilgúr-
verksmiðjunnar,
auk orkunefndar.
Þegar til kom munu
tveir þingmenn m.a.
hafa tekið sér það bessaleyfi að óska
eftir fresti á kosningum án vitundar
sinna þingflokka, þau Friðrik
Sophusson Sjál fstæðisf lokki og
Margrét Frímannsdóttir Alþýðu-
bandalagi. Áður hafði verið talið að—
Alþýðubandalagið væri reiðubúið
að kjósa og Óiafur G. Einarsson
formaður þingflokks sjálfstæðis-
manna mun hafa verið búinn að
gera samkomulag við Kvennalist-
ann um hvernig staðið yrði að kosn-
ingu. Þessar uppákomur munu því
hafa komið nokkuð á óvart, jafnt í
röðum stjórnarliða sem stjórnar-
andstæðinga. Hins vegar fylgdi
þeim viss léttir fyrir Alþýðuflokks-
menn, sem munu einnig hafa óskað
eftir fresti. . .
rátt fyrir að aðeins einn mán-
uður sé til kosninga eru ekki mörg
kosningamál komin upp á yfirborð-
ið. Salan á Rás 2 er í raun það eina
sem eftir er tekið og er ekki annað
að heyra en þeim útvarpsmönnum
þyki bara málið hin besta auglýsing
enda glymur þessi umræða í útvarp-
inu daginn út og inn . . .
egar Davíð Oddsson flutti
kosningaræðu sína fyrir formanns-
kjör Sjálfstæðisflokks í Laugardals-
höll býsnaðist hann
meðal annars yfir
því hversu flokkur-
inn hefði lítið verið í
ríkisstjórn síðustu
20 árin, aðeins haft
áhrif í stjórn í 9 ár.
Hann hefur áreiðan-
lega ekki glatt eitt varaformanns-
efnanna með þessari ræðu sinni.
Davíð afskrifaði með henni áhrif
sjálfstæðismanna í ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens heitins í 3
ár á tímabilinu 1980 til 1983. Um
leið afneitaði hann framlagi Pálma
Jónssonar, sem þá var ráðherra,
sem þó þótti á landsfundinum lík-
legt varaformannsefni af lands-
byggðinni . . .
u
mfangsmikil hlustenda- og
lesendakönnun er nú í gangi á veg-
um Gallup á íslandi. Stendur könn-
unin í hálfan mánuð og felst í því að
um 1000 manns fengu ítarlegar dag-
bækur sendar til sín þar sem á að
skrá nákvæmlega fjölmiðlanotkun.
Er beðið eftir niðurstöðu könnunar-
innar með nokkurri eftirvæntingu
þar sem hún getur til dæmis orðið
mjög leiðbeinandi fyrir auglýsend-
ur en þarna mun safnast gífurlegt
magn af upplýsingum. Athygli vek-
ur að Aðalstöðin var eina útvarps-
stöðin sem ekki vildi taka þátt í
könnuninni. . .
Hiinn athyglisverðasti frambjóð-
andinn fyrir alþingiskosningarnar
verður að teljast Jóna Rúna Kvar-
an miðill, en hún
skipar 21. sæti á lista
Alþýðuflokksins í
Reykjavík, titluð
sem leiðbeinandi.
Fyrir andstæðinga
Alþýðuflokksins er
auðvelt að álykta að
hér séu kratarnir að krækja í at-
kvæði utan hins jarðneska lífs . . .
að verður smá tilbreyting hjá
útvarpsráðsmönnum á morgun því
ætlunin er að halda út úr borginni
og halda „vinnu-
fund“ á Hótel Örk í
Hveragerði. Er talið
að um 25 manns
muni dvelja allan
daginn á Hótel Örk
og fara yfir fjárhags-
áætlun ríkisútvarps-
ins. Útvarpsstjóri Markús Örn An-
tonsson verður að sjálfsögðu þarna
ásamt útvarpsráðsmönnum og
deildarstjórum ríkisútvarpsins . ..
EÍnn sem fyrr eru þættir Her-
manns Gunnarssonar vinsælustu
þættirnir hjá ríkissjónvarpinu en á
óvart hefur komið
vaxandi vinsældir
Simpson fjölskyld-
unnar á mánudög-
um. Hemmi er þó
kóngurinn og lætur
nærri að það séu
seldar auglýsingar
fyrir tvær milljónir króna fyrir
hvern þátt. Breytir engu þó Hemmi
sé hafður í dýrasta verðflokki —
færri fá að auglýsa en vilja ...
Hugsaðu þér ferðafrelsið. Og
möguleikana. Þú getur ekið
vítt og breitt um Skandinavíu
eða suður til Evrópu án þess
að eyða stórfé í að leigja bíl.
Með Norrænu getur fjöl-
skyldan farið á ódýran og
þægilegan hátt með sinn eigin
bíl þangað sem hana langar.
Þegar þú ferð á þínum eigin
bíl x með Norrænu
slærðutværflug-
ur íeinuhöggi.
Þannig má
eðaEvr-
ópu. Þú ræður ferðatímanum
og getur farið hvert á land sem
er. Frá Bergen liggja leiðir til
allra átta í Skandinavíu. Há-
fjallafegurð Noregs og
undirlendi Svíþjóðar
er skammt undan að
ógleymd-
^um borg-
NORRONA
ÉE
"”iiiiiiiiiiiiiiiiiiii
□ iiii
u m
iiiiiiiiiiiini
NORRÖNA
sameina ferð um ísland á
leiðinni til Seyðisfjarðar og
utanlandsferð til Norðurlanda
eins og Ósló og Stokkhólmi.
Frá Svíþjóð er hægur vandi að
komast með ferju yfir til
lands
og skoða þúsund vatna
landið eða hina fögru
höfuðborg, Helsinki.
Frá Hanstholm í Danmörku
liggja leiðir um Jótland til
Kaupmannahafnar, ef vill
og áfram um Skandinavíu,
eða suður til
Þýskalands og
blasir Evrópa þá
við í öllu sínu veldi.
Við látum þig um
ferðaáætlunina en
flytjum hins vegar
fjölskylduna og bílinn
yfir hafið á þægilegan en
óvenju skemmtilegan hátt.
ngrræna ferðaskrifstofan
SMYRjL-UNE ÍSfAND
LAUGAVEGUR 3^101 REYKJAVÍK
SÍMi 91-62 63 62
ENA FERÐASKRIFSTOFAN
FJARÐARGÖTU 710
21111
,p,;: