Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 20

Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 Bjarni Dagur eignast þjáningarsystur Þaö er ekki langt síðan vid sögðum frá hremming- um útvarpsmannsins Bjarna Dags þegar hann fór í bíó. Þrjár stúlkur úr Hafnarfirðinum eyðilögðu ferðina. En nú hefur Bjarni Dagur eignast þján- ingarsystur. Það er engin önnur en Agnes Braga- dóttir, stjörnublaðamaður Morgunblaðsins, og segir hún farir sínar ekki sléttar í rabbþætti í Morgunblað- inu fyrir skömmu. Agnes brá sér á bíó með karli föður sínum og ætluðu .. þau feðginin að njóta ís- lensku myndarinnar Ryð. En margt fór á aðra leið. Gefum Agnesi orðið: „Þótt aðeins átján hræður væru á þessari sýningu voru átta þeirra að týnast inn ein og ein fyrsta korter sýningarinnar, með til- heyrandi truflunum. Ekki nóg með það, þegar órofin nærvera þagnarinnar var hvað brýnust, var hún rofin æ ofan í æ, með skruðningum þeim sem fylgja því þegar sælgætisbréf eru rifin utan af sætindum, skrjáfi í popp- kornspokum, smjatti, hósta- kjöltri og umli. Oþolandi — hreint óþolandi og sem eitur í mínum beinum!“. Skyldi Bjarni Dagur bjóða Agnesi í bíó? Lóa spákona skekur útvarpið „Ég hafði bara ekkert heyrt um þetta,“ sagði Lóa spákona þegar hún var spurð um harkaleg við- brögð útvarpsráðsmanna við því þegar hún spáði í bolla Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæðis- flokksins mánudaginn eft- ir að hann var kosinn for- maður. Síminn á rás 2 varð þegar rauðglóandi meðan á útsend- ingu stóð og hringdi þar inn hver útvarpsráðsmaðurinn af öðrum. — Allir öskureiðir yf- ir að frambjóðanda fyrir næstu kosningar væri hamp- að svona og þar að auki fékk hann góða spá. Og nú hefur útvarpsráðsmaðurinn Mark- ús A. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, lagt fram formleg mótmæli í út- varpsráði. Þetta mun hafa eft- irmála. En Lóa er bara hissa. Hún sagðist ekki hafa séð þetta fyrir og lætur sér fátt um finn- ast. Hún heldur bara áfram að spá í bolla, lófa og Tarrot spil. Hún segist hafa fengið áhugann þegar hún sem ung stúlka fór til spákonu og síð- an hefur hún spáð fyrir gest- um og gangandi. Það er kannski tími til kominn að út- varpsráð geri hana fræga? Grunnskólanemendur kynna sér vinnumarkaöinn vekja upp umræðu. Ég vil að tekið verði upp persónukjör í stað flokkakjörs. Það eru menn í öllum flokkum sem ég vil á þing, en aðra vill maður ekki sjá þar. Það er miklu eðlilegra að í okker fámenna þjóðfélagi fái fólk að velja á milli einstaklinga.“ Haukur nefndi einnig sem baráttumál aðhald að lög- fræðingum. „Þeir setja sam- an svimandi háan taxta sem siðan dómarar eru látnir sam- þykkja. Þetta er borðleggj- andi brot á mannréttindum. Fólk kemur efnahagslega ónýtt frá þessari fámennis- klíku. Þá eru fangelsismálin í megnasta ólestri. Það er lítið gert fyrir fanga, þeir koma skítblankir út úr fangelsi og lenda nánast óhjákvæmilega í sama vítahringnum. Loks má nefna að ég er á móti óheftum innflutningi á út- lendingum. Ég er ekki kyn- þáttahatari, en þennan lær- dóm dreg ég af veru minni í Svíþjóð." Haukur segir að hann hafi nánast fiúið til Svíþjóðar á sínum tíma. „Ég flúði áfengis- vandamálið, því pressan var of mikil hér. Nú er ég alveg laus við lyfin sem ég var að láta ofan í mig og ég get feng- ið mér einn og einn bjór án þess að lenda í vítahring. Ég starfaði um hríð með trúar- söfnuði og þótt ég geri það ekki núna þá trúi ég á Jesúm. Ég þakka honum fyrir að ég losnaði út úr hringavitleys- unni.“ „Ég er á móti óheftum innflutningi á útlendingum. Ég er ekki kynþáttahatari, en þennan lærdóm dreg ég af veru minni í Svíþjóð." Haukur Haraldsson hellir sér í kosningaslaginn Framfaraflokkur berst fyrir persónukjöri og aðhaldi á lögfræðinga „Ég er staðráðinn í því að bjóða fram í komandi þingkosningum. Ég ætlaði að bjóða fram einn á eigin Iista, það hefur hingað til verið hægt, en alþingis- menn fengu víst niður- gang og breyttu lögunum, þannig að nú er persónu- framboð útiiokað og þarf heilan flokk með fullan lista.“ Haukur Haraldsson, sem fyrir nokkrum árum var á allra vörum vegna sölu á „hjálpartækjum ástarlífsins" og fyrir að stjórna sjóðheit- um nærfatasýningum Pan- hópsins, er kominn til lands- ins eftir tveggja ára „útlegð" í Svíþjóð. Hann er nú að stofna stjórnmálaflokk, sem hann nefnir Framfaraflokk- inn („á ekkert skylt við Glistr- up. Er bara flott nafn“). „Ég er tilbúinn með lista til að fá framboðið samþykkt og listabókstaf — ég sæki um F — og ég verð ekki lengi að fá nýjan lista yfir meðmælend- ur. Það sem ég vil er ekki endilega að komast á þing, þótt ég sé bjart- sýnn á að það gæti tekist, heldur vil ég OG HVER ERU SVO HLUNNINDIN? Þúsundir grunnskóla- nemenda hafa að undan- förnu valið sér stofnanir og fyrirtæki í sérstakri starfskynningu fræðslu- umdæmanna. Ekki veitir af að búa börnin og ungl- ingana vel undir átökin sem þau munu óhjákvæmi- lega upplifa á vinnumark- aðnum og varla sakar að þau fái nasasjón af því hvar verði best að bera niður að námi loknu. Því voru börnin send út af örkinni með nítján spurning- ar á blaði og voru forsvars- menn stofnana og fyrirtækja beðnir um að fræða þau. Hvað þarf að læra í skóla til að verða X? Hverjir þiggja þjónustu X? Hvar vinnur X? Tíunda spurningin: Hver eru hlunnindi í starfi X? Sú þrettánda: Hvernig er starfs: tíma háttað? Sautjánda: í hvaða stéttarfélagi er X? Átj- ánda: Hvað fær X langt sum- arfrí? Og sú nítjánda og síð- asta: Hver eru grunnlaun X? Ekki ónýtar upplýsingar fyrir börnin. „Ekki síður fyrir kennarana," mun ónefndur lögfræðingur hafa tuldrað eftir að hafa handfjatlað spurningalistann. KYNLÍF Hin ýmsu stig kynlífsfíknar Ég hef öðru hverju fjallað um kynlífsfíkn (sexual add- iction) í pistlaskrifum mín- um. Éftir hundrað ár eða svo spái ég því að almenn viðhorf til kynlífsfíknar verði svipuð og til alkóhól- isma nú á tímum. Að gefa viðhorfabreytingu meðal almennings svona langan tíma rökstyð ég með þvi að þegar um kynlíf er að ræða eru allar breytingar miklu hægari. Fleiri veggir hafa verið reistir um þessa mannlegu upplifun en nokkra aðra mannlega hegðan og því tekur lengri tíma að brjóta þá múra. Hugmyndir þær sem ég hef reifað um kynlífsfíkn eru að sjálfsögðu ekki úr lausu lofti gripnar og hef ég aðallega stuðst við skrif Patrick Carnes sem er frumkvöðull að meðferðar- prógrammi fyrir kynlífs- fíkla í Golden Valley heilsu- miðstöðinni í Minneapolis í JÓNA INGIBJÓRG JÓNSDÓTTIR Norður-Ameríku. Munið þið þegar íslensku alkarnir fóru fyrst til Freeport? Carnes hefur þær hug- myndir að til séu hin ýmsu stig kynlífsfíknar — nánar tiltekið þrjú stig. Mig langar að tæpa á þessum stigum. En fyrst vil ég ítreka að ekki má rugla saman kyn- lífsfíkn og ánægjulegu sam- lífi sem meirihluti fólks iðk- ar. Það má heldur ekki rugla kynlífsfíkn við þá sem „oft“ stunda sín kyn- mök en það sem einum finnst ,,oft“ getur öðrum fundist „sjaldan". Heilbrigt fólk getur sett sér og öðrum mörk en kynlífsfíklar hafa misst stjórnina og kynlífs- ástundun þeirra er skamm- góður vermir og veitir meiri vanlíðan en vellíðan þegar upp er staðið. Þá eru það stigin. Með stigum er ekki átt við að fíknin þróist upp í þriðja stigs fíkn ef ekkert er að gert heldur eru stigin hugs- uð sem leið til að lýsa og flokka. Kynlífsfíkn sem gæti flokkast undir fyrsta stigs fíkn, að mati Carnes, eru gagnkynhneigð og samkynhneigð sambönd, sjálfsfróun, klám og vændi. Samkvæmt normum í sam- félaginu er þessi kynhegð- un ýmist viðurkennd og tal- in sjálfsögð (t.d. sjálfsfróun og gagnkynhneigð sam- bönd) en sum kynhegðun eins og klám og vændi er umdeild. Þegar þessi kyn- hegðun er dæmd ólögleg ganga lögin ekki ýkja hart fram að uppræta ósómann. Þessi staðreynd setur kyn- lífsfíkilinn í litla hættu með hegðun sinni. Hér á landi eru klámspólur öðru hverju gerðar upptækar og í gær sagði unglingur mér sögu af konu einni vestur í bæ sem ítrekað á að hafa feng- ið til sín viðskiptavini sem sóttust eftir blíðu hennar en bæði hún og viðskipta- vinirnir væru látin óáreitt af lögreglunni. Þegar fyrsta stigs hegðun er ólögleg er sjaldan minnst á fórnar- lömb líkt og um engin fórn- arlömb væri að ræða. Hins vegar á misnotkun sér oft stað þó hún sé mörgum hul- in. Viðhorf almennings ein- kennast stundum af við- bjóði samanber gróft klám eða tvískinnungshætti t.d. þegar um „kvennagull" er að ræða („eftirsóttur"/ „hugsar með tippinu"). í annars stigs kynlífsfíkn getur verið um að ræða „dónasímtöl", flassara og gluggagægjara. Hver man ekki eftir strípalingnum . .. í annars stigs kynlífsfíkn getur verid um að ræða „dónasímtöl“, flassara og giuggagægjara. sem fílaði í botn að hlaupa eftir Laugardalsvellinum á fótboltaleikjum? Samfélag- ið viðurkennir ekki þessa hegðun og litið er á hana sem frekar hvimleiða ár- áttu. Fíkillinn er talinn eitt- hvað klikkaður en tiltölu- lega meinlaus. Þessi hegð- un er algengt brandaraefni og gerir lítið úr sársauka fíkilsins. Áhætta kynlífsfík- ilsins, og spenna, er hér sýnu meiri en í fyrsta stigs fíkn. Hér á hann á hættu að verða handtekinn og verða dreginn fyrir lög og rétt. í annars stigs fíkn er alltaf um að ræða fórnarlömb. í þriðja stigs kynlífsfíkn er að finna hegðun eins og nauðgun, sifjaspell og kyn- ferðislega misnotkun barna. Þessi hegðun er tal- in alvarlegt brot á normum samfélagsins og fíkillinn setur sig í mikla áhættu hvað lög varðar. Um fórn- arlömb er alltaf að ræða og almenningur hálf tryllist stundum af reiði þegar vitneskja um þessi brot berst út. Litið er á gerendur sem alvarlega veika menn og telja sumir að þeim sé hreinlega ekki viðbjarg- andi. Að ofansögðu er Ijóst að ekki er öll kynlífsfíkn eins og að fíkillinn setur sig í mismikla hættu með atferli sínu. 1 öllum tilvikum upp- lifir fíkillinn skömm en mis- mikla m.a. eftir því hvert viðhorf samfélagsins er. Annað sem fíklum er sam- eiginlegt, sama á hvað stigi þeir eru, er tilfinning um að vera kominn í vítahring. Spyrjió Jónu um kynlífiö. Utanáskríft: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.