Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 27

Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR ... fær Ágústa Gústafs- dóttir fyrir að yrkja Ijóð á kaffihúsum, sjálfri sér og okkur hinum til ynd- isauka. um hans heitir nýja verkið hjá Hugleik. Fyrir utan að vera með skrítið nafn eins og öll hin er það líka gamansamt og þjóðlegt. KLASSÍKIN BÍÓIN Awakenings með þeim Robert de Niro og Robin Williams er væntanleg i Stjörnubíó. Þetta er endurgerð eldri myndar og fjall- ar um sjúkling, þrálátan sjúk- dóm, þrautsegju, lækni og lítið kraftaverk í lokin. Myndin er hins vegar miklu skemmtilegri en þessi upptalning gefur til kynna. Bæði Williams og de Niro sýna snilldartakta. Myndin verð- ur sýnd í Stjörnubíói innan skamms og er siðust myndanna sem tilnefndar eru til Óskars- verðlauna til að komast á tjaldið hér heima. LEIKHÚSIN Pétur Gautur verður frumsýnd- ur um helgina í nýuppgerðum salnum i Þjóðleikhúsinu. Það þekkja allir Pétur Gaut en það hafa fáir séð nýja salinn með ein- um svölum í stað tveggja. Okkar spá er sú að skoðanir verði skipt- ir, bæði á salnum og uppfærsl- unni, sama hvað fólk klappar í lokin. Kysstu mig Kata er mikil skemmtun. Reykvikingar eiga þvi erindi til Akureyrar um pásk- ana þrátt fyrir snjóleysið. 1932 eftir Guðmund Ólafsson er aðalstykkið í Borgarleikhúsinu. Ekkert meistaraverk en hugljúft og notalegt. Sagan af Sveini sáluga Sveins- syni í Spjör og samsveitung- Sinfónían, Ashildur Haralds- dóttir flautuleikari, Hljómeyki og einsöngvarar verða með tón- leika í Langholtskirkju í kvöld. Tékknesk kammertónlist verður flutt á laugardaginn kl. 15.00 í Listasafni Sigurjóns. Lauf- ey Sigurðardóttir, Richard Talkowsky og Selma Guðmunds- dóttir leika en Martinu og Dvo- rák sömdu. Tríó Reykjavíkur leikur verk eftir rússnesku höfuðsnillingana Rakhmanínof, Mússorgskí og Tsjajkovskí í Hafnarborg á sunnudaginn kl. 20.00. Kammersveit Reykjavíkur, Mótettukórinn og Unnur Mar- ■a Ingólfsdóttir fiðluleikari leika verk eftir Frank Martin í Hallgrímskirkju á pálmasunnu- dag kl. 17.00. POPPIÐ_________________________ Full Circle með Arbæinginn Skúla Sverrisson á bassa spilar á Púlsinum i kvöld og annað kvöld. Fróðir menn segja að Skúli sé að slá í gegn með þessari hljómsveit þar sem bassinn hans leikur einna stærsta hlutverkið. Tónlistin er jass-rokk með afrik- önskum ryþma og brasilískri sveiflu. Hljómsveit Eddu Borg tekur við af Full Circle á Púlsinum á fimmtudags- og föstudagskvöld. íslandsvinir spila á Tveimur vinum á föstudagskvöldið. Tommi rótari, stuðsveitin frá Selfossi, verður á Tveimur vinum á laugardagskvöldið. Hilmar Jensson og Jill Seifer leika og syngja á Púlsinum á laugardagskvöldið. Jass. Tregasveitin með þeim feðgum Pétri og Guðmundi spilar trega- fullan blús á sunnudagskvöldið á Púlsinum. Villtir gítarsólóar og harmþrungið breim Péturs trylla lýðinn. ÞUNCA GATAN LÁRÉTT: 1 fen 6 refsar 11 fúa 12 hrakningar 13 meitt 15 annmarki 17 krap 18 skip 20 tangi 21 venslamanns 23 handlegg 24 þekking 25 dreifa 27 tilnefna 28 herkví 29 hitaskil 32 fýl 36 raust 37 hlóðir 39 ból 40 loga 41 óskaddaða 43 Ásynja 44 tindri 46 skjátlist 48 fugl- inn 49 keyrð 50 lotning 51 nuddaði. LÓÐRÉTT: 1 dýrð 2 skáli 3 skipun 4 hlunnindi 5 gæfa 6 augnlok 7 rugg 8 stjórasteinn 9 útlimur 10 vog 14 skír 16 þrábeiðni 19 sólundi 22 tími 24 hlaði 26 umboðssvæði 27 nokkur 29 draga 30 labb 31 lúðumagi 33 kaffibrauð 34 borubrött 35 þáttur 37 síðla 38 ættarnafn 41 ullarlagður 42 stilla 47 svardaga. HVERJIR ERU HVAR7 Yfir strikið ermiklubetri staður en forverinn Hollywood var und- ir það síðasta. Á efri hæðinni er nú glimrandi House-tónlist og Bigfoot notar hefðbundin DJ-trix til að halda fólkinu á gólfinu á neðri hæðinni. Gestirnir eru ekki af verri endanum og sér- staklega ekki stelpurnar. Og allir eru á réttum aldri — það er þeim aldri sem er skemmtilegast að skemmta sér og fólk er skemmti- legast við að skemmta sér, 20 til 27 ára. Og ef fólk er heppið má rekast á eftirtalda yfir strikinu: Obbu, Birgi Birgisson, Eydísi Sæmundsdóttur í Centrum, Arnar Gauta Sverrisson, Nönnu úr Levis-sýningunni, Katrínu Hermanns, Heiðu Al- freðsdóttur og Mínervu líka Alfreðsdóttur, Gunnar Hilm- arsson í Hanz, Jóhann Fri- mann Traustason, Laufeyju Johansen flugfreyju, Lindu Hilmarsdóttur, Sigurð Bolla- son 17, Harald M. Unnarsson, Rut Róbertsdóttur, Ingibjörgu Hilmarsdóttur og Elínu Reyn- isdóttur ungfrú Hollywood sem var. Strætó, áður Café Strætó og þar áður Mensa, var til húsa uppi á lofti á horni Lækjargötu og Aust- urstrætis. Það er álitamá! hvort Café Romance sé sérstakur stað- ur þar sem hann er kannski fyrst og fremst koniaksstúka fyrir Ca- fé Óperu. En hvað um það. Þang- að kemur fólk bæði af götunni og eins af Óperu. Þetta á að vera hlýleg stofa með þykkum sæt- um, arineldi og huggulegheit- um. Og hún er það svo sem. En básarnir eru alltof stórir þannig að það er ekki ráðlegt að fara þangað nema með stórum hóp. Annars kemur stór hópur og gleypir ykkur í sig. Helsti kostur- inn við þessa stóru bása er að það er auðvelt að koma kjafta- sögum af stað í þeim bara með því að tala stundarhátt. Daginn SJÓIN Infernó 5 verður með gerninga- kvöld á föstudaginn á Nl. Frum- fluttur verður gjörningurinn Eitt- hvað er i hafinu... Auk þeirra i In- fernó mætir Bjarni blautavör sjónháttarfræðingar á svæðið undir nafninu Kokkur Kyrjan Kvæsir og Tryggvi Ha Inúal fer með digital kvæði. Skemmtunin hefst klukkan ellefu og er öllum sem aldur hafa til heimill að- gangur. MYNDLISTIN________________ Magnús Kjartansson er með voðalega sæta sýningu á Mokka. Kirkjur, hestar og fleira gott. Erla Þórarinsdóttir sýnir í Nor- ræna húsinu litlar og stórar myndir. Ljósmyndasýningar eru tvær i borginni. Önnur i Listasafni al- þýðu með bestu blaðaljósmynd- um síðasta árs og hin á Kjarvals- stöðum með bestu ljósmyndum fjölmargra Ijósmyndara. Danskir súrreaiistar sýna í Listasafni íslands. Þetta eru verk i eigu Sönderjyllands Kunst- museum og frá ýmsum tima. Kristinn Harðarson lokar sýn- ingu sinni i Nýlistasafninu um helgina. Það er góður húmor i myndunum hans Kristins. NÆTURLÍFIÐ________________ Café Romance er þar sem Víva Sancerre hvítvínið ar frá Loire-dalnum í Frakk- landi, framleitt af Lucien Balland. Árgangurinn sem fæst í ríkinu er '89, sem ætti ekki að koma að sök, því ráðlegt er að drekka þetta vín frekar ungt. Það er úr berjateg- undinni Sauvignon Blanc, frekar þurrt, ferskt og með smá aldinkeim. Sancerre hentar sérstak- lega með fiskréttum og kostar sléttar 1300 krón- ur í ríkinu. eftir verður sagan komin í annað hvert mötuneyti í bænum. VEITINGAHÚSIN_____________ Café Hressó er formlegt nafn á Hressingaskálanum, sem yngra fólk þekkir sem Hressó en það eldra sem Skálann. Þrátt fyrir innréttingar Valgerðar Matthias- dóttur, sem settar voru upp fyrir nokkrum árum, er Café Hressó næstum þvi eins og Hressó eða Skálinn. Elstu gengilbeinurnar . eru þarna ennþá. Klósettin eru jafn ókræsileg og alltaf. Þjónust- an er hæg sem fyrr og alltaf hef- ur maður á tilfinningunni að ör- lítil öreind í kaffinu sé síðan fyrir strið. Kenningin er nefnilega sú að kaffikannan á Hressó sé ekki þrifin heldur sé alltaf hellt uppá nýtt ofani gömlu lögunina. I dag fá gestirnir þvi örlítið af sama um og því lítið að sjá á næstu borðum eða út um gluggann. En hvar er allt fallega fólkið? Ein- hver sagði að það væri allt orðið að fyrirsætum i Japan. ÁÐUR ÚTI NÚNA INNI Frá því að fyrsti peningaseðillinn kom til landsins og allt þar til fyr- ir stuttu hefur íslendingum verið í nöp við peninga. Þeir hafa reynt að koma þeim í lóg hið fyrsta. En nú er tíðin önnur. Það er í tísku að spara. Og í dag er ekki nóg að spara. Fólk á að kaupa sér líftryggingu ef það skyldi deyja. Það á að ganga í Frjálsa lífeyrissjóðinn til að eiga fyrir ellinni. Það á að gerast áskrifandi að spariskírteinum rikissjóðs til að mæta stærri áföll- um eða til að safna fyrir lang- tímamarkmiðum. Síðan á það að eiga verðbréf til að mæta smærri áföllum eða til að safna fyrir minni markmiðum. Loks á það að eiga bankabækur til að borga óvænta reikninga. Fyrir utan þetta allt saman á fólk að búa til menntunarsjóði fyrir börnin sín og fleira og fleira. Er von að mað- ur spyrji á hverju fólk lifi frá degi til dags? ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI Um leið og skoðanir eru aftur að komast i tísku verða einstreng- ingslegar skoðanir enn meira púkó en áður. Þumalputtareglan er sú, að hafa engar þær skoðan- ir sem standa í vegi fyrir þvi að þú getir notið alls þess sem þetta stutta lif hefur upp á að bjóða. Skoðanir sem hafa breitt sig yíir öll svið mannlegrar og ómann- legrar náttúru eru óæskilegar. Kvennafræðin, frjálshyggjan, sósíalisminn og annað slíkt er úti. Það hefur sýnt sig að svona hugmyndakerfi fá fólk til að missa af fleiru en þau gefa. Það er alltof mikið sem er bannað, púkó og óæskilegt. Þar fyrir utan er hægt að læra fólk með svona hugmyndakerfi utan að. Það er nóg að það segi eina setningu þá er næsta vist hvað það segir næst. Litlar skoðanir eru bestar og langbest er að raða þeim þannig upp að ólíklegt sé að fólk geti lesið ykkur út. Tvær, þrjár sérviskur skemma ekki. VID MÆLUM MEÐ_____________ Frjálsum opnunartíma Við viljum fá að borða um miðja nótt, dansa á morgnana og kaupa mjólk á sunnudögum. Að blaðburðabörn vakni fyrr á morgnana Allt almennilegt fólk fer í vinn- una fyrir klukkan átta. Einkavæðingu — rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn Og hvernig væri að einkavæða Sjálfstæðisflokkinn og hætta að veita honum sérfræði-, útgáfu- og blaðastyrki? Expresso-væðingunni Bráðum verður hægt að fá al- mennilegt kaffi næstum hvar sem er. kaffinu og Steinn Steinar drakk eða jafnvel W.H. Auden. Og það er sjarminn við Hressó. Gallinn er hins vegar sá hvað það er orð- ið lítið af fallegu fólki í miðbæn- Vinsælustu vasabækurnar 1. Memories of Midnight Sidney Sheldon 2. Sleeping with the Enemy Nancy Price 3. The Silence of the Lambs Thomas Harris 4. Dances with Wolves Michael Blake 5. A Ruling Passion Judith Michael & Good Intentions Joy Feelding 7. Devices and Desires P.D. James 8. Vineland Thomas Pynchon 9. Magatrends 2000 John Naisbitt & Patricia Aburdene 10. The Prince Celia Brayfield

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.