Pressan - 21.03.1991, Side 14

Pressan - 21.03.1991, Side 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 PRESSAN Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson, Kristján Þorvaldsson Auglýsingastjóri: Hinrík Gunnar Hilmarsson Ritstjórn. skrifstofur og aug- lýsingar: Hverfisgötu 8-10, sími 62 13 13. Faxnúmer: 62 70 19. Eftir lokun skipti- borðs: Ritstjórn 62 13 91. dreif- ing 62 13 95. tæknideild 62 00 55. Áskriftargjald 550 kr. á mánuði. Verð í lausasölu 170 kr. eintakið. Einkahagsmunir og hagsmunir bankans I PRESSUNNI í dag er fjallað um viðskipti Ólafs Björnssonar t Ósi og Bjarna Magnússonar, útibússtjóra Landsbankans í Mjódd. Þar kemur fram að Bjarni tók Ós í viðskipti eftir að Iðnaðarbankinn hafði hent fyrirtækinu úr viðskiptum. Þar kemur einnig fram að fyrir- tæki sem skráð er á börn Bjarna rak steypubíla fyrir Ós. Sá rekstur hófst áður en Ós fékk inni hjá Bjarna í Lands- bankanum. Það hlýtur að vera skýlaus krafa eigenda Landsbankans, það er almennings, að þeir sem gæta eigi bankans séu ekki að blanda sínum eigin hagsmunum eða hagsmunum fjölskyldu sinnar inn í viðskipti bankans. Þegar það er gert með þeim hætti að taka í við- skipti fyrirtæki sem aðrir bankar hafa hafnað og hefur að mestu fyrirgert sínu láns- trausti er það með öllu óþol- andi. Og þegar við það bætist að fyrirtækið henti í bankann haldlausum veðum tekur steininn úr. Stjórnendur Landsbankans hljóta að taka á þessu máli. FJOLMIDLAR Tepruskapur og leidindi í síðasta pistli mínum kom ég með tvær kenningur um hvers vegna íslensk blöð og aðrir fjölmiðlar væru jafn leiðinleg og raun er á. Nú kemur þriðja kenningin: í þættinum Ljóðið mitt fyrir skömmu sagði Gérard Le- marquie að sér hefði alltaf þótt falleg sagan um hvernig Ari Jósepsson framdi sjálfs- morð. Sagan er á þá leið að árið 1964 hélt Ari heim til ís- lands eftir nám á Spáni. Hann sigldi með Gullfossi. Þegar skipið kom upp að iandinu hlasti Surtseyjargosið við. Hinn hrifnæmi Ari varð al- tekinn og stökk fyrir borð og synti í átt að hinni verðandi eyju. Farþegarnir sáu hann síðast þegar hann hvarf í átt að gosinu. Þegar ég horfði á þáttinn áttaði ég mig á því að enginn íslendingur mundi leyfa sér að segja þessa sögu opinber- lega. Yfir íslendingum grúfir meiri tepruskapur en svo að við getum leyft okkur opin- berlega að segja frá fallegum sögum sem tengjast dauðan- um. Þá skiptir engu þó liðinn sé rúmur aldarfjórðungur frá því viðkomandi framdi sjálfs- morð. Margir geta kastað þessum tepruskap í fámennum hóp. En í fjölmiðlum er hann alls- ráðandi. Kenningin er því á þessa leið: Vegna tepruskapar í þjóðfé- laginu eiga íslendingar ekki létt með að gefa út skemmti- leg blöð. Þeim tekst meira að segja að gera besta sjónvarps- efni í heimi, fréttirnar, að þurrum lestri á frásögum af loðijum, vöxtum og álíka sjarmerandi persónum. Tepruskapurinn bannar þeim annað þar sem það er alltaf hætta á að þeir særi ein- hvern. Gunnar Smárí Egilsson Fjármálin erú alltaff eins, sama hver reksturinn er ■■■■■■■ Ármann Reynisson í Ávöxtun i viötali viö Helgarpóstinn í september 1986. MÁL SEM FÓLKIÐ SKILUR "Það er fúkkabragð af molun- um í páskaeggi ríkisstjórn- arinnar." Guönin Halldórsdóttir, þingmaöur Kvennalistans. Hver vill kaupa einn fóf? "Mér finnst þetta einna helst sambærilegt við það að það væri tekinn fullfrískur og þróttmikill langhlaupari og skorinn af honum fóturinn upp úr þurru." Markús Antonsson útvarpsstjórí um hugmyndir um sðlu ó Rás-2 'Pytydí Ctutí/uztcUd vnecl? "Það voru svo kjördæmin hans Steingríms sem bitust um hattinn en Vestfirðingar höfðu betur." Siv Friðleifsdóttir um uppboð á kúrekahatti Steingrims Hennannssonar. Fréttatilkynn- ingarnar eru traustastar "Bollaleggingar um eitthvert "baksvið" sem enginn kann fullkomin skil á falla utan þessarar skyldu og koma engum að gagni, hvorki lesendum né öðrum." Rítstjórar Morgunblaösins. ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞORSTEINI MEÐ EITTHVAÐ NÝTT "Strindberg, Heinesen og allir hinir eru líklega búnir að afgreiða aumingjaskap- inn í eitt skipti fyrir öll." Þorsteinn Eggertsson um bók sína sem koma á út á ensku. Engin framtíð, bara fortíö Það er stundum sagt að þjóðir fái þá stjórnmálamenn sem þær eiga skilið. Tilfelli Guðmundar Ágústssonar fær mann hins vegar til að efast um þetta. Engin þjóð getur verið svona vond. En ef svo væri þá er kannski óþarfi að örvænta. Ef þjóðin var virki- lega svona vond fyrir fjórum árum þá hefur hún skánað. Það eru nefnilega engar líkur til þess að henni verði refsað að nýju með honum Guð- mundi. í raun er kannski ofmælt að kalla Guðmund stjórnmála- mann. Það sýndi sig í Þingsjá um daginn. Þá voru formenn þingflokkanna spurðir hvers þeir minntust þegar þeir litu til baka yfir kjörtímabilið. í stað þess að nefna merk mál sagði Guðmundur að þetta hefði að sjálfsögðu verið mik- Af lýðræðislegum ofbeldismönnum Það má deila um það hvort sex tíma ræða Hjörleifs Guttormssonar á alþingi flokkast undir hreint ofbeldisverk eða bara ein- skær leiðindi, sem ennþá standa utan við sakaskrána. Hver getur haft þá skoðun sem hann vill á afreki Hjör- leifs Guttormssonar þessa frægu nótt, þegar hann seiddi með orðkynnginni fram grænu bólurnar á Guðrúnu Helgadóttur. Tímarnir sex urðu met, meira að segja algjört met, og það eina sem skyggir á þennan atburð í þingsögunni er að tilhlaup ýmissa annarra lýðræðis- legra ofbeldismanna á Al- þingi íslendinga síðustu dag- ana fyrir þinglausnir falla fyrir vikið í gleymsku og dá í Mörður Árnason hröðum erli sjónvarpsfrétt- anna. En til þess eru athugul vikublöð að halda því á lofti sem aðrir gleyma, Góða atlögu að íslands- metinu í ofbeldi gagnvart pyngju skattborgaranna áttu til dæmis nokkrir áhuga- menn um fiskeldi, sem fluttu um það frumvarp síðustu dagana að ríkissjóður tæki að sér að lána ölum þeim fiskeldisfyrirtækjum á land- inu sem nú stæðu nærri gjaldþroti, þannig að það væri gulltryggt að fiskar vektu hér í öllum kerjum hvað sem líður heimskum markaðsbesefum í útlöndum Því miður tókst óviðkom- andi áhorfendum að stöðva þessa atrennu að íslands- metinu. En söm er gerð þeirra Matthíasar Bjarna- sonar, Ólafs Þ. Þórðarsonar og fleiri ráðdeildarsinna. Þá tóku tveir fjárveitingar- nefndarmenn gott tilhlaup að íslandsmetinu í ofbeldi gagnvart tekjukerfi rikis- sjóðs. Á síðustu dægrum þingsins tókst tónlistar- mönnum að ná samstöðu þingheims um að setja plötur og diska og snældur með íslenskri tóinlist í sama flokk og bækur á íslensku. Stukku þeir þá fram, Alex- ander Stefánsson og Ólafur Þ. Þórðarson, og lögðu hér við að í staðinn fyrir að út- gerðarfélög kaupi sjómönn- um sjálfsagðan vinnu- og ör- yggisbúnað — flotgalla — væri upplagt að skattgreið- endur greiddu niður þessi föt. Þar með hefði hafist hæg en örugg rotnun nýja virðis- aukaskattkerfisins í krafti þess að skattur leggist aðeins á hið vonda í tilverunni. Því miður mistókst tilraun þeirra Ólafs Þ. í fjárveitinga- nefndinni. Þeir geta að vísu huggað sig við að hafa í leið- inni drepið málið fyrir mús- íköntunum. Páli Péturssyni tókst hins vegar að ná sínu ætlunar- verki, nefnilega húnvetnsku innanhéraðsmeti í ofbeldi gagnvart skynsamlegri byggðastefnu. Páll er mikill um sig, og með því að leggj- ast þvert í veg fyrir aðra þingmenn náði hann að keyra í gegn fjárveitingu til nýrrar hafnar á Blönduósi. Blönduós er bær við Húnaflóa. Hann liggur nokkra kílömetra frá Skaga- strönd. Það er líka bær við Húnaflóa. Sá bær hefur góða höfn. Sú höfn er hins vegar ekki á Blönduósi. Þeir á Blönduósi vilja líka höfn. Húrra fyrir Páli Péturssyni. Höfundur er blaðamaður og /'s-i lenskumaður. il reynsla — eins og okkur komi það eitthvað við. Ef Guðmundur hefur ein- hverja pólitík þá snýst hún um hann sjálfan. Það er því sorglegt að hún hafi ekki fært honum annað en for- mennsku í dauðum þing- flokki og setu í umferðarráði. Það treysti honum til dæmis enginn fyrir bankaráðssæti. Og þá skipti engu þó Guð- mundur færi í fýlu og neitaði að sitja sína eigin þingflokks- fundi. En þrátt fyrir að þingsetan hafi skilað Guðmundi litlu og þjóðinni kannski enn minnu þá hefur honum samt sem áð- ur tekist að gera sig ódauð- legan. Það gerði hann þegar hann lýsti því yfir að atkvæði sitt væri ekki lengur til sölu. Það þarf bernskan snilling til að láta svona útúr sér. En nú þegar þingmennsku Guðmundar er að ljúka mun hann snúa sér aftur að því sem hann hefur menntun til, það er lögmannsstarfa. Kannski hefur hann burði til þess að verða miðlungs hér- aðsdómslögmaður, en miðað við frammistöðu hans í ræðu- stól efri deildar verður hann seint neitt ljón í dómssölun- um. Hann þarf alla vega að temja sér skýrari framsetn- ingu ef einhver á að skilja hvað hann er að fara. En kannski var lopinn í þinginu slappri pólitík að kenna og kannski verður auðveldara fyrir hann að verja eða sækja mál sem hafa upphaf og endi. Þegar Guðmundur tók við þingsæti úr hendi Alberts Guðmundssonar fyrir fjórum árum átti hann enga pólitíska fortíð — bara framtíð. Núna, fjórum árum seinna, á hann enga pólitíska framtíð — bara fortíð. ÁS SVp AP éo rALl Ná etfKi U/M féSSÁÍ I þe$5i MYfJp gé.;slar Pif tíREimsriA Framhald i næsta blaði

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.