Pressan - 21.03.1991, Page 31
ÍEkki er ljóst hvenær formleg
nafngift verður ákveðin á veitinga-
húsið í Öskjuhlíð en líklega mun
Davíð Oddsson
veita húsinu nafn
áður en hann hættir
sem borgarstjóri. Nú
þegar eru í gangi
nokkur nöfn eins og
Skopparakringlan,
Auðkúlan og síðast
en ekki síst Perlan. Síðasta nafnið
hefur löngum verið kennt við Morg-
unblaðið enda hugarfóstur þess. Nú
virðist DV vera komið í Perluliðið
því í langri fréttaskýringu á þriðju-
daginn má sjá þetta nafn í hverri
línu . . .
að hefur vakið athygli hversu
miklum útlitsbreytingum frambjóð-
endur Kvennalistans hafa tekið að
undanförnu og má
sjálfsagt líta á það
sem lið í kosninga-
slagnum. Mestum
stakkaskiptum hef-
ur Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
tekið og er hún vart
þekkjanleg á eftir. En útlitsbreyting-
ar stjórnmálamanna eru ekki bara
bundnar við kvenpeninginn. Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur
til dæmis skipt um greiðslu og er
kominn með létta sveiflu í topp-
inn ...
H
■ ■ andboltadeild Vals er sögð
undanskilin í vangaveltum um er-
lenda leikmenn og er talið að þeir
einbeiti sér að ís-
lenskum leikmönn-
um sem fyrr. Vitað
er að þeir munu
gera allt til að fá Sig-
urð Sveinsson til
sín aftur en samn-
ingur hans við Atlet-
ico Madríd renn ur út í vor. Ef Sigurð-
ur fer aftur í Val eru taldar góðar lík-
ur á því að það takist að lokka Pál
Ólafsson, gamlan félaga hans úr
Þrótti, í Val. . .
u
l^lú hefur Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra keypt
flugskýli af Flugfélaginu Örnum á
Isafirði á 45 milljón-
ir. Matsverð á flug-
skýlinu er hins veg-
ar ekki nema 23
milljónir. Ráðherr-
ann gefur því flugfé-
laginu 22 milljónir.
Það er rökstutt sem
stuðningur ríkisins við sjúkraflug frá
Isafirði og ætlar ráðherrann sjálf-
sagt að slá öll vopn úr höndum
gagnrýnenda með því. . .
G
ert er rað fyrir því að hand-
knattleikslið KR verði fyrir veruleg-
um blóðtökum fyrir næsta keppnis-
tímabil og tvær
helstu skrautfjaðrir
þeirra hverfi á brott.
Talið er að Páll Ól-
afsson fari í Val og
Konráð Olavsson í
Víking. Ef Víkingum
tekst að fá Konráð til
sín er gert ráð fyrir því að núverandi
hornamaður þeirra og þjálfari Guð-
mundur Guðmundsson snúi sér
alfarið að þjálfun . . .
VHBUIM
A-LISTINN
ngir
nn
aráttusætum
ZÍsland / A-flokk!
Guðmundur Árni Stefánsson
&
Össur Skarphéðinsson
á fundaherferð
Hvernig framtíð? Hvernig atvinnustefnu?
Hvernig landbúnað? Hvernig sjávarútveg?
Hvernig lífskjör? Hvernig skattheimtu?
Hvernig velferðarkerfi? Hvernig ríkisstjórn?
AKRANES SAUÐÁRKRÓKUR SIGLUFJÖRÐUR
Föstudaginn 22. mars Laugardaginn 23.mars Sunnudaginn 24. mars
Röstin kl. 21.00 Safnahúsið kl. 16.00 Alþýðuhúsið kl. 16.00
Fundarstjóri: Fundarstjóri: Fundarstjóri:
Gísli Einarsson Björn Sigurbjörnsson Kristján Möller