Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 7

Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. APRÍL 1991 7 SnRFSMEHN ÆFB YFIR RABNINGU GUBMIHDAR G.NRARIN Pólitískar mannaráðningar framsóknarmanna hjá Framkvæmdasjóði íslands og Byggðastofnun hafa kallað á hörð viðbrögð starfsmanna. Á fjölmennum starfsmannafundi í Starfsmannafélagi Framkvæmdasjóðs íslands og Byggðastofnunar, sem haldinn var í hádeginu í gær, var samþykkt að mótmæla harðlega pólitískum mannaráðningum hjá stofnunum. Fundurinn var haldinn í tilefni þess að fyrr um daginn hafði verið gengið frá ráðningu Gunnars Hilmarssonar í stöðu deildarstjóra hjá hlutafjárdeild Byggðastofnunar. Einnig höfðu borist spurnir af því að til stæði að ráða Guömund G. Þórarinsson alþingismann í stöðu aðstoðar- framkvæmdastjóra hjá Framkvæmdasjóði íslands. Olli fundurinn miklum titringi innan stofnananna og var ým- islegt gert tii að koma í veg fyrir að tíðindi spyrðust af honum. ..l>;i(Y vandamál seni virt starfs- menn erum aA fást við er að viO vilj- um hér áhvri>ar stofnanir. Astæðan fyrir því að Framkvæmdastofium var skipt upp fvrir sex árum var medal annars sií að mönnum þötti (if mikiö uni pólitískar ráönini>ar. Átti aö reyna aö lai>a þetta oi> má sem dæmi nefna aö ekki hefur veriö settur pólitíkus hér vfir um langt skeiö eins oi> var áöur þei>ar þeir Túmas Arnason oi> Srerrir Her- mannsson réöu ríkjum. Nú sýnist okkur hins vegar aö allt sé aö fara í sama horfiö hjá Steint>rími Her- mannssvni. Þaö sem vakir fvrir starfsmönnum er aö trygi>ja að þess- ar stofnanir séu ekki eingöngu álitn- ar einhverjar pölitiskar bitlinga- stofnanir heldur aö þetta séu stofn- anir sem hægt sé aö taka eitthvaö mark á." sagði Emil Bóasson. for- maöur Starfsmannafélags Fram- kvæmdasjóðs og Bvggöastofnunar. en ætlunin er aö senda út sérstaka fréttatilkvnningu um máliö í dag. GUNNAR RÁÐINN ÞRÁTT FYRIR AÐ HAFA MINNSTA STARFSREYNSLU OG MENNTUN í gær var gengið endanlega frá ráöningu (iannars Hilmurssonur í stööu deildarstjóra viö hlutafjár- deild Bvggöastofnunar. Hann haföi sem kunnugt er umsjón meö At- vinnutrvggingasjóöi þar til hann var lagöur niöur og var skipaöur í þá stööu vegna sérstakra tilmæla frá Sli'fáni Vali’eirssyni hjá Samtökum um jafnrétti og félagshyggju. Var sú mannaráöning hluti af samkomu- lagi sem gert var viö Stefán á meöan hann var stuöningsmaöur ríkis- stjórnarinnar. ..Meö þessari ráöningu Gunnars teljum viö aö brotnir séu á okkur kjarasamningar. I kjarasamningi bankamanna. sem viö vinnum eftir. segir aö bankastarfsmenn skuli eiga forgang aö störfum sem auglýst eru. Þaö voru hér þrír starfsmenn. sem hafa þótt afbragösmenn. sem sóttu um þetta starf. Þeir eru allir meö' lengri starfsreynslu en maöurinn sem var ráöinn. Allir meö meiri menntun en eru hins vegar ekki kenndir við pólitík." sagöi Emil. Samkvæmt heimildum PRKSS- UNNAR þá telja starfsmenn Bvggðastofnunar aö launakjör Gunnars séu meö öðrum hætti en tíökist í stofnuninni og njóti hann mun betri kjara en aörir starfs- menn. RÆTT LM AÐ GUÐMUNDUR G. ÞÓRARINSSON VERÐI RÁÐINN AÐSTOÐAR- FRAMKVÆMDASTJÓRI Um síðustu helgi var auglýst laus til umsóknar staöa aöstoöarfram- kvæmdastjóra Framkvæmdasjóös Islands. Pessi staöa var reyndar einnig auglýst fyrir um þaö bil ári síöan en auglýsingin var þá dregin til baka. Þaö mun hafa veriö eftir út- tekt ráögjafafyrirtækisins Hagvangs aö ákveöiö var aö búa til stööu aö- stoöarframkvæmdastjóra. Var þaö samkvæmt tillögu Hagvangs- manna. Þrátt fyrir aö staöan hafi aðeins veriö auglýst í þrjá daga er þegar kominn á kreik hávær orörómur um aö (iudmundur (í. Þórurinsson al- þingismaöur veröi ráöinn í stöðuna. Kr því haldiö fram aö þaö sé hluti af samkomulagi (iuömundar G. og Steinifrinis Hermannssonur til lausnar á framboösdeilum fram- sóknarmanna í Reykjavík. Þessi hugsanlega ráöning Guömundar var rædd sérstaklega á fundinum í gær. Kmil sagöi aö starfsmenn heföu sitthvaö viö starfsauglýsinguna sjálfa aö athuga og þaö heíöi reynd- ar ekki veriö fyrr en eftir athuga- semdir þeirra sem staöan var aug- lýst. Sama heföi átt viö um stööu þá er Gunnar var ráöinn í. Samkvæmt samningum á aö auglýsa stööu aö- stoöarframkvæmdastjóra í fjórar vikur en hún veröur aöeins auglýst i tvær vikur. Kf hún er auglýst skem- ur en fjórar vikur á aö leita sam- þykkis starfsmannafélagsins. Þaö var ekki gert. — Er />ud rétl ui) starfsrnenn telja ad þad eii>i a<) rádu (ludmund (i Þórarinsson i starf adstofíarfram- kvunndustjórru? ..Okkur er sagt aö þaö sé búiö aö ákveöa aö Guömundur G. Þórarins- son veröi ráöinn í þessa stööu. Þar veröur áfram gengiö framhjá hæf- um starfsmönnum sem eiga forgang aö starfinu samkvæmt reglunum. Starfsmenn innan stofnunarinnar og bankamenn annars staöar frá hljóta aö sækja um starfiö og sam- kvæmt kjarasamningum eiga þeir aö hafa forgöngu. Guömundur G. uppfyllir ekki kröfu kjarasamnings- ins um þaö aö liann sé bankamaöur. Hann hefur enga starfsreynslu héö- an þannig aö þarna viröist fyrst og fremst vera um aö ræöa pólitískan greiða." sagöi Kmil. FYRIRTÆKI GUÐMUNDAR HAFA STOFNAÐ TIL MIKILLA SKULDA HJÁ FRAMKVÆMDASJÓÐI Þaö sem mörgum finnst hvaö al- varlegast viö hugsanlega ráöningu Guömundar er aö fyrirtæki á hans vegum hefur stofnaö til mikilla skulda viö Framkvæmdasjóö. Þaö er fiskeldisfyrirtækiö ísþór hf. viö Þorlákshöfn en (iuömundur var þar lengi vel einn aöaleigandi og í stjórn fyrirtækisins. Hann hætti reyndar sem stjórnarformaöur þess á síöasta ári og þá hefur PRKSSAN heimildir fyrir því aö hann hafi aö undan- förnu veriö aö reyna aö selja sinn hlut. Þar sem ekki náöist i Guö- mund, þrátt fyrir ítrekaöar tilraunir. þá fékkst ekki niöurstaöa um þaö hvort hann er búinn aö selja sinn hlut. Starfsmenn Framkvæmda- sjóðs og Byggðastofnunar telja ráðningu Guðmundar vera brot á samningum. ísþór er einn af stærstu skuldur- um Framkvæmdasjóös og má sem dæmi nefna aö á árunum 1987 til 1989 lánaöi sjóöurinn fyrirtækinu 111 milljónir króna aö núvirði. Margir innan stofnunarinnar halda því fram aö meö ráöningu aö- stoöarframkvæmdastjóra sé í raun veriö aö taka ákvöröun um hver veröi næsti forstjóri Framkvæmda- sjóðs íslands. Núverandi forstjóri er (iudmundur B. Olafsson og er ekki langt í þaö aö hann láti af störfum vegna aldurs. Á fundi starfsmanna í gær var einnig rætt um tvær nýlegar mannaráöningar hjá stofnununum sem einnig áttu sér stað aö frum- kvæöi framsóknarmanna. í fyrra var Þórdar Ólafsson ráðinn sem sér- stakur ráðgjafi Framkvæmdasjóðs í fiskeldi en hann var áður fram- kvæmdastjóri íslandslax. Um þaö var fjallaö itarlega í PRKSSUNNI á sínum tíma. Áöur haföi PáU Jómsson veriö ráöinn til Byggöastofnunar en hann starfaöi hjá Meitlinum í Þor- lákshöfn. Báöar þessar mannaráön- ingar eru taldar eiga pólitískar or- sakir. Sigurdur Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.