Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. APRÍL 1991
29
Bubbi Morthens og Utangarðsmenn. Asamt Megasi var hann ekki
í náðinni hjá fyrstu einkastöðinni, Bylgjunni.
lög. Nokkrum árum áður, árið 1952,
hafði plata með laginu „Ég vildi ég
væri (hænuhanagrey)" í flutningi
Svavars Lárussonar verið brotin í
beinni útsendingu. Benedikt Grön-
dal síðar alþingismaður, ráðherra
og sendiherra framkvæmdi verkið,
en hann var jafnframt höfundur
textans þótt það færi leynt á þessum
árum. Það var textinn sem fór mjög
svo fyrir brjóstið á hlustendum, en
lagið naut mikilla vinsælda um tíma
og fékk mikla spilun í útvarpi.
Fyrsta rokklagið með íslenskum
texta „Vagg og velta" fór á bannlista
Ríkisútvarpsins. Lagið kom út árið
1957 í flutningi Erlu Þorsteinsdóttur
við undirleik danskra hljóðfæraleik-
ara. Höfundur textans var Loftur
Guðmundsson, sem starfaði þá sem
blaðamaður. Viðbrögð útvarpsins
báru tilætlaðan árangur í þetta
skiptið. Lagið var bókstaflega þagað
í hel. Sakarefni textahöfundar var
að snúa út úr þjóðararfinum, með
því að nota gömul vísubrot og hend-
ingar.
ALLT Á FLOTI í i
5000 EINTÖKUM
Hins vegar tókst ritskoðurum út-
varpsins verr upp með „Allt á floti"
sem Skapti Ólafsson söng inn á
plötu árið 1958. Textinn var eftir þá
Björn Braga, Jón Sigurðsson og
Gunnar Reyni Sveinsson, en hann
útsetti jafnframt lagið og var einn af
hljóðfæraleikurunum. „Allt á floti"
fékk spilun í útvarpinu fyrst í stað
vegna fjölda áskorana frá hlustend-
um, en var síðar bannað. Þessi við-
brögð virðast hafa stóraukið áhuga
fólks á plötunni, því þrátt fyrir að
fólk ætti almennt ekki plötuspilara á
þessum árum seldist platan í hátt í
5000 eintökum. Skapti segir að
þessi ákvörðun og umtalið sem
fylgdi í kjölfarið hafi síður en svo
valdið honum óþægindum.
Upp úr 1960 dró til tíðinda. Þá
voru íslenskir popparar farnir að
bregða fyrir sig alþjóðamáli popp-
ara, enskunni, og lög eins og Kadi-
lak með Dátum og „Tonight Is The
End" með Óðmönnum voru falin
dyggilega í plötusafni útvarpsins.
OMAR VARÐIST FIMLEGA
Árið 1962 hafði lagið Karlagrobb
með Ómari Ragnarssyni verið
bannað og nokkrum árum síðar Jón
á líkbörunum með Pónik og Einari.
Síðar heyrðist að Ómar hefði sjálfur
bannað lög með sér, árið 1966. Þetta
er að nokkru leyti rétt, segir Ómar:
„Fyrst var Karlagrobb bannað og
þar með plötunni hent með öllu sem
á henni var. Þegar ég gaf síðar út
gamanvísnaplötu, með 10 eða 12
lögum, þótti ófært að láta eitt eða
tvö lög sem voru eitthvað vafasöm
verða til þess að allri plötunni væri
hent. Þess vegna tókum við þá
ákvörðun að strika sjálfir út 2 lög á
plötunni. Annað hét „Stjórnmála-
syrpa" og hitt hét „Greyið Jón".“ Að
sögn Ómars var Árni Thorsteinsson
aðal ritskoðari útvarpsins á þessum
árum.
Svo var það ekki fyrr en með
plötu Trúbrots árið 1969 sem bann-
stimpillinn var aftur notaður. Lagið
„Elskaðu náungann" af þeirri plötu
var bannað en um er að ræða út-
setningu með íslenskum texta á
P'lagrímakór Wagners. Konuþjófur-
inn fékk sömu meðferð. í Konuþjóf-
inum dugði málvilla til, en þar segir
Gunnar Þórðarson „bóndi upp í
sveit sem átti eina kýr".
ALLT A FLOTI
Það er allt á floti alls staðar,
ekkert nema sjór.
En segðu mér: Hvað get ég annað en hugsað til þín,
sem heima bíður mín?
Ég sigli um heimsins höf,
hætti oft á fremstu nöf.
Lít ég Grænlandsfjöll og Grikklandsstorð,
en garpar syngja um borð.
Eitt
Viðlag: Allt á floti.. .
Oft er svalt á sjó,
sjaldan fæ ég næturró.
Alltaf maginn í mér ólmast fer,
ef aldan byltir sér.
Allt á floti. . .
Oft er kátt í höll,
alls staðar er gleðin jöfn,
því að ástin logar alltaf björt,
þótt öll sé meyjan svört.
Allt á floti...
En er ég aftur sný,
alveg skal ég gleyma því,
því að upp úr svefni þá er hjá mér
ég ei skal tala af mér.
Allt á floti.
Ég kem til þín í kvöld,
við kossa blíða og ástar eld,
bæði gleymum við stund og stað,
ég segi ei meira um það.
Þá verður allt á floti alls staðar
ekkert nema. . .(ummmmmm)
Hvað get ég annað en hugsað til þín
sem heima bíður mín?
lag á tvöföldu
albúmi Óð-
manna var bannað,1
en þar var talað
um „náttúruleysi". Tvö
önnur dæmi um notkun þess
orðs hafa einnig orðið til þess'
að banna spilun í útvarpinu.
Táningasveitin:
Ævintýri fetaði í fótspor,
Trúbrots og kom með eiginj
útsetningu á Pílagrímakórnum,
„Frelsarinn" og var sú útsetningj
einnig bönnuð árið 1970.
f LAGI „AÐ RÍÐA“
Sjónvarpið kom einnig við sögu á
þessum árum. Þáttur með hljóm-|
sveitinni Náttúru var aldrei sýndur,
en þar lék hljómsveitin útsetningu
sína á verki eftir Grieg.'
Þáttur sem Kombó Þórðar Hall
gerði var heldur ekki sýndur.
í þeirri hljómsveit voru meðal
annarra Egill Eðvarðsson
kvikmyndagerðarmaður'
og Áskell Másson tónskáld.
Árið 1981 voru tvö lög með Kam-
arorghestunum bönnuð, „Bíttu í
rassgatið á þér" og „Samviskubit".
Kvenréttindakonum þótti máli hall-
að, að segja „samviskubit
aðfásérá snípinn“.!
Á sama tíma heyrðist hins
vegar lagið „í nótt" meðj
Fræbblunum, en þar segir
„í nótt, í nótt, ég ætla að
ríða þér í nótt". Árin á
undan voru einnig nokkur
lög í óformlegu banni, svo
sem „í bláum skugga..."
með Stuðmönn-
(Texti Björns Braga, Jóns Sigurössonar og Gunnars Reynis Sveinssonar.
Flutningur Skapta Ólafssonar á síöasta erindinu fór einkum fyrir brjóstiö
á ritskoöurum Ríkisútvarpsins).
um, sem heyrðist þó öðru hverju.
Fyrsta plata Megasar heyrðist ein-
faldlega ekki, en hún kom út árið
1972. Dagskrárgerðarmenn sem
vildu bregða henni á fóninn fundu
hana ekki í plötusafninu.
VONBRIGÐI í REYKJAVÍK
Af samtölum við tónlistarmenn
og þá sem kynnt hafa sér þessa sögu
kemur fram að oftast hafi verið erf-
itt að rekja ákvörðun um bann til
einhvers eins ákveðins starfsmanns
Ríkisútvarpsins, en hin síðari ár
beindust sjónir manna að Þorsteini
Hannessyni tónlistarstjóra. „Þetta
er margra ára gamall uppspuni,"
sagði Þorsteinn Hannesson þegar
PRESSAN bar þetta undir hann. „Ég
var tónlistarstjóri í átta ár og mér
persónulega er ekki kunnugt um að
það hafi verið bönnuð plata nema í
sárafáum tilfellum að ósk flytjend-
anna sjálfra. En það er fullt af plöt-
um sem okkur hefur ekki fundist
ástæða til að spila. Það geta verið
plötur eftir frægustu menn, því
mönnum eru mislagðar hendur."
Einkum virðast tvær aðferðir hafa
verið notaðar til að framkvæma
bann, annaðhvort stóð á plötunni
að ekki mætti leika tiltekið lag, eða
að búið var að rispa gróflega yfir
það.
Auk beinna afskipta starfsmanna
útvarpsins eru nokkur dæmi um að
útvarpsráð hafi hlutast til um tónlist-
arval dagskrárgerðarmanna. Þegar
vinstri meirihlutinn féll í Reykjavík
spilaði Ævar Kjartansson lagið „Ó
Reykjavík" með hljómsveitinni Von-
brigði. Ævar var kallaður inn á
teppið. Einnig hlutaðist útvarpsráð
til um að Ragnheiður Ásta Péturs-
dóttir gæfi Heimavarnarliðinu frí,
en hún þótti setja það ískyggilega
mikið á fóninn, einkum lagið,
Vögguvísu eftir Böðvar Guðmunds-|
son. Það voru sem kunnugt er her-
stöðvarandstæðingar sem stóðu að
gerð þessarar plötu með Heima-
varnarliðinu.
BOÐ OG BÖNN HÖFÐU
ÁHRIF Á TEXTAGERÐINA
Gestur Guðmundsson þjóðfélags-
fræðingur segir að bannfæringar
Ríkisútvarpsins hafi eflaust haft
áhrif á textagerðina. „Bann í út-
varpi þýddi oftast að platan féll, þótt
„Allt á floti" sé þar skemmtileg und-
antekning. En fyrir suma voru boð
og bönn einnig hvatning og ögrun.“
Gestur segir jafnframt að rekja megi i
til Kanaútvarpsins að áhrifa ritskoð-
unar gætti ekki jafn mikið hér og
víða annars staðar. Þar var leyft
mun meira frjálsræði en í Bandaríkj-
unum sjálfum. „En ef Ríkisútvarpið
og Morgunblaðið urðu sammála um
siðferðismörkin gat fátt fengið því
breytt. Og besta tæki þeirra var
þögnin."
Með almennari plötuspilaraeign
og fjölgun útvarpsrása hefur reynst
erfiðara fyrir ritskoðara að beita sér.
Öðru hvoru hefur þó mátt sjá til-
hneigingar í þá átt. Bubbi og Megas
voru á tímabili í straffi á Rás 2, svo
og á Bylgjunni, fyrstu útvarpsstöð-
inni í einkaeign. Og líklega munu
popparar um ókomna tíð telja að sér
vegið með þögninni, jafnvel þótt í
sumum tilfellum megi skýringuna
finna í óboðlegu efni sem frá þeim
kemur.
Stuðmannalagið „I bláum skugga" heyrðist afar sjaldan þrátt fyrir
miklar vinsældir.
Skapti Ólafsson og hljómsveit. „Allt á floti" varð fyrsta metsölu-
rokkplatan þrátt fyrir bann Rikisútvarpsins.
Tveir fréttamanna Stöðvar 2
munu að líkindum hætta störfum í
haust og hverfa til náms, þau Karl
Garðarsson og
Hulda Styrmis-
dóttir. Ekki er ólík-
legt að eitthvað af
því afleysingafólki
sem kemur til starfa
í sumar á fréttastofu
Bylgjunnar og
Stöðvar 2 fylli skörð þeirra. Heyrst
hefur að Heimir Már Pétursson
ritstjóri Norðurlands á Akureyri, áð-
ur blaðamaður á Þjóðviljanum,
verði í hópi sumarmanna fréttastof-
unnar...
yrir hönd borgarfulltrúa Nýs
vettvangs mun Ólína Þorvarðar-
dóttir í dag leggja fram tillögu um
að borgarstjórn
veiti, samkvæmt til-
nefningum lögreglu.
viðurkenningu þeim
vínveitingahúsum í
Reykjavík, sem til
fyrirmyndar eru og
uppfylla vel og
dyggilega ákvæði um rekstur vin-
veitingahúsa. Með þessu vilja borg-
arfulltrúarnir ýta undir jákvæða
umra'ðu vftir fréttaflóð að undan-
íörnu um róstur og ofbeldi í borg-
imii. sem í flestum tilfellum er rakið
til misnotkunar áfengis og annarra
vímuefna . . .
n
V var með sérstaka frétt í vik-
imni. þar sem greint var frá sérstakri
ána'gju stjórnmálaforingjanna með
..beina línu" blaðs-
ins. þeir hefðu talað
um ..ígrundaðar
spurningar", „mál-
efnalegar og vitræn-
ar". Þessi frétt er at-
hyglisverð. sérstak-
lega i Ijósi þriggja
siðna umfjöllunar um spurningar til
og svör Júlíusar Sólnes frá frjáls-
lyndum. Péturs Guðjónssonar frá
Þjóðarflokknum-Flokki mannsins
og Tómasar Gunnarssonar frá
I leimastjórnarsamtökunum Af
sautján spurningum til .lúlítisar voru
þrjár frá blaðamönnum l)V. Af þrett-
án sptirningum til Péturs voru sjö frá
blaðamönnum l)V. Af fjórtán spurn-
inguni til Tómasar áttu blaðamenn
l)V átta. Með öðrum orðum var
önmir liver spurning til þessara for-
mgja. samtals 18. frá blaöamönnum
DV. þar af 10 frá Hauki Lárusi
tiaukssyni. Það var svo einmitt
llaukur sem skrifaöi fréttina um
hversu spurningarnar hefðu þótt
vitnenar og ígrundaðar . . .
s
^^tarfsmenn Ríkisútvarpsins eru
roggnir jx'ssa dagana eftir að niður-
staðii kom i mjög umfangsmikilli
hlustendakönnun
Gallups. Þykir þeim
sem samanburður-
inn við Bylgjuna sé
að verðii sífellt hag-
stæðari fyrir Rás 2.
Það er sérstaklega á
tímaimm frá !) til I
sem Rás2 hefur unnið á en þar voru
yfirlnirðir Bvlgjunnar nokkrir. Kr
þessi breyting meðal aimars þökkuð
Þorsteini J. Vilhjálmssyni sem
liefur haft yfirumsjón með þessum
tíma síðan um áramót . . .