Pressan - 03.05.1991, Side 2
2
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAÍ 1991
Tónlistarmenn ætla ekki
að sitja auðum höndum
nú í maímánuði þegar
hvalaráðstefna verður
haldin hér á landi. Und-
anfarið hafa nokkrir tón-
listarmenn unniö aö tón-
list við myndband sem
MAGNÚS GUÐMUNDS-
SON, sem gerði myndina
umdeildu Líf í Norður-
höfum, er að vinna að.
Myndin er sjálfsagt ekk-
ert gleðiefni fyrir Græn-
friðunga enda hafa sam-
tökin og Magnús löng-
um eldað grátt silfur
saman. Á myndbandinu
verður tekinn málstaður
litilla þjóða gegn Græn-
friðungum.
Sá sem semur lagið við
myndbandið er tón-
listarmaðurinn MAGNÚS
ÞÓR SIGMUNDSSON, en
með honum vinna þeir
HILMAR ÖRN HILMARS-
SON galdramaður og
tónlistarmaður og TÓM-
AS TÓMASSON tónlistar-
maður.
Og talandi um MAGNÚS
ÞÓR SIGMUNDSSON þá
má geta þess að hann er
að fara að vinna að
myndbandi við lag sitt
„ísland er land þitt". Lag
Magnúsar er oröið aö
nokkurs konar poppuð-
um þjóðsöng sem sung-
inn er við öll möguleg og
ómöguleg tækifæri. I
myndbandinu verða
fyrst og fremst náttúru-
lífsmyndir frá íslandi —
allt voða íslenskt.
Heldurðu aö Stefán
eyðileggi þetta líka fyr-
ir Eyjólfi, Sverrir?
„Þad þarf ekki Stefán til
aö eyöileggja eitt né neitt.
Evrópskir lagahöfundar
eru búnir að því fyrir
löngu. “
Stefán Hilmarsson söng með Sverri
Stormsker lagiö um Sókrates í Evr-
ópusöngvakeppninni árið 1988. Þeir
lentu i hinu margfræga 16. sæti.
Guðmundur Freyr Æv-
arsson og Aron Hjartarson,
tvítugir Fteykvíkingar, hafa
nú yfirtekið skemmtana-
stjórn á skemmtistaðnum
Lídó við Lækjargötu. Ætlun-
in er að færa meira lífí Lídó,
og ættu þeir Guðmundur
Freyr og Aron að vera færir
um það. En þeir tilheyrðu
meðal annars 26. maí-hópn-
um, þeim hinum sama og
stóð fyrir veislum einu sinni
í mánuði, hér og þar í bæn-
um, síðastliðið sumar. Hvað
framundan er í Lídó er eigin-
lega leyndarmál, en PRESS-
AN veit að í kvöld verður
sérstakt HURÐAR-kvötd
(Doors) með tískusýningu í
anda þeirra tíma, vín- og
matarkynningu. Svo ef
framhaldið verður
sama hætti ætti engum
að þurfa að leiðast
í Lídó.
Eiður Eysteinsson er tvítugur Reykvíkingur, fæddur 1. desember 1970 og til-
heyrir því bogmannsmerkinu. Eiður er ekki í föstu sambandi, en það er ekki þar
með sagt að hann sé á lausu. Hann segist engan tíma hafa fyrir slíkt, enda nóg að
gera hjá honum við að búa til auglýsingar fyrir auglýsingastofuna ÓS, sem hann
á með félögum sínum.
Hefur þú lesið biblíuna? Nei.
Hvað gerir þú á sunnudagsmorgnum?
Reyni aö sofa út.
Hefur þú komið til ísafjarðar? Nei.
Ætlarðu að eignast börn? Þaö verður
tíminn aö leiöa í Ijós.
Klæðirðu þig eftir veðri? Já, ég geri þaö.
En er samt oftast frekar léttklæddur.
Syngur þú í baði? Nei, ég er rosalega
falskur.
Hvaða rakspíra notar þú? Ýmsa rak-
spíra. Til dæmis Eternity og Salvador
Dali.
Ertu morgun- eða kvöldmanneskja?
Kvöldmanneskja.
Ferðu einn í bíó? Nei, meö vinum mín-
um.
Ertu góður dansari? Nei, ferlegur.
Á hvaða skemmtistaði ferðu? Þá sem
eru vinsælastir hverju sinni.
Ertu hrifinn af þungarokki? í hófi.
Trúirðu á ást við fyrstu sýn? Já, já.
En líf eftir dauðann? Já.
Ertu daðrari? Stundum.
Hvað viltu verða miklu rikari en þú ert
í dag? Miklu.
Ef ég gæfi þér fyrir lýtalækningaað-
gerð, hvað myndir þú láta laga? Eyrun.
Hvers konar stelpur eru mest kynæs-
andi? Þaö er misjafnt hvaö er kynæsandi
í fari kvenna.
Hvað borðar þú í morgunmat? Misjafnt.
Oftast Cheerios.
Varstu skotinn í kennaranum þínum?
Nei.
Finnst þér gott að láta klóra þér á bak-
inu? Já, ótrúlega gott.
Notarðu strætó? Ekki ef ég kemst hjá
því.
Hvort finnst þér betri hamborgari eöa
pitsa? Pitsa.
Hugsar þú mikið um í hverju þú ert?
Ekki alltof mikið.
Hvað má vera mikill aldursmunur á pör-
um? Þaö fer eftir því hvaö fólk er þroskað.
Gætirðu hugsað þér að búa úti á landi?
Nei.
Ertu hræddur við einhver dýr? Nei, nei.
Hvernig bíl langar þig í? BMW.
Kanntu að elda? Ég er ótrúlega góöur
kokkur.
Ferðu oft í megrun? Nei.
Hvaða orð lýsir þér best? Ég veit það
ekki.
Hvernig ferðalag langar þig í? Heims-
reisu.
Trúir þú á líf á öðrum hnöttum? Þaö
hlýtur aö vera. Þaö eru svo margir aörir
hnettir til. Þaö getur ekki verið aö það sé
bara líf á jöröinni.
a
Stúlkan á bakirið heitu atriðin
Það virðist enginn skemmtistaður í borg-
inni lifa af i samkeppninni nema hann bjóði
upp á eitthvað meira en húsnæði fyrir gesti til
að skemmta sér i sjálfir. Uppákomur og sýn-
ingar ýmiss konar eru hugsaðar upp til að laöa
þá aðog er þá ekki verra að þær séu heitar og
helst með erótisku ivafi. Þær sem hvað mesta
athygli hafa vakið á Yfir strikinu síðustu vikur
koma úr hugmyndasmiðju ungrar Reykjavik-
urmeyjar, Eydísar Eyjólfsdóttur. Eydis er búin
að kenna dans síðan hún var fimmtán ára, eða
ísjö ár, og hefur auk þess tekið þátt i fjölmörg-
um sýningum. Þessa dagana er hún þó ein-
göngu i þvi að semja atriði fyrir aðra,
því hún er að jafna sig eftir
uppskurð á hné.
Meðal atriða sem Eydis hefur
æft og sýnd hafa verið á
Yfir strikinu eru Heit
hjörtu og Levis-atriðið
LÍTILRÆÐI
af rambómynd
Mér finnst eiginlega frekar
gaman að eldast, þó undar-
legt megi virðast, því í nærri
heila mannsævi er ég búinn
að kvíða því að verða gamal-
menni.
Ég er enn við þolanlega
heilsu, get tekið þátt í sam-
ræðum ef ekki er verið að
ræða eitthvað sem er þeim
mun flóknara einsog Efna-
hagsbandalagið eða „ís-
lenska kvikmyndavorið".
Ég sé enn nokkurnveginn
það sem ég vil sjá, heyri það
sem ég vil heyra og „er með
mínar", einsog sagt er á ís-
landi um tennurnar.
Ég kemst hjálparlaust á
klósettið og hitti með bun-
unni venjulega beint á réttan
stað, því enn sé ég nokkuð
vel frá mér.
Og þó ég lesi að vísu ekki
lengur glerauganalaust
reyni ég að fylgjast með og
geri það með því að lesa
blöðin.
Og þarmeð eignast ég
hlutdeild í íslensku þjóðar-
sálinni fyrirnúutan að hana
er hægt að fá beint í æð í
símatíma Rásar 2.
Mér finnst ekki nema
sanngjarnt að útivinnandi
kvenfólk hafi fimmtíuþús-
und á mánuði og karlmenn
sjötíuþúsund og borgi af því
skatt til að halda þjóðarskút-
unni á floti.
Ellilífeyririnn finnst mér
líka rausnarlegur og undrast
vanþakklætið og sultarsöng-
inn í óvinnufærum gamlingj-
um sem sífellt eru að tuða í
fjölmiðlum um það að þeir
þurfi að eiga fyrir salti i
grautinn.
Persónulega hlakka ég til
þegar að því kemur að fara
að lifa af ellilífeyrinum mín-
um og ég hugsa sem svo:
— Það er ekkert sjálfgefið
að^amalt fólk eigi að lifa af.
Eg er líka hættur að nenna
að lesa um neyðarhjálp Sam-
einuðu þjóðanna í blöðun-
um og sveltandi börn í fjar-
lægum álfum.
Þessístað horfi ég í vídeó-
inu á Rambómyndir sem eru
að ég held fyrirmyndin að
því þjóðfélagi sem er að þró-
ast á íslandi.
Og enn ber ég fyrir brjósti
þá sem lífið hefur leikið grátt
og les jafnan dagvissar frétt-
ir dagblaðanna af ógæfu,
neyð og örvæntingu fólks
sem er í sviðsljósinu í Amer-
íku.
Tíminn sagði til dæmis frá
því á dögum að leikkonan
Cheril Ladd og framleiðand-
inn Brian Russel væru nú á
barmi örvæntingar af þvi að
þau hafi orðið að selja að-
gangskortið sitt að fínum
sveitaklúbb á 22.500 dollara
og flytja úr villunni sinni í
Hollywood, yfirgefa fimm
svefnherbergi, vinnukonuí-
búð, gestahús, bókasafn,
sundlaug, biljard, tennisvelli
og útsýni yfir hafið.
Þá var skýrt frá því á einni
af mannúðarsíðum Morgun-
blaðsins tveim dögum eftir
kosningar að Ivana Trump
verði að fara að herða sultar-
ólina því hún fái ekki ne'ma
50 milljón dollara útúr skiln-
aðinum við Donald Trump
og þaraðauki situr hún uppi
með öll börnin.
Kjörin eru nefnilega kröpp
víðar en hjá vanþróuðum og
áherslurnar í fréttaflutningi
blaðanna undirstrika það
svo sannarlega.
En mér létti stórum þegar
Tíminn skýrði frá því í vik-
unni að Tvídrangar hefðu
gerbreytt lífi leikkonunnar
Sheryl Lee.
íslensku dagblöðin eru
semsagt minn draumaheim-
ur.
Kannske hefur „íslenski
draumurinn" ræst á Bíldudal
á dögunum þegar umsáturs
ástand varð þar útaf byssu-
glöðum fiskverkunarmanni.
VAR EINSOG í RAMBÓ-
MYND, var fyrirsögnin í DV.
Vonandi á íslenska þjóðin
þá tilvistarsælu í vændum
sem ekki verður notið til
fullnustu nema í RAMBÓ-
MYND.
Flosi Ólafsson