Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 15

Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 15
15 o pnun tilboða í nokkra bygg- ingarhluta Fljótsdalsvirkjunar fer fram í stjórnstöð Landsvirkjunar í dag. Þar verður j menni samankomið, manna Landsvirkj- ■ unar sem hefur skipt um: Halldór Jóna- tansson forstjóri flytur ávarp, Þor- bergur Halldórsson innkaupa- stjóri opnar tilboðin í þeirri röð er þau bárust, Örn Marinósson skrif- stofustjóri tilkynnir nafn bjóðanda og yfirfer tilboðstryggingu, Helgi Bjarnason deildarverkfræðingur athugar tilboð, sérstaklega hvort fráviksboð fylgi tilboði, Agnar Ol- sen forstöðumaður verkfræðideild- ar les uppboðstölur, Ingvar Björns- son yfirverkfræðingur skráir til- boðstölur og fylgist með að rétt sé upp lesið, Gísli Gíslason yfirtækni- fræðingur skráir tilboðstölur og fylgist með á skjá að réttar tölur séu slegnar inn og sýndar á tjaldi. Að endingu flytur Halldór Jónatans- son lokaorð. . . D ■ mitstjóri Alþýðublaðsins, Ing- ólfur Margeirsson, hefur fengið starfsleyfi fram að næstu áramót- um. Ingólfur hyggst verja næstu mánuð- um við ritun bókar um Árna Tryggva- son leikara og trillu- karl. Þeir félagar hyggjast eyða sumr- inu í Hrísey, þaðan sem Árni hefur gert út. Bækur Ing- ólfs hafa vakið töluverða athygli, einkum bókin Lífsjátning, sem fjall- aði um ævi Guðmundu Elíasdótt- ur, en bókin var tilnefnd til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma. Það er bókaútgáfan Örn og Örlygur sem gefur út ævi- minningar Árna. .. 11 tvarpsstjori FM 957, Sverrir Hreidarsson, hyggst færa út kví- arnar á fjölmiðlasviðinu. Fyrir hönd fyrirtækisins Ferskur miðill hefur hann sent bréf til útvarpsréttar- nefndar, þar sem hann óskar eftir leyfi til sjónvarpssendinga. Sam- kvæmt umsókninni er fyrirhugað að reka afþreyingarsjónvarp fyrir landsmenn í um 70 til 80 klukku- stundir á viku, auk þess sem leitast verður við að færa landsmönnum fréttir. Forsvarsmenn Fersks miðils munu þegar hafa rætt við Póst og síma um hugsanlega senditíðni sem er fyrirhuguð á UHF bylgju- breidd.. . áttur Þorsteins Pálssonar í stjórnarmyndunarviðræðunum vakti mikla athygli. Kröfuharka --------hans mun hafa sett I Davíð Oddsson í ! mikinn vanda og þá ■ mun yfirlýsing Þor- Hfj steins á mánudegin- W | um um að veiði- ^ j leyfasala kæmi ekki --------ÍDI| til greina hafa sett spennu í viðræðurnar. Þorsteinn mun hafa sýnt nýja og óvænta takta í baráttu sinni og endaði meðal ann- ars á því að gera bandalag við Hall- dór Blöndal sem tryggði Þorsteini sjávarútvegsráðuneytið og Halldóri landbúnaðar- og samgöngumálin. Óttast stuðningsmenn Davíðs að Þorsteinn ætli sér að vera í stjórnar- andstöðu innan Sjálfstæðisflokks- ins, svipað og Gunnar Thorodd- sen gerði á sínum tíma ... lEkki er langt síðan verktakafyr- irtækið Steintak var lýst gjaldþrota. Aðaleigandi Steintaks var Vignir Benediktsson en hann stofnaði fyrirtækið Völundarverk til að klára verkið við Skúlagötu. Enn er allt óvíst með hvort það gengur eftir. Á meðan berast fréttir af því að Völ- undarverk sé að berjast á verktaka- markaðinum og hafi nýlega fengið úthlutað verki við Húnavallaskóla. Er þar um að ræða byggingu íþrótta- húss og er verkið upp á 40 til 50 milljónir króna. . . s ^^öngvaseiður í Þjóðleikhúsinu hefur gengið mjög vel. Sýningin verður á fjölunum út júní en þá þarf að skila búnaði sem fenginn var að láni fyrir sýninguna og verður því ekki unnt að taka hana upp að hausti. Pétur Gautur mun því verða að rýma til fyrir Söngvaseiði og eru því síðustu forvöð að sjá það verk... ...á húseignum, skipum, verksmiÖjum og nánast hverju sem er. Við notum traktorsdælu af öflugustu gerS. Vinnuþrýstingur er 400 kg/cm2. sem þýðir aS við getum bæði hreinsaS yfirborS málningarinnar og/eSa fjarlægt hana aS öllu leyti. Háþrýstiþvottur eSa votsandblástur er forsenda þess aS málning endist! /VMR Sími: 91 - 623036. Bilasími: 985 - 34662. SímboBi: 984-52053. SIEMENS Þvottavélar Þurrkarar Uppþvottavélar Eldavélar Örbylgjuofnar Gœfiatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 úas1"0" Þar sem svarseðlar hafa enn ekki boríst frá öllum stöðum á landinu. frestast útdráttur í FERÐAGETRAUN í A-FLOKKI um eina viku. Með þökk fyrir þátttökuna. ALÞYÐUFLOKKURINN JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.