Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 7

Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAÍ 1991 7 RAFMAGNSLAUST LÐMHUSIU/EBI TBdfiURHONM LBGUBRASKAM fasteigna. Búnaðarbankinn hefur rift sölu á Skipholti 7 til Austurvanes hf. Þar máttu 10 leigjendur Búnaðarbankinn sagði hingað og ekki lengra í herbergja búa við rafmagnsleysi frá mánaðamótum, óþrifnað og aðstöðuleysi. máiiskiphoits?. * Helgi Rúnar Magnússon lögfræðingur, stofnandi fjölda fyrirtækja og eigandi nokkurra Búnadarbanki íslands hefur rift sölu bankans á fast- eigninni Skipholti 7 tii Austurvangs hf., sem er fyrirtæki Helga Rúnars Magnússonar lögfræðings og fleiri. Fast- eign þessa keypti Búnadarbankinn á nauðungaruppboði en seldi Austurvangi í ágúst 1989 á 29 milljónir króna. Austurvangur greiddi fljótlega 3 milljónir króna, en í tæpt ár hafa vanskil hrannast upp. Auk vanskila á kaup- verði var húseignin nær lent á nauðungaruppboði vegna vanskila á fasteignagjöldum við Gjaldheimtuna og þurfti Búnaðarbankinn samkvæmt heimildum blaðsins að snara út alls um 700 þúsund krónum vegna þess að eign- in er enn þinglýst á bankann. Um leið hefur húsnæðið verið í niðurníðslu eftir að hafa verið hólf- að niður í 15 herbergja leiguhús- næði. Leigutakar herbergja í Skip- holti 7 hafa verið rafmagnslausir í 3 vikur vegna um 500 þúsund króna vanskila Austurvangs við Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Sumir leigutaka flúðu reyndar húsið fljót- lega, þrátt fyrir að hafa greitt leigu fyrir apríl. Helgi Rúnar Magnússon hefur verið umsvifamikill í fasteigna- rekstri og fjárfestingum síðustu ár og er nafn hans að finna á bak við ýmis fyrirtæki auk Austurvangs. Má þar nefna Lögtak hf., Rúnar hf., Stelk hf., Norðurvang hf. og Lög- fræðimiðstöðina hf. Aðalbæki- stöðvar fyrirtækja Helga Rúnars eru að Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi. Þar er einnig að finna lögmanns- stofu Skúla Sigurdssonar, sem er með Helga í Lögtaki hf. MISSTU ÓPALHÚSIÐ EN KEYPTU SJÁLFIR Á UPPBOÐI Meðal stofnenda Austurvangs var Kristján V, Kristjánsson, fyrrverandi samstarfsmaður Sigurdar Arnar Sigurdssonar og Sigurðar H. Gard- arssonar i Hagskiptum. Kristján seldi hlut sinn í Austurvangi þó fljót- lega að eigin sögn. Helgi Rúnar er liðlega þrítugur lögfræðingur, sem átti stóran þátt í öðru fasteignamáli við Skipholt, sem PRESSAN greindi frá í febrúar síðastliðnum. Fyrirtæki Helga Rún- ars, Sigurdar R. Sigurjónssonar og Ólafs Más Sigurdssonar, Stelkur hf., keypti stóran hluta húseignarinnar Skipholt 29 í júlí 1989 fyrir 33 millj- ónir króna og yfirtók m.a. skuldir. Stelkur stóð ekki í skilum og eignin lenti á uppboði 31. janúar síðastlið- inn. Á uppboðinu var hæstbjóðandi Norðurvangur hf. og var eignin slegin því félagi á 25,5 milljónir króna. Norðurvangur er í eigu Helga Rúnars, Sigurðar, Stelks og fleiri. 40 milljóna króna veð hvíldu á eigninni og má ætla að kröfuhafar tapi tæplega 15 milljónum króna. Þess má geta að Sigurður R. Sigur- jónsson er starfsmaður Ríkisendur- skoðunar og fjárveitinganefndar Al- þingis. Kristján, Sigurður og Gunn- ar Gunnarsson voru stjórnarmenn í hljómtækjaversluninni Ópus hf., sem úrskurðuð var gjaldþrota í júlí í fyrra, en verslun þessi var til húsa í Skipholti 7. RAFMAGNSLEYSI, NIÐURNÍÐSLA OG HORFINN UMSJÓNARMAÐUR Húsnæðið í Skipholti 7 hefur ver- ið hólfað í 15 herbergi og á jarðhæð voru tvær verslanir og tvö herbergi til viðbótar. Húsnæðið er í mikill niðurníðslu. Baðherbergisaðstaða og eldhúsaðstaða eru ekki mönnum bjóðandi og er það á ábyrgð húseig- enda. Leigusali hefur ekki séð um þrif á sameign svo sem samningar gera ráð fyrir. Rafmagnsleysi síðustu þriggja vikna hefur orðið til þess að sumir leigjenda eru flúnir. Aðrir hafa þraukað í von um að úr rættist. Eins og gefur að skilja hefur ekki verið hægt að elda á staðnum og eru sturtur óvirkar. Leigjendur munu nú íhuga að- gerðir til að gæta hagsmuna sinna. Þeir vilja fá aprílleiguna endur- greidda og eiga inni eins mánaða tryggingagreiðslu frá upphafi leigu. Pulltrúar Leigjendasamtakanna, Jón Kjartansson og Halldór Jónasson lögfræöingur, ræöa viö leigjendur í „eldhúsi" annarrar hæðarinnar. „Astandið á húsnæöinu er mjög slæmt, algjörlega óviðunandi sem mannabústaður... Það er forkastan- legt aö skilja leigjendurna eftir raf- magnslausa og í óvissu um fram- haldið," segir Jón Kjartansson. Austurvangur hf. virðist hafa framleigt efri hæðirnar tvær til Viö- ars Fridfinnssonar, sem undirritað hefur leigusamninga. Þó leikur grunur á að Viðar hafi verið e.k. um- boðsmaður fyrir Austurvang, en ekki raunverulegur leigusali. Hvorki leigjendum né Leigjenda- samtökunum hefur tekist að hafa uppi á Viðari. „HÚSNÆÐIÐ ALGJÖRLEGA ÓVIÐUNANDI SEM MANNABÚSTAÐUR" Þegar leigjendur fóru fram á það við Rafmagnsveituna að opnað yrði fyrir rafmagnið af „mannúðar- ástæðum" fengust þau svör að mál- ið yrði kannað. Ekkert gerðist þó í þeim efnum. í kjölfar riftunar Bún- aðarbankans er hins vegar búist við að samkomulag náist um að opna fyrir rafmagnið um helgina. Leigjendasamtökin eru nú komin í mál þetta, en að sögn Jóns Kjart- anssonar formanns samtakanna hefur gengið erfiðlega að upplýsa málið. Þegar PRESSAN fór á vett- vang sl. mánudag bar þá Jón og Halldór Jónasson lögfræðing að fyrir hönd samtakanna. Var þá rætt um að kveða heilbrigðisfulltrúa og húsmatsmenn á vettvang. „Ástandið á húsnæðinu er mjög slæmt, algjörlega óviðunandi sem mannabústaður. Það er fyrir neðan allar hellur að koma fram við leigj- endur sína á þennan hátt. Það er óupplýst í málinu með hvaða hætti samskipti Austurvangs og Viðars Friðfinnssonar hafa verið, hver beri ábyrgð á þessu ástandi, en hvort heldur sem er má það heita forkast- anlegt að skilja leigjendurna eftir rafmagnslausa og í óvissu um fram- haldið," segir Jón Kjartansson. „HÚSNÆÐIÐ ER Á ÁBYRGÐ HELGA RÚNARS" Viðar Friðfinnsson vildi lítið tjá sig um mál þetta í samtali við PRESSUNA. „Eg hætti þarna 1. apr- íl, eftir að hafa séð um húsið í eitt ár og hefur húsnæðið síðan verið á ábyrgð Helga Rúnars. Það er um leið hann sem skuldar rafmagn frá fyrri tíð, sem lokað hefur verið út af. Þegar ég kom þarna inn voru þegar komin eins árs vanskil á rafmagnið. Það eru þarna 4 eða 5 mælar og ég var bara með tvo.“ Viðar vildi ekki tjá sig um hver hefði fengið leiguna fyrir apríl í sín- ar hendur. Þá vildi hann ekkert segja hver væri með trygginga- greiðslur leigjendanna undir hönd- um. „Þann tíma sem ég var þarna voru yfirleitt aðeins 5 eða 6 í leigu. Frá mínum bæjardyrum séð voru þetta hundrað prósent lögleg við- skipti. Ég ákvað hins vegar að fara og mér kemur húsið ekki við lengur. Auðvitað tel ég ekki rétt að loka raf- magninu á fólkið, en því máli vísa ég til Helga." Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og skilaboð tókst ekki að ná tali af Helga Rúnari Magnússyni. Sam- kvæmt heimildum PRESSUNNAR mun hann bera því við að leigjend- um hafi verið sagt upp og að þeir hafi átt að rýma herbergin um síð- ustu mánaðamót. Það kannast eng- inn leigjandi við. Friðrik Þór Guðmundsson Skipholt 7. Búnaöarbankinn var enn þinglýstur eigandi, en fyrirtæki Helga Rúnars Magnússonar, Austurvangur, keypti eignina í ágúst 1989. Austurvang- ur hlóð á sig vanskil hjá bankanum, Gjaldheimtunni, Rafmagnsveitu Reykja- víkur og víöar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.