Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 8

Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAI 1991 PRESSAN leitar uppi tíu stærstu landeigendurna og tíu stærstu kvótaeigendurna. Þess hefur oft verið spurt hverjir eigi ísland. Þá er oft- ast átt við hverjir hafi hér öll tögl og hagldir eða hverjir það eru sem fá stærstan hluta af þeim kostum sem landið, þjóðin og miðin bjóða upp á. En hverjir eiga sjálft landið? Og hverjir eiga miðin í raun og veru? Hér að neðan getur að líta yfirlit yfir tíu stærstu jarðirn- ar og tíu stærstu kvótaeigendurna. Tíu stærstu jarðirnar ná yfir einn tíunda af landinu öllu. Tíu stærstu kvótaeig- endurnir eiga um fjórðung af öllum miðunum. Þaö hefur reynst mörgum erfitt að svara spurningunni um hverjir eigi ísland. Þó menn einfaldi það, eins og hér er gert, og spyrji bókstaflega hverjir hafi pappíra upp á vasann um að þeir eigi landið eða miðin, þá er spurningin ekki auðveldari við- fangs. LOÐIÐ MÁL HVERJIR EIGI LANDIÐ OG MIÐIN í fyrsta lagi er deilt um hvort út- hlutun fiskveiðikvóta feli í sér eign eða ekki. Þá skiptir engu þó hann gangi kaupum og sölum og sé jafn- vel eignfærður og skattlagður. Það er einkum útgerðin sjálf, sú sem á kvótann, sem neitar því að líta á hann sem eign. Þrátt fyrir það er nú almennt byrjað að líta á kvótann sem eign. Það er frekar deilt um hver eigi hann. Það er ekki auðveldara að finna út hverjir eigi land á íslandi. Ástæða þess er í raun enn kostulegri en deil- an um kvótann. Því er nefnilega þannig farið að jarðamerkingar eru afskaplega ófullkomnar á Islandi. Einu gögnin um stærð jarða eru í svokölluðum landamerkjabréfum en í þeim eru landamerkin einungis tilgreind. Til þess að finna út hvaða jarðir eru stærstar þarf því að safna saman hátt í sex þúsund landa- merkjabréfum, setja landamerkin á kort, draga línu á milli og reikna út ferkílómetra-fjöldann. Öfugt við það sem margur skyldi ætla er því enn flóknara að finna út hverjir eigi landið en hverjir eiga miðin. RÍKIÐ Á MEST EN REYKJAHLÍÐ ER STÆRSTA JÖRÐIN Ef þeirri spurningu væri fyrst velt upp hverjir ættu landið þá verður svarið líkast til íslenska ríkið. Það er ekki bara að þjóðgarðarnir (þar af er einn þriðja stærsta jörðin) ná yfir gífurlegt jarðflæmi heldur á ríkið og ríkisstofnanir um 746 jarðir af um 6 þúsund jörðum á landi. Af þessum 746 jörðum ríkisins eru 576 í ábúð. 170 eru eyðijarðir. Ríkið er því án efa stærsti jarðareigandinn þó það eigi ekki stærstu jörðina. Hana eiga hins vegar um tuttugu afkomendur Einars Friðrikssonar og Guðrúnar Jónsdóttur, en þau hjónin keyptu jörðina Reykjahlíð fyrir 90 árum á 7.150 krónur. Sam- kvæmt landamerkjabréfi nær Reykjahlíð yfir um 2.000 ferkíló- metra lands og er því án efa stærsta jörð landsins. Reyndar er það nokkuð á reiki hversu stór Reykjahlíð er. Sam- kvæmt munnmælum sem getið er um í Landið þitt ísland þá ná Reykja- hlíð og Skaftafell saman á Vatna- jökli. Ef miðað er við það þá er Reykjahlíð um 6.000 ferkílómetrar. REYKJAHLÍÐ SKRÁÐ Á MILLJÓN EN GÆTI KOSTAÐ MILLJARÐ Ómögulegt er að geta sér til um hvað jörðin Reykjahlíð kostar í raun. Skráð verðmæti hennar er 1,2 millj- ónir. Þessi lága upphæð byggir á út- reikningum á verðmæti landsins til landbúnaðarframleiðslu sem gerð var á sjöunda áratugnum. 98 pró- sent af landi Reykjahlíðar er afréttur sem nýttur er sameiginlega af bændum í Skútustaðahreppi. Fyrir skömmu seldi Blönduósbær sinn hlut í Auðkúluheiði á 10 millj- ónir. Samtals er heiðin um 560 fer- kílómetrar og átti bærinn tíunda hluta afréttarins. Samkvæmt þess- um sölusamningi kostar ferkíló- metrinn af afréttarlandi því um 175 þúsund krónur. Ef þessi viðmiðun er notuð gæti Reykjahlíð kostað um 360 milljónir króna. Þá er miðað við stærð jarðar- innar í landamerkjabréfum. Ef mið- að er við munnmælasögur er verð- mæti jarðarinnar þrisvar sinnum meira eða 1,1 milljarður. Söluverð jarðarinnar gæti því ver- ið allt að þúsund sinnum meira en skráð verð. EIGN Á LANDI EÐA ÖRÞUNNRI HIMNU UNDIR GRÓÐRINUM Sjálfsagt finnst mönnum 175 þús- und krónur ekki hátt verð fyrir einn ferkílómetra. Ástæðan fyrir þessu verði á Auðkúluheiði er sú að eign- arréttur á afrétti er fyrst og fremst bundinn við nýtingu hans til land- búnaðar. Bændur hafa ekki fengið viðurkenndan námurétt eða vatns- rétt á afréttum. Þær bætur sem Landsvirkjun hefur verið að greiða þeim eru fyrst og fremst bundnar við gróðurinn. Þetta á við um afrétti sem ekki eru tiltekin eign ákveðinnar jarðar. Það getur því verið að Reykjahlíð og aðrar jarðir sem hafa afrétti innan sinna landamerkja geti krafist hærra verðs fyrir afréttarlönd sín en Blönduósbær í dæminu hér að ofan. Það sem mælir gegn því er að í landamerkjabókum er löndum jarð- anna skipt í tvennt. Annars vegar heimahagar og hins vegar afréttir. Það er því hefð fyrir því að líta á eignarrétt afrétta öðrum augum en heimahaga. Ef engin námaréttindi eða vatns- réttindi fylgja afréttunum þá er eign á þeim í raun bundin við gróðurinn og einhverja afstæða himnu undir honum sem er land án námu- og vatnsréttinda. Fyrir þetta tvennt hefur hins vegar verið greitt um 175 þúsund krónur á ferkílómetra. TÍU STÆRSTU KVÓTAEIGENDURNIR EIGA FJÓRÐUNGINN AF KVÓTANUM Það er einnig deilt um hvað þeir eiga sem eiga kvótann. Eiga þeir hann til frambúðar eða til eins árs í senn? Hafa þeir hann einungis til af- nota þar til hann verður tekinn af þeim aftur? Eða hafa þeir átt hann svo lengi að það sé orðið ófram- kvæmanlegt að taka hann af þeim eða krefja þá um endurgjald fyrir hann? Þrátt fyrir þessar deilur gengur kvótinn kaupum og sölum, hann er skattlagður og sum fyrirtæki hafa meira að segja eignfært hann í árs- reikninga sína. Eignarhald útgerð- arinnar á kvótanum fer því að verða nánast óumdeilt. 10 stærstu útgerðaraðilar landsins höfðu á síðasta ári alls 88.721 tonn þorskígilda á sín 49 skip. Þetta er fjórðungur botnfiskaflans. Miðað við gangverð á kvóta þorskígilda, áætlað 150 krónur (hærra þekkist) má áætla virði kvóta þessara 10 stærstu vera 13,3 milljarða, en heildina vera 54,6 milljarða. Þetta „gangverð" miðast auðvitað við að framboð er takmarkað og væri gangverð að sjálfsögðu lægra ef allt væri til sölu. ENDALAUS VAFAATRIÐI UM EIGNARRÉTT Hér neðar á síðunni má sjá sam- antekt á tíu stærstu jörðunum og tíu stærstu kvótaeigendunum. Hvoru tveggja skal tekið með vissum fyrir- vörum og þá sérstaklega saman- tektinni á jörðunum. Upplýsingar um eign manna og fyrirtækja á landi og fiski liggur ekki á lausu. Þrátt fyrir það er hér um tvö af stærstu málum þjóðarinnar að ræða. Það vekur athygli að í báðum tilfellum eru endalaus vafaatriði. En hvað um það. Samkvæmt því sem PRESSAN kemst næst eru þetta þeir sem eiga landið og miðin, eða öllu heldur stærstan hluta af íslandi og íslandsmiðum. Friðrik Þór Guðmundsson og Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.