Pressan - 03.05.1991, Blaðsíða 23
FÖSTIJPAGUR PRESSAN 3. MAI 1991
.. .fær fólkiö sem enn
nennir að labba niöur
Laugaveginn 1. maí. Þaö
væri leiðinlegt ef þetta
legðist alveg af.
AÐUR ÚTI NÚNA INNI
Hver segir aö það sé ómerki-
legra að kaupa og reka bar í
Bangkok en að reyna að vinna
sig upp hjá Kaupþingi eða
reyna að fóta sig í bisness hér
heima? Enginn, alla vega ekki
lengur. Um leið og hipparnir
eru að komast í tísku verður
það aftur girnilegt að reka
(jafnvel) leðurverkstæði og
reyna að gera litla hluti vel.
Það er ekki lengur skylda að
allir verði eins og Donald
Trump. Það er nóg að hafa
einn slíkan á öld.
ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI
Nú er það orðið ljóst að fundir
og ráðstefnur höfðu aldrei ann-
an tilgang en skemmta fólki
sem lifði 140 prósent fyrir vinn-
una. Svoleiðis fólk varð náttúr-
lega líka að finna sér einhverja
afþreyingu. Þar sem það lifði
fyrir vinnuna bjó það til afþrey-
ingu í vinnunni. Núna þegar
enginn nennir lengur að lifa og
deyja í vinnunni hafa fundir og
ráðstefnur engan tilgang. Það
er miklu betra að skella sér í
leikhús, renna fyrir silung eða
slappa af á annan hátt.
KURTEISI___________________
Hvad á ad gera þegar tveir
menn koma samtímis að
leigubíl og telja sig báðir
hafa kpmið fyrr að?
Þá er rétt að spyrja Ieigubíl-
stjórann hvorn hann sá fyrst.
Það er hins vegar eðlilegt að
Ijúga því að honum í leiðinni
að þú sért að fara út á Keflavík-
urflugvöll.
íTu
5T
POPPIÐ
Hljómsveitin Deep Jimmy and
the Zep Creams hefur gert allt
vitlaust í heimabæ sínum Kefla-
vík og ætlar nú að taka reykvískt
tónlistarlíf með trompi um helg-
ina. Hljómsveitin sérhæfir sig,
eins og nafnið bendir til, í tónlist
DtTl'TKRPLt
* Vs&r- /
Deep Purple, Led Zeppelin og
fleiri frá svipuðum tíma. Hún
verður á Púlsinum í kvöld og
annað kvöld og Tveimur vinum
á sunnudag.
Sniglabandið ætlar að halda
uppi fjöri á Tveimur vinum föstu-
dag og laugardag.
Púlsinn endar helgina á djass- og
blúskvöldi ‘ með Sálarháska.
Rúnar Georgsson saxófónleikari
verður gestur á þessu síðasta
kvöldi háskalegra hljómleika.
SJÓIN________________________
Yfir strikið svíkur ekki gesti um
þessa helgi fremur en aðrar og
lofar óvæntum uppákomum í
kvöld og annað kvöld.
A Hótel Islandi verður rokksýn-
ing á laugardagskvöld, þó ekki
sú hin sama og Yoko Ono sá með
Davíð Oddssyni, þá ennþá borg-
arstjóra, um síðustu helgi. Sýn-
ingin um helgina kemur að norð-
an og þá verður rokkað við
tryllta tónlist sjöunda áratugar-
ins. PRESSAN mælir ekki með
því að dvalið sé lengi á stærsta
dansstað landsins eftir að sýn-
ingu lýkur.
NÆTURLIFIÐ
Það er ekki lengur nauðsynlegt
að fara á dansstað til að fá sér
snúning um helgar. Á 22 við
Laugaveginn er dansað á efri
hæðinni og sömuleiðis á Berlín
við Austurstrætið. Það er aftur á
móti spurning hvort danstónlist-
in bitnar ekki á stöðunum sem
góðum börum og eyðileggur
rabbstemmningu með alltof há-
værri tónlist. Kosturinn er aftur
sá að menn sleppa við að borga
sig dýrum dómum inn á
skemmtistaði hafi þeir áhuga á
dansæfingum.
LEIKHUSIN
Pétur Gautur verður víst að telj-
ast fallinn hjá Þjóðleikhúsinu, á
kostnað Söngvaseiðs er sagt, og
því síðustu forvöð fyrir þá sem
vilja sjá hann. Þeirsem ekki hafa
áhuga á Gauti eða hafa ekki
tryggt sér miða á Seiðinn ættu að
notfæra sér afsláttinn sem Borg-
arleikhúsið býður um helgina á
þær sýningar sem brátt hverfa af
fjöiunum. Þæreru 1932, Sigrún
Ástrós, Eg er meistarinn og
FIó á skinni.
KLASSÍKIN____________________
Sinfóníuhljómsveit Islands
leikur í Háskólabiói í kvöld kl.
20.00 óperutónlist eftir Giorgio
Tieppo. Stjórnandi er Robin
Stapleton.
Það verður haldið upp á
rumsýningu myndarinnar
The Doors í Lídó í kvöld.
Tónlist hljómsveitarinnar
verður leikin og tískusýn-
ing haldin á fatnaði gull-
aldarára Morrisons og fé-
laga hans í Doors.
36
40
|4T
L 7— r- 7— ÍT"
1 ■
tó
■ “
P
li
P 32
P
■ 43
: 47
: 5, ■
KR0SSGATAN
LÁRÉTT: 1 höfuðskraut 6 drykkir 11 önugu 12 níska 13 snáði 15
hægar 17 æxlunarfruma 18 einlægni 20 konu 21 steypuákast 23 fé
24 fiskurinn 25 svarar 27 fugl 28 sljóleiki 29 hirð 32 örlát 36 barni
37 tré 39 gauf 40 spíra 41 svalir 43 vafa 44 fannfergi 46 mylsnan 48
tvjsalt 49 fals 50 þáttur 51 meðábyrg.
LÓÐRÉTT: 1 Freyjuheiti 2 rusls 3 blási 4 annars 5 lötra 6 dáin 7 hár
8 frjó 9 bónbjargir 10 skinnið 14 sóminn 16 æðir 19 geðjast 22 snáði
24 ágengs 26 dá 27 smokraðist 29 meðhjálpara 30 rölta 31 skelfing
33 barða 34 stofuhúsgagn 35 mergð 37 gamli 38 riísks 41 umhyggja
42 skrimta 45 fóðri 47 boga.
R1KISSJONVARPIÐ___________
James Brown á eftir að trylla þá
sem ætla að horfa á Sjónvarpið á
föstudagskvöldið svo að þeir ná
ekki að sofna fyrr en í bítið morg-
uninn eftir. Hann kemur fram í
fyrsta þættinum af fimmtán í röð
sem kallast The Golden Age of
Rock’n’Roll eða Föstudags-
rokk á íslensku. Fyrsti þátturinn
er um soul-tónlist; Marvin Gaye,
Supremes og svo framvegis.
Vinsælustu
myndböndin
1. Bird on a Wire
2. Young Guns II
3. Wild at Heart
4. Pretty Woman
5. Die Harder, Die Hard
II
6. Another 48 Hours
7. Impulse
8. Love at Large
9. Krays-bræðurnir
10. Cadillac Man
STÖÐ2
Samningsbrot The Fourth
Protocol, sem sýnd verður á
Stöð 2 á laugardagskvöldið, er
miðlungs-njósnamynd frá Bret-
um. Að sjálfsögðu fer Michael
Caine með aðalhlutverkið en
hins vegar vekur það furðu að
Edward Fox sést hvergi.
VEITINGAHUS
Ef ykkur líkar við Hard
Rock í Kringlunni skuluð
þið reyna að borða á ham-
borgarastöðunum niðri í
Miðbæ; Svörtu pönnunni,
Jarlinum og að ekki sé tal-
að um Tomma-borgara á
Lækjartorgi. Þá áttið þið
ykkur á því hvað Hard
Rock er góður veitinga-
staður. Þið áttið ykkur líka
á því að það er ósanngjarnt
gagnvart Hard Rock að
bera þessa staði saman við
hann. Hvað þurfa að líða
mörg ár frá því að íslend-
ingar kynntust hamborgar-
anum þar til hægt er fá
sómasamlegan hamborg-
ara niðrí bæ? Ekki veit ég
það. Spyrjið Tomma.
Cöte-Rötie
Cötes
Brune
et
Blonde
23
Árgangurinn af Cóte-Rötie
sem boðið er upp á í vín-
búðinni í Mjóddinni er
1985 og því nýsloppinn við
að teljast of ungur og
óþroskaður. Hins vegar
sakar ekkert að geyma
þetta vín í 5 til 6 ár. Cöte-
Rötie kemur úr norður-
hluta Rhónedalsins og er
að mestu gert úr
Syrah-þrúgunni, sem talin
er ættuð frá Sýrlandi.
Þetta er nokkuð alkóhól-
ríkt vin, bragðmikið,
dimmrautt og gott með
lambakjöti og hvítlauk.
Flaskan kostar rúmar 3000
krónur.
Tónleikar tónfræðideildar Tón-
iistarskóians í Reykjavík
verða i Norræna húsinu á laugar-
dag kl. 14.00.
Koibeinn Bjarnason flautuleik-
ari spilar einleiksverk eftir Mario
Lvista, Harwey Sollberger og
Brian Ferneyhoug í Listasafni ís-
lands á mánudag kl. 20.30. Einn-
ig leikur með honum á tónleik-
unum Páll Eyjólfsson gítarleik-
ari, verk eftir Svein Lúðvík
Björnsson og Toru Takemitsu.
PLATAN
The Bootleg Series, Vol-
umes l-lll, með tónlist
eftir Bob Dylan frá
1961 —1991, telst eitt það
besta sem út hefur kom-
ið í þessari seríu. Ekkert
laganna á diskunum hafa
verið gefin út áður, og
hlýtur það að vera fengur
fyrir safnara, sem ekki
þurfa að kaupa lög sem
þeir eiga, til að komast
yfir áður óútgefna tónlist
Dylans.
MYNDLISTIN
Yoko Ono verður áfram á Kjar-
valsstöðum og geta þeir sem
tróðust um i margmenninu við
opnunina um síðustu helgina nú
væntanlega skoðað sýninguna i
ró og næði. Það er að segja, hafi
þeir ekki aðeins haft áhuga á að
berja listakonuna sjálfa augum...
Verk annarra Fluxus-lista-
manna eru i Austursal Kjarvals-
staða, og eru þau ekki siður
áhugaverð, en verk Bitlaekkj-
unnar.
Finnbogi Pétursson sýnir
hljóðverk í Nýlistasafninu. Sýn-
ingin sem kannski höfðar jafnt til
áhugamanna um raftækni, líkt
og Finnboga, og myndlistar-
áhugamanna.
Guðjón Ketilsson sýnir lika i
Nýlistasafninu, en öllu áþreifan-
legri verk, nefnilega málaða tré-
skúlptúra.
Helga Magnúsdóttir er með
sína fyrstu einkasýningu í
FÍM-salnum við Garðastræti.
Myndirnar hennar eru stór olíu-
málverk, greinilega máluð undir
áhrifum frá landslaginu og nátt-
úrunni, líkt og verk fleiri ungra
islenskra málara.
HUSRÁÐ
Ég bý með systur minni og
kærasta hennar. Það er
ósköp indælt ef kærastinn
væri ekki hálfgerður kyn-
ferðis-maniak. Hann er alltaf
að koma inn i herbergið mitt
á nóttunni þegar systir mín
er sofnuð. Þar sem ég vil
ekki að systir mín verði fyr-
ir áfalli reyni ég að losna við
manninn á rólegan hátt. Það
gengur ekki betur en svo að
við hvíslumst á í marga tíma,
stundum. Hvað á ég að gera?
Þú átt að fá þér uppblásna
brúðu eins og klámbúllur selja.
Þvi miður eru ekki enn til karl-
mannabrúður, en kvennmanns-
brúða ætti að duga. Þú skalt
blása hana upp áður en þú ferð
að sofa og hylja hana nægilega
með sænginni þannig að í
fljótu bragði virðist sem ein-
liver sé í rúminu með þér. Það
ætti að halda kærasta systur
þinnar frá þar til þú hefur kom-
ið þér upp kærasta af holdi og
blóði.
V(þ MÆLUM MEÐ
kynferðislegri áreitni
það er ef báðum líkar, þuklar-
anum og hinum þuklaða.
Vf
^ ' að fólk sé gott
við Steingrím
Hermannsson
það er erfitt að læra eitthvað
nýtt, eins og að vera í stjórnar-
andstöðu, og þvi þarfnast hann
að Bjarni í Brauðbæ fari að
reka Prikið af einhverri alúð
það er skritið þegar eigandan-
um einum þykir einkennilegt
að þetta klassiska kaffihús fái
verðlaun.
bjórnum á Bíóbamum og þá
sérstaklega kældu krúsunum
þar.
að Ríkið fari að selja kryppl-
inga aftur.
?' COWESSKHtS Of It IEWISM STtlO
Sjálfsagt er ekkert blað í
heiminum jafn smekklaust
og bandaríska blaðið Screw,
sem klámkóngurinn Al Gold-
stein gefur út. Þrátt fyrir að
lesendur þess blaðs kalli
ekki allt ömmu sína má telja
víst að þeim hafi brugðið í
brún þegar þeir sáu þessa
forsíðu. Hún fær mann til að
halda að dýrasex, náriðils-
háttur og aðrir þekktir kyn-
lífsútúrdúrar séu næsta sak-
laust grín.
BÍÓIN
GRÆNA KORTIÐ Green Card BÍÓBORGIN
Fyrir utan Gerard Depardieu er komment hans: „Það er eins og þú hafir keypt
allar skoðanir þínar á sama stað"það besta við myndina. Léttur rómans og
sætur húmor.
SpFIÐ HJÁ ÓVININUM Slepping with the Enemy BÍÓHÖLLIN
Óhugnaður úr daglega lífinu, einskonar Kvennaathvarfs-tryllir. Sálarspenna af
Hitchcock-gerð.
BETRI BLÚS Mo Better Blues LAUGARÁSBÍÓ
Besta myndin í bænum.