Pressan - 03.05.1991, Page 5
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAÍ 1991
5
og rithöfund-
urinn Hrafn Jökulsson skrifar um
reynslu sína af dópheimi Reykjavík-
ur í Mannlífi sem
kemur út eftir
nokkra daga. Grein-
in byggir á mjög svo
persónulegri
reynslu hans og lýsir
hann meðal annars
því er hann sprautar
sig í fyrsta sinn ...
u
■^ú eru menn farnir að velta
fyrir sér nöfnum aðstoðarmanna
nýju ráðherranna. Guðmundur
Magnússon sem
var aðstoð'armaður
Birgis ísleifs
Gunnarssonar
menntamálaráð-
herra á sínum tíma
er nú aftur orðaður
við aðstoðarmanns-
starfið, að þessu sinni hjá Ólafi G.
Einarssyni menntamálaráð-
herra.. .
að er alls ekki víst að Davíd
Oddsson ráði til sín aðstoðarmann
í forsætisráðuneytið. Hins vegar er
líklegt að hann velji
sér efnahagsráðu-
naut. Eitt nafn hefur
komið upp í umræð-
unni, nafn Ólafs
Davíðssonar fram-
kvæmdastjóra Fé-
lags íslenskra iðn-
rekenda. Ólafur hefur síðustu árin
kynnt sér ítarlega málefni Evrópska
efnahagssvæðisins og leitt nefnd
sérfræðinga EFTA landanna. Sú
reynsla gæti verið nýjum forsætis-
ráðherra dýrmæt á næstu mánuð-
um, þegar samningar á milli EFTA
og EB eru á lokaspretti...
JUft
■ WBönnum hefur orðið tíðrætt
um bílaskipti í kringum ráðherra-
skiptingu nýrrar ríkisstjórnar og þá
------------ sérstaklega jeppann
hans Júlíusar Sól-
nes. Sá sem fær dýr-
asta ráðherrabílinn
steinn Pálsson sem
. Halldórs Ásgríms-
sonar. Halldór fékk hins vegar
Benzinn frá Albert Guðmunds-
syni en Albert keypti hann í tíð
sinni sem fjármálaráðherra. Þor-
steinn vildi þá ekki taka við honum
en hann leysti sem kunnugt er Al-
bert af hólmi eftir að hafa rekið
hann úr ráðherrastólnum. Nú stefn-
ir hins vegar í að hann fái Benzinn
þrátt fyrir allt...
A
H^^kveðið er að Geir H.
Haarde verði formaður þingflokks
sjálfstæðismanna. Geir átti ekki
möguleika á ráð-
herraembætti að
þessu sinni, þótt
ýmsir af yngri
mönnunum í flokkn-
um hefðu gjarnan
viljað sjá hann í stóli
fjármálaráðherra.
Hins vegar telja þeir víst að Geir eigi
eftir að verða Friðriki Sophussyni
mjög svo innan handar í því emb-
ætti...
A
flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins þar sem stjórnarþátttakan
var endanlega samþykkt voru fjör-
legar umræður. Sá
fundarmaður sem
harðast gekk fram í
gagnrýni á samstarf
við Sjálfstæðisflokk-
inn var Ólína Þor-
varðardóttir borg-
arfulltrúi Nýs vett-
vangs. Meðan á lesningu Ólínu stóð
kom upp í huga sumra fundar-
manna að ef til vill væri Ólína á leið
úr flokknum. Hún eyddi hins vegar
öllum vafa um það og sagði að
menn mættu ekki halda að hún
væri að yfirgefa Alþýðuflokkinn.
Einum fundarmanna varð að orði,
að þetta væri alvarlegasta hótun
sem hann hefði heyrt í langan
tíma...
o
^^^víst er hver mun taka við
starfi Vilhjálms Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra Verzlunarráðs, nú
þegar hann sest á
þing. Framundan
eru miklar skipu-
lagsbreytingar hjá
Verzlunarráði en
hugmyndir eru uppi
um að Kaupmanna-
samtökin komi til
samstarfs og eru þegar hafnar við-
ræður þar um. Hefur meðal annars
hinn nýkjörni formaður Kaup-
mannasamtakanna Bjarni Finns-
son boðað slíkt samstarf þannig að
vægi framkvæmdastjórastöðunnar
mun síst minnka ...
Á
þriðjudagskvöldið mátti sjá
nokkra nýorðna ráðherra á veit-
ingahúsum borgarinnar. Á Hótel
Holti var Davíð
Oddsson við eitt
borðið ásamt vinum
sínum; Hannesi
Hólmsteini Giss-
urarsyni, Kjartani
Gunnarssyni og
fleirum. A næsta
borði sat Friðrik Sophusson
ásamt sínum vinum. í Grillinu á Hót-
el Sögu voru síðan þeir Ólafur G.
Einarsson og Halldór Blöndal.
Þorsteinn Pálsson var hins vegar
á 25 ára útskriftarfagnaði hjá Verzl-
unarskólanum ásamt Hemma
Gunn, Júlíusi Hafstein og fleir-
um ...
F lokksráðsfundur sjálfstæðis-
manna fór eins og þeir vilja hafa
svona fundi. Davíð Oddsson hélt
tölu. Síðan hélt Sig-
urður Einarsson,
útgerðarmaður úr
Eyjum og stuðnings-
maður Þorsteins,
ræðustúf. Þá sté
séra Hjálmar
Jónsson í stól og fór
með stöku. Davíð fór þá aftur í
ræðustól og fór með vísu sem Þór-
arinn Eldjárn hafði gaukað að
honum. Síðan stóð flokksráðið upp
og klappaði samþykki sitt við stjórn-
armynduninni...
TÓNLISTARDEILD
JAPIS3
KRINGLUNNI
VIÐ ERUM AÐ OPNA í KRINGLUNNI GLÆSILEGA TÓNLISTARDEILD,
ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MIIIIIKIÐ OG AÐ SJÁLFSÖGÐU Á SAMA
LÁGA VERÐINU OG í VERSLUN OKKAR í BRAUTARHOLTI.
R Ú S í N A N
í PYLSUENDANUM
EF ÞÚ VERSLAR FYRIR MEIRA EN
ÞÚSUND KRÓNUR, FÆRÐ ÞÚ AÐ
GJÖF HLJÓÐSNÆLDU FRÁ SONY