Pressan - 03.05.1991, Side 9

Pressan - 03.05.1991, Side 9
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAÍ 1991 9 ÞESSIR EIGA Tíu stœrstu jarðirnar ná yfir tíunda hluta landsins 1. Reykjahlíö Reykjahlíð í Skútustaðahreppi í Mývatnssveit er án efa stærsta jörð á íslandi. Samkvæmt landamæra- merkjum er hún um 2.000 ferkíló- metrar en munnmæli segja að hún sé enn stærri. Samkvæmt þeim nær hún saman við Skaftafell á Vatna- jökli. Ef það er rétt er stærð jarðar- innar nær 6.000 ferkílómetrum. Reykjahlíð nær því yfir 1,9 til 5,8 prósent landsins. Miðað við verð á afréttum er and- virði jarðarinnar um 350 milljónir króna. 1,1 milljarður ef miðað er við munnmælasögurnar. Ef landa- merkjabréfið tryggir eignarréttinn betur en á afréttarlöndum hingað til er verðmæti eignarinnar miklu meira. Skráð verð Reykjahlíðar er hins vegar ekki nema 1,1 milljón. Eigendur Reykjahlíðar eru um tuttugu afkomendur Einars Friðriks- sonar og Guðrúnar Jónsdóttur, sem keyptu jörðina seint á síðustu öld. Þeir helstu eru; Óskar og Valgeir III- ugasynir, Jón, Svava og Guðrún Jónsbörn, Jón og María Þorsteins- börn og Baldur Sigurðsson. 2. Skaftafell Hlutur ríkisins í jörðinni Skafta- felli er þriðja stærsta jörðin. Eins og kunnugt er þá er þar nú þjóðgarður Islendinga. Jörðin nær yfir um 1.600 ferkílómetra. Það eru um 1,6 prósent íslands. Islenska ríkið á jörðina. 3. Brú á Jökulsá ú í Jökuldalshreppi í Norð- ur-Múlasýslu er líkast til stærsta jörð á íslandi. Hún er 1. ferkílómetrar. í landi Brúar eru til dæmis Kverkfjöll og Brúarjökull. Brú nær yfir um 1,4 prósent íslands' Miðað við verðið á Auðkúlu hreppi kostar Brú 245 milljónir. Fasteignamat jarðarinnar er hins vegar ekki nema 300 þúsund. Skráðir eigendur jarðarinnar eru Sigurður og Stefán Halldórssynir. 4. Möðrudalur Möðrudalur á Efra-Fjalli telst lík- lega fjórða stærsta jörð á íslandi. Samkvæmt landamerkjabréfi er flatarmál jarðarinnar um 600 fer- kílómetrar. Hún nær því yfir um 0,6 prósent landsins. Jón Stefánsson í Möðrudal átti jörðina og bjó þar fram til 1971. Möðrudalsland er háslétta um 400 til 450 metra yfir sjó. Innan þess eru meðal annars Möðrudalsfjallgarð- arnir tveir. Skráð verð Möðrudals er um 250 þúsund. En samkvæmt Auð- kúlu-verðinu er andvirði þess um 105 milljónir. Möðrudalur er ríkisjörð. Kalmanstunga Kalmanstunga í Hvítársíðu í Borg- arfirði er líklega fimmta stærsta jörð á íslandi. Talið er að hún sé um 550 ferkílómetrar eða um 0,5 prósent af íslandi. Áður fyrr tilheyrði öll Arnarvatns- heiði jörðinni en hún var seld undan henni fyrir um einni öld. Innan nú- verandi lands Kalmanstungu er til dæmis Eiríksjökull. Fasteignamatið segir verð Kal- manstungu vera um 900 þúsund krónur. Auðkúluverð er hins vegar um 95 milljónir. Eigendur Kalmanstungu eru skráðir Kalman Stefánsson og Ólaf- ur Kristófersson. 6. Skaftafell Sá hluti jarðarinnar Skaftafells sem ekki er undir þjóðgarðinum er um 500 ferkílómetrar. Þessi hluti er skráður í eigu Ragnars Stefánssonar og Árna Benediktssonar. Hann nær yfir 0,5 prósent íslands. Það er sjálfsagt ekki til mikils að reyna að meta þessa jörð til verðs. Ástæðan er að hún liggur undir Skeiðarársandi. 7.-8. Grímsstadir og Hólssel Grímsstaðir í Skútustaðahreppi og Hólssel í Fjallahreppi eru talin vera nálægt 500 ferkílómetrum hvor jörð eða svipaðar að stærð og Skaftafell. Þær taka því yfir um 0,5 prósent af íslandi hvor jörð. Ríkissjóður á Hólssel en nokkrir einstaklingar eru skráðir eigendur að Grímsstöðum. 9. Grænavatn Jörðin Grænavatn í Skútustaða- hreppi er talin ná yfir um 323 fer- kílómetra. Heimaland jarðarinnar er um 110 ferkílómetrar og því er jörðin sjálfsagt verðmeiri en margar jarðirnar sem taldar hafa verið upp hér að ofan. Eignarréttur hennar er augljósari. Grænavatn nær yfir 0,3 prósent Islands. Skráð verð jarðarinnar er tæplega 600 þúsund. Auðkúluverð hennar er um 56 milljónir. Eigendur Grænavatns eru nokkrir en stærstu eigendurnir eru skráðir Helgi Jónasson og Haraldur Helga- son. 10. Úthlíd Þó einhverjar jarðir sem hér hafa ekki verið nefndar kunni að vera stærri en Úthiíð í Biskupstungna- hreppi er hún sett hér í tíunda sæti. Ástæðan er að Úthlíð er lang staersta jörðin á Suðurlandi. Úthlíð er um 100 ferkílómetrar. Fasteignamatið segir hana kosta um 1 milljón króna. En Auðkúluverðið er 17,5 milljónir. Skráðir eigendur eru Björn Sig- urðsson, Halldór Jónsson og fleiri einstaklingar. 06 ÞESSIR EIGA Tíu stærstu kvóta- eigendurnir eiga fjórðung kvótans 1. Grandi Grandi hf. á 8 skip og sameigin- legur kvóti þeirra er um 17 þúsund tonn eða 4,72 prósent af kvóta landsmanna. Miðað við gangverð á kvóta í dag er eign fyrirtækisins því um 2.578 milljónir króna. Stærstu eigendur Granda eru Hvalur hf. 36%, Hraðfrystistöðin 17%, Hampiðjan 15%, Ingvar Vil- hjálmsson hf. 9% Sjóvá-AImennar 6% og OLÍS með 5%. 2. Utgerdarfélag Akureyringa Útgerðarfélagið á átta skip eins og Grandi. Kvóti þess er hins vegar lítið eitt minni eða rúm 16 þúsund tonn sem er 4,42 prósent af kvóta lands- manna. Verðmæti hans er 2.415 mijljónir króna. ÚA er að 66,1% í eigu Akureyrar- bæjar, 9% í eigu KEA, 7% í eigu Slippstöðvarinnar, 5,4% í eigu Hampiðjunnar og Verkalýðsfélagið Eining og Sjómannafélag Akureyrar eiga samtals 3,2% (hér upptalin lið- lega 90%). 3. Haraldur Böövarsson og co. Haraldur Böðvarsson á Akureyri á sex skip og kvóta upp á tæp 9 þús- und tonn eða 2,46 prósent af kvóta landsmanna. Verðmæti hans eru 1.341 milljón króna. Þetta er orðið nýtt stórveldi. Heimaskagi hf. og Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjan hf. sameinuðust Haraldi Böðvarssyni og co. og að auki fékk þetta nýja fyrirtæki annað skipa Krossvíkur, þar sem félagsslit urðu. Stærstu eigendur hins nýja fyrirtækis hljóta að teljast Haraldur Sturlaugsson og fjölskylda. 4. Samherji á Akureyri Samherji á fimm skip með kvóta upp á 8,5 þúsund tonn eða 2,35 pró- sent af kvóta landsmanna. Andvirði hans er um 1.286 milljónir króna. Þetta er fyrirtæki bræðranna og frændanna Þorsteins Vilhelmsson- ar, Kristjáns Vilhelmssonar og Þor- steins Baldvinssonar á Akureyri. Ástæða er til að ætla að þessar tölur séu vanáætlaðar, því samkvæmt heimildum blaðsins keyptu þeir vænan kvóta á síðasta ári. Síldarvinnslan á Neskaupstað Síldarvinnslan á einnig fimm skip en með mun minni kvóta en skip Samherja, eða 6.867 tonnum alls, 1,88 prósent af kvóta landsmanna. Andvirði kvótans er um 1.030 millj- ónir. Eftir því sem næst verður komist er fyrirtæki þetta að talsverðu leyti og örugglega í meirihluta í eigu Nes- kaupstaðarbæjar. 6. Samtog Samtog í Vestmannaeyjum á þrjú skip og kvóta upp á 6.769 tonn eða 1,86 prósent af kvóta landsmanna. Andvirði hans er um 1.015 milljónir. Þetta sýnist vera bræðingsfyrir- tæki Guðmundar Karlssonar í Fisk- iðjunni og Haraldar Gíslasonar í Fiskimjölsverksmiðjunni. 7. Skagstrendingur Skagstrendingur á Skagaströnd á fjögur skip og 6.622 tonna kvóta eða 1,82 prósent af kvóta lands- manna. Andvirði hans er um 993 milljónir króna. Aðaleigendur Skagstrendings eru Höfðahreppur (37%), Hólanes hf. (13%), Sveinn Ingólfsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins (6,5%) og Hlutabréfasjóðurinn (2,5%). 8. Ögurvík Ögurvík í Reykjavík á þrjú skip og er kvóti þeirra um 6.424 tonn eða 1,76 prósent af kvóta landsmanna. Kvótaeignin er því um 964 milljónir. Þetta er fyrirtæki þar sem aðal- eigendur eru bræður Sverris Her- mannssonar bankastjóra, Björn Þórhallsson og fleiri. 9. Útgerdarfélag Skagfirðinga Útgerðarfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki á þrjú skip og kvóta upp á 5.681 tonn eða 1,56 prósent af kvóta landsmanna. Eignin er metin á 852 milljónir. Ekki verður annað séð en að þetta sé að mestu leyti í eigu bæjarins, kaupfélagsins og einstaklinga. 10. Einar Guðfinnsson Einar Guðfinnsson og dótturfyrir- tæki eiga fjögur skip og 5.554 tonn af kvóta eða 1,52 prósent af kvóta landsmanna. Andvirði hans er 833 milljónir. Óþarfi er að fara mörgum orðum um þetta fyrirtæki, þar sem fjöl- skylda Einars var nýverið að sam- eina mörg fyrirtækjabrot í eitt stórt fyrirtæki. Hér koma saman þrjú fyr- irtæki afkomenda Einars Guðfinns- sonar á Bolungarvík, Einar Guð- finnsson hf., Baldur hf. og Völu- steinn hf., til samans með 5.554 tonn. Þ að fær fátt stöðvað fram- göngu Óla K. Sigurðssonar og fyr- irtækja hans. Þótt fyrirtæki hans Sund hf. sé nú til meðferðar hjá skattayfirvöldum virðist það engin áhrif hafa á gengi bréfa í Olís. Sam- kvæmt skráningu á gengi hlutabréfanna hafa þau lækkað úr 2,35 í 2,25, en það þykir mjög eðlilegt í ljósi þess að á aðalfundi var ákveðið að greiða út 10 prósent arð auk þess sem gefin voru út jöfnunarhluta- bréf. Gengi Olísbréfanna er því al- veg samkvæmt bókinni. .. A ^^^thygli vekur að gengi hluta- bréfa í Fróða, sem Magnús Hregg- viðsson stofnaði um blaðaútgáfu Frjáls framtaks, eru skráð undir einum. Þannig hefur það verið lengst af. Þetta þykir hins vegar ekkert óeðlilegt þegar um blaðaút- gáfu er að ræða sem byggir að mestu eignir sínar á hug- lægum hlutum, viðskiptavild og stofnkostnaði tímarita . . . s ^^altfiskútflytjendur sem standa utan viö SÍF bíða enn í ofvæni eftir því að Jón Baldvin Hannibals- son gefi útflutning frjálsan til Spánar. Jón hafði opnað glufu á þann mark- að með því að veita nokkrum aðilum ieyfi til að flytja út flök, með þeim ár- angri að verð til framleiðenda hér á landi snarhækkaði þrátt fyrir aukið magn og SÍF hraðaði uppgjöri gagn- vart framleiðendunum . . . | leiðara í Morgunblaðinu síðast- liðinn þriðjudag segir að miklu skipti hver veljist í embætti sjávar- útvegsráðherra. Ekki síst sé mikil- vægt að viðkomandi sé óháður hinum ýmsu hagsmuna- hópum. Þennan sama daga vissu allir sem vita vildu í Sjálf- stæðisflokknum að Þorsteinn Pálsson tæki við embættinu. Skrif þeirra Styrmis Gunnarssonar og Matthíasar Johannessen ritstjóra Morgunblaðsins eru því túlkuð á þann eina veg, að þeir áskilji sér rétt til að halda enn uppi gagnrýni á þá sjávarútvegsstefnu sem krefur ekki um gjald fyrir aðgang að fiskistofn- unum .. . ÍEnn er ekki ákveðið hver taki við af Eiði Guðnasyni sem formað- ur þingflokks Alþýðuflokksins. Nýr þingmaður, Ossur Skarphéðinsson, hefur verið nefndur til starfans. Þá hefur Gunniaugur Stef- ánsson verið nefnd- ur við formennsku í fjárveitinganefnd. Það mun hins vegar velta töluvert á Karli Steinari Guðnasyni hvernig fer, því Karl Steinar er talinn eiga sjálfkrafa rétt á öllum lausum emb- ættum eftir að ráðherrastóllinn klúðraðist.. .

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.