Pressan - 03.05.1991, Side 18
18
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAÍ 1991
Dagar í lífi borgarstjórabílanna
ÚR RUSLINU í TJÖRNINA
ÚR TJÖRNINNI í RÁÐHÚSIÐ
Gunnar var að aka niður
Skálholtsstíginn biluðu
bremsurnar og endaði öku-
ferðin í sjálfri Tjörninni!
Nú er númerið fest á Cadill-
ac Fleetwood special bifreið
Davíðs Oddssonar, sem hann
lét kaupa hjá Sambandinu
fyrir fáeinum árum (hörðustu
sjálfstæðismenn skömmuðu
Davíð fyrir að svíkja lit, hann
átti auðvitað að kaupa bíl af
einkaframtakinu). Ekki er vit-
að til þess að Davíð hafi ekið
ofan í Tjörnina, en í hana setti
hann þó eitt stykki ráðhús.
Meðfylgjandi myndir úr
fyrri tíð eru úr einkasafni
Bjarna Einarssonar frá Túni.
Þær sýna ruslabílinn og ösku-
karla á Suðurgötunni og svo
borgarstjórabílinn í Tjörn-
inni. Loks fylgir nýrri mynd
af Davíð og Kádiljáknum í
Tjörninni, þ.e.a.s. á stað þar
sem hluti Tjarnarinnar var.
R-612. Þetta er eitthvert
frœgasta bílnúmer landsins,
númerid á bifreid borgar-
stjórans í Reykjavík. I dag er
þetta númer skrúfad ú hinn
liðlega 5 metra langa Kádi-
Iják, sem Davíd Oddsson loet-
ur skutla sér í.
Færri vita að í upphafi hékk
númerið R-612 á ruslabíl,
nánar tiltekið á GMC bifreið,
árgerð 1930. Snemma á
fimmta áratugnum fékk núm-
erið uppreisn æru, var tekið
úr öskunni og sett á bíl hátt-
virts borgarstjóra.
Síðari hluta fimmta áratug-
arins var númerið komið á
hina stórglæsilegu límósínu
De Soto árgerð 1946, sem þá-
verandi borgarstjóri, Gunnar
Thoroddsen heitinn, hafði til
umráða. Ekki var bifreiðin
gallalaus, því eitt sinn er
ÁRNI NJÁLSSON VALSARI SELDI KR—
„Eg sagbi alllaf ud þetta
væru mistök hjá Bifreiöa-
skoduninni, ad láta svona
gallhardan Valsara fá bíl-
númeriö KR. Audvitad hvíldi
þetta þungt á Valsararium í
mér og ég sagdi á sínum tíma
í Þjódarsálinni ai) ég yröi
annad hvort ai) breyta núm-
erinu eöa selja bílinn."
Arni Njálsson, hinn lands-
kunni Valsari og íþróttakenn-
ari, var svo óheppinn þegar
fastnúmerakerfið var tekið
upp að fá bílnúmer með bók-
stöfunum KR. l>eir sem til
þekkja vita að slíkt er í and-
stöðu við allt sem Völsurum
er heilagt og fyrir nokkru
greip Arni til þess eina ráðs
BÍLINN
sem hugsanlegt var. Hann
seldi bílinn í Vesturbæinn.
„Þetta var auðvitað mjög
þungt og erfitt fyrir mig, ég
neita því ekki," sagði Arni, en
nú hlær hann að þessu öllu.
,,()fan á allt saman geta
KR-ingar ekki einu sinni unn-
ið titla," bætti hann við.
TENGSL
Guðmundur Magnússon
varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins var einu sinni í Fylk-
ingunni eins og
Birna Þórðardóttir blaða-
maður sem hefur verið
handtekin fyrir óspektir á al-
mannafæri eins og
Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndaleikstjóri sem er Iíka
rithöfundur eins og
Indriði G. Þorsteinsson rit-
stjóri sem er hestamaður að
norðan eins og
Páll Pétursson alþingis-
maður sem er kvæntur borg-
arfulltrúa eins og
Sigurður Pétursson sagn-
fræðingur sem er ísfirðing-
ur eins og
Jósafat Arngrímsson
kaupsýslumaður sem einu
sinni vann á Vellinum eins og
Stefán Valgeirsson fyrr-
verandi þingmaður sem er
í Heimastjórnarsamtökunum
eins og
Ingi B. Ársælsson skrif-
stofumaður sem lenti upp á
kant við Ríkisendurskoðun
eins og
Olafur Ragnar Grímsson
þingmaður sem var einu
sinni blaðamaður eins og
Guðmundur Magnússon
varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Ekki er annað að sjá en kon-
urnar hafi skemmt sér hið
besta og sjálfsagt hefur fjár-
öflunin bara gengið vel. Þá má
geta þess að það er ætlun
PRESSUNNAR að verðlauna
konuna í hringnum um 550
krónur. H.Rós.
Kátar konur
á danskri
kroppa-
sýningu
í okkar ullt of fátœklega
skemmtanalífi eru sem betur
fer einstaka gledigjafar. Því
fengu konur á Sudurnesjum
ad kynnast um daginn þegar
danska fatafellan Kim the
Monster kom í heimsókn og
hélt glœsilega sýningu á
skemmtistadnum Edenborg.
Sýningin vakti mikla lukku
en eins og bent er á í Suöur-
nesjafréttum þá er erfitt að
sjá af hverju hann ber þetta
viöurnefni.
Það voru handknattleiks-
deildir Keflavíkur og Njarð-
víkur sem stóðu fyrir íslands-
för Kims og var það liður í
fjáröflunarátaki deildanna.
Hann tróð auðvitað upp á
sérstöku kvennakvöldi enda
lítið fyrir karlana þar að gera.
KYNLÍF
Hýrt fólk, Hjörleifur og hlutverk kynjanna
Það er gaman að stúdera
kynhegðun fólks. Kynlífið er
mikið til enn ,,í skápnum"
(hommar og lesbíur hafa
engan einkarétt á þessu hug-
taki), þótt hurðin sé aðeins
farin að opnast. í skápnum
er niðamyrkur og flest á rúi
og stúi. Ég var til dæmis rétt
í þessu að svara ekkju í sím-
anum sem vildi fá að vita
hvort sjálfsfróun væri hættu-
leg fyrir hjartað — hún hafði
nefnilega tekið eftir því að
hjartslátturinn ykist svo við
að fá fullnægingu. Ég full-
vissaði hana um að henni
væri alveg óhætt og að þetta
væru fullkomlega eðlileg
viðbrögð líkamans við
kynferðislegri örvun.
Mig langar í þessum pistli
að tæpa á nokkrum kynlífs-
hugtökum í þeirri von að
mér takist að rugla ykkur
aðeins í ríminu. Þessi hugtök
snúast um kynhlutverk,
kynhneigð og það að hafa
heilsteyptan persónuleika
en margir rugla til dæmis
framkomu og fasi alltaf sam-
an við hver kynhneigö við-
komandi gæti verið.
Fyrir kosningar spáði
PRESSAN í útlit nokkurra
frambjóðenda og því hvort
útlitið skapaði manninn (eða
frambjóðandann). Kvenna-
listakonur eiga að hafa hent
leifunum af rauðsokku-
ímyndinni burt og flikkað
upp á stílinn til að falla vel í
kramið hjá kjósendum. Ekk-
ert við það að athuga í sjálfu
sér þó konur standi sig að-
eins í félagslega kynhlut-
verkinu sem kveður á um
það hvaða útlit, hegðun, fas
og framkoma sé hvoru kyn-
inu fyrir sig æskilegust eða
mest til framdráttar. I dag
mega konur alveg vera
kvenlegar án þess að óttast
að missa sjálfstæði sitt fyrir
vikið. Og mikið var skondið
að lesa um rauða jakkann
hans Hjörleifs — ætli hann
hafi þarna ekki stigið örlítið
út fyrir uppskriftina fyrir
æskilegt karlmannsútlit, því
eins og allir vita einoka kon-
ur glaölega liti í fatavali.
En ég minntist á það áðan
að fólk rugli yfirleitt saman
kynhlutverkum og kyn-
hneigð. Karlmannlegar
konur hafa gjarnan fengið
lessustimpil á sig eða fengið
að heyra að þær „höfnuðu
konunni í sér". Kvenlegir
karlmenn heyra sömuleiðis
orgað ,,hommi“ ef þeir
hætta sér út á almannafæri.
Vegna þess að fólk heldur að
karlmannleg kona sé lessa
og kvenlegur karl sé hommi
þá hafa samkynhneigðir að
sjálfsögðu, líkt og annað
fólk, trúað þessum goðsögn-
um líka. Mér segir svo hugur
að sumir hommar sem eru
að koma úr felum, eða lesbí-
ur, taki upp þessa takta sem
lið í að viðurkenna sína kyn-
hneigð. En eftir vissan tíma
áttar þetta fólk sig á því að
það er óþarfi að taka upp
einhverjar stereótýpu-
ímyndir um homma og lesbí-
ur til að koma úr felum. Líkt
og lækna- eða lögfræðinem-
ar á fyrsta ári sem byrja allt
í einu að klæðast jakkaföt-
um en voru bara si sona til
fara í menntó. Til að finnast
maður tilheyra ákveðnum
hópi tekur maður upp
ákveðna takta — ómeðvitað
eða meðvitað. Sem einlægur
þungarokkari fannst mér til
dæmis ekki annað hægt en
að fara í leðurjakka og rifnar
gallabuxur þegar ég fór á
Whitesnake um árið. Spáið
bara í þetta næst þegar þið
farið á einhver mannamót.
Munið bara að útlit eöa
fataval hefur nákvæm-
lega ekkert að segja um
hver kynhneigðin er. Það
eru til karlmannlegir og
sterkir hommar og kvenleg-
ar, aðlaðandi lesbíur. Sam-
kynhneigðir eru yfirhöfuð
. .. útlit eöa fata-
val hefur ná-
kvæmlega ekkert
aö segja um kyn-
hneigðina.
álíka skrautlegur hópur og
heterósexúal fólk.
Það hafa verið gerðar
nokkrar kannanir um tengsl
heilbrigðis og kynhlutverka
og niðurstöðurnar verið
nokkuð samhljóma. Þeir
sem einskorða sig ekki við
fastmótuð hlutverk kynj-
anna og eru það sem kalla
má „androgyn“ persónu-
leikar (hafa í sér bæði
„kvenlega" og „karlmann-
lega" eiginleika) verða síður
veik á geði, eiga auðveldar
með að takast á við sambúð-
arerfiðleika, eru greindari
og meira skapandi. Sveigj-
anlegir karakterar með öðr-
um orðum. Þeir sem eru
fastir í því hvernig þeir eiga
að haga sér farnast ekki eins
vel. Hér er ég ekki að tala
um að það væri best ef kon-
ur og karlar höguðu sér ná-
kvæmlega eins. Það getur
aldrei orðið. Það sem ég er
að tala um er að það er heil-
brigðara að gera sér það
ljóst að við erum ekkert ríg-
bundin í því hvernig kynin
eiga að haga sér út frá sínu
kynferði. Sem karlmaður er
til dæmis hægt að vera
sterkur út á við en það er
líka í lagi að vera lítill i sér og
hafa þörf fyrir umhyggju.
Sem kona er í lagi að hafa
frumkvæði að því að kynn-
ast karlmanni í stað þess að
bíða endalaust eftir drauma-
prinsinum og verða að nú-
tímaþyrnirós.
Spyrjiö Jónu um kynlífiö. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík