Pressan - 09.05.1991, Side 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. MAÍ 1991
FJÁRHAGSVANDI
TENGDASONA
DLIKASIAÐA
mi DNDIR SÖLU
JARÐARINNAR
Blikastaðir.Magnús Þorláksson,
bróðir Jóns Þorlákssonar
forsætisráðherra, breytti staðnum úr
koti í stórbýli á fyrri hluta aldarinnar.
Búskap þar var hætt um 1972, en
Blikastaðir hafa um árabil verið
aðsetur helstu embættismanna
bæjarfélagsins.
Mosfellsbær hafnaði kaupum á jörðinni fyrir 185 milljónir
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar missti af kaupunum á landi
Blikastada fyrir mun hagstæðara verð en Reykjavíkur-
borg ætlar að greiða, með því að slíta viðræðum við land-
eigendur Blikastaða í janúar. Þá lágu fyrir samningsdrög
um að Mosfellsbær fengi landið með jöfnum greiðslum
til tuttugu ára og er raunvirði kaupverðsins um 185 millj-
ónir króna. Landeigendurnir munu hafa verið reiðubún-
ir að gangast inn á þetta, en þá sleit bæjarstjórnin við-
ræðunum. í kjölfarið náðu landeigendur mun hagstæð-
ari samningi við Reykjavíkurborg.
Persónulegt gjaldþrot Grétars M. Hanssonar og fjár-
hagserfiöleikar fyrirtækja hans eru meðal ástæðna þess
að jörðin hefur verið seld. Fjárhagserfiðleikar þessir ýttu
undir að eigendur jarðarinnar, Sigsteinn Pálsson fyrrver-
andi hreppstjóri og Helga Magnúsdóttir, ákváðu að
ganga til samninga um sölu jarðarinnar.
Mosfellsbær leitar nú allra leiða til
að ganga inn í samning Reykjavík-
urborgar, en hefur til þess takmörk-
uð fjárráð. Til vara er vænst hag-
stæðra samninga við Reykjavíkur-
borg um að fá megnið af jörðinni til
baka. Vegna þessara mála hefur
Magnús Sigsteinsson oddviti tekið
sér tveggja mánaða leyfi frá störf-
um.
BLIKASTAÐAHJÓNIN VILDU
SELJA MOSFELLSBÆ JÖRÐINA
Reykjavíkurborg bauð Blikastaða-
hjónum sem kunnugt er 245 millj-
ónir króna fyrir landið og var það
samþykkt. Tilboðið gerir ráð fyrir
45 milljón króna útborgun og 10 ára
skuldabréfi upp á 200 milljónir
króna, verðtryggt með meðalvöxt-
um.
Það hefur hins vegar ekki farið
hátt að Páll Gudjónsson bæjarstjóri
Mosfellsbæjar hafði áður, í samráði
við nefnd á vegum bæjarfélagsins,
átt um nokkurt skeið í viðræðum
við Blikastaðahjónin um kaup á
landinu. í því sambandi voru komn-
ar tölur á blað, þar sem Mosfellsbær
bauð 330 milljónir króna með jöfn-
um greiðslum til tuttugu ára. Bæjar-
stjórnin samþykkti hins vegar í
janúar að fresta öllum samningavið-
ræðum því fjárhagsskuldbinding-
arnar þóttu of miklar miðað við að
byggingaframkvæmdir þar áttu
ekki að hefjast fyrr en eftir 10 til 15
ár. Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR voru Blikastaðahjónin ekki
fráhverf samningsdrögum Mosfells-
bæjar, en fá nú, vegna viðræðuslita
Mosfellsbæjar, mun hagstæðara
kauptilboð frá Reykjavíkurborg.
Auk peningalegra yfirburða borgar-
innar hefur hún nú náð tangarhaldi
á Mosfellsbæ hvað varðar samninga
um breytt lögsögumörk.
REYKJAVÍK BAUÐ 55
MILLJÓNUM KRÓNA BETUR
Þótt tilboð Mosfellsbæjar sé fljótt
á litið hærra er raunin önnur. í 330
milljóna króna boði Mosfellsbæjar
var gert ráð fyrir jöfnum verð-
tryggðum en vaxtalausum greiðsl-
um til tuttugu ára. Reiknað hefur
verið út að raunvirði tilboðsins sé
um 185 milljónir króna og að raun-
virði tilboðs Reykjavíkur sé um 240
milljónir króna.
Reykjavíkurborg býður því í raun
betur upp á um 55 milljónir króna.
Landeigendurnir fá peningana í
hendur á helmingi skemmri tíma.
Til að ganga inn í tilboð Reykjavíkur
þyrfti Mosfellsbær að greiða 80
milljónir á þessu ári og því næsta og
það er bæjarfélaginu ofviða nema
að það myndi bitna harkalega á öðr-
um útgjöldum.
Blikastaðalandið hefur freistað
bæði Reykjavíkurborgar og Mos-
fellsbæjar um áraraðir. Blikastaða-
hjónin hættu búskap 1972 til 1973
og upp úr 1974 hófust viðræður
milli þeirra og Reykjavíkurborgar
um kaup borgarinnar á landinu.
Þær viðræður voru langt komnar
þegar upp úr slitnaði. Oformlegar
þreifingar hafa síðan átt sér stað
endrum og eins. Seint á síðasta ári
hófust hins vegar beinar viðræður
milli landeigenda og viðræðu-
nefndar frá Mosfellsbæ um landa-
kaup, en þær viðræður leiddu ekki
til niðurstöðu.
GJALDÞROT
TENGDASON A RINS
ÝTTI UNDIR SÖLUNA
Hjónin sneru sér til Reykjavíkur-
borgar á ný og náðust samningar á
mjög skömmum tíma. Borgin kaup-
ir samkvæmt samningnum landið
allt, 170 hektara. Þar af er gert ráð
fyrir 90 hekturum sem bygginga-
svæði og 30 hekturum undir grænt
svæði. Afgangur landsins er fyrir of-
an Vesturlandsveg og er ekki fýsi-
legt byggingasvæði eða verðmætt
land, enda í raun um hlíðar Úlfars-
fells að ræða.
Sem fyrr segir ýttu fjárhagslegir
erfiðleikar Grétars M. Hanssonar
undir að Blikastaðahjónin seldu —
en þó skal tekið fram að þau hafa
lengi ætlað sér að ganga frá sölu
landsins. Grétar hefur stundað rútu-
bílaútgerð um all langt skeið, bæði
hérlendis og í Þýskalandi, þar sem
hann hefur gert út rútur í samvinnu
við Samvinnuferðir-Landsýn. Að
kröfu innheimtu ríkissjóðs var Grét-
ar tekinn til gjaldþrotaúrskurðar í
nóvember síðastliðinn, en þó hefur
úrskurður ekki verið kveðinn upp.
A sama tíma var fyrirtæki Grétars
og fleiri, Rútur og bílar hf., úrskurð-
að gjaldþrota og í því máli munu
heildarkröfur vera um 15 milljónir
króna. Grétar er einnig stofnandi og
meðeigandi fyrirtækisins G. Hans-
son hf., hópferðir. Meðeigandi hans,
Albert Rútsson, betur þekktur sem
Alli Rúts, hefur einnig verið tekinn
til gjaldþrotaskipta.
AÐSETUR HELSTU
EMBÆTTISMANNA
MOSFELLSBÆJAR UM ÁRABIL
Það var Magnús Þorláksson,
bróðir Jóns Þorlákssonar ráðherra,
sem gerðist bóndi á Blikastöðum ár-
ið 1909 og breytti því úr koti í stór-
býli á fyrri hluta aldarinnar, en
Magnús dó árið 1942, 67 ára að
aldri.
Hjónin Sigsteinn Pálsson og Helga
Magnúsdóttir Þorlákssonar tóku þá
við búinu. Um leið og það var stór-
býli var það aðsetur helstu embætt-
ismanna Mosfellshrepps, því Helga
sat í hreppsnefnd 1954 til 1962, þar
af oddviti siðustu 4 árin og Sigsteinn
var hreppstjóri 1964 til 1985.
Börn og tengdabörn þeirra hafa
ekki síður gegnt trúnaðarstörfum
fyrir sveitarstjórnina. Nú er Magnús
Sigsteinsson oddviti bæjarstjórnar
og hefur setið í hreppsnefnd/bæjar-
stjórn frá því 1978. Hann, Grétar og
Elínborg Kristín hafa setið í ýmsum
nefndum á vegum sveitarfélagsins.
Sigsteinn og Helga stunduðu bú-
skap á Blikastöðum í þrjá áratugi, en
1971 til 1972 var búskapurinn af-
lagður og um sextíu kýr seldar.
FÁ 80 MILLJÓNIR í VASANN
Á EINU OG HÁLFU ÁRI
Sigsteinn, sem er sjálfstæðismað-
ur eins og flestallir í fjölskyldunni,
hefur lýst ástæðum þessa í viðtali:
,,Það var komin vinstri stjórn í
landinu og sú ætlaði nú heldur bet-
ur að láta að sér kveða. Það átti t.d.
að hækka öll laun um 20 prósent.
Það og ýmsar aðrar ráðstafanir
þeirrar stjórnar leiddi til þess að ég
sá að það var ekki lengur hægt að
reka búið með hagnaði."
Fleira kom til: Erfitt var að fá fólk
í landbúnaðarstörfin, miklar og
kostnaðarsamar framkvæmdir voru
nauðsynlegar ef framhald ætti að
vera á búskapnum og Mosfells-
byggðin var að hellast yfir býlið.
Nú, 30 árum síðar, hefur 170 hekt-
ara jörðin verið seld á 245 milljónir
króna, þar sem landeigendurnir fá
um 80 milljónir króna beint í hend-
urnar á næsta eina og hálfa ári. í
samtali við PRESSUNA vildi Helga
Magnúsdóttir sem minnst ræða sölu
jarðarinnar. ,,Við erum orðin eldri
hjón og þótti okkur rétt að athuga
okkar gang og gera þetta upp á
þessum tíma."
Friðrik Þór Guðmundsson