Pressan - 09.05.1991, Síða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. MAÍ 1991
11
Hann lenti I
hörmungum stríðsins!
Langflest fórnarlömb nútímastyrjalda
eru óbreyttir borgarar. Níu af hverjum
tíu hafa aldrei klæðst herklæðum eða
borið vopn.
Á hinum svokölluðu “eftirstríðsárum”
síðan 1945 hafa ekki færri en 20 milljónir
manna farist í fleiri en 100 styrjöldum,
60 milljónir til viðbótar hafa særst,
skilist frá fjölskyldum sínum eða neyðst
til að flýja heimili sín eða ættjarðir.
I Genfarsáttmálanum, sem 164 ríki
hafa undirritað, eru skýrar reglur um að
óbreyttir borgarar, sem búa við svart-
nætti styrjalda, eigi rétt á vernd gegn
morðum, pyntingum, ólögmætri
fangelsun og gíslatöku.
I því skyni að beina athygli heimsins
að hörmungum milljóna óbreyttra
borgara hafa Rauði krossinn og Rauði
hálfmáninn ráðist í heimsátak til að
veita stríðshrjáðum þá vernd og aðstoð
sem þeim ber samkvæmt alþjóðalögum.
Við heitum á ríkisstjórnir og stríðs-
fylkingar um heim allan að virða rétt
þeirra sem verða fyrir barðinu á stríði
sem þeim kemur oftast ekkert við.
En við megum ekki sitja auðum
höndum meðan fólk um heim allan líður
þjáningar.
Hinn 12. maí gengst Rauði kross
íslands fyrir landssöfnun og verður því
fé sem safnast varið til Kúrdískra
flóttíunanna og til að koma á fót
gerviliinasmiðju í Afganistan þar sem
þúsundir Afgana bíða þess að fá
gervilimi svo þeir geti hafið eðlilegt líf
að nýju eftir því sem við verður komið.
Það er siðferðileg skylda okkar að gera
það sem í okkar valdi stendur til að lina
þjáningar þessa fólks.
Hjálpið okkur að hjálpa þeim.
Helmingur söfnunarfjár
rennur til kúrdískra flóttamanna
+c
SÓL ÚR
SORTA
Alheimsátak
til hjálpar stríðshrjáðum
ARGUS/S ÍA