Pressan - 09.05.1991, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. MAÍ 1991
9íí)jnt*
tðleufiihnr
fijóðSögur
Þaö þótti lengst af frekar
töff aö söngvarar á sveita-
böllum syngju íslenskuna
með svolítiö engilsaxnesk-
um hreim. Því datt engum i
hug aö gera neinar athuga-
semdir við þaö þótt aðal-
stjarnan í vinsælustu
hljómsveitinni á Austfjörð-
um syngi „Hér stóö bær
meö furstir fjórar/ hér stóö
bær á lágum hól..."
En eitt sinn er hljóm-
sveitin var aö koma frá því
aö spila á dansleik á Djúpa-
vogi og hljómsveitarmeö-
limir dormuðu heldur fram-
lágir í rútunni sem hlykkj-
aöist um Berufjörðinn, reis
söngvarinn upp.
„Hei, strákar! Sjáiöi
furstabæinn þarna!"
(Úr popparasögum)
Bóndi á Jökuldal hafði
um langt skeiö átt töluverö
viðskipti viö Glóbus, keypt
þar dráttarvélar og þau
landbúnaöartæki og vara-
hluti sem fyrirtækiö haföi
upp á aö bjóöa, enda líkaði
honum þjónustan afar vel.
Nú fannst honum oröiö
timabært aö tala viö aöal-
manninn í fyrirtækinu.
— „Glóbus, góöan dag,"
svaraöi símastúlkan meö
sinni hljómfögru rödd.
„Já, blessuð, gæti ég
fengið aö tala viö Glóbus
sjálfan," svaraöi bóndi og
kynnti sig í bak og fyrir.
— „Þvi miður herra
minn, hér er enginn Gló-
bus."
„Hverslags svör eru
þetta eiginlega," svaraöi
bóndi og fannst komið
fram viö sig af heldur lítilli
kurteisi. „Ég krefst þess aö
fá aö tala viö Glóbus sjálf-
an."
(Úr sveitavargssögum)
Útlendingar sem komu í
Hótel Valhöll á Fáskrúös-
firöi á sínum tíma þurftu
helst aö kunna íslensku til
aö geta gert sig skiljanlega.
Aö minnsta kosti gátu þeir
lent í hinu mesta brasi meö
aö biöja um jafn einfaldan
hlut og „breakfast".
„Ha, þekkiö þiö Berg-
kvist?" hváöi hótelstýran
þegar gestirnir báru fram
ósk sína.
Eftir aö gestirnir sem
voru hálfhungurmorða
höföu boriö ítrekaö upp er-
indið svaraöi hótelstýran:
„Nei, því miöur, Berg-
kvist er líklega á sjó."
(Úr þorparasögum)
Friðwm mýrqmqr
Fuglaskoöarinn Einar Þorleifsson lítur eftir fuglum. S ÞÓR
Einar Þorleifsson hefur
hafl áhuga á fuglaskodun al-
uegfrá þuí hann man eftirsér.
Hann segist hafa byrjad ad
skoda fugla ad einhverju
markiárid 1979 og sídan hef-
ur fuglaskoöunin undid upp
á sig. Einar uann um tíma við
að skoða fugla á Tjörninni í
Reykjauík, en rannsakar um
þessar mundir vaðfugla á
Suðurlandi ásamt Jóhanni
Óla Hilmarssyni og aðstoðar
Ólaf Karl Nílsen uið fálka-
rannsóknir á Norðurlandi.
Hvers vegna þessi áhugi á
fuglum, Einar?
„Ahuginn hefur alltaf verið
til staðar, en eftir að ég byrj-
aði að skoða fugla hefur þetta
undið upp á sig. Maður er allt-
af að sjá eitthvað nýtt og upp-
götva eitthvað nýtt. Sér fugla
sem maður hefur ekki búist
við að sjá og svo framvegis.
Fuglarnir sem slíkir eru líka
bæði failegir og fjölbreytileg-
ir og sýna allskonar atferli
sem getur verið gaman að
fylgjast með.
Það er auðveldara að
skoða fugla en flest önnur
dýr. Þeir geta flogið og þurfa
því ekki að óttast þá sem eru
bundnir jörðinni eins mikið
og spendýr, til dæmis refur-
inn."
Huernig skoðar maður
fugla?
„Maður er með kíki, geng-
ur um ákveðið svæði og skrá-
ir niður það helsta sem mað-
ur sér."
Einar segir að síðan sendi
hann allar upplýsingar um
það sem hann uerður vísari
um merkta fugla til Náttúru-
frœðistofnunar, sem í staðinn
lœtur honum í té allar upp-
lýsingar sem stofnunin á um
viðkomandi fugl. Þannig get-
ur hann séð hvar fuglinn hef-
ur sést áður og huernig hann
hegðar sér.
Hvert ferðu helst til að
skoða fugla?
„Ég hef skoðað mest hér á
Reykjavíkursvæðinu, í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu og nú hin
síðari ár á Suðurlandsundir-
lendinu."
Hvar er helst að skoða
fugla á Reykjauikursvœðinu?
„Til dæmis í skógræktinni í
Fossvoginum, en einnig á Sel-
tjarnarnesinu og Álftanesinu.
Þar er mikið fuglalíf. í Reykja-
vík eru líka miklar fjörur og
þar sem þeim hefur ekki ver-
ið spillt er mikið fuglalíf. í
Grafarvoginum og Kópavog-
inum er einnig mikið af fjöru-
fugli."
Þú hefur unnið við að
skoða fugla?
„Já, ég hef aðstoðað við
fuglarannsóknir frá 1981. Ég
var í fjögur ár hjá Reykjavík-
urborg eða til '85, en það
starf fólst meðal annars í því
að fylgjast með fuglalífinu á
Tjörninni. Hvaða fuglar væru
þar, að varpið gengi vel, telja
ungana og fylgjast með af-
komunni. Ef eitthvað brá útaf
var reynt að koma í gang að-
gerðum, til dæmis ef minkur
komst á svæðið.
Ég fylgdist líka með ef
framkvæmdir voru í Vatns-
mýrinni, að menn væru ekki
að skemma neitt að óþörfu.
Síðan ég hætti hjá borginni
hef ég aðstoðað Ólaf Karl Níl-
sen, sem framkvæmir fálka-
rannsóknir á Norðurlandi.
Við fylgjumst með öllum
fálkasetrum á því svæði."
Einar segist hafa gaman af
að skoða fugla í mýrum og á
uotlendissuœðum.
„Það er skemmtilegt land.
Gróskumikið og mikill fjöldi
fugla á votlendissvæðum. Á
einum stað í fyrra fundum við
við 81 par af lóuþræl á fer-
kílómetra í votlendi við Ölf-
usá í Flóanum, sem er gífur-
legur fjöldi.
En það er einmitt sérstakt
við fugla á íslandi og það er
geysilegur einstaklingafjöldi
og gríðarlega stórir stofnar."
Eins og áður sagði uinnur
Einar að rannsóknum á vot-
lendisfuglum á Suðurlands-
undirlendinu, ásamt Jóhanni
Óla.
„Við erum að kanna hvað
er eftir að mýrlendinu, því
mikið af því hefur verið ræst
fram, og hvaða fuglalíf er í
þessu votlendi sem er eftir.
Það er full ástæða til að
friða þær mýrar sem eru eftir
á Suðurlandi, því fuglinn
hverfur af þeim svæðum sem
ræst hafa verið fram. Það er
einfaldlega ekki pláss fyrir
hann þar lengur."
Huenœr Ijúkið þið þessari
könnun?
„í sumar. Annars er erfitt
að tala um að klára, því það
er endalaust hægt að bæta
við upplýsingum."
Eruð þiö farnir að huga að
nœsta verkefni?
„Það er margt sem væri
áhugavert að kanna, en ætli
það verði ekki eitthvað í svip-
uðum dúr, í Borgarfirðinum."
Kemuröu oft auga á fugla
sem ekki hafa sést hér áður?
„Ég hef alloft séð fugla sem
ekki hafa sést áður á Islandi,
Það er algengt á haustin og
vorin, og oft spilar veður þar
inn í. Ef lægðir liggja í sterkri
suð-austan átt í september/
október berst hingað mikið af
ýmsum spörfugli.
Það koma hingað líka fugl-
ar sem ekki verpa hér. Ég hef
einmitt verið að telja gæsir
og álftir með breskum vís-
indamönnum, sem þeir elta
hingað frá Bretlandseyjum.
Þær verpa á Grænlandi, þar
sem nær ógerlegt er að kom-
ast að þeim.“
Attu þér eftirlœtis fugl?
„Nei, ég get ekki sagt að ég
eigi neinn uppáhaldsfugl.
Krummi er þó skemmtilegur
fugl, með karakter. Og fálk-
inn er svipmikill og sjálfstæð-
ur,“ segir fuglaskoðarinn Ein-
ar Þorleifsson.
SJÚKDÓMAR OG FÓLK
Tvíburabródir
Þetta hafði verið langur
dagur og einungis einn sjúkl-
ingur eftir á listanum.
— Næsti, kallaði ég fram á
biðstofuna. Þar stóð einn
maður upp á endann, þján-
ingarfullur á svip. Hann
gekk með mér inn á stofuna
hægum vaggandi skrefum
eins og hann fyndi til í
hverju spori. — Fáðu þér
sæti, sagði ég. — Ég get ekki
setið, sagði hann, svo að ég
stend. — Jæja, sagði ég,
hvað get ég gert fyrir þig?
— Mig vantar vottorð til
vinnuveitandans og ein-
hverjar róandi töflur, sagði
hann. Ég var að koma úr að-
gerð fyrir viku og er ennþá
óvinnufær. Hann vaggaði í
sömu sporum og virtist líða
illa. Sviti perlaði á enninu,
hann var fölur og órakaður.
Fötin voru þreytuleg útlits
og skórnir illa burstaðir. Ég
fann nú greinilega hvernig
súrsæta gamla brennivíns-
lykt lagði af manninum.
— Hvað var að þér? spuröi
ég. — Ég var að láta drepa
tvíburabróður minn, sagöi
hann og það vottaði fyrir
grátviprum í munnvikjun-
um. Maðurinn var greinilega
við skál og meyr og við-
kvæmur eins og drukkinna
manna er háttur. — Þú
meinar að þú hafir verið í
sinus polinidalis aðgerð
sagði ég, það á ekkert skylt
við tvíburabróður. — Ekki
°™^U/VDSS0,V
það, sagði maðurinn, hver
djöfullinn er þetta þá. Þetta
er nú samt alltaf kallaður tví-
burabróðir. — Já, sagði ég,
en það er rangnefni.
EINKENNi OG ORSÖK
Tvíburabróöir var einu
sirini kölluð jeppaveiki
vegna þess hversu algengt
þetta ástand var á meöal
amerískra hermanna i
heimsstyrjöldinni síðari.
Tæplega 100.()()() hermenn
leituöu til lækna vegna
þessa á árunum 1942-1945
og vildu margir kenna um
glannalegum akstri á holótt-
um vegum á illa fjaðrandi
jeppum. Sjúklingur leitar
venjulega til læknis vegna
ígerðar rétt ofan við enda-
þarmsopið í rassskorunni
rétt utan við miðlínu en ekki
í botni skorunnar. Einkennin
eru verkir, hiti og eymsli eins
og ávallt þar sem ígerð mall-
ar undir húð. Þegar þetta ér
opnað með hnífsblaði batn-
ar líðanin eins og alltaf þeg-
ar ígerð er opnuð og greftri
hleypt út. Gatið eftir stung-
una helst opið nokkra hríð
og stundum gægjast út úr
því litlir hárlokkar. Þetta hár
er undirrót nafngiftarinnar.
Menn héldu að sumir fædd-
ust með lítinn poka neðst á
bakinu milli skinns og beina
og yxu hár í honum eins og
á venjulegri húð. Sýkingin
var talin stafa af því að
bakteríur kæmust í pokann
og hárin viðhéldu síðan sýk-
ingunni. Menn álitu að þessi
poki með hárum væri leyfar
einstaklings sem ekki auðn-
aðist að komast lengra en
þetta á þroskabrautinni og
varð innlyksa ofan í poka á
líkama annars einstaklings.
Nú á tímum hafa menn aðrar
hugmyndir um orsök þessa
sjúkdóms. Talið er að húðin í
rassskorunni særist af lík-
hárum sem þar eru og hárin
myndi smám saman göng
sem bakteríur komast í og
valdi þá sýkingu. Það styður
þessa kenningu að sjúkdóm-
urinn kemur aldrei hjá börn-
um og leggst einkum á þá
sem vaxnir eru dökku og
stríðu líkhári.
MEÐFERÐ
Meðferð þessa kvilla er
aðgerð. Þá er allt ígerðar-
svæðið með göngum og
gangnaopum skorið í burtu
og sárið saumað saman.
Stundum vill sækja í sama
horfið aftur þegar mikill hár-
vöxtur er í kringum sárið.
Það er því sérlega þýðingar-
mikið að reyna að eyða öll-
um hárum sem þarna koma
upp með smyrslum og
rakstri meðan húðin er að
jafna sig eftir aðgerðina.
GRÁTUR OG FYLLERÍ
— Svo þetta var þá ekki
tvíburabróðir minn, sagði
maðurinn með undrun og
söknuði í röddinni. — Svona
líta vísindin á þessi mál nú á
tímum, sagði ég. — Gefðu
mér samt vottorðið, sagð
hann. Ég er alveg óvinnu-
fær, en þú mátt aldrei segja
konunni þetta. Ég er nefni-
lega búinn að drekka í 5
daga út á þennan bróður
minn sem aldrei varð að
manni og tala um allt það
yndislega og skemmtilega
sem við hefðum getað gert
saman. Kannski hefðum við
getað farið í útgerð. Tárin
hrundu niður órakaða vang-
ana eins og björg niður
bratta fjallshlíð. — Þú verður
að finna þér eitthvað annað
til að drekka út af, sagði ég.
— Já, sagði hann, kannski
ég drekki bara af því að ég
átti aldrei neinn bróður. Fæ
ég engin róandi lyf? — Nei,
sagði ég, þú ert alltaf á fyll-
eríi og engir læknar með
sómatilfinningu blanda
róandi lyfjum saman við
áfengi sem menn eru að
drekka. Hann þerraði tárin
úr augunum, rétti úr sér,
stakk vottorðinu í vasann og
gekk óhaltur út.